Fleiri fréttir

Troðfullur salur þegar GusGus hélt tónleika

Hljómsveitin GusGus hélt tónleika fyrir troðfullum sal af fólki á veitingastaðnum NASA í gærkvöld. Á meðal þeirra sem létu sjá sig voru Geir Gunnlaugsson landlæknir og Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi. GusGus hafði reyndar boðið öllum borgarfulltrúum Reykjavíkurborgar til þess að vekja athygli á málefnum NASA, en til stendur að rífa húsið.

Grunaður um líkamsárás í Hafnarfirði

Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás við Dalshraun í Hafnarfirði á níunda tímanum í gær. Hinn handtekni var vistaður í fangageymslu lögreglu í nótt en engar fréttir hafa borist af þeim sem hann réðst á. Þetta var annars nokkuð erilsöm vakt hjá lögreglunni.

Kynntist sjálfum mér upp á nýtt

Breytingar á högum Halldórs Friðriks Þorsteinssonar urðu til þess að hann lagði upp í sex mánaða langt ferðalag um heiminn og heimsótti sextán lönd, meðal annarra Kína, Indland, Víetnam og Nýja-Sjáland. Kjartan Guðmundsson fræddist um ferðalagið.

Fullkomið frelsi á hjólunum

Postularnir nefnast Bifhjólasamtök Suðurlands. Meðlimir þeirra hjóla saman og hafa gaman en stunda fjölbreytt góðgerðastörf í þágu samfélagsins meðfram því.

Þungra dóma krafist yfir Exeter-mönnum

Saksóknari segir forstjóra Byrs ekki hafa haft heimild til að kasta út um gluggann. Taka þurfi fast á sakborningunum í svokölluðu Exeter-máli. Verjandi forstjórans segir fráleitt að hann hafi tekið þátt í „plotti“ og blekkingarleik.

Umferðaröryggi má auka með því að fjölga merktum gangbrautum

Talsmaður Umferðarstofu segir gangbrautum sem merktar eru með hvítum röndum hafa fækkað nokkuð í Reykjavík síðustu ár. Fyrrum lögreglumaður segir slys hafa hlotist af. Borgaryfirvöld leggja áherslu á að draga úr ökuhraða með fjölgun hraðahindrana.

Styrkja þarf samkeppnissjóði

Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík segir samkeppnissjóði á Íslandi vera allt of litla. „Okkar skoðun er að samkeppnissjóði beri að styrkja,“ segir hann. „Þeir gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki við útdeilingu fjármagns til vísindarannsókna.“

Herdís heimsækir Akureyri

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi verður á Akureyri um helgina, þar sem hún mun kynna sig fyrir kjósendum. Hún mun meðal annars heimsækja dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð og verða viðstödd Fjölskylduhátíð í Laufási. Herdís er á ferð um landið þessa dagana en hún fór meðal annars til Vestmannaeyja í fyrradag. Þar heilsaði hún upp á fólk í fyrirtækjum og mætti á völlinn í leik ÍBV og Breiðabliks á Hásteinsvelli, eftir því sem Eyjafréttir greindu frá.

Strekkiþörf og samskipti við kanínur skoðuð

Gestir og gangandi geta nú barið augum í Öskjuhlíð í Reykjavík „örinnsetningar“ nemenda á fyrsta ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Verkin eru í tilkynningu sögð afrakstur skoðunar og greiningar nemenda á mismunandi notum borgarbúa á Öskjuhlíðinni.

Spáð brjáluðu veðri á sunnudag

Veðurstofan varar við stormi með rigningu og snjókomu víða um land á morgun. Spáð er allt að 23 metrum á sekúndu og mun ganga í norðaustan- og norðanátt með rigningu eða slyddu og síðan snjókomu um norðan- og austanvert landið. Úrkomulítið verður sunnanlands, þó mikið hvassviðri eða stormur.

Sorpu verði komið frá Álfsnesi

„Vettvangsferð bæjarráðs á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi staðfestir áhyggjur bæjarstjórnar af lyktarmálum frá urðunarstaðnum,“ segir í samþykkt bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.

Mun nýtast í samgöngur

Eðlilegt gjald á auðlindir hafsins mun gera stjórnvöldum kleift að hraða samgöngubótum á borð við jarðgöng, uppbyggingu græns hagkerfis og að styrkja velferðarkerfið, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Búið að endurskipuleggja Eignarhaldsfélagið Fasteign

Bygging Háskólans í Reykjavík er á meðal eigna sem færðar verða út úr félaginu. Það mun starfa áfram og verða í eigu sveitarfélaga og Arion banka. Leiga lækkar um 40-50% til ársloka 2014 og 24-40% frá 2015.

Brýn þörf á mansals- og vændisdeild hjá lögreglu

Nauðsynlegt er að koma á fót deild innan rannsóknarlögreglunnar sem sér alfarið um vændi og mansal. Innanríkisráðherra mun beita sér í málinu. Segir ráðuneytið meðvitað um þrýsting grasrótarsamtaka.

Borgarbúar gefi ekki fuglunum

Borgaryfirvöld hvetja fólk til að gefa hvorki öndum né öðrum fuglategundum á Reykjavíkurtjörn brauð á meðan á varptíma stendur. Á vef borgarinnar kemur fram að sílamávurinn, einn helsti vargfuglinn við tjörnina, sé mættur til leiks á ný.

Aðgerðaáætlun liggur fyrir

Stjórnvöld hafa lagt fram aðgerðaáætlun um breytingar á byggða- og sveitarstjórnarmálum komi til aðildar Íslands að ESB. Segja að engar breytingar verði gerðar eingöngu vegna aðildarviðræðna.

Hún er drottning málþófsins

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á sjálf Íslandsmetið í málþófi á Alþingi, með langlengstu ræðu sem þar hefur verið flutt frá því rafrænar mælingar hófust á ræðutíma þingmanna. Forystumenn stjórnarflokkanna hafa síðustu daga sakað stjórnarandstæðinga um málþóf, síðast Jóhanna í ræðu í gær þar sem hún vildi meina að þingstörfin gengju betur "..ef það er ekki hérna eilíft málþóf upp í öllum málum".

"Tímabært að nei-sinnar hætti að væla"

"Það er orðið löngu tímabært að nei-sinnar hætti að væla yfir því að hér sé skapaður vettvangur fyrir opna umræðu um ESB og taki efnislega þátt í henni í stað þess að eyða öllu púðrinu í að reyna að koma í veg fyrir að almenningur fái að kjósa um hvort gengið verður í ESB eða ekki." Þetta segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, framkvæmdastjóri Já Ísland.

Hefur efasemdir um stöðu lífeyrissjóða á lánamarkaði

Formaður viðskipta- og efnahagsnefndar segir það vekja efasemdir um stöðu lífeyrissjóðanna á neytendalánamarkaði að vera ekki tilbúnir til að koma til móts við fólk í skuldavanda. Ef þeir telji sig skorta lagaheimildir geti þeir leitað til þingsins.

Einfalt að áætla aldur hælisleitenda með tanngreiningu

Aldursgreining verður gerð á tönnum erlendu drengjanna tveggja sem voru dæmdir fyrir að koma til Íslands á fölsuðum skilríkjum. Algengt er að slík greining sé gerð á hælisleitendum í nágrannalöndum okkar.

Landsvirkjun keypti svæði við Urriðafoss sem á að fara í biðflokk

Landsvirkjun hefur gengið frá kaupum á jörðinni Skálmholtshrauni við Neðri Þjórsá. Kaupin endurspegla þá afstöðu fyrirtækisins að virkjað verði við Urriðafoss, sem er merkilegt því tilllaga um að setja virkjunina í biðflokk bíður nú afgreiðslu þingsins.

Þriðja flóttatilraunin á árinu

Öryggisverðir Eimskips komu í nótt í veg fyrir að fimm hælisleitendur kæmust um borð í flutningaskip á leið til Bandaríkjanna. Þetta er þriðja sinn á árinu sem að laumufarþegar reyna að smygla sér um borð í skip félagsins.

Fíkniefni fundust í húsleitum lögreglu

Fíkniefni fundust við húsleitir í þremur íbúðum í fjölbýlishúsi í Reykjavík í gær. Í einni þeirra var að finna um 70 grömm af amfetamíni en þau voru falin í frysti.

Mistök reyndust Stapa lífeyrissjóði dýr

Framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs bauðst til þess að hætta störfum þegar ljóst varð að sjóðurinn gæti orðið fyrir milljarðatjóni vegna þess að kröfu sjóðsins upp á ríflega fimm milljarða í bú Straums fjárfestingarbanka var lýst of seint. Mistök á lögmannsstofu reyndust sjóðnum dýr.

Ísafold gagnrýnir hátíðarhöld Evrópustofu

„Við erum í aðildarviðræðum við Evrópusambandið og okkur finnst óeðlilegt að Evrópustofa sé að hafa áhrif á stjórnmál hér á landi." Þetta segir Brynja Björg Halldórsdóttir, talskona Ísafoldar. Brynja var í gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hún ræddi þar um fyrirhuguð hátíðarhöld Evrópustofu vegna afmælis Evrópusambandsins.

GusGus bauð öllum borgarfulltrúum á Nasa

Öllum borgarfulltrúum er boðið á tónleika GusGus sem fram fara á Nasa í kvöld. Eins og fram hefur komið stendur til að loka staðnum því hugmyndir eru uppi um að rífa húsið sem veitingastaðurinn er rekinn í.

Vill breyta Grímsstöðum í fólkvang

Til stendur að breyta nær öllu því landi sem kínverski fjárfestirinn Huang Nubo vill leigja á Grímsstöðum á Fjöllum í fólkvang. Þetta kemur fram í drögum að samkomulagi við sveitarfélögin á svæðinu, sem undirbúa kaup á 72,19 prósentum jarðarinnar af landeigendum.

Giftingarhringnum stolið í Leifsstöð

Tæplega þrítugur útlendur karlmaður gaf sig fram við lögregluna á Suðurnesjum á varðstofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar nýverið. Hann sagði farir sínar ekki sléttar.

Brotist inn og verkfærum stolið

Tilkynnt var nýverið, til lögreglunnar á Suðurnesjum, um innbrot í verkstæðisbyggingu við Freyjutröð í Reykjanesbæ.

Ætluðu að svipta mann bílnum en fundu fíkniefni

Maríjúana fannst í gær í bifreið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, sem haldlagði efnið. Bílaleiga í umdæminu hafði selt bifreiðina en þar sem kaupandinn stóð ekki í skilum með afborganir fóru starfsmenn fyrirtækisins og sóttu bílinn.

Ók drukkinn niður á lögreglustöð

Karlmaður á fertugsaldri kom akandi á lögreglustöðina við Hringbraut í Reykjanesbæ í gær, vegna erindis sem hann taldi sig eiga við lögreglu.

Tryggja réttindi fólks með kynáttunarvanda

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mun mæla fyrir frumvarpi um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda á Alþingi á eftir. Í frumvarpinu er kynáttunarvandi skilgreindur sem sú upplifun einstaklings frá unga aldri að hann telji sig hafa fæðst í röngu kyni og óskar að tilheyra hinu kyninu. Markmið laganna er að tryggja einstaklingum með kynáttunarvanda jafna stöðu fyrir lögum á við aðra í samræmi við mannréttindi og mannhelgi.

Hafnaði fundarlaunum og benti á aðra manneskju ef því væri að skipta

Kona á þrítugsaldri fann peninga á förnum vegi á höfuðborgarsvæðinu í gær. Líkt og aðrir heiðarlegir borgarar hafði hún samband við lögreglu, sem tók við peningunum. Konan kærði sig ekki um nein fundarlaun ef svo færi að eigandinn kæmi í leitirnar. Þess í stað nefndi hún ákveðna aðila sem gjarnan mættu njóta góðs af ef fundarlaunum væri til að skipta.

Breytingar á stjórnarráðinu samþykktar

Alþingi samþykkti með 28 atkvæðum gegn 21 þingsályktunartillögu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um breytingar á skiptingu ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Fyrirhugaðar breytingar á Stjórnarráði Íslands fela í sér að í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og efnahags- og viðskiptaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Með þessari breytingu fækkar ráðuneytum úr tíu í átta. Forsætisráðherra mun gera tillögur um breytingarnar við forseta Íslands í samræmi við stjórnarskrá.

Ákæruvaldið verður að sanna fjártjónshættu ef það á að sakfella

Ákæruvaldið verður að sanna, þannig að það sé hafið yfir skynsamlegan vafa, að sakborningar í Exeter-málinu hafi skapað fjártjónshættu fyrir Byr sparisjóð þegar þeir hlutuðust um lánveitingu í tveimur hlutum upp á 1,1 milljarð króna til félagsins Exeter Holding.

Sjálfstæðismenn vilja að borgin bregðist við veiðigjaldafrumvarpi

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks gagnrýna meirihluta borgarstjórnar harðlega fyrir að hafa ekki upplýst um það í borgarráði að Alþingi hefði óskað eftir umsögn Reykjavíkurborgar um frumvarp um veiðigjöld. Þetta kemur fram í bókun sjálfstæðismanna sem lögðu fram tillögu um óháða úttekt á afleiðingum veiðigjaldsins á rekstrarskilyrði fyrirtækja í sjávarútvegi, starfsfólk þeirra og atvinnulífið í borginni.

Las upp úr trúnaðarbréfi á Aþingi: Smekklaust en löglegt

„Þetta sýnir að sumir mega og aðrir ekki á þinginu," segir Vigdís Hauksdóttir sem er ósátt við framgöngu Álfheiðar Ingadóttur þingmanns Vg, sem las upp úr trúnaðarbréfi frá Björgu Evu Erlendsdóttur, stjórnarformanni RÚV, á Alþingi á föstudaginn í síðustu viku.

Þið getið andað rólega, heimsendir er ekki í nánd

Elsta þekkta útgáfan af hinu ævaforna dagatali Maya-indíána í Mið-Ameríku fannst á dögunum. Hingað til hefur verið talið að dagatal Mayanna endi þann 21. desember næstkomandi sem hefur gefið þeirri sögu byr undir báða vængi að heimsendir sé í nánd.

Segir fráleitt að stjórnarformaður kanni greiðslugetu lántakenda

"Það er ósannað og styðst ekki við gögn að ákærði Jón hafi tekið ákvörðun um lánveitinguna. Hann tók hins vegar þátt í afgreiðslu málsins á stjórnarfundi 19. desember 2008,“ sagði Reynir Karlsson, verjandi Jóns Þorsteins Jónssonar í málflutningsræðu sinni fyrir Hæstarétti.

Í haldi eftir bruna sem leiddi til dauða fimm barna

Fimm börn á aldrinum fimm til tíu ára létust í eldsvoða í Bretlandi í nótt. Kona á þrítugsaldri hefur verið handtekin vegna gruns um að hafa kveikt í húsinu. Lögreglan í Derbyskíri hefur staðfest að kona sé í haldi, grunuð um að hafa myrt börnin.

Evrópustofa fagnar Evrópudeginum

Snorri Helgason tónlistarmaður treður upp nú í hádeginu hjá Evrópustofu sem um þessar mundir fagnar Evrópudeginum. Tónleikarnir eru órafmagnaðir og fara fram í húsakynnum stofunnar að Suðurgötu 10 í Reykjavík.

Sjá næstu 50 fréttir