Innlent

Áhersla á mannúð og réttindi

Ögmundur Jónasson telur að Íslendingar eigi í ríkari mæli að taka sjálfstæða ákvörðun um hvernig þeir beita valdi sínu á landamærum, þrátt fyrir veruna í Schengen. Hann boðar breytingar á útlendingalögum í haust.
Ögmundur Jónasson telur að Íslendingar eigi í ríkari mæli að taka sjálfstæða ákvörðun um hvernig þeir beita valdi sínu á landamærum, þrátt fyrir veruna í Schengen. Hann boðar breytingar á útlendingalögum í haust. fréttablaðið/ernir
Málefni hælisleitenda hafa verið mikið í fréttum undanfarið. Forstjóri Útlendingastofnunar hefur kallað eftir auknum fjárframlögum og telur að ráða þurfi fjóra lögfræðinga til stofnunarinnar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist margoft hafa gert fjárþörf stofnunarinnar að umtalsefni.

„Þetta er einn viðkvæmasti málaflokkurinn sem er undir regnhlíf innanríkisráðuneytisins. Þessi mál hafa verið mikið í fréttum núna að undanförnu vegna málefna einstakra hælisleitenda en ekki síður vegna fjárhagsþrenginga Útlendingastofnunar sem ég hef skilning á.

Það er alveg hárrétt sem stofnunin bendir á að hröð vinnsla á málum í Útlendingastofnun sparar okkur peninga. Það er auk þess yfirlýst markmið okkar hér í innanríkisráðuneytinu að enginn þurfi að bíða lengur en 6 mánuði til að fá úrlausn sinna mála. Það er ekki síst af mannúðarástæðum.“

Aðhald bitnar á afgreiðsluÖgmundur samþykkir að nokkuð langt sé í að þetta markmið náist. Aðhaldsaðgerðir í kjölfar kreppunnar hafi tekið sinn toll.

„Því miður er þetta raunin en hið sama á við víða í stjórnsýslunni. Tekjufallið sem varð hjá ríki og sveitarfélögum í kjölfar hrunsins varð þess valdandi að við þurfum að bregðast við með aðhaldsaðgerðum og það hefur komið niður á Útlendingastofnun sem öðrum stofnunum.

Við höfum hins vegar gert eitt. Við höfum aðskilið í fjárlögum annars vegar starfsemi Útlendingastofnunar og tilkostnaðinn við hælisleitendur hins vegar. Þetta var strax skref í rétta átt, en ég vonast til þess að við getum eflt Útlendingastofnun í sínu starfi enda gerum við til hennar ríkar kröfur. Fyrir liggur tillaga mín um aukafjárveitingu sem myndi leysa að nokkru leyti þann bráðavanda sem hefur myndast.“

Ný löggjöf í haustRáðherra segir að útlendingalöggjöfin sé flókin. Starfshópur hafi unnið að endurskoðun hennar og skilað skýrslu og byggt sé á henni í lagafrumvarpi sem nú sé í smíðum og verði lagt fyrir Alþingi í haust.

„Það er von mín að boðað frumvarp verði að lögum svo fljótt sem verða má því endurskoðun er afar brýn og eru þau mál sem rata í fréttir reglulega til marks um það.

Starfshópurinn sem ég skipaði í fyrrasumar leggur til að sameina í einni löggjöf dvalarleyfi útlendinga og atvinnuleyfi. Núverandi löggjöf er sundurtætt og hornótt, þar er marga þröskulda að finna sem gera bæði þeim sem vinna með löggjöfina og hinum sem löggjöfin tekur til erfitt um vik.

Við munum eftir sem áður í þessari löggjöf tryggja aðkomu Vinnumálastofnunar hvað varðar atvinnumarkaðinn, en meginleiðarljósið í löggjöfinni er hins vegar mannúð og mannréttindi. Við erum einnig að horfa til þess að breyta öllu regluverki sem snýr að málefnum útlendinga sem hér vilja dveljast um lengri eða skemmri tíma. Ég sé þetta fyrir mér sem gríðarlega réttindabót í málefnum útlendinga utan EES. Það var fagnaðarefni að þegar við kynntum skýrslu okkar voru samankomin nánast öll samtök sem málið varða og luku þau öll lofsorði á áherslur okkar.

Við erum að reyna að taka á þessum málum sem leiðir síðan hugann að öðru málefni sem við höfum sett á oddinn, ríkisstjórnin. Það snýr að mannréttindamálum almennt.“

Mannúð og mannréttindiÖgmundur segir núverandi ríkisstjórn hafa unnið á markvissari hátt að mannréttindamálum en áður hafi verið gert. Með því sé hann ekki að lasta gott starf sem áður hefur verið unnið, en nú sé starfið tekið fastari tökum.

„Þar vísa ég til Landsáætlunar um mannréttindi sem mörg ráðuneyti koma að, en er undir verkstjórn innanríkisráðuneytisins.“

Ríkisstjórnin ákvað í vor að kortleggja mannréttindastarf íslenskrar stjórnsýslu jafnt innanlands sem utan. Kannað yrði hvernig kröftum Íslands er varið á erlendri grundu og unnar tillögur um með hvaða hætti hægt væri að hafa áhrif á mannréttindamál heima og heiman.

„Þá er unnið að því að móta og leggja fyrir ríkisstjórn stefnu um framtíðarskipan Mannréttindadómstóls Evrópu, í samhengi við þær tillögur sem ræddar hafa verið á vettvangi Evrópuráðsins. Hvað þetta varðar viljum við sérstaklega kanna með hvaða hætti við getum fylgt eftir, með tilliti til lagasetningar og sambands okkar við dómstólinn, þeim niðurstöðum sem frá honum koma.

Þessi vinna er nú að fara í gang og mun samtvinnast landsáætluninni og ég vonast til þess að hafa í höndum áfangaskýrslu í upphafi þings um tillögur í þessum efnum.“

Schengen hefur kosti og gallaVinstrihreyfingin grænt framboð lagðist á sínum tíma gegn aðild Íslands að Schengen-samstarfinu. Þar var vísað til kostnaðar og einnig þess að kerfið væri Íslendingum ekki endilega hagstætt. Ögmundur segir að samstarfið hafi hins vegar einnig kosti í för með sér.

„Við viljum koma í veg fyrir að glæpamenn leiti hingað og þar erum við í samstarfi við lögregluyfirvöld annarra ríkja.

Stundum finnst mér menn rugla saman Schengen annars vegar og veru okkar í EES hins vegar. Það er þar sem landamæraopnunin á sér stað, vegna þess að einn meginþátturinn í ESS-samstarfinu er að opna á flæði fólks. Þess vegna vek ég athygli á því að þegar við erum að tala um nýja útlendingalöggjöf þá er það löggjöf sem tekur einvörðungu til fólks sem stendur utan Evrópska efnahagssvæðisins, því að þar er allt í föstum skorðum. Þessu finnst mér oft vera ruglað saman.“

Sjálfstæðar ákvarðanirÖgmundur segir að ríkin innan Schengen leggi æ meiri áherslu á að þau hafi svigrúm til sjálfstæðrar ákvarðanatöku um hvernig þau beiti valdi sínu á landamærum. Hann telur þá þróun til góðs.

„Ef við ætlum að fylgjast með fólki á annað borð – og það hljótum við að vilja gera gagnvart þeim sem vilja flýja réttvísina vegna alvarlegra glæpa, hvort sem það eru stríðsglæpir, mansal eða stórfelldur þjófnaður, þá viljum við ekki láta slíkt fólk leika lausum hala, þá er spurningin hvar við viljum fylgjast með. Sjálfur er ég landamæramaður. Ég vil frekar eftirlit á landamærum, en inni í samfélaginu. Það eru ýmsir sem vilja einmitt fara hina leiðina, að afnema landamæravörslu og vera síðan hundeltandi fólk innan landamæranna. Það er valkostur sem mér líkar illa.

Þetta er mjög til umræðu innan Schengen-samstarfsins. Annars vegar eru miðstýringarsinnarnir og hins vegar hinir sem vilja slaka á miðstýringunni og hafa meiri valdheimildir hjá aðildarríkjunum. Ég er í þeim hópi.“

Ögmundur vísar til þess að Íslendingar hafi tekið sér þetta vald þegar kemur að brottvísun Hells Angels úr landi. Þeir hafi komið frá EES-landi, en íslensk stjórnvöld ákveðið að vísa þeim úr landi þar sem grunur lék á að þeir væru hér í vafasömum erindagjörðum.

„Við getum tekið okkur þetta vald og eigum að íhuga það að nýta okkur það í ríkari mæli en gert hefur verið. Þar eigum við ágæta samleið með ýmsum ríkjum innan Schengen-samstarfsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×