Þungra dóma krafist yfir Exeter-mönnum 12. maí 2012 10:30 Ragnar Z. Guðjónsson
Saksóknari segir forstjóra Byrs ekki hafa haft heimild til að kasta út um gluggann. Taka þurfi fast á sakborningunum í svokölluðu Exeter-máli. Verjandi forstjórans segir fráleitt að hann hafi tekið þátt í „plotti“ og blekkingarleik. Miklir annmarkar eru á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu Exeter-máli, að mati saksóknara. Þar eru dregnar rangar ályktanir og litið fram hjá mikilvægum atriðum sem máli skipta. Þetta kom fram í máli saksóknarans Björns Þorvaldssonar fyrir Hæstarétti í gær. Sakborningarnir í málinu, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs, Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður sparisjóðsins, og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, voru allir sýknaðir í málinu í héraði. Einn dómari, Ragnheiður Harðardóttir, skilaði sératkvæði og vildi sakfella Jón Þorstein og Ragnar. Saksóknari tók undir flest í sératkvæði Ragnheiðar, en þó ekki þá niðurstöðu að sýkna bæri Styrmi. „Mér finnst þetta frekar neyðarlegt,“ sagði Ragnar Hall, verjandi Styrmis, um það. Þremenningunum er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína til að bjarga sér, öðrum lykilstarfsmönnum Byrs og MP banka frá veðköllum með því að láta Byr lána félaginu Exeter eins milljarðs lán gegn ótryggum veðum. Ragnar hefur bent á að hann hafi sem forstjóri haft heimild til að lána allt upp undir einn og hálfan milljarð þvert á lánareglur félagsins. Björn sagði fyrir dómi í gær að þessi rök hrykkju skammt, enda hafi Ragnari borið að starfa með hagsmuni Byrs að leiðarljósi. „Hann hafði ekki heimild til að kasta peningum út um gluggann – það hlýtur að liggja í augum uppi.“ Björn sagði að þremenningarnir ættu sér engar málsbætur, taka þyrfti af festu á málinu og dæma þungar refsingar. Hann fór fram á fjögurra og hálfs árs fangelsisvist, en tók fram að ef dómurinn teldi að brot Styrmis væri gáleysisbrot þá mætti dæma hann í tveggja til fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Reynir Karlsson, verjandi Jón Þorsteins, sagði fráleitt að líta svo á að skjólstæðingur hans hefði stýrt lánveitingum Byrs. Stjórnarformaður hafi ekki getað veitt lán og enn síður borið að kanna bakgrunn félaga sem þiggja lán. Ólafur Eiríksson, verjandi Ragnars, sagði fráleitt að Ragnar hefði ákveðið að eyðileggja mannorð sitt og valda vinnuveitanda sínum til margra ára tjóni upp á milljarð til að bjarga einkahlutafélagi sínu, Jóni Þorsteini eða starfsmönnum bankans. Látið sé eins og um „plott og blekkingarleik“ hafi verið að ræða, en Ragnar hafi ekki tekið þátt í því – að minnsta kosti ekki vitandi vits. Búast má við dómi í málinu innan mánaðar. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira