Mistök reyndust Stapa lífeyrissjóði dýr Magnús Halldórsson skrifar 11. maí 2012 18:30
Framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs bauðst til þess að hætta störfum þegar ljóst varð að sjóðurinn gæti orðið fyrir milljarðatjóni vegna þess að kröfu sjóðsins upp á ríflega fimm milljarða í bú Straums fjárfestingarbanka var lýst of seint. Mistök á lögmannsstofu reyndust sjóðnum dýr. Hæstiréttur vísaði í gær frá kröfu Stapa lífeyrissjóðs í bú Straums fjárfestingarbanka, sem eftir að hafa lokið nauðasamningi er rekinn undir nafninu ALMC. Krafan var upp á liðlega 5,5 milljarða króna, en virði hennar miðað algengt gangverð krafna í bú Straums á markaði er um tveir milljarðar króna. Lögmannsstofa á Akureyri, sem vann fyrir Stapa, lýsti kröfunni í bú Straums of seint og því var hún ekki tekin til greina. Krafan var þegar færð niður í bókum Stapa árið 2009, og hefur tjónið því þegar verið tekið út. Framkvæmdastjóri Stapa, Kári Arnór Kárason, bauðst til þess að hætta störfum þegar ljóst varð að mistökin gætu valdið milljarðatjóni fyrir sjóðinn, en stjórn sjóðsins taldi það ekki þjóna neinum tilgangi. Upphæðin er umtalsverð há í samanburði við stærð Stapa, en stærsti iðgjaldagreiðandinn í sjóðinn er Akureyrarkaupstaður. Tjónið nemur niðurfærslu á réttindum upp á 1,5 prósent, en heildarniðurfærslan hjá sjóðnum eftir hrun hefur verið liðlega 13 prósent. Í lok síðasta árs var neikvæð tryggingarfræðileg staða lífeyrissjóðsins ríflega 16 milljarðar króna, eða sem nemur um 7,5 prósentum.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira