Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fann fyrir ógleði eftir klórleka í fatahreinsun Slökkviliðið var kallað að fatahreinslun í Hamraborg í Kópavogi nú rétt fyrir klukkan tíu. Þar hafði klór lekið úr fötu og var óttast um eituráhrif. Einn einstaklingur var fluttur á slysadeild en hann fann fyrir ógleði og öðrum eitureinkennum. Nú er nýbúið að eiturefnamæla og mælarnir sýndu enga mengun þannig að slökkviliðið telur að um minniháttar atvik hafi verið að ræða. 16.1.2013 10:07
Vill hafa gætur á arðgreiðslum ISNIC Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, vill koma í veg fyrir að miklir fjármunir verði teknir út úr fyrirtækinu ISNIC í formi arðgreiðslna. Þetta kom fram í máli ráðherrans á Alþingi í gær þar sem hann mælti fyrir frumvarpi um landslénið .is. 16.1.2013 09:54
Lögregla skuli fá að gabba níðinga Fagaðilar sammælast um nauðsyn róttækari aðgerða til að sporna við kynferðisbrotum gegn börnum. Formaður allsherjarnefndar mun beita sér fyrir tálbeituheimildum lögreglu. Breyttir tímar kalli á breyttar áherslur. 16.1.2013 07:00
Samstillt átak þarf gegn lúsavandamáli Lúsar hefur orðið vart í skólum landsins. Hjúkrunarfræðingur hjá landlæknisembættinu segir alltaf erfitt að eiga við lúsina. Úrræði séu fá en þó sé komið nýtt lúsalyf sem lofi góðu. Lykillinn sé þó alltaf að foreldrar fylgist með börnum sínum. 16.1.2013 07:00
Ferðamenn lokkaðir með fornum goðum "Nú þegar er farið að nota æsina í kvikmyndir í Ameríku og því enn frekari ástæða til að skerpa á því hverjir varðveittu sögurnar um hinn forna sið,“ segir áhugahópur sem vill samkeppni um myndskreytingar gatna í svokölluðu Goðahverfi. 16.1.2013 07:00
Kynferðisbrot afa til rannsóknar Lögreglan á Akureyri hefur nú til rannsóknar meint kynferðisbrot 77 ára gamals manns gegn tveimur dóttursonum sínum, piltum sem þá voru á barnsaldri. 16.1.2013 07:00
Aron varar við auknu eftirliti Aron Pálmi Ágústsson, sem dæmdur var til refsingar í Bandaríkjunum fyrir kynferðisbrot gegn barni þegar hann var þrettán ára, sendi þingmönnum bréf í síðustu viku þar sem hann varar við breytingum á lögum um eftirlit með dæmdum barnaníðingum. 16.1.2013 07:00
Ekki nógu vel tekið á ofbeldinu hérlendis Hér á landi hefur ekki verið tekið á ofbeldi gegn börnum af nægilegum styrk og festu. 16.1.2013 07:00
Heita vatnið aftur komið á í Vesturbænum Heitt vatn komst aftur á í Vesturbæ Reykjavíkur um klukkan hálf tólf í gærkvöldi eftir bilun fyrr um kvöldið. 16.1.2013 06:54
Rannsaka fjögur tilvik um eld í vatnskælivélum Lögreglan á Akureyri er nú að rannsaka nánar fjögur tilvik á tveimur árum, þar sem kviknað hefur í vatnskælivélum í mötuneytum, eða kaffistofum á vinnustöðum. 16.1.2013 06:52
Ofurölvi ökumaður keyrði inn í garð á Selfossi Ofurölvi ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Selfossi seint í gærkvöldi og hafnaði bíllinn á stórum steini inni í húsagarði. 16.1.2013 06:50
Engar norskar útgerðir með skip á loðnumiðunum Norskar útgerðir hafa ekki enn séð ástæðu til að senda loðnuskip á Íslandsmið, en þær höfðu heimildir til þess frá áramótum. 16.1.2013 06:49
Þrír menn teknir eftir innbrot í Kvikmyndaskólann Brotist var inn í Kvikmyndaskólann við Ofanleiti í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt og komust þjófarnir undan. 16.1.2013 06:45
Vilja að lögregla fái heimild til að beita virkum tálbeitum til að góma barnaníðinga Formaður allsherjarnefndar vill beita sér fyrir því að lögregla fái heimild til þess að beita virkum tálbeitum á netinu. Ríkissaksóknari segir að með því séu menn komnir á varhugaverðar slóðir og að hugmyndina þurfi að íhuga vandlega. 15.1.2013 21:35
Ekkert heitt vatn í Vesturbænum Nú fyrir skömmu varð heitavatnslaust í hluta Vesturbæjar Reykjavíkur vegna bilunar. 15.1.2013 20:54
Maðurinn fundinn Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í dag er fundinn. Lögreglan þakkar aðstoðina. 15.1.2013 20:35
Kannabis í Vesturbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Við húsleit var lagt hald á rúmlega 70 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Ekki var að sjá að búið væri í íbúðinni en húsnæðið virðist hafa verið notað í þeim eina tilgangi að rækta kannabis. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. 15.1.2013 19:46
Íslenskir námsmenn í skuldasúpu eftir viðskipti við Halldór Viðar Sanne Tugir Íslendinga, í mörgum tilvikum ungir námsmenn með lítið fé milli handanna, sitja í skuldasúpu eftir viðskipti sín við svikahrappinn Halldór Viðar Sanne sem nú situr í gæsluvarðhaldi. Þeir sem verst urðu úti skulda milljónir. 15.1.2013 18:45
Heimili barnaníðings í gæsluvarðhaldi lagt í rúst Brotist var inn á heimili barnaníðingsins Gunnars Jakobssonar á Stokkseyri aðfaranótt laugardags. Gunnar hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því á föstudag grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn börnum. 15.1.2013 17:49
Þekkirðu manninn á myndinni? - Eftirlýstur vegna lögreglurannsóknar Maðurinn á meðfylgjandi mynd er eftirlýstur af lögreglunni vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum til lögreglunnar á fésbókinni. 15.1.2013 16:20
Fimm kærur á hendur Karli Vigni Alls hafa fimm kærur borist vegna Karls Vignis Þorsteinssonar eftir að Kastljós hóf umfjöllun um mál hans. Þar er um að ræða mál þar sem fjórir karlmenn koma við sögu og ein kona. 15.1.2013 15:44
Halldór Laxness með mest seldu bókina Það er ljóst að bókaunnendur hugsi töluvert um heilsuna eftir jólin, en mest selda bókin á tímabilinu 1. til 12. janúar var bókin 6 kíló á 6 vikum. Þetta kemur fram í lista Rannsóknaseturs verslunarinnar sem tekinn er saman fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. 15.1.2013 15:28
Jón Þorsteinn stefnir DV Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, hefur stefnt Reyni Traustasyni, ritstjóra DV, og Inga Frey Vilhjálmssyni, fréttastjóra blaðsins, vegna umfjöllunar um gjaldeyrisviðskipti Jóns Þorsteins. 15.1.2013 15:21
Fyrirtæki vöruð við flóknum svikum tölvuþrjóta Lögregla á Norðurlöndum varar við tölvuinnbrotum sem eiga sér stað í samskiptum norrænna og kínverskra fyrirtækja í þeim tilgangi að komast yfir lögmætar greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. 15.1.2013 14:58
Myndin mun ekki gera lítið úr WikiLeaks "Ég hef reynt að gera mitt besta til þess að tryggja að þetta verði ekki and-WikiLeaks-mynd," segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar um fyrirhugaða kvikmynd um vefsíðuna WikiLeaks og forsvarsmann hennar, Julian Assange. 15.1.2013 14:52
Kannast þú við úlpuþjófinn? Þremur verðmætum úlpum var stolið úr fatahengi í anddyri Fjölbrautaskóla Suðurlands síðastliðinn föstudag 11. janúar klukkan 08:25. 15.1.2013 14:35
Fæstar sakfellingar á Suðurlandi Töluverður munur er á sakfellingarhlutfalli héraðsdóma á Íslandi samkvæmt gögnum sem Páll Hilmarsson tók saman og vann úr af vefsíðu héraðsdómanna. 15.1.2013 14:33
Eitrað illgresi í klettasalatspokum Eitrað illgresi fannst í nokkrum pokum af ítölsku klettasalati. Mistökin uppgötvuðust eftir að nokkrir neytendur höfðu fengið eitrunaráhrif, m.a. sviða og bólgur í munnholi. Heilbrigiseftirlit Reykjavíkur tilkynnti þá Matvælastofnun að innkalla skyldi salatið. Ráðlagt er að skola salat og tína úr lauf sem eru frábrugðin. 15.1.2013 13:58
Lögregla þarf rýmri heimildir til að fást við kynferðisbrot Flestir þeirra gesta sem mættu á fund allsherjar- og menntamálanefndar í morgun þar sem fjallað var um kynferðisbrot gegn börnum voru þeirrar skoðunnar að lögregla ætti að fá rýmri heimildir til þess að beita svokölluðum virkum tálbeitum á Netinu, í því skyni að góma barnaníðinga. Á fundinn mættu fulltrúar frá innanríkisráðuneyti, Ríkissaksóknara, Barnaverndarstofu, Stígamótum og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu auk Svölu Ísfeld Ólafsdóttur lögfræðingi og sérfræðingi í kynferðisbrotum gegn börnum. 15.1.2013 13:47
Réttað í máli Stúlku eftir helgi Aðalmeðferð fer fram í máli Stúlku Bjarkardóttur Rúnarsdóttur næstkomandi mánudag. 15.1.2013 13:36
Útkoman týpísk Hollywood-steypa "Ég hef heyrt ávæning af handritinu og það hefur ekki verið til þess að auka bjartsýni mína um að þarna sé vel farið með. Ég treysti Hollywood ekki sérstaklega vel til þess að vera skrásetjari sögunnar," segir Kristinn Hrafnsson talsmaður WikiLeaks. 15.1.2013 12:59
IKEA tók umdeildan skógarhöggsmann úr umferð Auglýsing sem var gerð fyrir Ikea í aðdraganda síðustu jóla var tekin úr umferð. Samkvæmt heimildum Vísis var ástæðan sú að kvartanir bárust frá áhorfanda um efni hennar. 15.1.2013 11:46
Segir yfirvöld opna á ritskoðun á Internetinu Með frumvarpi um landslénið .is, sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun leggja fyrir Alþingi í dag, er verið að fara aftur til fornaldar að sögn Jens Péturs Jenssonar, framkvæmdastjóra ISNIC. 15.1.2013 11:37
Átak gegn langtímaatvinnuleysi af stað Liðsstyrkur, sameiginlegt atvinnuátak stéttarfélaga, atvinnurekenda, sveitarfélaga og ríkisins gegn langtímaatvinnuleysi fór af stað í morgun. 15.1.2013 11:04
Fékk magakveisu á lokametrunum Pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir fékk magakveisu í gær þegar Hún átti aðeins 55 kílómetra eftir af göngunni en hún er búin að ganga síðan í nóvember. Í bloggi sem hún heldur úti skrifar Vilborg: 15.1.2013 10:32
Börðust við þakplötur og fjúkandi skilti Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi var kölluð út á þriðja tímanum í nótt þegar tilkynning barst um að skilti á fyrirtæki í bænum væri að fjúka. 15.1.2013 10:12
iPhone svindlarinn hafði fé af um hundrað manns Halldór Viðar Sanne, sem situr í gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn fyrir að svíkja fé út úr fólki er grunaður um að hafa svikið um 100 manns. Þetta segir Henning Schmidt, yfirmaður efnahagsbrotadeildar dönsku lögreglunnar í samtali við Vísi. Hann er talinn hafa staðið einn að svindlinu. 15.1.2013 09:51
Óveður á Kjalarnesi og undir Hafnafjalli Óveður er á Kjalarnesi og undir Hafnafjalli. Vindur gengur hinsvegar mikið niður á þessum slóðum og norðanverðu Snæfellsnesi eftir því sem líður á morguninn. 15.1.2013 08:53
Rammaáætlun verður að lögum Alþingi samþykkti Rammaáætlun með 36 atkvæðum í gær. Friðlýsing á verndarsvæðum fer strax af stað, segir umhverfisráðherra. Stjórnarandstaðan telur pólitík hafa tekið yfir vísindalegt ferli og tækifæri til sáttar hafi glutrast niður. 15.1.2013 07:00
Varð undir veghefli en kláraði vaktina Pétri Óla Péturssyni tókst með snarræði að bjarga eigin lífi þegar hann varð nærri undir veghefli sem hann ók sjálfur. Hann segist aðeins vera skrámaður og bólginn og gat klárað vaktina í fyrrinótt. 15.1.2013 07:00
ESB-viðræður verði ekki að bitbeini í kosningabaráttu Aðildarviðræður Íslands og ESB hafa verið settar í hægagang en viðræður um samningskafla sem þegar eru hafnar halda áfram. Utanríkisráðherra segist reyna að forða því að ESB verði að stóru deilumáli í kosningunum. 15.1.2013 07:00
Bæjarritarinn rekinn eftir 25 ár á Akranesi Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari á Akranesi til 25 ára og settur bæjarstjóri um tíma, var rekinn úr starfi fyrir helgi. Bæjarstjórnin segir Jón hafa brugðist trúnaði með því að tvírukka fyrir akstur og fundarsetur. Fordæmalaus vinnubrögð, segir Jón. 15.1.2013 07:00
Hefðum lagt fram 13 milljarða Væri Ísland aðildarríki í ESB og evrusamstarfinu myndi hlutur landsins í stöðugleikasjóð Evrópusambandsins (ESM) nema ríflega þrettán milljörðum króna í formi ábyrgða á lánveitingum sem evruríkin ábyrgjast. Um einskiptisframlag væri að ræða, sem yrði skráð í fjárlögum sem eign ríkissjóðs, en ekki kostnaður. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingkonu Framsóknarflokks. 15.1.2013 07:00
Íbúar mótmæla læknisleysi um helgar „Þetta er grafalvarlegt mál og í raun spurning um hvort fólk geti búið hér áfram,“ segir Hjördís Vilhjálmsdóttir, einn íbúa í Grundarfirði sem berjast gegn fyrirhuguðum niðurskurði sem þýðir að ekki verður starfandi læknir í bænum um helgar. 15.1.2013 07:00
Fleiri ábendingar eftir Kastljós Kynferðisafbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu finnur fyrir því að meira er um ábendingar og hringingar til embættisins vegna kynferðisbrotamála í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um brot Karls Vignis Þorsteinssonar. Þetta segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. 15.1.2013 07:00