Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þúsundir mótmæla í Bagdad Tugir þúsunda mótmælenda hrópuðu "Nei við Ameríku" á fjölmennustu mótmælasamkomu sem fram hefur farið í Bagdad frá því landið var hernumið af Bandaríkjamönnum og bandamönnum þeirra. 9.4.2005 00:01
Vopnahléið kvatt? Palestínskir skæruliðar hafa hafið árásir á landnemabyggðir gyðinga á Gaza eftir að ísraelskir hermenn drápu þrjá Palestínumenn við Rafah-flóttamannabúðirnar fyrr í dag. Útlit er því fyrir að vopnahléi Palestínumanna og Ísraela, sem komið var á í febrúar, sé lokið. 9.4.2005 00:01
Camilla virðir minningu Díönu Rúmlega þrjátíu ára ástarsaga náði hápunkti í dag þegar Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles gengu í hjónaband. Camilla er nú tæknilega orðin prinsessan af Wales en vill ekki nota þann titil vegna minningarinnar um Díönu. Í stað þess ber hún titilinn hertogaynjan af Cornwall. 9.4.2005 00:01
Skrúfað fyrir fjölmiðlaviðtöl Kardinálaráð kaþólsku kirkjunnar ákvað í gær að meðlimir þess skyldu hætta þegar í stað að veita nokkur fjölmiðlaviðtöl eða tjá sig opinberlega. Gildir bannið uns kardinálarnir hafa komist að niðurstöðu um það hver úr þeirra röðum muni setjast næstur á páfastól, að Jóhannesi Páli II gengnum. 9.4.2005 00:01
9 ára fangelsi vegna póstsendinga Bandaríkjamaður hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að senda ruslpóst úr tölvunni sinni í milljónavís. 9.4.2005 00:01
CIA gætir stokkandar Leyniþjónusta Bandaríkjanna, sem hingað til hefur haft það hlutverk að gæta forsetans og annars merkisfólks, hefur nú tekist á herðar að gæta stokkandar sem liggur á níu eggjum. Öndin gerði sér hreiður í moldarbeði við aðalinngang fjármálaráðuneytisins og hefur fengið gælunafnið Duck Cheney. 9.4.2005 00:01
Áratuga samband kórónað Allt gekk samkvæmt áætlun er Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles gengu í hjónaband í Windsor á Englandi í gær. 9.4.2005 00:01
Drengir skotnir á Gaza Ísraelskir hermenn skutu á hóp palestínskra unglinga á sunnanverðu Gaza-svæðinu í gær, með þeim afleiðingum að þrír unglingar létu lífið. Þetta er mannskæðasta atvikið sem átt hefur sér stað á Gaza síðan lýst var yfir vopnahléi í átökum Ísraela og Palestínumanna fyrir tveimur mánuðum. 9.4.2005 00:01
Fleiri umdeild handabönd Handabönd þjóðarleiðtoga við útför páfa ætla að draga dilk á eftir sér. Karl Bretaprins segist óvart hafa tekið í höndina á Mugabe, forseta Simbabve, og fær skammir fyrir. Og forseti Ísraels er sakaður um að ljúga því að Íransforseti hafi tekið í höndina á honum. 9.4.2005 00:01
Gríðarlegur mannfjöldi í Róm Einhver fjölmennasta jarðarför sögunnar hófst klukkan átta þar sem Jóhannes Páll páfi II verður borinn til hinstu hvílu. Fjórir konungar, fimm drottningar og sjötíu forsetar eru viðstödd jarðarförina, auk fjölda annarra þjóðarleiðtoga. 8.4.2005 00:01
Enn jarðskjálftar í Indónesíu Enn á ný urðu nokkrir jarðskjálftar í Indónesíu í gærkvöldi og í nótt. Sterkasti skjálftinn mældist 5,6 á Richter og í kjölfarið fylgdu þrír skjálftar sem allir mældust um eða yfir fimm á Richter, sá síðasti nú undir morgun. Ekki er þó vitað til þess að nein meiðsl hafi orðið á fólki. 8.4.2005 00:01
Átján uppreisnarmenn drepnir Hermenn í Nepal drápu að minnsta kosti átján uppreisnarmenn í nótt eftir að þeir skutu úr sprengjuvörpum að búðum hermanna í vesturhluta landsins í nótt. Níu hermenn særðust í átökunum en að sögn nepalska hersins hefur tekist að brjóta uppreisnarmennina á bak aftur. 8.4.2005 00:01
Ráðist á flutningabílstjóra í Írak Hópur byssumanna gerði árás á sex tyrkneska flutningabíla rétt norður af borginni Kirkuk í Írak í nótt. Eins bílstjóra er saknað og er jafnvel talið að honum hafi verið rænt. Fjórir bílstjórar særðust og voru fluttir á sjúkrahús. 8.4.2005 00:01
Láglaunafólk dýrast í Frakklandi Hvergi í heiminum er starfsmaður á lágmarkslaunum jafn dýr fyrir atvinnurekendur eins og í Frakklandi. Þegar allt er tekið með í reikninginn kostar starfsmaður á lágmarkslaunum um 54 prósent af kostnaði við starfsmann með meðaltekjur í Frakklandi. 8.4.2005 00:01
Loðfílaleifar finnast Fornleifafræðingar í Kaliforníu í Bandaríkjunum fundu í vikunni mjög heillegar leifar af loðfíl sem talið er að verið hafi uppi fyrir um fimm hundruð þúsund árum. Leifar fílsins fundust á byggingarsvæði og þykja hafa varðveist óvenju vel. 8.4.2005 00:01
200 manns látnir á þremur vikum Nú hafa fjórtán manns í viðbót látist í Angóla úr Marburg-veirunni sem er skyld hinni skæðu E-bóla veiru. Alls hafa tæplega 200 manns látist síðan útbreiðsla hennar hófst fyrir þremur vikum. 8.4.2005 00:01
80% háskólamenntaðra flytja Meira en áttatíu prósent af háskólamenntuðu fólki á Jamaíka og í Gvæjana flytjast til hinna auðugu ríkja OECD, þ.e. þeirra sem eru meðlimir í Samtökum olíuframleiðsluríkja. Á Trínidad og Haítí er brottfluttningur meira en sjötíu prósent. 8.4.2005 00:01
Fjölmennasta jarðarför sögunnar? Milljónir manna tóku þátt í útför páfa í Róm í morgun sem er líklega fjölmennasta jarðarför sögunnar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að athöfnin hafi einkennst bæði af sorg og gleði; það hafi meðal annars komið sér á óvart þegar klappað var við athöfnina. 8.4.2005 00:01
Stöðvuðu grunsamlega flugvél Flugvél sem stefndi á Rómarborg var neydd til að lenda fyrir utan borgina í morgun á meðan útför Jóhannesar Páls páfa II fór fram. Grunur lék á að sprengja væri um borð í vélinni en að sögn talsmanns innan ítalska hersins kom í ljós eftir að leitað var í vélinni að grunurinn reyndist ekki á rökum reistur. 8.4.2005 00:01
Þrír létust í Kaíró Þrír létust í sprengjuárás á útimarkaði í Kaíró í Egyptalandi í gær. Markaðurinn er vinsæll meðal ferðamanna og í sprengingunni létust bandarískur maður, frönsk kona og sá sem grunaður er um sprenginguna. 8.4.2005 00:01
Leita veggjakrotara með þyrlum Yfirvöld í Þýskalandi hafa fengið sig fullsödd af þeim sem stunda veggjakrot, eða svokallað „graffiti“, í borgum og bæjum landsins og hafa nú gripið til stórtækra aðgerða. Þýska lögreglan er nefnilega byrjuð að leita uppi veggjakrotarana í skjóli nætur með þyrlum og myndavélum sem hægt að er að nota í myrkri. 8.4.2005 00:01
Stjórnarskráin tilbúin í ágúst Búist er við að ný stjórnarskrá fyrir Írak verði tilbúin um miðjan ágúst. Þetta var haft eftir hinum nýkjörna forseta landsins, Jalal Talabani, í dag. Tíu vikur eru liðnar síðan kosningar fóru fram í Írak og enn á eftir að mynda ríkisstjórn. Stefnt er að nýjum þingkosningum í lok þessa árs. 8.4.2005 00:01
Milljónir við útför páfa Jóhannes Páll páfi II var jarðsettur í dag í grafhvelfingu undir Péturskirkjunni í Róm í langfjölmennustu trúarlegu athöfn seinni tíma. Milljónir tóku þátt í athöfninni, þar á meðal Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sem upplifði bæði sorg og gleði í útförinni. 8.4.2005 00:01
Blair vill bjarga Rover Breska ríkisstjórnin lagði á það áherslu í gær að hún væri að gera allt sem í hennar valdi stæði til að afstýra gjaldþroti MG Rover bílaverksmiðjanna, í von um að afstýra með því að kjósendur refsuðu henni fyrir meint aðgerðarleysi í þingkosningunum 5. maí. 8.4.2005 00:01
Ein fjölmennasta útför sögunnar Milljónir manna fylgdust með útför Jóhannesar Páls II páfa í gær. Margir líkfylgdargesta kölluðu eftir því að hann yrði tekinn í dýrlingatölu. </font /></b /> 8.4.2005 00:01
Jóakim og Alexandra skilin Lögskilnaður Jóakims Danaprins og Alexöndru prinsessu var í gær staðfestur af konunglegum dómstól. Þar með lauk lögformlega tíu ára hjónabandi þeirra, en þetta er fyrsti skilnaðurinn í dönsku konungsfjölskyldunni í nærri 160 ár. 8.4.2005 00:01
Lækkun fimmta daginn í röð Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í gær, fimmta daginn í röð. Við lokun markaða hafði verðið á olíufatinu lækkað um fjóra Bandaríkjadali frá því í byrjun vikunnar. 8.4.2005 00:01
Brúðkaup eftir jarðarför Kominn beint úr jarðarför páfa gengur Karl Bretaprins í dag að eiga Camillu Parker Bowles í borgaralegri hjónavígslu í Windsor vestur af Lundúnum. Sjónvarpað verður frá kirkjulegri blessunarathöfn í kapellu Windsor-kastala í framhaldi af vígslunni. 8.4.2005 00:01
Prinsessa fæðist Martha Lovísa Noregsprinsessa og eiginmaður hennar, rithöfundurinn Ari Behn, eignuðust í gær dóttur sem gefið hefur verið nafnið Leah Isadora. 8.4.2005 00:01
Tveir látnir í tilræði í Kaíró Karl og kona létust og að minnsta kosti sjö aðrir særðust þegar maður á vélhjóli kastaði sprengju inn í hóp fólks sem var að skoða fornminjar í Karíó í Egyptalandi í dag. Annar hinna látnu var Frakki en ekki er vitað hverrar þjóðar konan var sem lést. 7.4.2005 00:01
Al-Jaafari verður forsætisráðherra Ný ríkisstjórn í Írak er að taka á sig mynd og virðist sem helstu byrjunarörðugleikunum hafi loks verið hrundið úr vegi. Nýr forsætisráðherra, sjítinn Ibrahim al-Jaafari, var tilnefndur í dag og mun innan tveggja vikna skipa ráðherra með sér í ríkisstjórn. Eitt meginverkefni ríkisstjórnarinnar verður að skrifa stjórnarskrá sem lögð verður fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslu í haust. 7.4.2005 00:01
Annan snupraði mannréttindanefnd Kofi Annan snupraði Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna harkalega í dag og sagði að þröng eiginhagsmunaþjónkun aðildarlandanna drægi úr trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna í heild sinni. Miklir mannréttindabrjótar, svo sem Súdan og Zimbabwe, sitja í nefndinni og koma í veg fyrir að þeirra eigin brot séu fordæmd. 7.4.2005 00:01
Sprenging banar tveimur í Kaíró Sprengja sprakk á flóamarkaði í Gamla bænum í Kaíró í dag, sem virðist hafa verið kastað af mönnum sem óku hjá á mótorhjóli. Frönsk kona og bandarískur karl létu lífið af sárum sínum og að minnsta kosti nítján aðrir særðust, að því er yfirvöld greindu frá. 7.4.2005 00:01
Páfi íhugaði afsögn Stöðugur straumur pílagríma lá til Vatíkansins í Róm í gær og bættust í mannmergðina sem hefur flykkst til þessa minnsta sjálfstæða ríkis heims til að vera við útför Jóhannesar Páls II páfa, sem fram fer í dag. Í erfðaskrá sinni greindi páfi frá því að hann hefði íhugað afsögn á árinu 2000, er hann náði 80 ára aldri og heilsan var byrjuð að bila. 7.4.2005 00:01
Æðstu menn Íraks svarnir í embætti Forseti og varaforsetar Íraks sóru embættiseiða í gær og útnefndu sjía-múslimann Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra, en það er valdamesta embættið í hinu nýja bráðabirgðastjórnkerfi landsins. Þar með er tekin við völdum þriðja bráðabirgðastjórnin frá því Saddam Hussein var steypt fyrir tveimur árum. 7.4.2005 00:01
Sigur Demókrata á Grænlandi Í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru á Grænlandi í vikunni breyttist skipting atkvæða milli vinstri- og hægriflokka sáralítið, en miklar sviptingar urðu á hægri vængnum. Demókratarnir, borgaralegur flokkur sem bauð fram í fyrsta sinn, hlaut 13 prósent atkvæða. 7.4.2005 00:01
Femínistar fengju sjö prósent Nýja femínistaframboðið í Svíþjóð, sem Gudrun Schyman og samherjur hennar hafa boðað, myndi fá um sjö af hundraði atkvæða ef þingkosningar færu fram nú. Slíkt fylgi myndi skila flokknum 24-27 þingsætum. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar, sem gerðar voru eftir að tilkynnt var um framboðið á mánudaginn. 7.4.2005 00:01
Norskur Malagafangi Lögregla á Spáni hefur handtekið norskan mann, sem grunaður er um að vera forsprakki glæpagengis sem rændi banka í Stafangri í fyrra, þar sem lögreglumaður var skotinn til bana. Maðurinn er 29 ára og heitir David Alexander Toska, en hann var handsamaður á þriðjudag í Malaga á Suður-Spáni, nákvæmlega upp á dag ári eftir að ránið var framið. 7.4.2005 00:01
Líkist Bankastræti á Menningarnótt "Bankastræti á Menningarnótt!“ Þannig lýsir Íslendingur andrúmsloftinu og mannmergðinni sem nú er í miðborg Rómar vegna útfarar Jóhannesar Páls páfa annars á morgun. 7.4.2005 00:01