Fleiri fréttir

Umdeildur kardínáli leiðir athöfn

Minningarathöfn verður haldin um Jóhannes Pál páfa í Péturskirkjunni í Róm í dag. Athöfnina leiðir fyrrverandi biskup sem segja varð af sér vegna barnaníðingsmála.

Flugumferð brátt í fyrra horf

Flugumferð í heiminum er loksins farin að ná sama umfangi og var fyrir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001, að stórlega dró úr flugumferð um allan heim.

Telur sig nálgast Munch-myndir

Lögregla í Noregi hefur handtekið mann á fertugsaldri í tengslum við rannsókn á ráninu á Ópinu og Madonnu, málverkum Edvards Munchs. Talsmenn lögreglu kveðast bjartsýnir á að finna myndirnar í kjölfarið. Myndunum var stolið úr safni Munchs í Ósló í ágúst í fyrra en ekkert hefur til þeirra spurst eftir það.

Draugalaxar í Noregi

Eins konar draugalaxar, fjögurra til átta punda þungir, synda nú um alla firði í Suður-Rogalandi í grennd við Stafangur í Noregi. Þeir þykja bera merki þess að vera eldislaxar en laxeldismenn á svæðinu sverja og sárt við leggja að enginn lax hafi sloppið frá þeim svo það er enn hulin ráðgáta hvaðan laxinn kemur.

Margra saknað eftir verksmiðjuhrun

Óttast er að hundruð verksmiðjustarfsmanna séu fastar undir rústum fataverksmiðju sem hrundi í bæ nærri Dakka, höfuðborg Bangladess, í nótt. Björgunarmenn hafa þegar grafið 15 lík úr rústunum og tekist að bjarga 58 manns, en þeir keppast nú við að leita fólks með leitarhundum og stórum krönum. Björgunarstarfið gekk illa í fyrstu þar sem erfitt var að koma stórvirkum vinnuvélum á staðinn vegna þess hve þröngar göturnar eru við verksmiðjuna.

Ný stjórn mynduð í Líbanon

Samið hefur verið um myndun nýrrar ríkisstjórnar í Líbanon. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir háttsettum embættismanni þar í landi. Samkomulagið náðist á fundi Emiles Lahouds, forseta landsins, Omars Karamis forsætisráðherra og Nabihs Berris, forseta þingsins, í dag og er búist við tilkynningu þessa efnis síðar í dag.

Friðargæslumenn enn í vandræðum

Tveir nepalskir friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem starfa í Austur-Kongó, voru handteknir í gær í bæ í norðurhluta Úganda eftir að hafa reitt heimamenn til reiði með því hafa mök við unga vændiskonu. Þeir munu hafa sést fara inn á hótel með 19 ára stúlku og við það reiddust heimamenn og héldu þeim þar til lögregla kom á staðinn og færði þá í varðhald. Þeim var síðar sleppt eftir að yfirmaður þeirra hafði hlutast til um málið.

Sendu eftirlitsflugvél til Ísraels

Hisbollah-skæruliðar í Líbanon lýstu því yfir í dag að ómönnuð eftirlitsflugvél á þeirra vegum hefði flogið yfir nokkrar landnemabyggðir í norðurhluta Ísraels og komist heilu og höldnu til baka. Segjast þeir hafa gert þetta til að svara fyrir það að ísraelskar herþotur hafi ítrekað rofið lofthelgi Líbanons.

Felldu tólf talibana í átökum

Tólf uppreisnarmenn úr röðum talibana létust í átökum við bandarískar og afganskar hersveitir í Suðaustur-Afganistan í dag. Uppreisnarmennirnir voru drepnir þegar þeir reyndu að ráða Kheyal Baaz Khan Sherzai, fyrrverandi yfirmann afganska hersins í Khost-héraði, af dögum þar sem hann var á ferðalagi nærri bænum Gardez í Paktia-héraði. Bandarískar og afganskar sveitir svöruðu árásinni úr lofti og á landi.

Ísraelar haldi sig við vegvísinn

George Bush Bandaríkjaforseti greindi Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, frá því í dag að hann hefði áhyggjur af fjölgun landnemabyggða á Vesturbakkanum á fundi þeirra á búgarði forsetans í Texas í dag. Þá hvatti hann Sharon til þess að halda sig við hinn svokallaða vegvísi til friðar og loka ólöglegum landnemabyggðum á Vesturbakkanum.

Kirkjan sögð þvermóðskufull

Bandarískur erkibiskup sem sagði af sér í kjölfar barnaníðingahneyksla leiddi í dag minningarþjónustu um páfa í Vatíkaninu. Fórnarlömb níðinganna segja þetta til marks um þvermóðsku kaþólsku kirkjunnar.

Lofar samvinnu innan SÞ

Óvægnasti gagnrýnandi Sameinuðu þjóðanna heitir því að vera samvinnuþýður umbótasinni staðfesti Bandaríkjaþing hann sem sendiherra hjá samtökunum. Demókratar óttast að hann verði eins og fíll í postulínsverslun.

Íhaldsmenn ríða á vaðið

Breski íhaldsflokkurinn kynnti í gær stefnumál sín fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða eftir rúmar þrjár vikur. Talsmenn hinna stóru flokkanna fundu þeim flest til foráttu.

Bush skammar Sharon

George W. Bush Bandaríkjaforseti hvatti Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, til að hætta við áform sín um að stækka landnemabyggðir gyðinga á Vesturbakkanum.

Ótti um hátækninjósnir

Mikill viðbúnaður er í Páfagarði vegna kardinálafundarins í næstu viku þar sem nýr páfi verður valinn. Hafa klerkarnir ekki síst áhyggjur af því að háþróaður tæknibúnaður verði notaður til að hlera það sem fram fer á fundi þeirra í Sixtínsku kapellunni.

Pílagrímar drukkna

Í það minnsta 58 hindúar drukknuðu um helgina á trúarhátíð nærri borginni Bhopal á Indlandi.

Samkomulag Kínverja og Indverja

Þíða er að myndast í samskiptum Indlands og Kína eftir að leiðtogar ríkjanna undirrituðu víðtækt samkomulag á sviði öryggis- og efnahagsmála í Nýju-Delí gær.

Fataverksmiðja hrynur til grunna

Í það minnsta sautján manns biðu bana í fataverksmiðju nærri borginni Savar í Bangladess í gær. Verksmiðjan var í níu hæða húsi sem hrundi til grunna þegar sprenging varð í gufukatli. 200 manns eru grafin í rústunum en níutíu tókst að forða sér út eða var bjargað.

Fækkun herliðs boðuð

Bandarísk stjórnvöld vonast til að geta kallað allt að þriðjungi herliðs síns heim frá Írak snemma á næsta ári. Ástæðan er að sögn bandaríska dagblaðsins The New York Times batnandi öryggisástand í landinu og styrking íraskra lögreglu- og hersveita.

Sendiráðsmanni rænt í Írak

Starfsmanni pakistanska sendiráðsins í Írak virðist hafa verið rænt. Stjórnvöldum hafa borist óstaðfestar fregnir þess eðlis að hann sé í haldi og eru í viðræðum um að fá hann lausan.

15 ára stúlka stungin til bana

Fimmtán ára bresk skólastúlka var stungin til bana snemma í morgun eftir að hafa lent í orðaskaki við sautján ára stöllu sína í veislu fyrr um nóttina. Vegfarendur hringdu á lögreglu og sjúkrabíl en stúlkan lést á sjúkrahúsi.

Brúðhjónin dvelja í Skotlandi

Prinsinn af Wales og hertogaynjan af Cornwall, eða Karl og Camilla eins og þau eru betur þekkt, eru nú farin í brúðkaupsferð til Skotlands eftir vel heppnað brúðkaup í gær.

Neitað að fljúga yfir Bandaríkin

Farþegaflugvél frá flugfélaginu KLM var neitað að fljúga yfir Bandaríkin á leið sinni til Mexíkó á föstudaginn á þeim forsendum að tveir farþeganna mættu hvorki stíga fæti á bandaríska grundu, né vera innan lofthelgi landsins.

Mótmæli Kínverja breiðast hratt út

Mótmæli Kínverja gegn Japönum breiðast hratt út og þúsundir héldu áfram að mótmæla í dag víðsvegar í Kína. Aðsetur japanskra fyrirtækja eru grýtt og japanski fáninn brenndur. Japanar heimta afsökunarbeiðni.

Jarðskjálfti á Súmötru

Jarðskjálfti upp á 6,8 á Ricther skók jörð á Súmötru fyrir stundu. Ekki hafa borist fregnir af tjóni, hvorki á mönnum né mannvirkjum.

Fresta aðgerðum gegn veirunni

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur frestað sóttvarnaraðgerðum gegn hinni skæðu Marburg-veiru í Angóla vegna árása á heilbrigðisstarfsfólk. Tæplega 200 manns hafa látist úr veirunni sem er skyld hinni skæðu E-bóla veiru. Nánast allir sem veikjast týna lífi og engin lækning eða bólusetning er til.

Engar fregnir af manntjóni

Jarðskjálfti upp á 6,8 á Ricther skók jörð á Súmötru rétt fyrir hádegi í dag. Engar fregnir hafa borist af mannfalli og fyrstu tíðindi af svæðinu benda til þess að tjón á mannvirkjum hafi ekki verið stórvægilegt. Að sögn Reuters-fréttastofunnar er ekkert viðvörunarkerfi í nágrenni við svæðið þar sem skjálftinn virðist hafa átt upptök sín.

Vill taka þátt í stjórnarsamstarfi

Iyad Allawi, fráfarandi forsætisráðherra Íraks, lýsti í dag yfir vilja sínum til að starfa með nýrri ríkisstjórn landsins. Hann hafði áður sagst ætla að sitja í stjórnarandstöðu í kjölfar kosninganna sem fram fóru í Írak í janúar.

Mótmæltu fyrirætlunum öfgamanna

Þúsundir Palestínumanna þustu út á götur á Vesturbakkanum í dag til að mótmæla fyrirætlunum ísraelskra öfgamanna um að koma saman í umdeildu musteri í Jerúsalem, sem bæði gyðingar og múslímar líta á sem helgan stað.

Látlausari hveitibrauðsdagar Karls

Karl Bretaprins og Camilla eiginkona hans eru farin í brúðkaupsferð í uppsveitir Skotlands. Þar ætla þau að dvelja í tíu daga á sveitasetri konungsfjölskyldunnar - talsvert látlausari hveitibrauðsdagar en snekkjuferðin um Miðjarðarhafið sem þau Karl og Díana prinsessa fóru í fyrir 24 árum.

Ungverjar opna skjalasögn

Stjórnarflokkar Ungverjalands hafa komist að samkomulagi um að auka aðgengi almennings að skýrslum ungversku leynilögreglunnar frá tímum kommúnista.

Mjótt á mununum í Bretlandi

Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum í bresku þingkosningunum í maí. Þrjú til sjö prósentustig skildu Verkamannaflokkinn og Íhaldsflokkinn að í þremur könnunum sem birtust í gær. Flokkarnir mældust báðir með 37 prósent ef aðeins var tekið tillit til þeirra sem sögðust staðráðnir í að kjósa.

Mótmæli stigmagnast í Kína

Þúsundir Kínverja héldu áfram að mótmæla japönskum kennslubókum sem sagðar eru gera lítið úr voðaverkum Japana í Kína í seinni heimsstyrjöld. Tíu þúsund manns umkringdu stórmarkað í eigu Japana í borginni Shensen í suðurhluta Kína, og hvöttu til þess að japanskar vörur yrðu sniðgengnar og köstuðu vatnsflöskum að versluninni.

Borin kennsl á sprengjumann

Lögreglan í Egyptalandi hefur borið kennsl á manninn, sem gerði sprengjuárás á fjölmennum ferðamannastað í Kaíró á fimmtudaginn. Þrír erlendir ferðamenn fórust í árásinni, auk sprengjumannsins.

Vilja stöðva Hillary

"Að stöðva Hillary Rodham Clinton er það mikilvægasta sem þú og ég getum gert sem Repúblikanar á næstu tveimur árum," segir Stephen Minarik, formaður Repúblikanaflokksins í New York, í bréfi sem hann sendi í fjáröflunarskyni til félaga sinna í flokknum.

Tugþúsundir barna í vændi

Talið er að tugþúsundir rússneskra barna séu neyddar í vændi og framleiðslu barnakláms. Mikil fátækt og eymd gerir heimilislaus börn að auðveldum fórnarlömbum klámiðnaðarins í Rússlandi.

Vilja ekki gagnrýna Kúbu

Um fjögur þúsund manns hvaðanæva að úr heiminum skora á aðildarríki Sameinuðu þjóðanna að hafna ályktunartillögu um mannréttindabrot Kúbustjórnar síðar í mánuðinum. Bandaríkin eru meðal þeirra ríkja sem leggja tillöguna fram.

Engin flóðbylgja

Þúsundir manna flúðu heimili sín á eyjunni Súmötru í Indónesíu þegar snarpur neðansjávarjarðskjálfti reið yfir í gær. Skjálftinn mældist 6,8 stig á Richter en enginn flóðbylgja myndaðist af völdum hans.

Erum í kapphlaupi við tímann

Mohammed El Baradei, yfirmaður Alþjóðlegu kjarnorkumálastofnunarinnar, segir stofnunina hafa áreiðanlegar upplýsingar um að hryðjuverkasamtökin al Kaída reyni nú ákaft að verða sér úti um kjarnorkuvopn.

Var að sækja einn þjóðhöfðingjanna

Flugvélin sem var neydd til að lenda fyrir utan Róm í gær um leið og útför páfa stóð yfir, vegna gruns um að sprengja væri um borð, reyndist vera á leið til borgarinnar að sækja forseta Makedóníu sem var við útförina.

Fimmtán hermenn teknir af lífi

Fimmtán hermenn fórust í skotárás uppreisnarmanna í Bagdad í morgun. Hermennirnir, sem voru allir írakskir, voru í bíl sem uppreisnarmennirnir þvinguðu af veginum, ráku hermennina út og tóku af lífi.

Lokaundirbúningur brúðkaupsins

Nú er verið að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir brúðkaup Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles sem verður í dag en brúðhjónin hafa beðið þess í árafjöld að geta gengið í það heilaga.

Grýttu japanska sendiráðið

Kínverskir mótmælendur grýttu japanska sendiráðið í Peking, höfuðborg Kína, í dag. Mikil reiði blossaði upp í Kína á dögunum þegar ný bók sem notuð er í sögukennslu í japönskum skólum leit dagsins ljós því Kínverjar halda því fram að í henni hvítþvoi Japanar sig af grimmdarverkum sem þeir frömdu í Síðari heimsstyrjöldinni.

Misnotuð og grafin lifandi

Flórídabúar eru slegnir óhugnaði vegna morðs á níu ára stúlku sem var grafin lifandi eftir að hafa verið misþyrmt kynferðislega.

Sjá næstu 50 fréttir