Fleiri fréttir

Eftirlit lítið sem ekkert

Eftirlit með fyrirtækjum sem safna persónuuplýsingum almennings er lítið sem ekkert. Persónuvernd hefur ekki mannafla til að taka upp mál af eigin frumkvæði.

Forstjóri Vodafone: Fyrirtækið rúið trausti

Fyrirtækið er rúið trausti, segir forstjóri Vodafone. Hann segir mistök hafa valdið því að viðkvæm gögn um viðskiptavini Vodafone hafi verið geymd lengur en lög geri ráð fyrir.

Vodafonelekinn: Hefur djúpstæð áhrif á sálarheill fólks

"Þetta mun mögulega kom til með að hafa djúpstæðar afleiðingar á líf og líðan nokkurra einstaklinga," segir sálfræðingur um árásina á Vodafone. Þúsundir persónulegra skilaboða eru nú í dreifingu á meðal manna og getur slíkt haft alvarlegar afleiðingar fyrir sálarheill fólks.

Ljósin tendruð á Óslóartrénu

Ljósin á Óslóartrénu á Austurvelli voru tendruð í dag. Viðburðurinn hefur um áratuga skeið markað upphaf jólahalds í borginni, og á sér fastan sess í hjörtum borgarbúa.

Vantrú vill að lögreglan biðjist afsökunar

Samtökin Vantrú sendu frá sér yfirlýsingu og fara í henni fram á opinbera afsökunarbeiðni frá lögregluembættinu vegna ummæla lögreglumanns í frétt stöðvar tvö um hatursglæp gegn mosku.

Fannst heill á húfi

Björgunarsveitir fundu eftir hádegi í dag Guðmund Másson sem saknað hafði verið af heimili sínu síðan í gærkvöldi og lögreglan lýsti eftir í morgun. Var hann staddur í nágrenni heimilis síns þegar hann fannst og reyndist heill á húfi.

Skattar og dauðinn eina sem er öruggt í veröldinni

Forsætisráðherra segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna skuldugra heimila ná til allra sem voru með verðtryggð húsnæðislán á árunum 2007 til 2010, óháð því hvort lánin hafa verið gerð upp eða húseign verið boðin upp.

Lýst eftir sjötugum manni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Mássyni. Hann er fæddur árið 1942. Ekkert hefur spurst til hans síðan klukkan 22 í gærkvöldi þegar hann fór frá heimili sínu á Seltjarnarnesi.

Varað við stormi

Gert er ráð fyrir að vindur verði á bilinu 15 til 23 metrar á sekúndu.

Grænlendingar vilja stórt hafsvæði norðan Íslands

Ríkisstjórn Danmerkur í samstarfi við ríkisstjórn Grænlands hefur lagt fram kröfu til landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna um að stórt hafsvæði utan 200 mílna lögsögunnar út af norðaustur Grænlandi skuli teljast til landgrunns Grænlands.

Alvarlega slösuð eftir líkamsárás

Kona á sextugsaldri var um fmmleytið í gær flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús eftir að karlmaður á fimmtugsaldri hafði ráðist á hana. Atvikið mun hafa átt sér stað á heimili mannsins. Hann var handtekinn á staðnum.

Jólakötturinn bíður eftir nýjum eiganda í Kattholti

Áhyggjur af skuldaniðurfelllingum og fjarskiptum voru víðs fjarri hjá loðnu vinum okkar í Kattholti. Þar fór fram í dag árlegur jólabasar til styrktar starfinu. María Lilja Þrastardóttir leit þar við í dag og fann jólaköttinn.

Getur haft óafturkræfan skaða í för með sér

Vodafone biðlar til fólks um að eyða gögnunum sem stolið var af heimasíðu fyrirtækisins. Um persónuleg gögn sé að ræða sem geti valdið saklausu fólki óafturkræfan skaða í för með sér.

Ríkisvæddar skuldaaðgerðir

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að öll áhættan af skuldaaðgerðum ríkisstjórnarinnar lendi á ríkissjóði.

Óljós fjármögnun

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartar framtíðar, segir óljóst hvernig ríkisstjórnin hyggst fjármagna skuldaðgerðirnar.

"Ég elska þig út af lífinu“

Mjög persónuleg skilaboð, sem innihalda bæði ástarjátningar, grófar kynlífslýsingar eða örvæntingarfull rifrildi, eru meðal þess sem sjá má í skjölum Vodafone.

Þúsundir lykilorða komin á netið

30 þúsund kennitölur, ásamt símanúmeri og netföngum, eru meðal þeirra upplýsinga sem láku á netið í morgun. Hanna Birna Kristjánsdóttir segir ráðuneytið vinna í málinu með viðeigandi undirstofnunum.

Get dansað uppi á borðum edrú

Hilda Jana Gísladóttir dagskrárstjóri hjá N4 var frumkvöðull að því að endurvekja sjónvarp á Akureyri fyrir fjórum árum og á sinn þátt í vexti þess og vinsældum. Hún kynntist skuggahliðum lífsins sem unglingur en er nú hæstánægð með tilveruna.

Lögbrot hjá Vodafone

Lögfræðingar segja að gögn sem geymd eru allt að fjögur ár aftur í tímann brjóti líklegast gegn lögum.

Þið getið spurt Sigmund Davíð

Mögulegt er að senda spurningar sem lagðar verða fyrir Sigmund Davíð í sérstökum þætti af Stóru málunum í kvöld.

Kreditkortanúmer ráðherra hluti af lekanum

Kreditkortanúmer ráðherra er á meðal þeirra persónupplýsinga sem hafa lekið á netið, eftir að tyrkneskur hakkari réðst á heimasíðu Vodafone í nótt.

Breytið lykilorðum ykkar

Vodafone beinir því til allra sem stofnað hafa aðgang að Vodafone.is að breyta lykilorðum sínum að tölvupósti og samfélagsmiðlum.

Þurfum á dýragörðum að halda

Faðir Ragnhildar Jónsdóttur stofnaði Sædýrasafnið í Hafnarfirði þar sem háhyrningar, ísbirnir, apar, ljón og tígrisdýr voru til sýnis. Segja má að Ragnhildar hafi alist upp á safninu. Hún segir dýragarða nauðsynlega til að auka virðingu fyrir dýrunum og náttúrunni, dýrin séu sendiherrar sinnar tegundar.

Eru báðir jóladrengir

Bogomil Font og Samúel J. Samúelsson halda jólatónleika með Stórsveit Reykjavíkur í Hörpu á sunnudaginn. Platan Majónes jól verður spiluð í heild sinni en þar er gert létt grín að neyslugeðveikinni um jólin.

Vill herða reglur um rannsóknarnefndir

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, vill herða reglur varðandi rannsóknarnefndir Alþingis og segir nauðsynlegt að setja fastan ramma utanum lengd og rekstrarkostnað slíkra nefnda.

Sjá næstu 50 fréttir