Efnafræðingurinn ekki í al-Kaída 16. júlí 2005 00:01
Innanríkisráðherra Egyptalands, Habib al-Adli, segir "efnafræðinginn" svokallaða ekki vera í neinum tengslum við hryðjuverkasamtökin al-Kaída. Hann sætir nú yfirheyrslum í Egyptalandi sem breskir lögreglumenn fylgjast grannt með. Efnafræðingurinn, Mahmoud al-Nashar, hefur hingað til neitað staðfastlega allri hlutdeild sinni í hryðjuverkaárásunum. Lögregla hefur engu að síður fundið leifar af sprengiefni, líklega af sömu gerð og notuð var í árásunum, á heimili al-Nashar. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands sagði í ræðu sem hann hélt í miðborg Lundúna í gær að baráttan væri nú háð gegn illri hugmyndafræði öfgasinnaðra múslima. Í slíkri hugmyndafræðibaráttu þyrfti að vinna hug og hjörtu fólks, bæði múslima og annarra. Rannsókn lögreglu á hryðjuverkunum gengur vel og í gær var strætisvagninn á Tavistock Square hífður burtu. Fjöldi manns fylgdist með enda er strætisvagninn orðinn að nokkurs konar táknmynd árásanna. Búið er að bera kennsl á lík 41 af 55 fórnarlömbum árásanna og nafngreina 31 þeirra. Rannsóknin beinist nú að borginni Leeds en þar bjuggu margir hinna grunuðu. Vinir og kunningjar þeirra sem grunaðir eru um aðild að árásunum eru margir hverjir agndofa. Allir voru þeir breskir ríkisborgarar.
Erlent Fréttir Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira