Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldgos í 22 ár Hraun úr eldfjallinu Kilauea á Havaí rennur nú í sjóinn á tveimur nýjum stöðum í gosi sem hefur staðið yfir í 22 ár. Eldgosið er í eldfjallaþjóðgarði Havaí og ferðalangar sem þangað koma verða ekki sviknir. Glóandi hraunið rennur í sjóinn sem hvæsir við að fá svo óvæntan gest. 6.2.2005 00:01
Íranir gagnrýna Vesturlönd Íranar skora á Evrópusambandið að taka viðræður um kjarnorkuáætlun Írana alvarlegar. Fulltrúi stjórnarinnar sagði á blaðamannafundi að Íranar hefðu slegið á frest áætlunum sínum um að auðga úran, en það er forsenda framleiðslu kjarnorkuvopna. 6.2.2005 00:01
Ætluðu að sprengja ísbíla Embættismenn í Kúvæt staðfestu í gær að þeir hefðu handtekið grunaða hryðjuverkamenn sem lagt hefðu á ráðin um árásir á bandaríska hermenn. 6.2.2005 00:01
Stofna nefnd um lausn fanga Forystumenn í Palestínu og Ísrael samþykktu á laugardag að stofna sameiginlega nefnd sem fjalla á um lausn pólitískra fanga sem Ísrealar hafa í haldi. Þetta kemur í kjölfar þess að Ísraelar létu níu hundruð fanga lausa í síðustu viku. 6.2.2005 00:01
Föst skot ganga á milli þjóðanna Kalt stríð er hafið á milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran og harkalegar yfirlýsingar ganga á víxl. Írönsk yfirvöld segjast munu bregðast af fullri hörku við bandarískri árás á íranskt kjarnorkuver. Slík árás hefði aðeins þær afleiðingar í för með sér að Íranar tvíeflist í kjarnorkuframleiðslu sinni. 6.2.2005 00:01
Þar sem tíminn stóð í stað Áform eru um að grafa upp hús í Vestmannaeyjum sem urðu undir vikri í eldgosinu 1973 og kallast verkefnið Pompeii norðursins. Nafn sitt dregur verkefnið af rómverska bænum Pompeii en hann eyddist í eldgosi árið 79 e. Kr. 6.2.2005 00:01
Hafnar hugmyndum Breta Bandaríkjastjórn hefur hafnað tillögu Breta um hvernig sé best að ráða að niðurlögum fátæktar og lækka skuldir þriðja heims ríkja. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti tillögur sínar á fundi fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims í gær en þær felast í því að kom á fót nokkurs konar Marshall-áætlun fyrir fátækustu lönd heims. 5.2.2005 00:01
Páfi á hægum batavegi Jóhannes Páll páfi annar er á hægum batavegi og nærist eðlilega, eftir því sem talsmaður Vatíkansins segir. Búist er við að páfi muni messa á morgun eins og aðra sunnudaga en að ávarpinu verði sjónvarpað beint frá sjúkrabeðinum. Páfi sem er 84 ára fékk slæma flensu um síðustu helgi og hefur legið á sjúkrahúsi síðan. 5.2.2005 00:01
Bið á heimför til Súdans Nokkur bið gæti orðið á því að flóttmenn frá Suður-Súdan geti snúið til síns heima, eftir því sem fram kemur hjá fulltrúa Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda. Ástæðan er sögð sú að innviðir samfélagsins eru í rúst auk þess sem stór svæði eru undirlögð af jarðsprengjum. 5.2.2005 00:01
Flak flugvélar fundið í Afganistan Enginn komst lífs af í flugslysinu sem varð í Afganistan fyrir tæpum tveimur sólarhringum. Flak vélarinnar fannst fyrst í morgun skammt frá þorpi sem liggur aðeins 35 kílómetra suðaustur af höfuðborginni Kabúl. 5.2.2005 00:01
Upplýsingalög notuð í kosningum Stjórnmálaflokkar Bretlands saka nú hver annan um að notfæra sér bresku upplýsingalögin til að grafa upp persónuleg smáatriði, skít og áróður gegn einstaka frambjóðendum til að nota í kosningabaráttu sinni. Þingkosningar verða haldnar í Bretlandi í maí og flokkarnir eru þegar komnir á fullt í baráttuna. 5.2.2005 00:01
Sjö hermenn felldir í Írak Sjö írakskir hermenn liggja í valnum eftir árásir uppreisnarmanna í morgun. Árásum hefur heldur fækkað eftir kosningarnar um síðustu helgi, sem uppreisnarmönnum mistókst að eyðileggja, en þó hafa að minnsta kosti 20 írakskir hermenn fallið síðustu vikuna. 5.2.2005 00:01
Neitar að ráðast gegn fátækt Bandaríkjastjórn neitar að taka þátt í því að ráða að niðurlögum fátæktar og lækka skuldir þriðja heims ríkja samkvæmt breskri tillögu. Bandaríkjamenn segjast vilja fara sínar eigin leiðir í þessum efnum. 5.2.2005 00:01
Taldir tengjast árásum í Madríd Dómari á Spáni úrskurðaði í dag að hálfbræður af marokkóskum uppruna sem handteknir voru á þriðjudag skuli sæta gæsluvarðhaldi þar sem talið er að þeir hafi starfað með þeim sem stóðu á bak við hryðjuverkaárásirnar í Madríd í mars í fyrra. 5.2.2005 00:01
Vill meira lýðræði í Rússlandi Conoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í dag til meira lýðræðis í Rússlandi á blaðamannafundi í Varsjá í Póllandi. Rice er nú á ferðalagi um Evrópu og mun í dag hitta rússneskan starfsbróður sinn, Sergei Lavrov, í Ankara í Tyrklandi. Á blaðamannafundinum í Varsjá sagði Rice að mikilvægt væri fyrir Rússa efla vægi laga og óháðra dómstóla ásamt því að leyfa frjálsum og óháðum fjölmiðlum að starfa í landinu. 5.2.2005 00:01
Unnið að afskrift skulda Fjármálaráðherrar sjö helstu iðnríkja heims samþykktu á ráðstefnu sinni í Lundúnum í dag að vinna frekar að því að afskrifa opinberar skuldir fátækustu ríkja heims auk þess sem stefnt er að því að styrkja efnahag fátækra ríkja og verslun og viðskipti. 5.2.2005 00:01
Mótmæla lengri vinnuviku Talið er að rúmlega fimmtíu þúsund Frakkar hafi gengið um götur borga landsins í dag til þess að mótmæla áætlunum stjórnvalda um að lengja vinnuvikuna í Frakklandi. Samkvæmt lögum í Frakklandi er vinnuvikan nú 35 klukkustundir en Jean Pierre Raffarin, forsætisráðherra landsins, hefur lýst því yfir að lengja þurfi vinnuvikuna til þess að gera Frakkland samkeppnishæfara og til að draga úr atvinnuleysi sem er nú um 10 prósent. 5.2.2005 00:01
Vilja stól forsætisráðherra „Sjítar vilja forsætisráðherraembættið í nýrri stjórn og munu ekki láta það af hendi,“ sagði Hamed Al-Bayati, varautanríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, við Reuters-fréttastofuna í dag. Al-Bayati tilheyrir bandalagi sjíta sem hefur fengið um tvo þriðju hluta atkvæða í kosningunum í Írak nú þegar 35 prósent hafa verið talin. 5.2.2005 00:01
Páfi flytur blessun á morgun Jóhannes Páll páfi annar er ekki orðinn nógu hraustur til þess að messa á morgun en hann mun í staðinn fara með blessun sem sjónvarpað verður frá sjúkrabeði hans. Þetta segja talsmenn Vatíkansins og bæta við að páfi muni einnig missa af guðsþjónustu í basilíku heilags Péturs á öskudag en henni hefur hann aldrei sleppt áður á þeim 26 árum sem hann hefur setið á valdastóli. 5.2.2005 00:01
Reynt að semja um skuldalækkun Mikilvæg tímamót eða enn ein marklaus viljayfirlýsingin? Ekki eru allir á einu máli um niðurstöðu fjármálaráðherra ríkustu þjóða heims sem reyndu í dag, með litlum árangri, að komast að samkomulagi um það hvernig bjarga ætti Afríku úr fátæktargildru og lækka skuldir þriðja heims ríkja. 5.2.2005 00:01
Spillingu mætt af hörku „Spillingu verður mætt með hörku,“ segir Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og heitir því að sækja yfirmenn í olíusöluhneykslinu til saka. Annan hefur sjálfur verið sakaður um að tengjast málinu og enn eru ekki öll kurl komin til grafar. 5.2.2005 00:01
Lítil hafmeyja í Perú Hún hefur fengið viðurnefnið litla hafmeyjan og hefur heillað landa sína í Perú upp úr skónum. Þessi litla stúlka er í þann mund að leggjast undir skurðhnífinn í aðgerð sem mun breyta lífi hennar. 5.2.2005 00:01
Hættuástandi aflýst í Svíþjóð Íbúum í Helsingjaborg í Suður-Svíþjóð hefur verið leyft að fara út aftur en þeim var skipað að vera innandyra eftir að tíu þúsund tonn af brennisteinssýru láku úr tanki verksmiðju rétt utan við bæinn í morgun. Að sögn hins sænska Aftonbladet voru sex starfsmenn verksmiðjunnar fluttir á sjúkrahús en enginn þeirra er talinn í lífshættu. Ástæður lekans eru ókunnar. 4.2.2005 00:01
Bendir til yfirburðasigurs sjíta Bráðabirgðaniðurstöður kosninganna í Írak benda til þess að nærri þrír fjórðu hlutar kjósenda hafi kosið Bandalag sjíta, sem er undir áhrifum trúarleiðtogans Alis al-Sistanis. Flokkur Iyads Allawis, forætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar virðist hins vegar aðeins hafa fengið um átján prósent atkvæða. Ekki er búist við að endanlegar niðurstöður liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi í byrjun næstu viku. 4.2.2005 00:01
Bauðst tvisvar til að segja af sér Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, bauðst tvisvar sinnum til þess að segja starfi sínu lausu í kjölfar hneykslisins í Abu Ghraib fangelsinu. Þetta sagði Rumsfeld í viðtali við Larry King á sjónvarpsstöðinni CNN í gærkvöldi. 4.2.2005 00:01
Yfirmanni olíuáætlunar refsað Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur farið fram á að Benon Sevan, yfirmanni olíusöluáætlunar Sameinuðu þjóðanna frá valdatíma Saddams Husseins í Írak, verði refsað. Í rannsóknarskýrslu sem birtist í gær kom fram að framkvæmd áætlunarinnar hefði verið meingölluð og að mikil spilling hefði þrifist meðal þeirra embættismanna sem unnu að málinu. 4.2.2005 00:01
Fleiri fljúga með lággjaldafélögum Lággjaldaflugfélög í Evrópu fluttu alls 80 milljónir farþega á síðasta ári. Þetta er nærri helmingsaukning frá árinu 2003 þegar 47 milljónir farþega í Evrópu ferðuðust með lággjaldaflugfélögum. Hlutdeild lággjaldafélaganna í öllum flugferðum í Evrópu er þar með orðin meira en fimmtungur. Sérfræðingar spá því að árið 2010 kunni hlutdeildin að vera komin upp í heil 40 prósent. 4.2.2005 00:01
Mannskætt lestarslys á Indlandi Að minnsta kosti 19 létust og og 11 særðust þegar lest var ekið á dráttarvél með vagni sem flutti gesti í brúðkaup í Kanhan 800 kílókmetra norðaustur af Bombay á Indlandi í dag. Ökumaður dráttarvélarinnar sá lestina ekki þegar hann ók yfir sporið, en lestin ýtti dráttarvélarvagninum á undan sér eina 200 metra áður en hún stöðvaðist. 4.2.2005 00:01
Innrás ekki á dagskránni í bili Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hóf í morgun fyrstu Evrópureisu sína í embætti á því að heimsækja Bretland. Rice sat fyrir stundu blaðamannafund með breska starfsbróður sínum, Jack Straw, og lýsti því yfir að Bretland væri meginstuðningsland Bandaríkjanna. Rice var spurð hvort innrás í Íran væri yfirvofandi og svaraði því á þá leið að innrás væri ekki á dagskránni, í bili að minnsta kosti. 4.2.2005 00:01
Hermönnum fækkað í Írak á næstunni Bandarískum hermönnum í Írak verður fækkað um fimmtán þúsund á næstu vikum. Þetta sagði Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á bandaríska þinginu í gær. Hins vegar yrði þeim líklega ekki fækkað meira það sem eftir lifði þessa árs. 4.2.2005 00:01
Flugvél fórst í Afganistan Farþegaflugvél með yfir hundrað farþega fórst skammt frá Kabúl í Afganistan í nótt. Brak vélarinnar fannst nú skömmu fyrir hádegi en ekkert hafði til hennar spurst frá því í nótt. Vélin var í innanlandsflugi á leið frá Herat til Kabúl. Flugturninn á flugvellinum í Kabúl missti samband við vélina skömmu eftir að henni hafði verið gert að fresta lendingu vegna slæmra skilyrða. 4.2.2005 00:01
Lesblinda hefur áhrif á akstur Lesblinda hefur svipuð áhrif á aksturshæfileika fólks og áfengi. Ný rannsókn sýnir að viðbragðsflýtir lesblinds fólks í akstri er svipaður og þeirra sem eru fullir. 4.2.2005 00:01
Ítalskri blaðakonu rænt í Írak Ítalskri blaðakonu var rænt í Bagdad í morgun þar sem hún var í miðju viðtali á götu úti. Írakska lögreglan skýrði frá þessu nú rétt fyrir fréttir. Blaðakonan, sem vinnur á ítalska blaðinu Il Manifesto, var að taka viðtöl við fólk nærri háskólanum í borginni þegar byssumenn bar þar að og hrifsuðu hana með sér upp í bíl. 4.2.2005 00:01
Bretar drykkfelldastir í Evrópu Bretar kunna sér síst allra Evrópuþjóða hóf þegar áfengisdrykkja er annars vegar. Sögusögnin um menningarlega drykkju Frakka stenst hins vegar fyllilega skoðun. 4.2.2005 00:01
Tymosjenko næsti forsætisráðherra Þingið í Úkraínu samþykkti í dag einróma að Júlía Tymosjenko skyldi verða næsti forsætisráðherra landsins. Forseti landsins, Viktor Júsjenko, tilnefndi Tymosjenko í embættið fyrir skemmstu, en hún hefur verið nokkuð umdeild í landinu. 4.2.2005 00:01
Páfi á góðum batavegi Líðan Jóhannesar Páls páfa batnar stöðugt að sögn Vatíkansins. Talsmaður þess sagði jafnframt að Páfi væri byrjaður að borða á nýjan leik, en hann fékk slæma sýkingu í hálsi sem varð til þess að hann þurfti að fara á sjúkrahús. Ekki hefur enn verið gefið upp hvort páfi mun halda vikulegt sunnudagsávarp sitt eftir tvo daga. 4.2.2005 00:01
Bandalag sjíta með 67% atkvæða Þegar 3,3 milljónir atkvæða hafa verið taldar eftir kosningarnar í Írak hefur bandalag sjíta hlotið 67 prósent atkvæða en flokkur Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, átján prósent. Bandaríska dagblaðið New York Times greinir frá þessu í dag. 4.2.2005 00:01
Atkvæði greidd um veggjald Íbúar í Edinborg í Skotlandi munu á mánudag hefja atkvæðagreiðslu um það hvort innheimta eigi veggjald af þeim sem leggja leið sína inn í miðborgina á bíl, en slíkt fyrirkomulag er nú þegar í Lundúnum. Verði tillagan samþykkt munu ökumenn þurfa að greiða tvö pund, um 240 krónur, fyrir að aka inn í miðborgina á virkum dögum. 4.2.2005 00:01
Vinna að lausn blaðakonu Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að stjórnvöld hafi þegar hafið undirbúning að samningaviðræðum við þá sem rænt hafi Giuliönu Sgrena, blaðakonu ítalska blaðsins Il Manifesto, í miðju viðtali nærri háskólanum í Bagdad fyrr í dag. Berlusconi vildi ekki tjá sig frekar um málið, en blaðakonan er áttundi Ítalinn sem rænt er í Írak eftir innrásina í landið. 4.2.2005 00:01
Segjast hafa myrt 29 lögreglumenn Uppreisnarhópur í Írak sendi frá sér yfirlýsingu á Netinu í dag þar sem hann sagðist hafa drepið 29 írakska lögreglumenn og tekið sjö til fanga í fyrirsát í vikunni. Hópurinn kallast Her Ansars al-Sunna og segist hann hafa setið fyrir bílalest írakskra lögreglumanna við Abu Ghraib, vestur af Bagdad. 4.2.2005 00:01
Bauðst tvisvar til að segja af sér Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, bauðst tvisvar til að segja af sér þegar fangamisþyrmingarnar í Abu Ghraib fangelsinu í Írak voru hvað mest áberandi í fyrra. Í bæði skiptin hafnaði George W. Bush Bandaríkjaforseti afsögn hans. 4.2.2005 00:01
Farþegaþotu með 104 manns saknað Farþegaþota með 104 einstaklinga innanborðs er talin hafa hrapað nærri Kabúl, höfuðborg Afganistans, í óveðri sem hún flaug í gegnum. Flugvélin hvarf af ratsjám yfir fjalllendi, suðaustur af borginni, þar sem henni var flogið gegnum snjóbyl. 4.2.2005 00:01
Árás ekki á dagskrá Árás á Írak er ekki á dagskránni, sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, við upphaf vikulangs ferðalags síns til Evrópu. Hún sagði hins vegar breiða samstöðu um að Íranar mættu ekki nota friðsamlega kjarnorkuáætlun sem yfirvarp tilrauna til að koma sér upp gjöreyðingarvopnum. 4.2.2005 00:01
Björguðu börnum af skíðahóteli Kalla þurfti á aðstoð austurríska hersins þegar 300 gestir á skíðahóteli í austurrísku ölpunum voru innikróaðir vegna snjóflóða sem höfðu fallið á vegi í nágrenninu og hætta var á fleiri flóðum. 4.2.2005 00:01
Gamlir hermenn vernd nýja stjórn Fjórtánda tilraunin til að koma á röð og reglu í Sómalíu stendur nú yfir. Fyrstu meðlimir nýs þings landsins komu til höfuðborgarinnar umkringdir vopnuðum vörðum til varnar gegn vígasveitum stríðsherra og glæpamönnum.</font /></b /> 4.2.2005 00:01