5 mánaða vopnahléi lokið 17. júlí 2005 00:01
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir herinn mega beita öllum brögðum til að koma herskáum Palestínumönnum frá. Það sé nauðsynlegt ef friður eigi að nást. Fimm mánaða vopnahléi er því lokið. Ísraelskir hermenn skutu palestínskan byssumann til bana þegar hann reyndi að komast ásamt öðrum manni inn í landnemabyggð gyðinga í Netzarim, nærri Gaza-borg, í dag. Atvikið átti sér stað þegar mennirnir nálguðust landnemabyggðina og neituðu að segja til nafns við hermenn sem stóðu þar vörð. Allt að tíu Palestínumenn hafa látið lífið á Gaza og á Vesturbakkanum eftir loftárásir ísraelska hersins á svæðið undanfarna tvo daga. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í sjónvarpsviðtali að hann hefði skipað hernum að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir gegn palestínskum hryðjuverkasamtökum og engar takmarkanir væru á skipununum til hersins. Mikilvægt væri að koma herskáum hryðjuverkamönnum Palestínumanna úr umferð, ef friður ætti að nást á svæðinu. Fjórir þeirra sem létust í árásum Ísraela voru herskáir meðlimir úr Hamas-samtökunum. Þá féllu tveir óbreyttir borgarar og 25 særðust í átökum Hamas og palestínsku lögreglunnar á Gaza um helgina. Átökin brutust út er lögreglumennirnir leituðu manna sem stóðu á bak við flugskeytaárásir á byggðir Ísraela en ísraelsk kona lést í einni af árásunum. Palestínumenn létu þó ekki sitt eftir liggja og skutu nokkrum flugskeytum yfir landamæri Gaza-svæðisins og Ísraels í fyrrinótt. Mikil ólga ríkir á svæðinu og er þolinmæðin gagnvart óvininum lítil. Aðeins er um mánuður þar til brottflutningur Ísraela frá Gaza á að hefjast. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun heimsækja svæðið í vikunni en báðir aðilar segjast vilja að átökum linni. Yfirmaður palestínsku öryggissveitanna hefur meðal annars sagt að sveitirnar muni ekki hika við að koma á lögum og reglu á sjálfstjórnarsvæðunum og að flugskeytaárásir herskárra samtaka Palestínumanna verði stöðvaðar. Síðan í september árið 2000 hafa tæplega 4000 Palestínumenn fallið og eitt þúsund Ísraelsmenn í átökum ríkjanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira