Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tæplega 800 hvítir Kangoo í umferð Alls eru 759 hvítir Renault Kangoo bílar skráðir hjá Umferðarstofu en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti á dögunum eftir karlmanni og hvítri sendibifreið af gerðinni Kangoo í tengslum við rannsókn á sprengjunni sem fannst á Hverfsigötu á þriðjudagsmorgun. 3.2.2012 14:46
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Sævari Sverrissyni, karlmanni á sextugsaldri sem ákærður hefur verið fyrir að hafa staðið að innflutningi á miklu magni af sterum og fíkniefnum til landsins. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. febrúar næstkomandi, eða þar til dómur fellur í máli hans. Sævar hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 11. október á síðasta ári 3.2.2012 13:11
Kærleikar í miðborginni á morgun Það er langur laugardagur í miðbæ Reykjavíkur á morgun eins og alla fyrstu laugardaga hvers mánaðar. Þá eru verslanir opnar lengur en ella og ýmsir viðburðir í boði. Á morgun verður ölli tjaldað til þefar "Kærleikar í miðborginni“ fara fram. 3.2.2012 13:10
Einu matvöruversluninni í Vogum lokað Einu matvöruversluninni í Vogum á Vatnsleysisströnd hefur verið lokað samkvæmt bæjarblaðinu Hafnarfjörðu, Álftanes, Vogar. 3.2.2012 13:04
Stjórnvöld fara yfir skýrslu um PIP brjóstafyllingar Íslensk heilbrigðisyfirvöld fjalla nú um niðurstöður sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyllingar til að meta hvort þær gefi tilefni til endurskoðunar á aðgerðum stjórnvalda sem kynntar voru 10. janúar síðastliðinn. 3.2.2012 12:42
Skutu þrjá mótmælendur til bana í Egyptalandi Egypska lögreglan skaut þrjá til bana í mótmælum sem haldin voru víðsvegar um Egyptaland í gær og nótt í kjölfar afdrifaríks fótboltaleiks þar í landi. Fjöldi liggur særður eftir átök við lögreglu. 3.2.2012 12:10
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli Lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri, fundu 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðasta þriðjudag. 3.2.2012 12:01
Sautján daga baráttu um myndun nýs meirihluta gæti lokið um helgina Sautján daga baráttu við að koma saman nýjum meirihluta í Kópavogi gæti lokið um helgina. Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Lista Kópavogsbúa og Framsóknar hittast til að vinna að málefnasamningi eftir hádegi. 3.2.2012 12:01
Dýrara fyrir eldri borgara að fá akstur - Úr 350 krónum í 1000 krónur "Við erum auðvitað ekki ánægð með þetta," segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara. Um áramótin tóku í gildi hækkanir á þjónustu Reykjavíkurborgar við eldri borgara og mótmælir félagið þeim harðlega. 3.2.2012 11:27
Maðurinn úr lífshættu Karlmaður um fertugt, sem stunginn var nokkrum djúpum stungum í kvið og síðu í nótt er úr lífshættu eftir aðgerð á Landsspítalanum og liggur nú á gjörgæsludeild. 3.2.2012 10:55
Bruggari handtekinn á Vestfjörðum - ætlaði að selja norðanmegin Lögreglan á Vestfjörðum framkvæmdi húsleit hjá bruggara á miðvikudaginn síðasta. Við húsleitina fannst ólöglega tilbúið áfengi og áhöld til þess að framleiða bruggið. 3.2.2012 09:46
Vilja lækka vaskinn á barnaföt Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram á þingi frumvarp til laga sem myndi lækka virðisaukaskatt á barnafötum og öðrum nauðsynjavörum tengdum barnauppeldi úr 25,5 prósentum í sjö prósent. Í greinargerð með frumvarpinu segir að þegar til lengri tíma sé litið beri að stefna almennt að lækkun virðisaukaskatt þá komi núverandi aðstæður í ríkisbúskapnum í veg fyrir að því markmiði verði náð á kjörtímabilinu. 3.2.2012 09:38
Fundu 400 e-töflur í húsleit á Akureyri Í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leitina fundust í íbúð rúmlega 400 e-töflur. 3.2.2012 09:14
Harður árekstur á Breiðholtsbraut Ökumaður smábíls slapp lítið meiddur eftir að hafa lent í hörðum árekstir við jeppa á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjabakka rétt fyrir miðnætti. 3.2.2012 07:27
Leiguþyrla gæslunnar til landsins í dag Þyrlan, sem Landhelgisgæslan hefur tekið á leigu á meðan TF LÍF er í stórri skoðun ytra, er væntanleg til landsins í dag. 3.2.2012 07:09
Vill auka öryggi í smábátum Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvetur Ögmund Jónasson innanríkisráðherra til þess að lögleiða björgunarflotbúninga um borð í öllum skipum. Í dag er bátum undir tólf metrum ekki gert að hafa slíka búninga um borð. Ögmundur ætlar að beita sér fyrir því að málið verði skoðað í ráðuneytinu en tillaga þessa efnis hefur legið í ráðuneytinu árum saman. 3.2.2012 07:00
Karlmaður illa haldinn eftir hnífsstungu í nótt Karlmaður á fertugsaldri gengst nú undir aðgerð á Landsspítalanum eftir hnífstungu, sem honum var veitt í Kópavogi á fjórða tímanum í nótt. 3.2.2012 06:59
Fært á hjólastól yfir Markarfljót Áhugahópurinn Vinir Þórsmerkur hefur fengið heimild í skipulagsnefnd Rangárþings til að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi vegna byggingar göngubrúar yfir Markarfljót á móts við Húsadal í Þórsmörk. 3.2.2012 05:00
Eðlilegt að hlera við rannsókn á hruninu Ríkir almannahagsmunir eru fyrir því að upplýsa brot í aðdraganda bankahrunsins og beita til þess hlerunum segir ráðgjafi sérstaks saksóknara. Formaður Lögmannafélagsins segir dómstóla túlka almannahagsmuni of vítt. 3.2.2012 03:15
Ekki útilokað að Guðrún Páls verði áfram bæjarstjóri Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Listi Kópavogsbúa hafa hafið viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs. Ekki er útilokað að Guðrún Pálsdóttir verði áfram bæjarstjóri í skjóli nýs meirihluta. Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, gæti komist í lykilstöðu í eins manns meirihluta í bænum. 2.2.2012 18:54
Vaka sigraði í Stúdentaráðskosningum Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, fór með sigur úr býtum í stúdentaráðskosningum Háskóla Íslands. Á kjörskrá voru 15.203 og var heildarfjöldi atkvæða 4.807. 2.2.2012 23:39
Vill samstarf allra flokka í bæjarstjórn Hjálmar Hjálmarsson, oddviti Næst Besta Flokksins í Kópavogi, býst ekki við því að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa sé starfhæfur. Ómögulegt sé að mynda starfhæfan meirihluta. 2.2.2012 22:58
Gáttuð á baðvenjum Íslendinga Skilti sem Íslendingar hafa þekkt svo árum skipti af sundstöðum borgarinnar er farið að vekja athygli erlendis. Á skiltinu eru sundgestir beðnir um að baða sig vandlega án sundfata. Iva Rose Skoch, pistlahöfundur á vefnum Global Post, vekur athygli á málinu og segist hafa átt samtal um þetta við íslenskan félaga sinn. 2.2.2012 21:52
Gera ráð fyrir allt að 1000 manns á sundmót samkynhneigðra Undirbúningur heimsmeistaramóts samkynhneigðra í sundi gengur vel, en mótið mun fara fram í Reykjavík síðustu helgina í maí. Í dag fékk Strákafélagið Styrmir, sem sér um undirbúning mótsins, þriggja milljóna króna styrk frá borgarráði vegna mótsins. Auk þess leggur borgin til aðstöðu því mótið fer fram í Laugardalslauginni og Sundhöllinni. Það er Stákafélagið Styrmir sem hefur veg og vanda að undibúningnum. 2.2.2012 21:03
Gunnar segir bara pass "Bara pass,“ sagði Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, þegar hann var spurður út í gang meirihlutaviðræðna í Kópavogi. Oddvitar Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Lista Kópavogsbúa hafa staðfest að meirihlutaviðræður væru í gangi. 2.2.2012 19:58
Enn leitað að manni og bíl vegna sprengjunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að karlmanni og hvítri sendibifreið (Renault Kangoo) í tengslum við rannsókn hennar á sprengjunni sem fannst neðst á Hverfisgötu í Reykjavík á þriðjudagsmorgun. Maðurinn var klæddur í víðar, bláar gallabuxur (dökkar) og var með lyklakippu hangandi í buxunum. Hann var í dökkri úlpu og mögulega í hettupeysu innan undir. Maðurinn er þéttvaxinn og var þunglamalegur í hreyfingum. Óvíst er með aldur hans en líklega er maðurinn á miðjum aldri. Hann er talinn vera meðalmaður á hæð. 2.2.2012 17:52
Ekkju greiddar bætur þrátt fyrir að eiginmaðurinn reykti Tryggingafélagið Okkar líftryggingar hf., var dæmt til þess að greiða ekkju fullar bætur vegna líftryggingar eiginmanns hennar sem lést árið 2010. Tryggingafélagið neitaði í fyrstu að greiða trygginguna og hélt því fram að hinn látni hefði vanrækt upplýsingaskyldu sína gagnvart félaginu í sviksamlegum tilgangi þegar hann svaraði því til, þegar hann keypti trygginguna, að hann reykti ekki. 2.2.2012 13:19
Segir viðræðurnar hafa gengið vel Ómar Stefánsson, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs, segir ekkert liggja fyrir um það hver taki við bæjarstjórnarstólnum í Kópavogi. Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Lista Kópavogs hafa setið í dag að meirihlutaviðræðum. "Mín upplifun var sú að þetta gekk vel,“ segir Ómar. Hann vill ekkert segja til um það hversu langan tíma meirihlutaviðræðurnar gætu tekið. "Við skulum bara sjá hvað morgundagurinn ber í skauti sér,“ segir hann. Ómar segir að einungis oddvitar flokkanna hafi komið að viðræðunum í dag. Hann vill ekkert segja um hverjir gætu bæst inn í þær samningaviðræður. 2.2.2012 20:24
Segir útspil Já vera klúður Sérfræðingur í almannatengslum segir útspil Já vera klúður að óþörfu, en fyrirtækið hefur látið hanna límmiða til að líma yfir forsíðu símaskrár síðasta árs en á henni er mynd af Agli Einarssyni, öðru nafni Gillz, og fimleikastúlkum úr Gerplu. 2.2.2012 19:39
Mottumars á næsta leiti Nú er fullt tilefni fyrir karlmenn til þess að fara að huga að skeggsöfnun því Mottumars verður hleypt formlega af stokkunum 1. mars næstkomandi. Úrslitin ráðast ekki fyrr en mánuði seinna, eða í lok mars. Þetta er í fimmta sinn sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir sérstöku átaki um karlmenn og krabbamein en í þriðja sinn sem karlmenn eru hvattir til að safna yfirvararskeggi og styrktaráheitum. 2.2.2012 18:55
Hætta á að aldraðir einangrist Aldraðir hafa sumir hverjir ekki efni á að taka þátt í félagsstarfi. Þetta segir tæplega sjötug kona en sjálf átti hún tæpar sautján þúsund krónur til að lifa af eftir að hafa greitt reikningana í janúar. Um áramótin hækkaði Reykjavíkurborg verð á þjónustu við aldraða. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur mótmælt þessum hækkunum og segir þær koma illa við aldraða. Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir mikið um að fólk hringi á skrifstofuna og beri sig illa. Hann segir að þó ekki sé um háar upphæðir að ræða safnist þær saman. Verð á máltíðum hækkaði til að mynda úr 550 kr. í 610 kr. Kaffi hækkaði úr 100 kr. í 150 kr. Námskeiðisgjöld og brennslugjald fyrir leir og postulín hækkaði úr 200 kr. í 250 kr. og akstursgjald fer í mörgum tilfellum úr 350 krónum í 1.000 krónur. Sigurður óttast að hækkanirnar komi til með að draga úr þátttöku aldraðra í félagsstarfi. ,, Þetta gæti aukið einangrun fólks. Að það sæki síður félagsstarf. Farið síður út úr húsi og stefna Reykjavíkurborgar undanfarin ár hefur einmitt verið að koma í veg fyrir að fólk einangrist heima hjá sér að það sæki meira út". Eva Ólöf Hjaltadóttir verður sjötug á árinu. Hún getur nú sjaldnar en áður tekið þátt í félagsstarfi vegna kostnaðar. Ellilífeyrir hennar er 144 þúsund krónur á mánuði eftir skatta. Tæpar 90 þúsund krónur fara í leigu og svo þarf hún einnig að greiða hita, rafmagn og aðra reikninga. ,, Í janúar átti ég 16.700 krónur eftir þegar ég var búin að borga allt". Fjöldi íbúða fyrir aldraða er í sama húsi og félagsmiðstöðin og hafa fleiri í blokkinni dregið úr þátttöku í félagsstarfinu. ,, Það hefur hækkað það mikið að eiginlega sjáum við ekki fólkið sem á heima í húsinu nema endrum og eins", segir Eva. 2.2.2012 18:30
Ólafur Ragnar og Al Gore skoða mörgæsir og seli Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú, eru enn stödd á Suðurskautslandinu ásamt fríðu föruneyti. Forsetaembættið hefur nú birt fleiri myndir úr ferðinni. 2.2.2012 16:41
Landhelgisgæslan leigir þyrlu - bilaði á leiðinni heim Landhelgisgæslan hefur tekið þyrluna TF-SYN á leigu frá Noregi en þyrlan bilaði á leiðinni til Íslands. Þyrlan þurfti að lenda í Færeyjum. Við skoðun á vélinni í Færeyjum kom í ljós leki í vökvakerfi á aðalgírboxi sem verið er að kanna nánar. 2.2.2012 16:16
Kannast ekki við nýjan meirihluta í Kópavogi "Þú ert að segja mér fréttir,“ segir Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Lista Kópavogsbúa, í samtali við Vísi nú fyrir stundu. Á vef Morgunblaðsins er fullyrt að búið sé að mynda nýja meirihluta í bænum með fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Lista Kópavogsbúa. 2.2.2012 15:36
Öllu starfsfólki Herjólfs sagt upp Öllu starfsfólki Herjólfs hefur verið sagt upp eða um fjörtíu manns. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta í dag. 2.2.2012 15:22
Stöðvuðu áfengissölu á tveimur veitingahúsum í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sölu áfengis á tveimur veitingahúsum í miðborg Reykjavíkur í nótt, en á öðru þeirra voru gestir staðarins jafnframt að bera með sér áfengi út af staðnum. 2.2.2012 15:16
Sérstakur saksóknari með aðgerðir hjá KPMG Fulltrúar á vegum embættis Sérstaks saksóknara fóru inni í endurskoðandafyrirtækið KPMG nú fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Jónssyni, framkvæmdastjóri KPMG komu fulltrúar sérstaks saksóknara inni í fyrirtækið og óskuðu eftir upplýsingum tengdum Milestone. 2.2.2012 14:11
Fötluð kona þurfti að fara af leiksýningu - engin þjónusta eftir ellefu Í gærkvöldi þurfti kona í hjólastól að yfirgefa sýningu í leikhúsinu áður en henni lauk. Útskýring sem hún gaf var sú að félagsþjónustan býður ekki upp á að sækja fólk eftir klukkan korter í ellefu á kvöldin. 2.2.2012 13:41
Seldist upp á Jethro Tull á sjö mínútum Miðar á tónleika Jethro Tull í Hörpu þann 21. júní næstkomandi seldust upp á aðeins sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag. Í kjölfar þessara kröftugu viðbragða hefur verið ákveðið að halda aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hefst sala á þá nú klukkan 14 í dag í Hörpu og á midi.is. 2.2.2012 13:34
Kemur til greina að rannsaka endurreisn bankanna og Icesave Forsætisráðherra segir það vel koma til greina að láta rannsaka endurreisn bankana og ferli Icesave málsins. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. 2.2.2012 12:30
Bensínsveiflur öllum til óþurftar Full ástæða er til að hafa áhyggjur af hækkandi bensínverði að mati Helga Hjörvars formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Hann telur mörk fyrir því hversu langt hægt er að ganga langt í sköttum á eldsneyti en nefnd hans ætlar að skoða málið á næstunni. 2.2.2012 12:15
Friðjón ekki beðinn afsökunar "Þeir sáu ekki sóma sinn í að biðjast afsökunar,“ segir Heiðar Ásberg Atlason, verjandi Friðjóns Þórðarsonar, sem hefur stefnt ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti. 2.2.2012 11:17
Útgefandi símaskrárinnar býður fólki að líma yfir Egil "Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska," segir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já. 2.2.2012 10:00
4 ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll Tveir erlendir karlmenn voru dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þá var mönnunum gert að greiða fórnarlambinu 1200 þúsund krónur í miskabætur. 2.2.2012 09:52
Sami maðurinn framdi þrjú ofbeldisfull rán í miðborginni Þrjú rán voru framin í miðborginni í eftirmiðdaginn í gær. Talið er að um sama aðila hafi verið að ræða í öll skipti en grunaði er nú í haldi, þrítugur karlmaður og lögreglu vel kunnugur vegna fjölda afbrota. 2.2.2012 09:44