Erlent

Breti og Íri á meðal látinna

Breti og Íri voru á meðal þeirra sem létust í sjálfsmorðsárásinni sem gerð var í rútu í Tyrklandi í morgun. Fjórir til viðbótar létust í sprengingunni og þrettán særðust, þar á meðal fimm Bretar. Talið er að kona sem var farþegi í rútunni hafi sprengt sig í loft upp. Enginn hefur lýst ábyrgð á tilræðinu en uppreisnarmenn Kúrda og öfgasinnaðir íslamstrúarmenn hafa staðið að nokkrum sprengjutilræðum í Tyrklandi í gegnum tíðina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×