Erlent

Eldur í safni

Eldur kom upp í lisasafni Henie Onstad í Høvikodden í Noregi í vikunni. Um hundrað manns voru í safninu þegar bruninn kom upp í forstofurými safnsins og tókst að koma öllum út á örfáum mínútum. Slökkvilið var kallað til og gekk slökkvistarf vel. Í safninu eru geymd listaverk sem sum hver eru talin ómetanleg, þar á meðal málverk eftir norska málarann Edvard Munch. Svo greiðlega gekk þó að slökkva eldinn að listaverkin skemmdust ekkert, hvorki af völdum elds né reyks. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kviknar í Heinie Onstad-safninu en stórbruni kom þar upp árið 1998.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×