Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tíu Kúrdar drepnir í Tyrklandi Tíu uppreisnarmenn úr röðum Kúrda voru drepnir í árás tyrkneska hersins í í suðausturhluta Tyrklands í dag. Árásin var gerð í kjölfar sjálfsmorðsárásar í borginni Kusadasi í gær sem talið er að hafi verið skipulögð af skæruliðasamtökum Kúrda. 17.7.2005 00:01
Sir Edward Heath við dauðans dyr Sir Edward Heath, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, liggur nú fyrir dauðanum. Sky-fréttastöðin hefur þetta eftir talmanni hans. Heath var forsætisráðherra Breta á árunum 1970 til 1974 og formaður Íhaldsflokksins í áratug, eða frá 1965 til 1975. Hann var mjög umdeildur en áhrifamikill á sínum stjórnmálaferli 17.7.2005 00:01
Vopnahléinu lokið Átök hafa haldið áfram á Gaza-svæðinu í dag og vopnahléinu, sem staðið hefur í fimm mánuði, lokið. Einn leiðtogi innan Hamas-samtakanna var skotinn til bana þegar hann reyndi að komast inn í landnemabyggðir gyðinga í suðurhluta Gaza um hádegisbil í dag. 17.7.2005 00:01
Næsti forsætisráðherra Búlgaríu Næsti forsætisráðherra Búlgaríu verður að öllum líkindum Sergei Stanishev, formaður Sósíalistaflokksins þar í landi. Sósíalistar unnu sigur í þingkosningunum í Búlgaríu í síðasta mánuði og munu leiða þriggja flokka ríkisstjórn landsins, ef viðræður ganga eftir. 17.7.2005 00:01
Vopnahlé í Indónesíu Ríkisstjórn Indónesíu og baráttusamtök fyrir sjálfstæði Aceh-héraðs náðu sáttum í dag á fundi sínum í Helsinki í Finnlandi eftir að samtökin drógu úr kröfum sínum. Samtökin hafa barist fyrir sjálfstæði Aceh-héraðs síðastliðin þrjátíu ár og hafa rúmlega tólf þúsund manns fallið í átökum þeirra við stjórnarher Indónesíu. 17.7.2005 00:01
Ullandi á 200 km hraða Nítján ára piltur var tekinn á 200 kílómetra hraða í Ottawa, höfuðborg Kanada, um helgina. Þegar lögreglumenn spurðu piltinn hvernig honum dytti í hug að stofna lífi og limum fólks í hættu með slíkum ofsaakstri varð fyrst fátt um svör. 17.7.2005 00:01
Hamas-foringi myrtur Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraels sagði í gær að öllum brögðum yrði beitt til að stöðva palestínska uppreisnarmenn. Hann vill tryggja að áætlanir um brottflutning ísrelskra landtökumanna á Gaza gangi sem allra best. 17.7.2005 00:01
Friðarvon í Aceh Ríkisstjórn Indónesíu og uppreisnarmenn frá Aceh-héraði sættust á það í gær að skrifa í næsta mánuði undir formlegt friðarsamkomulag. 17.7.2005 00:01
Mannskætt flugslys í Afríku Rússnesk flugvél hrapaði í frumskógum Miðbaugs-Gíneu í gær og létust allir sem voru um borð. Alls voru fleiri en 50 farþegar og áhafnarmeðlimir í vélinni. 17.7.2005 00:01
17 létust þegar rúta fór út af Sautján manns létust og þrjátíu og átta slösuðust, þar af átta alvarlega, þegar rúta féll hundrað og tuttugu metra niður dal í suðurhluta Kína í gærkvöld. Alls voru fimmtíu og fimm manns í rútunni en slysið átti sér stað eftir að bílstjóri rútunnar missti stjórn á henni. 17.7.2005 00:01
Flest bendir til tengsla al-Kaída Hryðjuverkamaður frá al-Kaída í haldi Bandaríkjamanna hefur borið kennsl á Mohammed Sidique Khan, einn fjórmenninganna sem taldir eru bera ábyrgð á sprengingum sem urðu 55 að bana í Lundúnum. 17.7.2005 00:01
Pakistönum ekki um að kenna Bretar ættu ekki að saka erlendar þjóðir um að hafa áhrif á árásarmennina í Lundúnum, segir sendiherra Pakistana hjá Sameinuðu þjóðunum. Þrír af mönnunum sem taldir eru bera ábyrgð á hryðjuverkunum í borginni sjöunda júlí eru af pakistönskum uppruna og einn sótti þar trúarlegan skóla að því er fram kemur á fréttavef BBC. 17.7.2005 00:01
Skotið á smyglara Líbanska lögreglan skiptist á skotum við smyglara meðan sýrlensk yfirvöld handtóku líbanska fiskimenn í nýrri hrinu landamæraátaka ríkjanna tveggja. Bera átökin vott um vaxandi ólgu í samskiptum ríkjanna eftir að Sýrlendingar neyddust til þess að láta af áratugalangri hersetu í Líbanon í apríl. 17.7.2005 00:01
Ætluðu ekki að deyja sjálfir Hryðjuverkamennirnir sem sprengdu sjálfa sig, lestarnar og strætisvagninn í London þann 7. júlí, voru leiddir í gildru. Þeir ætluðu sér aldrei að deyja sjálfir heldur skilja eftir sprengjurnar og fara. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. 17.7.2005 00:01
5 mánaða vopnahléi lokið Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir herinn mega beita öllum brögðum til að koma herskáum Palestínumönnum frá. Það sé nauðsynlegt ef friður eigi að nást. Fimm mánaða vopnahléi er því lokið. 17.7.2005 00:01
Blóði drifin helgin að baki Helgin sem nú er á enda var ein sú blóðugasta í Írak frá því að ráðist var inn í landið vorið 2003. Í það minnsta 170 manns hafa beðið bana í hryðjuverkaárásum undanfarna viku. 17.7.2005 00:01
Striplast fyrir ljósmyndara 1.700 manns söfnuðust saman og sviptu sig klæðum í bænum Gateshead við ánna Tyne í Norður-Englandi í gær til að sitja fyrir á ljósmyndum bandaríska ljósmyndarans Spencers Tunick. Margir voru komnir langt að, til dæmis frá Ástralíu og Mexíkó. 17.7.2005 00:01
Saddam verður ákærður Saddam Hussein verður ákærður fyrir fjöldamorð gegn sjíum árið 1982. Þetta verður fyrsta dómsmálið sem höfðað verður gegn einræðisherranum fyrrverandi. 17.7.2005 00:01
Eldur í safni Eldur kom upp í lisasafni Henie Onstad í Høvikodden í Noregi í vikunni. Um hundrað manns voru í safninu þegar bruninn kom upp í forstofurými safnsins og tókst að koma öllum út á örfáum mínútum. 17.7.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Tyrklandi Að minnsta kosti þrír létust og tíu særðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í smárútu í Kusadasi í Tyrklandi í morgun. Ekki er vitað hver ódæðismaðurinn var eða á vegum hverra en uppreisnarmenn Kúrda, öfgasinnaðir íslamstrúarmenn og herskáir vinstri menn hafa staðið að sprengjutilræðum í Tyrklandi. 16.7.2005 00:01
Tveir féllu í sjálfsmorðsárás Sprengja sprakk í borginni Kirkuk í Írak í gærkvöld með þeim afleiðingum að tveir menn féllu. Um sjálfsmorðsárás var að ræða. 16.7.2005 00:01
Átökin halda áfram á Gaza Að minnsta kosti tveir særðust er Ísraelar skutu tveimur flugskeytum á Gaza-borg í gærkvöld. Óttast er að fimm mánaða vopnahlé á svæðinu sé að fara út um þúfur eftir átök og árásir á báða bóga síðustu daga. 16.7.2005 00:01
17 látnir eftir að rúta fór út af Að minnsta kosti 17 manns fórust þegar rúta með 55 manns innanborðs, þar á meðal skólabörn, steyptist niður hlíð í suðurhluta Kína í morgun. Þá slösuðust að minnsta kosti 38 manns í slysinu og eru átta taldir í lífshættu. 16.7.2005 00:01
Fjórir látnir eftir að bátur sökk Að minnsta kosti fjórir eru látnir og þriggja er saknað eftir að tyrkneskur ferðamannabátur, sem var ofhlaðinn fólki, sökk í morgun. Alls voru 150 manns á bátnum og sinntu þeir í land en báturinn var í aðeins 20 metra fjarlægð frá landi. 16.7.2005 00:01
NASA engu nær um bilunina Verkfræðingar NASA eru engu nær um hvers vegna bilun kom upp í tækjabúnaði geimferjunnar Discovery rétt áður en henni átti að verða skotið á loft á miðvikudag. Enn eru að minnsta kosti fjórir dagar í að skutlunni verði komið út í geim en forsvarsmenn NASA segja þó enga dagsetningu örugga. 16.7.2005 00:01
Ekki talinn tengjast Al-Qaida Egypski efnafræðingurinn sem handtekinn var í Kaíró í Egyptalandi í gær er ekki talinn tengjast Al-Qaida hryðjuverkasamtökunum að sögn egypskra dagblaða. Tala látinna eftir sprengingarnar í London er nú komin í fimmtíu og fimm. 16.7.2005 00:01
15 hafa látist í flóðum í Rúmeníu Að minnsta kosti 15 manns hafa látist í flóðunum í Rúmeníu sem gengið hafa yfir að undanförnu. Þá hafa 12 þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna. 16.7.2005 00:01
Þýskir hermenn ekki til Íraks Þýskir hermenn verða ekki sendir til Íraks þótt kristilegir demókratar komist til valda eftir kosningarnar í haust. Leiðtogi flokksins og kanslaraefni, Angela Merkel, fullyrðir þetta í viðtali við þýska blaðið <em>Berliner Zeitung</em> í dag. 16.7.2005 00:01
Ítalskur biskup myrtur í Kenía Ítalskur biskup var myrtur í Kenía í fyrrakvöld þegar hann var á leið heim úr guðsþjónustu. Benedikt páfi XVI sagðist í dag harma atburðinn. 16.7.2005 00:01
Breti og Íri á meðal látinna Breti og Íri voru á meðal þeirra sem létust í sjálfsmorðsárásinni sem gerð var í rútu í Tyrklandi í morgun. Fjórir til viðbótar létust í sprengingunni og þrettán særðust, þar á meðal fimm Bretar. 16.7.2005 00:01
Mega beita öllum brögðum Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir Ísraelsher mega beita öllum brögðum til að koma herskáum Palestínumönnum frá. Það sé nauðsynlegt ef friður eigi að nást. 16.7.2005 00:01
Vopnahléið í uppnámi Ísraelskir hermenn réðust inn í bæi á vesturbakka Jórdanar í gærmorgun og handtóku tugi meintra palestínskra uppreisnarmanna. 16.7.2005 00:01
Efnafræðingurinn ekki í al-Kaída Innanríkisráðherra Egyptalands, Habib al-Adli, segir "efnafræðinginn" svokallaða ekki vera í neinum tengslum við hryðjuverkasamtökin al-Kaída. Hann sætir nú yfirheyrslum í Egyptalandi sem breskir lögreglumenn fylgjast grannt með. 16.7.2005 00:01
Svindlaði út nautakjöti Verslunarstjóri í matvöruverslun í Búdapest sætir nú lögreglurannsókn grunaður um svindl. 16.7.2005 00:01
20 látnir; 45 særðir Að minnsta kosti tuttugu manns féllu og fjörutíu og fimm eru særðir eftir að sjálfsmorðsárás var gerð í mosku í úthverfi Bagdad, höfuðborgar Íraks, í dag. Engin samtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér. 16.7.2005 00:01
Tyrknesk rúta sprengd upp Fimm manns dóu í sprengjutilræði í Tyrklandi í gær en þá var rútu með ferðamönnum grandað. Talið er að Kúrdar beri ábyrgð á tilræðinu. 16.7.2005 00:01
Á sjötta tug beið bana Sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi upp sprengjur sem hann bar utan á sér við bensínstöð nærri sjíamosku í borginni Musayyib suður af Bagdad í gær. Að minnsta kosti 54 létust í árásinni og á níunda tug særðist til viðbótar. 16.7.2005 00:01
Fjölmenni hjá Arroyo Stuðningsmenn Gloriu Arroyo Filippseyjaforseta héldu fjöldafund henni til stuðnings í Maníla, höfuðborg landsins, í gær. 16.7.2005 00:01
Al-Kaída menn handsamaðir Ali Yunesi, ráðherra öryggis- og upplýsingamála í Íran, lýsti því yfir í gær að 3.000 meintir liðsmenn al-Kaída hefðu verið handteknir, færðir fyrir dómara eða reknir úr landi undanfarin misseri. 16.7.2005 00:01
Rove ræddi um Plame við blaðamenn Hart er sótt að Karl Rove, helsta ráðgjafa George W. Bush Bandaríkjaforseta, þar sem grunur leikur á að hann hafi í pólitísku skyni afhjúpað útsendara leyniþjónustunnar CIA í samtali við blaðamenn. 16.7.2005 00:01
Flugskeytum skotið á Gaza Ísraelar skutu flugskeytum á svæði Palestínumanna á norðurhluta Gaza-svæðisins í gærkvöld. Árásin er gerð eftir að ísraelsk kona lét lífið í eldflaugaárás herskárra Palestínumanna sem skutu eldflaug inn í Ísrael frá Gaza-svæðinu. 15.7.2005 00:01
Sprenging í Madríd Sprengja sprakk í Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Ekki virðist sem nokkur hafi særst í sprengingunni, sem var ekki mikil, en rúður brotnuðu þó í nærliggjandi húsum. Málið er í rannsókn. 15.7.2005 00:01
Geimskot í fyrsta lagi á sunnudag Bandaríska geimferðastofnunin NASA segir að geimferjunni Discovery muni í fyrsta lagi verða skotið á loft á sunnudag en ekki á morgun eins og haldið hefur verið fram. NASA hefur svigrúm til mánaðamóta til að senda ferjuna í fyrirhugaða tólf daga för að Alþjóðlegu geimstöðinni. 15.7.2005 00:01
50 handteknir vegna barnakláms Tæplega fimmtíu manns sem grunaðir eru um að hafa dreift barnaklámi á Netinu voru handteknir í Portúgal í gær. Þetta er stærsta aðgerð sem lögreglan þar í landi hefur ráðist í af þessu tagi. 15.7.2005 00:01
Þúsundir minntust fórnarlambanna Þúsundir manna komu saman við Trafalgar-torg í London í gærkvöld til að minnast þeirra sem létu lífið í sprengingunum í London í síðustu viku en tala látinna er nú komin í fimmtíu og fjóra. Lögreglan segir að enn megi búast við að tala látinna muni hækka. 15.7.2005 00:01