Greiðsluþak dregur úr notkun dýrra lyfja 27. júlí 2012 06:00 Lækkun kostnaðar sjúkratrygginga vegna þunglyndislyfja skýrist einkum af breyttri greiðsluþátttöku.
Árangur af aðgerðum stjórnvalda til að draga úr lyfjakostnaði hefur skilað gríðarlegum árangri, að sögn Guðrúnar Gylfadóttur, deildarstjóra lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands. „Í fyrra lækkaði kostnaðurinn þriðja árið í röð. Kostnaður sjúkratrygginga vegna þunglyndislyfja lækkaði til dæmis um 575 milljónir króna frá árinu 2009 til 2011 eða um 53 prósent,“ greinir Guðrún frá. Árið 2009 voru þunglyndislyf kostnaðarsamasti lyfjaflokkur sjúkratrygginga en þau eru nú í fimmta sæti. Guðrún segir lækkunina einkum skýrast af breytingum á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. „Þá dró verulega úr notkun dýrari lyfja auk þess sem verð nokkurra lyfja lækkaði mikið, meðal annars með tilkomu nýrra samheitalyfja á markaðinn.“ Örvandi lyf, lyf notuð við ADHD (ofvirkni og athyglisbresti) og lyf sem efla heilastarfsemi, voru sá lyfjaflokkur sem sjúkratryggingar vörðu mestum útgjöldum til í fyrra en sá lyfjaflokkur var í fimmta sæti árið 2009. Fyrir tveimur árum skipaði velferðarráðherra vinnuhóp sem lagði til ýmsar tillögur til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun þessara lyfja. Hert var á útgáfu lyfjaskírteina frá 1. janúar 2011 og aftur 1. júní síðastliðinn en þá var greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í geðrofslyfjum einnig breytt. Aðeins verður um greiðsluþátttöku vegna geðrofslyfja að ræða þegar verð á skilgreindum dagskammti er 600 krónur eða lægra. Þó verður hægt að sækja um lyfjaskírteini fyrir öðrum geðrofslyfjum hafi meðferð reynst vel. Guðrún segir helstu markmið með breytingunum vera að hvetja til ávísunar á hagkvæmari lyf sem fyrsta val í meðferð til samræmis við notkun í nágrannalöndunum. Jafnframt að draga úr notkun lyfja utan skráðrar notkunar. „Við höfum verið í góðu samstarfi við geðlækna. Þeir vita að rökstyðja þarf hvers vegna sjúklingur getur ekki notað ódýrari lyfin.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Sjá meira