Fleiri fréttir

Leita fimm Pakistana

Lögregla í Egyptalandi leitar nú fimm Pakistana sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á hryðjuverkunum í Sharm el-Sheik um helgina. Öryggisfulltrúum á Sínaískagasvæðinu var mörgum hverjum sagt upp í kjölfar árásanna og þeir sagðir hafa sofið á verðinum.

Súnníar aftur með í ferlinu

Súnní-Arabar hafa aftur tekið sæti sín í nefnd sem fjallar um stjórnarskrá fyrir Írak. Þeir höfðu sniðgengið nefndina í tæpa viku til að mótmæla morðum á tveimur samstarfsmanna þeirra, Súnnía sem sæti áttu í nefndinni.

Hryðjuverkamannanna leitað

Átök brutust út þegar egypska lögreglan umkringdi tvö þorp þar sem talið var að hryðjuverkamenn héldu til. Alþjóðlegum hryðjuverkamönnum er kennt um tilræðin í Sharm el Sheikh sem kostuðu áttatíu og átta lífið.

Kennsl borin á tvo tilræðismenn

Vitað er hverjir tveir hryðjuverkamannanna eru sem gerðu tilraun til árásar í London í síðustu viku. Lundúnalögreglan handtók í dag tvo menn en tilræðismannanna er leitað og óttast að þeir leggi á ráðin um fleiri tilræði.

Vill rétta yfir Saddam í Svíþjóð

Giovanni di Stefano, einn verjenda Saddams Husseins, hefur farið þess á leit við írösku ríkisstjórnina að réttarhöld yfir forsetanum fyrrverandi verði færð til Svíþjóðar. Þetta segir di Stefano nauðsynlegt vegna þess að ástandið í Írak sé of hættulegt til að hægt sé að rétta yfir honum þar.

Danir og Kanadamenn deila um smáey

Danska ríkisstjórnin tilkynnti í gær að hún muni mótmæla því skriflega við kanadísk yfirvöld að kanadíski varnarmálaráðherrann, Bill Graham, steig á land á Hans eyju fyrir fáeinum dögum án þess að láta Dani vita.

Ferðamenn fluttir heim

Fjöldamorðin í Sharm el-Sheikh, í gær hafa vakið ótta meðan ferðamanna og margir þeirra vilja komast strax aftur til síns heima. Ferðaskrifstofur hafa brugðist við með því að senda auka flugvélar til hafnarborgarinnar, til þess að flytja farþega sína heim.

Lögreglan heldur vinnureglum

Breska lögreglan hefur harmað að saklaus maður skyldi skotinn til bana, í Lundúnum, síðastliðinn föstudag. Lögreglustjóri höfuðborgarinnar segir að lögreglan muni samt halda áfram að skjóta til þess að drepa, ef þörf krefji.

Kínverjar opna fyrir Tævani

Kínverjar hafa einfaldað reglur sínar um ferðamenn frá Tævan, til þess að auka efnahagsleg tengsl sín við eyjuna.

Átök á Gaza svæðinu

Palestínumenn drápu tvo Ísraela nálægt landamærum Gaza svæðisins í dag. Það gerðist rétt í þann mund sem Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, yfirgaf Ísrael. Hún kom til Miðausturlanda til að reyna að stöðva ofbeldisölduna sem stefnir friðarferlinu í hættu.

Gleðipillur skemma tennur

Þunglyndislyf geta aukið hættuna á tannskemmdum. Í Danmörku eru dæmi um að fólk, sem tekur slík lyf, hafi fengið tíu holur í tennurnar á einu ári.

Tilræðismaður slasast í Kaíró

Lítil sprengja sprakk í suðvestuhluta Kaíró í dag. Ekki slösuðust aðrir en maðurinn sem bar sprengjuna og litlar skemmdir urðu á byggingum. Sprengjan var frumstæð naglasprengja og sprakk í anddyri hús sprengjumannsins þegar hann var á leið inn til sín.

Öflug sprenging í Bagdad

Sjálfsmorðsárás var gerð á lögreglustöð í Baghdad í dag. Árásarmaðurinn keyrði vörubíl hlöðnum sprengiefni á lögreglustöðina og talið er að a.m.k. 22 hafi látist og 30 særst. Sprengjan var gríðarlega öflug og ummerki hennar sýnileg á stóru svæði, stór sprengigígur og einnig skemmdust hús og bílar.

Jarðskjálfti í Indlandshafi

Gríðarlega öflugur jarðskjálfti, 7,2 á Richter, varð í dag við Níkóbar eyjar í Indlandshafi rétt austan við Taíland. Í Níkóbar eyjaklasanum eru um það bil fimm hundruð smáeyjar. Indversk stjórnvöld hafa staðfest að 3000 mann hafi látist þar í hamförunum á annan dag jóla 2004. Aðvörun hefur borist um að við upptök skjálftans gæti orðið vart flóðbylgju og fólk beðið um að vera í viðbragðsstöðu.

Kínverjar rýmka ferðaleyfi

Fyrsti hópur kínverskra ferðamanna í skipulagðri hópferð kom til Bretlands í dag. Búist er við að margir þeirra verði horfnir, þegar að heimferðinni kemur. Fyrr á þessu ári bættu kínversk stjórnvöld Bretlandi við þau lönd kínverjar mega heimsækja, sem ferðamenn.

Lítið um afpantanir til London

Eftirspurn eftir flugi til London hefur minnkað sáralítið og nánast ekkert hefur verið um að fólk afpanti ferðir sínar þangað, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair.

Ferðamenn yfirgefa Egyptaland

Myndbandsupptaka hefur borist af annarri bílsprengjunni í Egyptalandi. Evrópskir ferðamenn streyma frá Sharm el-Sheikh, þúsundum saman.

Saka lögregluna um vanhæfni

Fjölskylda unga Brasilíumannsins, sem breska lögreglan skaut til bana í misgripum fyrir hryðjuverkamann, er harmi lostin. Hún skilur ekkert í hvernig þetta gat gerst.

Páfi hittir múslima í Þýskalandi

Benedikt XVI páfi fordæmdi í gær aftur hryðjuverk sem framin voru nýlega í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Þá bað hann guð um að taka fyrir hendur hryðjuverkamanna. Í næsta mánuði fundar páfi með fulltrúum múslima í Köln í Þýskalandi og segir talsmaður páfa hann telja að fundurinn verði afar mikilvægur.

Yfir 70 manns í haldi lögreglu

Lögreglan í Egyptalandi hefur tekið yfir 70 manns til yfirheyrslu vegna sprenginganna á föstudagskvöld. Einn ódæðismanna mun hafa látið lífið í sprengingunni en þriggja er enn leitað. Ódæðin valda búsifjum í ferðaþjónustu landsins.

Sprengja slasar tvo í Tyrklandi

Að minnsta kosti tveir slösuðust í sprengingu á kaffihúsi í Istanbul seint á laugardagskvöld. Lögreglan telur að sprengjan hafi annað hvort verið sprengd með fjarstýringu eða búin tímastilli. Sprengt var á vinsælum ferðamannastað við Galata-brúna.

Kóreska konungsættin öll

Yu-Ki, sonur síðasta ríkisarfa kóresku konungsættarinnar, sem ríkti í á tímavilinu 1392 til 1910, var borinn til grafar í gær og markar það endalok Chosun-konungsættarinnar. Þúsundir Suður-Kóreubúa fylgdu Yu-Ki þegar hann var borinn til hinstu hvílu.

Kærður fyrir afneitun þjóðarmorðs

Tyrkneskur stjórnmálamaður sætir nú sakarannsókn í Sviss vegna ummæla sinna um að þjóðarmorð Tyrkja á Armenum á tímum fyrri heimsstyrjaldar væri "lygi". Dogu Perincek, sem á tímabili var formaður Verkamannafloks Tyrklands, er grunaður um að hafa brotið gegn svissneskum lögum sem banna hatursáróður og kynþáttamisrétti.

Bílsprengja banar tugum í Bagdad

Sjálfsmorðssprengjumaður ók vörubíl hlöðnum sprengiefni á lögreglustöð í Bagdad í gær, með þeim afleiðingum að 22 menn að minnsta kosti létu lífið og þrír tugir til viðbótar særðust, að því er írösk lögregluyfirvöld greindu frá. Talsmenn Bandaríkjahers sögðu að minnsta kosti 40 hafa farist.

Lundúnalögreglan biðst afsökunar

Lögreglustjórinn í Lundúnum, Ian Blair, baðst í gær opinberlega afsökunar á því að lögregla skyldi hafa skotið til bana brasilískan rafvirkja, sem ekki tengdist hryðjuverkaárásunum í borginni á nokkurn hátt. Blair varði engu að síður þá stefnu lögreglunnar að hika ekki við að skjóta menn ef ástæða væri til að gruna þá um að bera á sér sprengju.

Sterkur skjálfti í Indlandshafi

Jarðskjálfti að styrkleikanum sjö á Richter-kvarða skók Nicobar-eyjar í austanverðu Indlandshafi í gær. Skjálftinn olli mikilli skelfingu meðal fólks á eyjunum og flóðbylgjuviðvörun var gefin út í Taílandi, en Taílandsströnd er í um 250 km fjarlægð frá eyjunum. Eftir því sem næst varð komist varð þó ekki teljandi tjón af völdum skjálftans.

Sharon hótar hertum aðgerðum

Ísraelsher mun grípa til "fordæmislausra aðgerða" efni herskáir Palestínumenn til árása á ísraelska hermenn og landtökumenn er byggðir gyðinga á Gazaströndinni verða rýmdar í næsta mánuði. Þessu hótaði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, eftir að tveir Ísraelar voru drepnir í bíl er skotið var á þá úr launsátri á Gazasvæðinu í gær.

Lögreglan fann leynigöng

Bandaríska og kanadíska lögreglan hafa fundið 110 metra löng göng sem ætluð voru til að smygla eiturlyfjum milli Kanada og Bandaríkjanna. Göngin lágu frá kofa í Kanada og inn í stofu íbúðarhúss í Bandaríkjunum.

Sterling hyggst ná þrefaldri stærð

Skandinavíska flugfélagið Sterling stefnir að því að þrefalda stærð sína á næstu þremur til fjórum árum. Þetta hefur norska dagblaðið Aftenposten eftir Almari Erni Hilmarssyni, nýráðnum forstjóra Sterling.

Meirhluti þings vill Roberts

Meirihluti Bandaríkjamanna er fylgjandi því að Öldungadeild þingsins staðfesti skipun Johns Roberts, í embætti hæstaréttardómara. Fólk vill þó vita um afstöðu hans til fóstureyðinga, áður en til þess kemur.

Sprengjuárásir í Egyptalandi

Að minnsta kosti sjötíu og fimm manns létu lífið í röð sprengjuárása í Egypska strandbænum Sharm El Sheik, við Rauðahafið, í morgun. Tvöhundruð til viðbótar eru særðir.

83 látnir og hundruðir særðir

Að minnsta kosti áttatíu og þrír létu lífið í röð sprengjuárása í Egypsku hafnarborginni Sharm el-Sheik, við Rauðahafið, í morgun. Mörghundruð til viðbótar eru særðir. Fjölmargir erlendir ferðamenn eru meðal hinna myrtu og slösuðu.

Annar handtekinn í Lundúnum

Breska lögreglan handtók í dag annan mann vegna sprengjutilræðanna í Lundúnum, á fimmtudag. Ekki hefur verið upplýst hvort hann er einn af fjórum mönnum sem lýst er eftir vegna ódæðisins.

Íslendingar í Sharm el-Sheik

Jón Diðrik Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka er staddur í Sharm el-Sheik ásamt fjölskyldu sinni og nokkrum öðrum Íslendingum. Fjölskyldan var úti á svölum þegar ósköpin dundu yfir.

Sprengja á Spáni

Sprengja sprakk í Santiago de Compostela á Spáni fyrr í dag. Engin slys urðu á fólki því áður en sprengjan sprakk hafði lögreglunni borist aðvörun og gat því bæði rýmt svæðið og haldið vegfarendum frá. Santiago de Compostela er vinsæll ferðamannabær og þangað streyma þúsundir kristinna pílagríma á hverju ári.

Öflugur jarðskjáflti í Tókýó

Öflugur jarðskjálfti sem mældist 6,0 á Richter skók Tókýó snemma í morgun. Þetta er öflugasti jarðskjáflti sem mælst hefur í borginni frá 1992. Enginn lést en talið er að 27 hafi slasast. Lestarkerfið og flugsamgöngur lágu niðri í nokkurn tíma og fjöldi manns festist í lyftum. Upptök skjálftans voru í Chiba héraði sem er í um 90 kílómetra austur af Tókýó.

Tengdist ekki árásunum

Breska lögreglan hefur staðfest að maðurinn sem skotinn var á Stockwell lestarstöð í gær tengdist ekki hryðjuverkunum á fimmtudag. Í yfirlýsingu frá lögreglunni er atburðurinn harmaður og beðist afsökunar.

Discovery í loftið á þriðjudag

Bandaríska geimferðastofnunin NASA áætlar að skjóta Discovery á loft næstkomandi þriðjudag klukkan 14:39 að íslenskum tíma. Áhöfnin kom til Flórída í gær til lokaæfinga sem standa munu yfir þar til og ef af flugtaki verður í þetta sinn.

Breska lögregla bæði harmar og ver

Breska lögreglan hefur upplýst að maðurinn sem var skotinn til bana í gær, hafi ekki tengst sprengjutilræðunum síðastliðinn fimmtudag. Ekki var hins vegar sagt hver maðurinn var, eða hvers vegna hann var undir eftirliti. Breska lögreglan ver eftir sem áður þá stefnu að það skuli skotið til að drepa, þegar fengist er við hugsanlegan sjálfsmorðssprengjumann.

Óhugnanleg lífsreynsla

Íslendingur, sem ásamt fjölskyldu sinni varð vitni að fjöldamorðum í Egyptalandi í morgun, segir að það hafi verið óhugnanleg lífsreynsla. Að minnsta kosti áttatíu og átta manns biðu bana í árásunumHver sprengingin af annarri skók Sharm El Sheik snemma í morgun, og aðkoman var skelfileg.

88 látnir í sprengjuárás

Á annað hundrað manns slösuðust og 88 létust í sprengjuárás í Egypska ferðamannabænum Sharm el-Sheik á aðfararnótt laugardags. Sjö Íslendingar sem eru á staðnum sluppu allir ómeiddir. Íslamskir öfgahópar tengdir al-Kaída hafa lýst yfir ábyrgð á árásunum. </font /><font face="Helv" color="#000080" size="2"></font></b />

Sjö Íslendingar á svæðinu

Sjö Íslendingar, tvær fjölskykldur, eru staddir á svæðinu þar sem sprengjuárásirnar í Egyptalandi urðu á aðfararnótt laugardags. Engan sakaði en hópurinn varð verulega óttasleginn.

Öflugur jarðskjálfti í Japan

Á þriðja tug slösuðust í jarðskjálfta í Tókýó í gær sem mældist 6 á Richter-kvarða. Japanska veðurstofan sagði að ekki væri hætta á flóðbylgjum í kjölfar skjálftans.

Hinn skotni ótengdur árásum

Maðurinn sem lögreglan í London skaut til bana í neðanjarðarlestarstöð á föstudaginn var ótengdur sprengjuárásunum í borginni. Þetta kom fram í yfirlýsingu Scotland Yard í gær. Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við árásirnar </font /></b />

Sprengjunum ætlað að drepa

Sprengjunum á London í gær var ætlað að drepa, segir Ian Blair, lögreglustjóri borgarinnar.  Tilræðið í gær mistókst og telja sprengjusérfræðingar að tvær af sprengjunum fjórum hafi ekki sprungið.

Sjá næstu 50 fréttir