Fleiri fréttir Verkefni björgunarsveita af ýmsum toga Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa víða verið að störfum í dag. Mest hefur verið að gera í Húnavatnssýslum, norðanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi. Hátt í 30 aðstoðarbeiðnir í Húnavatnssýslum og var Mest var að gera um hádegisbil í dag en ástandið róaðist þegar leið á daginn. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu voru verkefnin af öllum toga, allt frá brotnum rúðum í bílum upp í laus hlöðuþök. Þakplötur hafa víða losnað, þar á meðal á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga sem og í sveitum í kring. 29.12.2012 17:00 Vindhviður allt að 50 metrum Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir að hámarki veðurofsans á Vestfjörðum hafi verið náð á fimmta tímanum í dag. 29.12.2012 16:57 Óvíst hvenær viðgerðir geta hafst - nokkrir rafmagnsstaurar hafa brotnað Rarik beinir því til íbúa í Snæfellsbæ að fara sparlega með rafmagn til að bæði auðvelda starfsmönnum að koma rafmagni á aftur og að fyrirbyggja skömmtum. 29.12.2012 16:17 Fáir á ferli í myrkvuðum Ísafjarðarbæ "Við höfum bara haldið okkur heima," segir Halldór Halldórsson, formaður Samband Íslenskra sveitarfélaga og Ísfirðingur. "Við höfum nú ekki fundið fyrir kuldanum hingað til. Stuttu eftir að rafmagnið fór af þá kveiktum við bara í kamínunni þannig að það er funheitt hjá okkur." 29.12.2012 16:00 Rafmagns- og heitavatnslaust á Ísafirði Rafmagns- og hitavatnslaust er nú á Ísafirði og í Bolungarvík. Starfsmenn Orkubúsins vinna nú að viðgerðum á varaaflsvélum en þær biluðu fyrr í dag. 29.12.2012 15:19 Pólfarar hittust á aðfangadag - Vilborg Arna búin að ganga 700 kílómetra Vilborg Arna Gissurardóttir sem stödd er á suðurskautslandinu segist miða vel áfram. Hún tók fram úr öðrum pólfara á aðfangadagkvöld og segir það hafa verið sérstæða reynslu að rekast á aðra manneskju á Suðurskautslandinu. 29.12.2012 14:31 Maðurinn sem lést í Silfru Maðurinn sem lést í köfunarslysi í Silfru í gær hét Björn Kolbeinsson og var fæddur 25. júlí 1977. Björn var ókvæntur og barnlaus. 29.12.2012 14:23 Almannavarnir funda um óveðrið - Rýmingu aflétt á Patreksfirði Almannavarnir funduðu með Veðurstofunni, Vegagerðinni, björgunarsveitum, lögreglunni og Neyðarlínunni nú í hádeginu. Farið var yfir stöðu mála á Vesturlandi og Norðurlandi þar sem aftakaveður er nú. Víðir Reynisson, deildarstjóri Almannavarna, segir að rýmingu á einum reit á Patreksfirði vegna snjóflóðahættu hafi verið aflétt. Þetta þýðir að 52 íbúar geta nú snúið aftur til heimila sinna. 29.12.2012 13:55 Líkamsárásum fjölgar og innbrotum fækkar Innbrotum, umferðarslysum og tilkynningum um veggjakrot fækkar ár frá ári á höfuðborgarsvæðinu en líkamsárásum fjölgar. Þetta er meðal þess sem sjá má þegar rýnt er í bráðarbirgðatölur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 29.12.2012 12:20 Nóg um að vera hjá Björgunarsveitum Björgunarsveitir hafa verið að störfum víða um land í morgun. Björgunarsveitamenn á vestanverðu landinu eru sammála um að minna hafi verið um að vera en þeir áttu von á. En mikið hefur bætt í vind undanfarna klukkustund og veður víða orðið snarvitlaust. 29.12.2012 12:05 Þak að hrynja af fjósi í Önundarfirði Björgunarfélag Ísafjarðar er nú á leið í Önundarfjörð þar sem hlaða er að hrynja af fjósi. Ellefu manna sveit fór til aðstoðar en um 70 gripir eru í fjósinu. 29.12.2012 11:51 Sést vart milli húsa í Súðavík "Það sést varla milli húsa," segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík. "Það var um miðnætti í gær þegar hann fór að blása alla hressilega og það hefur verið hvasst síðan þá." 29.12.2012 11:38 Veður fer versnandi á Vestfjörðum "Nóttin var nokkuð róleg hjá okkur,“ segir Reimar Vilmundarson hjá Björgunarsveitinni Erni í Bolungarvík. Óveður geisar nú á Vestfjörðum og eru vegir meira eða minna lokaðir eða ófærir. Í nótt náði vindhraði víða þrjátíu metrum á sekúndu og í vindhviðum náði hann allt að fimmtíu metrum á sekúndu. 29.12.2012 10:38 Erill hjá lögreglu í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nógu að snúast frá því í gærkvöldi og ekki aðeins í tilvikum sem tengjast veðrinu. Rétt fyrir klukkan átta í gær var tilkynnt um innbrot í Fannafold og hafði húsráðandi komið að tveimur óboðnum gestum í íbúð sinni. Þeir lögðu á flótta og íbúinn á eftir, en hann missti af þeim. 29.12.2012 09:48 Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu Nokkur útköll sem rekja má til veðurs hafa verið hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í nótt. Voru þau öll minniháttar. 29.12.2012 09:17 Ekkert ferðaveður á Vestfjörðum - nóttin gekk stóráfallalaust Ekkert ferðaveður er á Vestfjörðum og eru vegir meira eða minna lokaðir eða ófærir. Á norðanverðum Vestfjörðum er vindhraði víða um þrjátíu metrar á sekúndu og í vindhviðum nær hann allt að fimmtíu metrum á sekúndu. 29.12.2012 09:14 Telur strætó hafa lagt of snemma af stað Eldri kona missti af strætó í Staðarskála. Gert var stopp á leiðinni frá Akureyri til Reykjavíkur. Fékk á endanum far með flutningabíl en farangurinn fór með strætó til Reykjavíkur. Bætum úr hafi okkur orðið á, segir framkvæmdastjóri Strætó. 29.12.2012 08:00 Rauðkálið talið einangrað tilvik Fólkið sem kveðst hafa fengið rauðkál í grænubaunadós á aðfangadagskvöld hafði uppi á dósinni sem talin var glötuð. Þar með er fundið svokallað lotunúmer dósarinnar sem Ora-verksmiðjan sagði vanta til að hægt vera að varpa skýrara ljósi á málið. 29.12.2012 08:00 Læsir kössum um áramótin Líkt og síðastliðin ár grípur Pósturinn til aðgerða til að sporna við skemmdarverkum á póstkössum sem eru utanhúss á höfuðborgarsvæðinu. 29.12.2012 08:00 Nær allir velja samfélagsþjónustu í stað sekta Tæplega 76 prósent þeirra sem dæmdir eru til að greiða háar fjársektir kjósa að borga ekki sektina og afplána frekar samfélagsþjónustu. Dómstólar hafa ekkert um málið að segja. 28.12.2012 18:30 Sjaldan meira sólskin Árið 2012 var óvenjulega hlýtt og sérstaklega sólríkt. 28.12.2012 23:53 Spenntur fyrir Hollywood "Það er auðvitað bara frábært fyrir frekar fátækan listamann eins og mig að fá aðeins betur borgað fyrir vinnuna.“ 28.12.2012 23:25 Hægt að sprengja í prýðilegu veðri Siggi Stormur varar eindregið við fárviðri á morgun. Áramótaveðrið verður aftur á móti prýðilegt. 28.12.2012 23:13 Norðmenn gera Ísland að olíuríki með sögulegum sáttmála Noregur ætlar að gera Ísland að olíuríki. Íslendingum hjálpað til að verða ríkir. Svo segir í fyrirsögn í frétt á viðskiptasíðu Verdens gang, útbreiddasta blaðs Noregs, í dag í tilefni væntanlegrar undirritunar samnings þjóðanna í næstu viku um þátttöku Noregs í olíuleit í lögsögu Íslands. Samningnum er lýst sem sögulegum fyrir Noreg þar sem með honum muni norska ríkið í fyrsta sinn taka þátt í olíuleit utan eigin lögsögu. 28.12.2012 22:41 Hefði getað gert alvöru úr hótununum Farið myndrænt yfir flóttaleið Matthíasar. 28.12.2012 21:08 Fannfergið truflar sjónvarpsútsendingar Fannfergið á landinu er slíkt að það truflar sjónvarpsútsendingar. 28.12.2012 20:57 Eitt versta veður síðustu ára Stefnir mögulega í versta veður síðustu ára. Höfuðborgarsvæðið einnig undir. Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu. 28.12.2012 20:25 Gylfi Zoëga hlýtur Ásuverðlaunin Gylfi er sagður glæsilegur vísindamaður og duglegur að koma vitneskju sinni á framfæri til almennings. 28.12.2012 20:13 Innbrot aldrei verið færri Afbrotum fækkar almennt milli ára. 28.12.2012 19:56 Hættustigi lýst yfir á stórum hluta landsins Hættuástandið gildir allt frá Selfossi og Suðurnesjum til Húsavíkur. 28.12.2012 19:06 Norski olíumálaráðherrann kemur vegna Drekaleyfanna Olíumálaráðherra Noregs kemur til Íslands í næstu viku, ásamt tíu manna sendinefnd, til að vera við athöfn þegar fyrstu olíuvinnsluleyfin í íslenskri lögsögu verða gefin út. Noregur er fimmta mesta olíuútflutningsríki jarðar, þar er olíuiðnaðurinn mikilvægasta atvinnugreinin, og embætti olíumálaráðherrans eitt það áhrifamesta í landinu. 28.12.2012 18:44 Strandaglópar á Súðavík Fólksflutningabátur siglir milli Ísafjarðar og Súðavíkur til að koma strandaglópum til Ísafjarðar. 28.12.2012 18:33 Banaslys í Silfru Íslenskur karlmaður á fertugsaldri lést við köfun í Silfru fyrr í dag. 28.12.2012 18:06 Fólk beðið að vera ekki á ferli að óþörfu Höfuðborgarsvæðið er að verða illfært. 28.12.2012 17:43 Víða rýmingar á Ísafirði Snjóalög og veðurspá fyrir Vestfirði er með þeim hætti að hús á ákveðnum svæðum hafa verið rýmd með öryggi íbúa að leiðarljósi. Þannig hafa verið rýmd nokkur hús á Patreksfirði og á Ísafirði, auk nokkurra sveitarbæja í Dýrafirði, Önundarfirði og Hnífsdal, segir í tilkynningu frá almannavörnum. 28.12.2012 16:46 Eiríkur Ingi maður ársins á Bylgjunni Eiríkur Ingi Jóhannsson, sjómaður sem komst af eftir hryllilegan sjóskaða fyrr á árinu, er maður ársins á Bylgjunni árið 2012. Kosning fór fram bæði á Vísir.is sem og á Bylgjunni þar sem hlustendur hringdu inn og greiddu atkvæði sitt. Eiríkur Ingi fór með afgerandi sigur í kosningunni. 28.12.2012 16:43 Einn fluttur með þyrlu - ekki vitað um ástand kafarans Einn hefur verið fluttur á spítala vegna umferðaslyss í Skaftafelli á Suðurlandi í dag. Þá valt bifreið en í henni voru þrír einstaklingar. Björgunarsveitin Kári í Öræfum sinnti útkallinu og aðstoðaði lögreglu á vettvangi. 28.12.2012 15:55 Vegum lokað klukkan sex á Vestfjörðum Veginum um Eyrarhlíð, Botnsdal, Breiðadal og Flateyrarveg verður lokað kl. 18:00 vegna snjóflóðahættu samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 28.12.2012 15:31 Varðskip Gæslunnar í viðbragðsstöðu Varðskip, þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar eru nú í viðbragðsstöðu vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum. Almannavarnir hafa í samráði við Veðurstofuna lýst yfir viðbúnaði á svæðinu og er Landhelgisgæslan til taks og bregst við samkvæmt nánari ákvörðun Almannavarna. 28.12.2012 15:06 Alvarlegt köfunarslys í Silfru Rétt fyrir klukkan tvö í dag barst lögreglu á Selfossi tilkynning um alvarlegt köfunarslys í Silfru á Þingvöllum. 28.12.2012 15:01 Glitnismenn geta tekið refsinguna út með samfélagsþjónustu Þeir Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason munu ekki þurfa að sitja af sér refsingu vegna Vafningsdómsins í fangelsi. Í staðinn munu þeir geta tekið út refsinguna með samfélagsþjónustu. Þeir voru í dag dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna. Þrír mánuðir eru því óskilorðsbundir hjá hvorum þeirra. 28.12.2012 14:49 Ríkið greiðir 20 milljónir vegna rannsakenda sem voru kærðir Íslenska ríkið þarf að greiða helminginn af málskostnaði lögfræðinga Lárusar Weldings og Guðmundar Hjaltasonar, sem voru dæmdir fyrir umboðssvik í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag með lánveitingu upp á rúma tíu milljarða til handa Vafningi sem var í raun lán til þess að greiða upp skuldir Milestone. 28.12.2012 14:32 Póstkössum breytt vegna sprengjuvarga Síðastliðin ár hefur Pósturinn læst póstkössum sem staðsettir eru utanhúss á höfuðborgarsvæðinu yfir áramót. 28.12.2012 13:40 Súðavíkurhlíð lokað vegna snjóflóðahættu Búið er að loka Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Áætlað er að hleypa umferð í gegn kl. 13.00 undir eftirliti. 28.12.2012 13:01 Viðvörun frá Veðurstofu Íslands Veðurstofan varar við óveðri á Vestfjörðum síðdegis og í nótt og á morgun norðan- og vestanlands. Ekkert ferðaveður verður á vestan- og norðanverðu landinu. 28.12.2012 11:46 Sjá næstu 50 fréttir
Verkefni björgunarsveita af ýmsum toga Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa víða verið að störfum í dag. Mest hefur verið að gera í Húnavatnssýslum, norðanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi. Hátt í 30 aðstoðarbeiðnir í Húnavatnssýslum og var Mest var að gera um hádegisbil í dag en ástandið róaðist þegar leið á daginn. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu voru verkefnin af öllum toga, allt frá brotnum rúðum í bílum upp í laus hlöðuþök. Þakplötur hafa víða losnað, þar á meðal á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga sem og í sveitum í kring. 29.12.2012 17:00
Vindhviður allt að 50 metrum Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir að hámarki veðurofsans á Vestfjörðum hafi verið náð á fimmta tímanum í dag. 29.12.2012 16:57
Óvíst hvenær viðgerðir geta hafst - nokkrir rafmagnsstaurar hafa brotnað Rarik beinir því til íbúa í Snæfellsbæ að fara sparlega með rafmagn til að bæði auðvelda starfsmönnum að koma rafmagni á aftur og að fyrirbyggja skömmtum. 29.12.2012 16:17
Fáir á ferli í myrkvuðum Ísafjarðarbæ "Við höfum bara haldið okkur heima," segir Halldór Halldórsson, formaður Samband Íslenskra sveitarfélaga og Ísfirðingur. "Við höfum nú ekki fundið fyrir kuldanum hingað til. Stuttu eftir að rafmagnið fór af þá kveiktum við bara í kamínunni þannig að það er funheitt hjá okkur." 29.12.2012 16:00
Rafmagns- og heitavatnslaust á Ísafirði Rafmagns- og hitavatnslaust er nú á Ísafirði og í Bolungarvík. Starfsmenn Orkubúsins vinna nú að viðgerðum á varaaflsvélum en þær biluðu fyrr í dag. 29.12.2012 15:19
Pólfarar hittust á aðfangadag - Vilborg Arna búin að ganga 700 kílómetra Vilborg Arna Gissurardóttir sem stödd er á suðurskautslandinu segist miða vel áfram. Hún tók fram úr öðrum pólfara á aðfangadagkvöld og segir það hafa verið sérstæða reynslu að rekast á aðra manneskju á Suðurskautslandinu. 29.12.2012 14:31
Maðurinn sem lést í Silfru Maðurinn sem lést í köfunarslysi í Silfru í gær hét Björn Kolbeinsson og var fæddur 25. júlí 1977. Björn var ókvæntur og barnlaus. 29.12.2012 14:23
Almannavarnir funda um óveðrið - Rýmingu aflétt á Patreksfirði Almannavarnir funduðu með Veðurstofunni, Vegagerðinni, björgunarsveitum, lögreglunni og Neyðarlínunni nú í hádeginu. Farið var yfir stöðu mála á Vesturlandi og Norðurlandi þar sem aftakaveður er nú. Víðir Reynisson, deildarstjóri Almannavarna, segir að rýmingu á einum reit á Patreksfirði vegna snjóflóðahættu hafi verið aflétt. Þetta þýðir að 52 íbúar geta nú snúið aftur til heimila sinna. 29.12.2012 13:55
Líkamsárásum fjölgar og innbrotum fækkar Innbrotum, umferðarslysum og tilkynningum um veggjakrot fækkar ár frá ári á höfuðborgarsvæðinu en líkamsárásum fjölgar. Þetta er meðal þess sem sjá má þegar rýnt er í bráðarbirgðatölur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 29.12.2012 12:20
Nóg um að vera hjá Björgunarsveitum Björgunarsveitir hafa verið að störfum víða um land í morgun. Björgunarsveitamenn á vestanverðu landinu eru sammála um að minna hafi verið um að vera en þeir áttu von á. En mikið hefur bætt í vind undanfarna klukkustund og veður víða orðið snarvitlaust. 29.12.2012 12:05
Þak að hrynja af fjósi í Önundarfirði Björgunarfélag Ísafjarðar er nú á leið í Önundarfjörð þar sem hlaða er að hrynja af fjósi. Ellefu manna sveit fór til aðstoðar en um 70 gripir eru í fjósinu. 29.12.2012 11:51
Sést vart milli húsa í Súðavík "Það sést varla milli húsa," segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík. "Það var um miðnætti í gær þegar hann fór að blása alla hressilega og það hefur verið hvasst síðan þá." 29.12.2012 11:38
Veður fer versnandi á Vestfjörðum "Nóttin var nokkuð róleg hjá okkur,“ segir Reimar Vilmundarson hjá Björgunarsveitinni Erni í Bolungarvík. Óveður geisar nú á Vestfjörðum og eru vegir meira eða minna lokaðir eða ófærir. Í nótt náði vindhraði víða þrjátíu metrum á sekúndu og í vindhviðum náði hann allt að fimmtíu metrum á sekúndu. 29.12.2012 10:38
Erill hjá lögreglu í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nógu að snúast frá því í gærkvöldi og ekki aðeins í tilvikum sem tengjast veðrinu. Rétt fyrir klukkan átta í gær var tilkynnt um innbrot í Fannafold og hafði húsráðandi komið að tveimur óboðnum gestum í íbúð sinni. Þeir lögðu á flótta og íbúinn á eftir, en hann missti af þeim. 29.12.2012 09:48
Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu Nokkur útköll sem rekja má til veðurs hafa verið hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í nótt. Voru þau öll minniháttar. 29.12.2012 09:17
Ekkert ferðaveður á Vestfjörðum - nóttin gekk stóráfallalaust Ekkert ferðaveður er á Vestfjörðum og eru vegir meira eða minna lokaðir eða ófærir. Á norðanverðum Vestfjörðum er vindhraði víða um þrjátíu metrar á sekúndu og í vindhviðum nær hann allt að fimmtíu metrum á sekúndu. 29.12.2012 09:14
Telur strætó hafa lagt of snemma af stað Eldri kona missti af strætó í Staðarskála. Gert var stopp á leiðinni frá Akureyri til Reykjavíkur. Fékk á endanum far með flutningabíl en farangurinn fór með strætó til Reykjavíkur. Bætum úr hafi okkur orðið á, segir framkvæmdastjóri Strætó. 29.12.2012 08:00
Rauðkálið talið einangrað tilvik Fólkið sem kveðst hafa fengið rauðkál í grænubaunadós á aðfangadagskvöld hafði uppi á dósinni sem talin var glötuð. Þar með er fundið svokallað lotunúmer dósarinnar sem Ora-verksmiðjan sagði vanta til að hægt vera að varpa skýrara ljósi á málið. 29.12.2012 08:00
Læsir kössum um áramótin Líkt og síðastliðin ár grípur Pósturinn til aðgerða til að sporna við skemmdarverkum á póstkössum sem eru utanhúss á höfuðborgarsvæðinu. 29.12.2012 08:00
Nær allir velja samfélagsþjónustu í stað sekta Tæplega 76 prósent þeirra sem dæmdir eru til að greiða háar fjársektir kjósa að borga ekki sektina og afplána frekar samfélagsþjónustu. Dómstólar hafa ekkert um málið að segja. 28.12.2012 18:30
Spenntur fyrir Hollywood "Það er auðvitað bara frábært fyrir frekar fátækan listamann eins og mig að fá aðeins betur borgað fyrir vinnuna.“ 28.12.2012 23:25
Hægt að sprengja í prýðilegu veðri Siggi Stormur varar eindregið við fárviðri á morgun. Áramótaveðrið verður aftur á móti prýðilegt. 28.12.2012 23:13
Norðmenn gera Ísland að olíuríki með sögulegum sáttmála Noregur ætlar að gera Ísland að olíuríki. Íslendingum hjálpað til að verða ríkir. Svo segir í fyrirsögn í frétt á viðskiptasíðu Verdens gang, útbreiddasta blaðs Noregs, í dag í tilefni væntanlegrar undirritunar samnings þjóðanna í næstu viku um þátttöku Noregs í olíuleit í lögsögu Íslands. Samningnum er lýst sem sögulegum fyrir Noreg þar sem með honum muni norska ríkið í fyrsta sinn taka þátt í olíuleit utan eigin lögsögu. 28.12.2012 22:41
Fannfergið truflar sjónvarpsútsendingar Fannfergið á landinu er slíkt að það truflar sjónvarpsútsendingar. 28.12.2012 20:57
Eitt versta veður síðustu ára Stefnir mögulega í versta veður síðustu ára. Höfuðborgarsvæðið einnig undir. Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu. 28.12.2012 20:25
Gylfi Zoëga hlýtur Ásuverðlaunin Gylfi er sagður glæsilegur vísindamaður og duglegur að koma vitneskju sinni á framfæri til almennings. 28.12.2012 20:13
Hættustigi lýst yfir á stórum hluta landsins Hættuástandið gildir allt frá Selfossi og Suðurnesjum til Húsavíkur. 28.12.2012 19:06
Norski olíumálaráðherrann kemur vegna Drekaleyfanna Olíumálaráðherra Noregs kemur til Íslands í næstu viku, ásamt tíu manna sendinefnd, til að vera við athöfn þegar fyrstu olíuvinnsluleyfin í íslenskri lögsögu verða gefin út. Noregur er fimmta mesta olíuútflutningsríki jarðar, þar er olíuiðnaðurinn mikilvægasta atvinnugreinin, og embætti olíumálaráðherrans eitt það áhrifamesta í landinu. 28.12.2012 18:44
Strandaglópar á Súðavík Fólksflutningabátur siglir milli Ísafjarðar og Súðavíkur til að koma strandaglópum til Ísafjarðar. 28.12.2012 18:33
Banaslys í Silfru Íslenskur karlmaður á fertugsaldri lést við köfun í Silfru fyrr í dag. 28.12.2012 18:06
Víða rýmingar á Ísafirði Snjóalög og veðurspá fyrir Vestfirði er með þeim hætti að hús á ákveðnum svæðum hafa verið rýmd með öryggi íbúa að leiðarljósi. Þannig hafa verið rýmd nokkur hús á Patreksfirði og á Ísafirði, auk nokkurra sveitarbæja í Dýrafirði, Önundarfirði og Hnífsdal, segir í tilkynningu frá almannavörnum. 28.12.2012 16:46
Eiríkur Ingi maður ársins á Bylgjunni Eiríkur Ingi Jóhannsson, sjómaður sem komst af eftir hryllilegan sjóskaða fyrr á árinu, er maður ársins á Bylgjunni árið 2012. Kosning fór fram bæði á Vísir.is sem og á Bylgjunni þar sem hlustendur hringdu inn og greiddu atkvæði sitt. Eiríkur Ingi fór með afgerandi sigur í kosningunni. 28.12.2012 16:43
Einn fluttur með þyrlu - ekki vitað um ástand kafarans Einn hefur verið fluttur á spítala vegna umferðaslyss í Skaftafelli á Suðurlandi í dag. Þá valt bifreið en í henni voru þrír einstaklingar. Björgunarsveitin Kári í Öræfum sinnti útkallinu og aðstoðaði lögreglu á vettvangi. 28.12.2012 15:55
Vegum lokað klukkan sex á Vestfjörðum Veginum um Eyrarhlíð, Botnsdal, Breiðadal og Flateyrarveg verður lokað kl. 18:00 vegna snjóflóðahættu samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 28.12.2012 15:31
Varðskip Gæslunnar í viðbragðsstöðu Varðskip, þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar eru nú í viðbragðsstöðu vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum. Almannavarnir hafa í samráði við Veðurstofuna lýst yfir viðbúnaði á svæðinu og er Landhelgisgæslan til taks og bregst við samkvæmt nánari ákvörðun Almannavarna. 28.12.2012 15:06
Alvarlegt köfunarslys í Silfru Rétt fyrir klukkan tvö í dag barst lögreglu á Selfossi tilkynning um alvarlegt köfunarslys í Silfru á Þingvöllum. 28.12.2012 15:01
Glitnismenn geta tekið refsinguna út með samfélagsþjónustu Þeir Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason munu ekki þurfa að sitja af sér refsingu vegna Vafningsdómsins í fangelsi. Í staðinn munu þeir geta tekið út refsinguna með samfélagsþjónustu. Þeir voru í dag dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna. Þrír mánuðir eru því óskilorðsbundir hjá hvorum þeirra. 28.12.2012 14:49
Ríkið greiðir 20 milljónir vegna rannsakenda sem voru kærðir Íslenska ríkið þarf að greiða helminginn af málskostnaði lögfræðinga Lárusar Weldings og Guðmundar Hjaltasonar, sem voru dæmdir fyrir umboðssvik í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag með lánveitingu upp á rúma tíu milljarða til handa Vafningi sem var í raun lán til þess að greiða upp skuldir Milestone. 28.12.2012 14:32
Póstkössum breytt vegna sprengjuvarga Síðastliðin ár hefur Pósturinn læst póstkössum sem staðsettir eru utanhúss á höfuðborgarsvæðinu yfir áramót. 28.12.2012 13:40
Súðavíkurhlíð lokað vegna snjóflóðahættu Búið er að loka Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Áætlað er að hleypa umferð í gegn kl. 13.00 undir eftirliti. 28.12.2012 13:01
Viðvörun frá Veðurstofu Íslands Veðurstofan varar við óveðri á Vestfjörðum síðdegis og í nótt og á morgun norðan- og vestanlands. Ekkert ferðaveður verður á vestan- og norðanverðu landinu. 28.12.2012 11:46