Erlent

50 handteknir vegna barnakláms

Tæplega fimmtíu manns sem grunaðir eru um að hafa dreift barnaklámi á Netinu voru handteknir í Portúgal í gær. Þetta er stærsta aðgerð sem lögreglan þar í landi hefur ráðist í af þessu tagi. Yfir 200 lögreglumenn tóku þátt í handtökunum en þær fóru fram á heimilum og í fyrirtækjum. Lögregla lagði hald á meira en 50 tölvur, tölvudiska, mynddiska og annan tölvubúnað en rannsókn málsins hefur staðið yfir í meira en ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×