Eru báðir jóladrengir Símon Birgisson skrifar 30. nóvember 2013 12:00 Bogomil font og Samúel Jón Samúelsson, mennirnir á bak við majónes jólin. Fréttablaðið/GVA
Það verða majónes-jól í Silfurbergi, Hörpu, á sunnudaginn þegar Stórsveit Reykjavíkur ásamt Bogomil Font heldur sína árlegu jólatónleika. Jólaplata Bogomils, Majónes jól, sem kom út fyrir nokkrum árum verður spiluð í heild sinni en stjórnandi er Samúel J. Samúelsson. „Þessi plata var nú upphaflega svolítið prívat grín en það er auðvitað frábært þegar fólk hefur gaman af því sem þú ert að gera,“ segir Sigtryggur Baldursson – Bogomil Font. Majónes jól eru óðum að komast í hóp hinna „klassísku“ jólaplatna og hljóma lög af henni reglulega í útvarpinu yfir hátíðirnar.Viljum njóta jólanna „Þetta átti nú aldrei að verða einhver vinsældaplata. Okkur fannst þetta bara skemmtileg músík og reyndum að nálgast þetta á einlægan hátt. Þó að sumir textarnir virki svolítið kaldhæðnir þá erum við einlægir í því að skemmta okkur og njóta jólanna.“ Sigtryggur segir Majónes jólin vera innblásin af kalypsó-músík. „Galdurinn á bak við kalypsó liggur í textagerðinni. Maður þarf að geta gert grín að hlutum en þykja vænt um þá í leiðinni. Þannig eru Majónes jólin. Við Samúel erum báðir miklir jóladrengir en svo eru ákveðnir hlutir við jólin sem fara líka í taugarnar á okkur – öll þessi neyslugeðveiki og sölumennska og við gerum grín að þessu en þykir vænt um allt þetta stúss á sama tíma.“ Tónleikarnir hefjast á sunnudaginn klukkan 17.00. Sigtryggur segir þetta enga risatónleika heldur kærkomið tækifæri til að tylla sér niður, hluta á jólatónlist og njóta augnabliksins. „Þetta eru afslappaðir fjölskyldutónleikar þar sem við spilum lögin af plötunni. Bara svona klukkutími. Þetta eru ekki risajólatónleikar í Laugardalshöll heldur hugsaðir sem léttir síðdegissunnudagstónleikar fyrir kvöldmatinn.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira