Innlent

Hafnaði fundarlaunum og benti á aðra manneskju ef því væri að skipta

Kona á þrítugsaldri fann peninga á förnum vegi á höfuðborgarsvæðinu í gær. Líkt og aðrir heiðarlegir borgarar hafði hún samband við lögreglu, sem tók við peningunum. Konan kærði sig ekki um nein fundarlaun ef svo færi að eigandinn kæmi í leitirnar. Þess í stað nefndi hún ákveðna aðila sem gjarnan mættu njóta góðs af ef fundarlaunum væri til að skipta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×