Gylfi Zoëga hlýtur Ásuverðlaunin BBI skrifar 28. desember 2012 20:13 Gylfi Zoëga.
Gylfi Zoëga, hagfræðingur við Háskóla Íslands, hlaut í dag Ásuverðlaun Vísindafélags Íslendinga fyrir árið 2012. Ferill hans sem vísindamaður á sviði hagfræði er sagður glæsilegur og hann þykir jafnframt hafa sýnt frábæran dugnað í að koma niðurstöðum rannsókna sinna á framfæri til almennings. Verðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright eru veitt íslenskum vísindamanni, sem náð hefur framúrskarandi árangri á sérsviði sínu í vísindum eða fræðum og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku þjóðfélagi. Í tilkynningu sem stjórn sjóðsins sendi frá sér í dag segir: Í aðdraganda og kjölfar fjármálakreppunnar árið 2008 varð mikil umræða um gjaldmiðilsmál, verðbólgu, vexti og áhrif gengis á verðlag. Margir erlendir hagfræðingar voru kallaðir til. En brátt kom í ljós að Ísland átti hæfa hagfræðinga sem gátu leiðbeint ekki aðeins nemendum sínum, heldur bæði stjórnvöldum og almenningi. Síðan þá hefur Gylfi Zoëga gefið fjölda viðtala og veitt almenningi aðgengilega fræðslu um hagfræðileg málefni. Gylfi hefur meðal annars fjallað um kosti og galla sjálfstæðrar peningastefnu, vanda okkar gagnvart spákaupmönnum á gjaldeyrismarkaði, stöðu evrunnar og vanda evruríkjanna. Hann hefur lýst því hvernig innflæði erlends lánsfjár orsakaði góðæri áranna fyrir fjármálaáfallið árið 2008 og útflæði þá kreppu sem hér hefur verið undanfarin ár. Gylfi hefur fært rök að því að takmarka þurfi kvikar fjármagnshreyfingar milli landa vegna þess að þær séu uppspretta óstöðugleika og einnig þurfi að takmarka möguleika einstaklinga og fyrirtækja til þess að taka lán í erlendum gjaldmiðlum. Jafnframt þurfi að draga úr áhættusömum fjárfestingum viðskiptabanka. Hefur hann haldið því fram að samstarf Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafi hjálpað landinu úr ógöngum. Sjóðurinn hafi gætt þess að heilsteyptri efnahagsstefnu væri fylgt en slíka samhæfingu hafi löngum skort.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira