Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnarskrá ESB undirrituð Stjórnarskrá Evrópusambandsins var undirrituð við hátíðlega athöfn í Róm í morgun. Leiðtogar ríkja ESB skiptust á að setjast við háborð og skrifa undir stjórnarskrána undir miklu klappi. Hún á að tryggja enn frekari samstarf og samvinnu Evrópusambandsríkjanna en hún hefur verið mikið deiluefni aðildarlandanna undanfarin ár. 29.10.2004 00:01
Prósak slæmt fyrir börn Prósaknotkun ungra barna getur leitt til geðrænna vandamála síðar í lífinu og óléttar konur ættu heldur ekki að nota þetta geðlyf. Þetta segja bandarískir vísindamenn sem hafa rannsakað áhrif lyfsins á mýs. 29.10.2004 00:01
Allt púður í 10 ríki Forsetaframbjóðendurnir í Bandaríkjunum beina nú allri athygli sinni að tíu ríkjum, þar sem fylgi þeirra er hnífjafnt. John Kerry hlaut í gær stuðning úr óvæntri átt. Dálkahöfundur tímaritsins Congressional Quarterly, þar sem fylgst er með stjórnmálunum í Washington, baðst í gær undan því að færa rök fyrir spám um gengi frambjóðendanna á þriðjudaginn kemur. 29.10.2004 00:01
Arafat kominn til Parísar Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, lenti nú fyrir stundu á herflugvelli í Frakklandi þar sem hann mun gangast undir læknismeðferð. Arafat, sem er sjötíu og fimm ára gamall, verður lagður inn á hersjúkrahús í útjaðri Parísar og öryggisgæsla þar hefur verið hert gríðarlega. Meðal annars hafa lögreglumenn tekið sér stöðu á þaki sjúkrahússins. 29.10.2004 00:01
Verkfall í Danmörku Starfsmenn fréttastofu danska Ríkisútvarpsins lögðu niður vinnu í gær til að mótmæla því að störf verði flutt frá Kaupmannahöfn til Árósa. Þaðan voru störfin flutt til Kaupmannahafnar fyrir aðeins fjórum mánuðum. 29.10.2004 00:01
13 handteknir á Spáni Lögreglan á Spáni hefur handtekið 13 menn, grunaða um að hafa ætlað að sprengja upp hæstarétt landsins. Að sögn lögregluyfirvalda stóð til að keyra trukk með 500 kílóum af sprengiefni að hæstaréttinum og sprengja hann í loft upp þar. Lögreglan hefur þó ekki enn fundið hið meinta sprengiefni. 29.10.2004 00:01
100 þúsund borgarar hafa látist Um 100 þúsund óbreyttir borgarar hafa látist í Írak síðan Bandaríkin réðust inn í landið í fyrra. Þetta kemur fram í mati heilbrigðissérfræðinga í Írak og Bandaríkjunum. Eftir innrásina hafa líkur óbreyttra borgara á að láta lífið aukist um meira en helming. 29.10.2004 00:01
Lok, lok og læs utan Bandaríkjanna Heimasíða George W. Bush Bandaríkjaforseta hefur verið lokuð netnotendum utan Bandaríkjanna frá því á mánudag. Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér stefnumál forsetans, en búa utan Bandaríkjanna verða því að leita á önnur mið. 29.10.2004 00:01
þrír handteknir vegna mannráns Yfirvöld í Afganistan hafa handtekið þrjá menn og telja sig hafa fundið jeppa, sem var notaður til þess að ræna fjórum starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í Kabúl í gær. Ekkert er hinsvegar vitað um örlög fólksins sem var rænt. 29.10.2004 00:01
Íranir þráast við Alþjóða kjarnrkumálastofnunin hefur boðist til þess að tryggja Írönum eldsneyti fyrir kjarnorkuver sín, til þess að Íranar þurfi ekki sjálfir að standa í því að auðga sitt eigið úraníum. Tilboðið er lagt fram til þess að reyna að fá Írana ofan af tilraunum sínum til þess að auðga úraníum sem hægt verði að nota í kjarnorkusprengjur. 29.10.2004 00:01
Gutenberg ekki fyrstur? Ítalskur fræðimaður hefur valdið miklu uppnámi með því að halda því fram vel geti verið að Jóhannes Gutenberg eigi ekki heiðurinn af því að hafa prentað fyrstu bók í Evrópu. Bruno Fabbiani, sem er fyrirlesari við tækniskólann í Torino, segir að Gutenberg hafi notað stimpla við prentun sína, en ekki lausa stafi. 29.10.2004 00:01
Þarf frekari rannsóknir Franskir læknar segja að þeir þurfi að rannsaka Yasser Arafat, í nokkra daga, til þess að komast að því hvaða sjúkdómur hrjái hann. Arafat var lagður inn á hersjúkrahús í París í dag. Talsmaður leiðtogans segir að hann hafi þjáðst af iðrakveisu, í að minnsta kosti þrjár vikur, en ljóst sé að eitthvað sé meira að honum en það. 29.10.2004 00:01
Hjálp þar sem neyðin er mest Aðbúnaður fatlaðra í þróunarlöndunum er afar bágborinn en fæstir þeirra fá meðferð eða menntun við sitt hæfi. Fordómar og bábiljur hafa víða gert hag þeirra ömurlegri en orð fá lýst. 29.10.2004 00:01
Þeir heppnu komast á stofnanir Aðbúnaður þroskaheftra í Úganda er ekki eins og best verður á kosið. 29.10.2004 00:01
Arafat skoðaður í París næstu daga Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, var í morgun fluttur á hersjúkrahús í útjaðri Parísar þar sem hann mun gangast undir ítarlega læknisskoðun. Arafat virtist veikburða í morgun, en hann hefur að undanförnu legið sárþjáður af einhvers konar iðrakveisu. Óttast er að hann gæti verið með hvítblæði. 29.10.2004 00:01
Kerry og Edwards í stuði John Kerry og John Edwards virðast komnir í sóknarham nú á lokaspretti kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum og nota hvert tækifæri til að sverta orðspor keppinautanna. 29.10.2004 00:01
Ekkert samræmt kosningakerfi Ekkert samræmt kosningakerfi er við lýði í Bandaríkjunum og hverju ríki er í sjálfsvald sett hvernig það hagar framkvæmd kosninga. Þar sem mjótt er á mununum í mörgum ríkjum er óttast að sama klúðrið setji svip sinn á þessar kosningar og þær síðustu. 29.10.2004 00:01
Undirritun í skugga óvissu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins undirrituðu stjórnarskrá Evrópusambandsins í Róm í gær. Undirskriftin þýðir þó ekki að allt sé afstaðið því í það minnsta níu aðildarríkjanna ætla að bera stjórnarskrána undir þjóðaratkvæði. 29.10.2004 00:01
Myrti tíu í erfidrykkju Kínversk ekkja sem myrti tíu gesti í erfidrykkju eiginmanns síns hefur verið tekin af lífi. Konan eitraði fyrir gestunum með rottueitri sem hún blandaði út í mat sem hún bauð upp á. 23 til viðbótar veiktust en hafa jafnað sig, yngstur þeirra sem lifðu eitrunina af var þriggja ára drengur. 29.10.2004 00:01
Halliburton aftur í kastljósið Bandaríska stórfyrirtækið Halliburton og tengsl þess við Bandaríkjastjórn eru í brennidepli eftir að bandaríska alríkislögreglan, FBI, hóf rannsókn á úthlutun verkefna í Írak til félagsins án útboðs til að athuga hvort glæpsamlegt athæfi hefði átt sér stað. Rannsóknin snýst að sögn lögreglu ekki að neinum sem starfar í Hvíta húsinu. 29.10.2004 00:01
Innbyggt vantraust Ein helsta ástæðan fyrir því hversu illa Bandaríkjamönnum hefur gengið að koma upp kosningakerfi sem virkar er sterk viðleitni ríkis- og sveitarstjórna á hverjum stað til að ráða sjálf sínum málum, segir Michael T. Corgan, prófessor í flotafræðum og stjórnmálafræði við háskólann í Boston í Massachusetts. 29.10.2004 00:01
Í hlutverki spellvirkjans Michael Badnarik, forsetaefni Frjálshyggjuflokksins, gerir sér ekki vonir um að hafa sigur í einu einasta ríki Bandaríkjanna á kjördag. Hann og stuðningsmenn hans vona hins vegar að þeir geti haft áhrif á úrslitin í tveimur ríkjum þar sem svo litlu munar á George W. Bush og John Kerry að fá atkvæði geta ráðið úrslitum. 29.10.2004 00:01
Á suðupunkti í Flórída Í Flórída er heitt í kolunum vegna klúðurs sem hefur orðið í framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu og ásakana fulltrúa beggja stóru flokkanna í hvors annars garðs. 29.10.2004 00:01
Baráttan nær til Hawaii Íbúar Hawaii upplifa nú nokkuð sem þeir eru ekki vanir þegar forsetakosningar eru annars vegar, nefnilega það að kosningastjórnir forsetaefnanna senda menn til að vinna þá á sitt band. 29.10.2004 00:01
Vísitalan mælir gegn Bush George W. Bush Bandaríkjaforseti nær ekki endurkjöri ef marka má kenningu Jeffrey Hirsch, útgefanda Stock Traders Almanac. Hann segir að þegar Dow Jones vísitalan lækkar um hálft prósent eða meira frá lokum september til kjördags nái forsetinn ekki endurkjöri, nú hefur hún lækkað um 0,75 prósent. 29.10.2004 00:01
Arafat við dauðans dyr? Óttast er að Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu, sé við dauðans dyr eftir að hann hné niður í gær og missti meðvitund um tíma. Þúsundir manna fjölmenntu fyrir utan heimili hans í gær. Vitað er að Arafat hefur átt við alvarleg veikindi að stríða að undanförnu en embættismenn í Palestínu neita enn að staðfesta að ástand hans sé tvísýnt. 28.10.2004 00:01
Snarpur jarðskjálfti í Rúmeníu Snarpur jarðskjálfti varð í Rúmeníu í gærkvöldi. Skjálftinn mældist 5,8 á Richter. Skjálftans varð víða vart í landinu og einnig í Tyrklandi, Moldavíu og Úkraínu. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni en upptök skjálftans voru í Vrancea sem eru 175 kílómetra norðaustur af Búkarest. 28.10.2004 00:01
Ríkisstjórn Lettlands segir af sér Ríkisstjórn Lettlands, sem var minnihlutastjórn, sagði af sér í morgun eftir að þingið hafnaði fjárlagafrumvarpi hennar fyrir næsta ár. Stjórnin, sem mynduð var í mars, hefur átt undir högg að sækja og í september tókst henni naumlega að verjast vantrauststillögu. 28.10.2004 00:01
Kosningastarfsmönnum rænt í Kabúl Þremur erlendum kosningastarfsmönnum var rænt í Kabúl í Afganistan í morgun að sögn yfirvalda þar í landi. Starfsmennirnir eru frá Bretlandi, Kosovo og Filippseyjum og er um að ræða tvær konur og einn karlmann. 28.10.2004 00:01
Barroso dregur í land Jose Manuel Barroso, tilvonandi forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, virðist að nokkru leyti ætla að draga í land með val sitt á framkvæmdastjórn sambandsins vegna þrýstings víða að. 28.10.2004 00:01
58 þúsund atkvæði týnd? Fimmtíu og átta þúsund utankjörfundartkvæða í Flórída er saknað. Af 60 þúsund greiddum atkvæðum hafa aðeins tvö þúsund skilað sér og segja yfirmenn póstsins í Flórída að það sé hreinlega útilokað að heil 58 þúsund atkvæði hafi týnst og því virðist sem eitthvað gruggugt sé á seyði. 28.10.2004 00:01
Ástand Arafats enn alvarlegt Enn er óttast um heilsu Jassers Arafats, leiðtoga Palestínu, sem er ásamt fjölskyldu sinni, fjölda lækna og embættismanna á heimili sínu á Vesturbakkanum. Arafat fór þó til messu í morgun en var afar veikburða að sögn sjónarvotta. 28.10.2004 00:01
Kerry stendur betur í lykilríkjum John Kerry hefur meira fylgi en George Bush í fimm af lykilríkjunum svokölluðu þar sem úrslit forsetakosninganna munu að líkindum ráðast. Frambjóðendurnir endasendast nú á milli þessara ríkja og kyssa börn sem mest þeir mega. 28.10.2004 00:01
Hjálparvana fórnarlömb goðsögn Hjálparvana fórnarlömb á hamfarasvæðum er goðsögn, samkvæmt árbók Alþjóðasambands Rauða kross félaga um hjálparstarf og hamfarir. Þrisvar sinnum fleiri biðu bana vegna hamfara á síðasta ári en árið þar á undan. 28.10.2004 00:01
Pólitískt mannrán eða fjárkúgun? Ekki er enn vitað hvort mannránið á þrem starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun sé svipað þeim sem átt hafa sér stað í Írak eða hvort einfaldlega sé um fjárkúgun að ræða. Sé hið fyrrnefnda ástæðan og tilgangurinn pólitískur megi fastlega gera ráð fyrir því að margar hjálparstofnanir hverfi burt frá Afganistan. 28.10.2004 00:01
Segjast hafa aflífað 11 Íraka Íröksku skæruliðasamtökin Her Ansar al-Sunna segjast hafa drepið ellefu menn úr þjóðvarðaliði Íraka sem þeir rændu í síðustu viku. Samtökin halda þessu fram á vefsíðu sinni í dag þar sem einnig eru birtar myndir af hinum meintu fórnarlömbum. 28.10.2004 00:01
Fátækt minnki um helming Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fram áætlun um hvernig ná megi markmiðunum sem sett voru í svokallaðri þúsaldaryfirlýsingu SÞ. 28.10.2004 00:01
Bandaríkjamenn firra sig ábyrgð Bandaríska varnarmálaráðuneytið heldur því fram að tæplega 400 tonnum af sprengiefni, sem forsetaframbjóðandinn John Kerry segir hafa horfið úr Írak fyrir framan nefið á Bandaríkjaher, gæti hafa verið fjarlægt áður en ráðist var inn í Írak. 28.10.2004 00:01
Enn eitt klúðrið skekur Flórída Spennan í kringum bandarísku forsetakosningarnar jókst enn í Flórída þegar í ljós kom að þúsundir kjörseðla sem senda átti til fólks sem vildi greiða atkvæði utankjörfundar höfðu týnst. 28.10.2004 00:01
Fleiri þúsund löggur á vakt Mikil öryggisgæsla er í Róm í dag vegna undirritunar stjórnarskrár Evrópusambandsins. Hundruð fyrirmenna verða í borginni af þeim sökum, þeirra á meðal þjóðhöfðingjar allra 25 aðildarríkja Evrópusambandsins og fjögurra ríkja sem hafa sótt um aðild. 28.10.2004 00:01
Sakaðir um harðneskju Forsvarsmenn bandarískra mannréttindasamtaka lýsa áhyggjum af því hversu harkalega hefur verið gengið fram gegn mótmælendum þar sem George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur verið með kosningasamkomur að því er fram kemur í Washington Post. 28.10.2004 00:01
41 bjargað úr sjávarháska Spænskir björgunarsveitarmenn björguðu 41 ólöglegum innflytjanda úr sjávarháska í spænskri landhelgi. Fólkið fannst tíu klukkutímum eftir að einhver úr hópnum hringdi úr farsíma í björgunarsveitir og sagði fólkið í hættu. Nítján karlmenn, átján konur og fjögur ung börn voru um borð í yfirfullum báti sem hafði verið á reki í þrjá daga. 28.10.2004 00:01
Þremur rænt í Kabúl Vopnaðir menn rændu þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna á götu í Kabúl í gær. Fólkið, filippseyskur karlmaður og tvær evrópskar konur, var á ferð ásamt bílstjóra sínum þegar fimm vopnaðir menn keyrðu bíl sínum í veg fyrir bíl þeirra og neyddu þremenningana til að fara með sér. 28.10.2004 00:01
Táningur fyrir rétt Sextán ára piltur er fyrsti einstaklingurinn sem réttað er yfir vegna hryðjuverkaárásanna í Madríd sem kostuðu nær 200 manns lífið. Saksóknari ákærði piltinn fyrir að flytja sprengiefni sem var notað í árásunum og krafðist átta ára fangelsisdóms yfir piltinum. 28.10.2004 00:01
Berjast um atkvæðin John Kerry er "vitlaus maður fyrir vitlaust starf á vitlausum tíma," sagði George W. Bush þegar hann gagnrýndi mótframbjóðanda sinn harkalega á kosningafundi í gær. Orðin eru svipuð þeim sem Kerry lét falla um innrásina í Írak sem hann kallaði "vitlaust stríð á vitlausum stað á vitlausum tíma". 28.10.2004 00:01