Fleiri fréttir

Sóknarfæri í offituvanda gæludýra

Primex á Siglufirði framleiðir efni úr rækjuskel sem notað er í vörulínur um heim allan – fæðubótaefni, lyf, snyrtivörur og matvæli. Hermenn nota efnið til að stöðva blæðingar. Ný vara Primex gæti gert mönnum kleift að borða konfekt án samviskubits yfir aukakílóunum.

Jógar vilja þrettán metra bronsgúrú við Esjuna

Jógar í Sri Chinmoy miðstöðinni vilja heimild til að setja upp þrettán metra hátt líkneski af Chinmoy við Mógilsá. Styttan er sögð verða lang stærsta af nokkrum styttum sem listamaðurinn Kaivaliya Torpu hafi gert af Chinmoy víða um lönd.

Borgarafundur um niðurskurð í framhaldsskólum

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á mennta- og menningarmálaráðherra, Illuga Gunnarsson, að endurskoða fjárframlög til Flensborgarskólans og Iðnskólans í Hafnarfirði.

Mjólkurkvótinn verður aukinn á næsta ári

Kúabændur fá ekki hærri ríkisstyrki þó mjólkurkvótinn sé aukinn. Afurðastöðvar ætla að greiða fullt verð fyrir mjólk sem framleidd er umfram kvóta á þessu ári.

Eftirlitsvélar í um 100 leigubílum

Eftirlitssmyndavélum í íslenskum leigubílum hefur fjölgað mikið að undanförnu og eru þær á bilinu sextíu til eitt hundrað talsins, flestar á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt ágiskun Ástgeirs Þorsteinssonar, formanns Bandalags íslenskra leigubifreiðarstjóra.

Stórauki samstarf á höfuðborgarsvæði

Bæjaryfirvöld í Kópavogi vilja láta skoða stórfellda aukningu sameiginlegra verkefna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Góð reynsla sé af sameiginlegum rekstri á borð við Sorpu og Strætó.

Kópavogur leggist gegn frumvarpi

Fulltrúar minnihlutans í bæjarráði Kópavogs hafa lagt til að sveitarfélagið leggist gegn frumvarpi um afturköllun nýrra náttúruverndarlaga.

Kallaður í yfirheyrslu eftir játningu í beinni

Íslendingur búsettur í Svíþjóð hefur játað að hafa tekið þátt í að koma svínshausum, svínsblóði og blóðugu eintaki af Kóraninum fyrir á lóð í Sogamýri þar sem til stendur að reisa mosku. Verður kallaður til yfirheyrslu segir lögreglufulltrúi.

Hlýleg vin í hörðu borgarumhverfi

Dagsbirta og náttúruleg loftræsting, skjól fyrir vindi og umferðargný, aukinn gróður og aðlaðandi staðir til samveru starfsfólks, utan húss og innan. Allt eru þetta áberandi þættir í verðlaunatillögu VA arkitekta og samstarfsfólks um endurhönnun á Höfðabakka 9.

Það þarf að opna augu fólks - "Við erum sem betur fer ekki öll eins“

"Mér finnst algjört bull að lögreglan hafi ekki ætlað að rannsaka eða gera neitt í þessu,“ segir Azra Crnas, 16 ára stúlka úr Keflavík um það að lögreglan hafi ekki ætlað að afhafast nokkuð í því þegar svínshausum og blóði var komið fyrir á lóð Félags múslima á Íslandi.

Hlerunum beitt í vændismálum

80 mál er í rannsókn vegna vændiskaupa hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Færst hefur í vöxt að erlendar konur komi hingað til lands í stuttan tíma og stundi vændi.

Dýrar rannsóknarnefndir

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, vill herða reglur varðandi rannsóknarnefndir Alþingis og segir nauðsynlegt að setja fastan ramma utanum lengd og rekstrarkostnað slíkra nefnda.

Vill leggja Listaháskólann niður í núverandi mynd

Sigríður Heimisdóttir, iðnhönnuður, gagnrýnir Listaháskóla Íslands í viðtali í Nýju lífi sem kom út í gær og segist vilja leggja hann niður. Einnig gagnrýnir hún fyrrverandi rektor skólans.

70 sinnum meira af LSD hjá Tollinum

Starfsmenn á Vogi telja meira magn efnisins MDMA, sem helst er að finna í e-töflum, hafa verið í umferð á Íslandi á þessu ári. Tollverðir telja einnig að aukið magn LSD sé í umferð.

Í yfirheyrslu eftir játningu í beinni útsendingu

Lögreglan mun kalla mann til yfirheyrslu sem játað hefur að hafa komið fyrir svínshausum og blóðugu eintaki af Kóraninum á lóð Félags múslima á Íslandi í Sogamýri á miðvikudag.

Styttist í mikla uppbyggingu

Deiliskipulag fyrir Reykjavíkurflugvöll mun liggja fyrir um miðjan desember. Miklar breytingar í Vatnsmýrinni þokast því nær; lokun flugbrautar, grisjun skógar í Öskjuhlíðinni auk uppbyggingar íbúabyggðar.

Tillögur um skuldalækkun samþykktar

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að halda áfram vinnu við undirbúning að framkvæmd tillagna sérfræðingahópsins um höfuðstólalækkun verðtryggðra húsnæðislána.

Fara fram á hlé á aðgerðum í Kolgrafafirði

Landssamband smábátaeigenda hefur farið fram á að Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, heimili ekki frekar aðgerðir til smölunar á síld í Kolgrafafirði.

Skuldatillögur kynntar á morgun

Sérfræðihópur ríkisstjórnarinnar um skuldamál heimilanna hefur lokið störfum og skilað tilllögum til forsætisráðherra. Kostnaður vegna skuldaleiðréttingar er talinn nema um 150 milljörðum króna.

Stofna umhverfissjóð til verndar Laugavegi

Ferðafélag Íslands hefur sett á fót sérstakan umhverfissjóð. Tilefnið er náttúruvernd á starfssvæði félagsins – ekki síst við hina vinsælu gönguleið Laugaveginn. Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar sjóðsins. Sveitarfélögin verða virkjuð í stjórn.

„Við vorum bara að mótmæla mosku þarna“

Einn þeirra sem dreifðu svínshausum, blóði og blaðsíðum úr Kóraninum á lóð Félags múslima á Íslandi í fyrradag, segist hafa verið enn á lóðinni þegar lögregla kom á vettvang. Hann segir að tuttugu manna hópur standi á bak við verknaðinn.

Kaupa faðernispróf á netinu

Hægt er að kaupa einföld erfðapróf á netinu og fá niðurstöðu á viku. Nokkuð er um að faðerni sé sannað með prófunum. Félagsráðgjafi á Landspítalanum segir alltaf eiga að fara í próf í stað þess að velkjast í vafa.

Óljóst hvort sprengjur hafi rekið síldina út úr Kolgrafafirði

Óljóst er hvort eitthvað af síld hefur flæmst út úr Kolgrafafirði í gær, þegar reynt var að smala henni út með því að sprengja hvellhettur neðansjávar. Vitað er að þær höfðu fælandi áhrif á síldina en dagsbirtan entist ekki til að meta endanlegan árangur.

Sjá næstu 50 fréttir