Fleira skýrir minni akstur en vond færð 4. febrúar 2012 04:00 Þrátt fyrir snjóþunga minnkaði ekki umferð á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Fréttablaðið/GVA
Vegagerðin hefur kallað eftir veðurupplýsingum allt frá árinu 1995 til að reyna að finna fylgni milli tíðarfars og samdráttar í umferð. Nýjar tölur sýna að umferð í nýliðnum janúarmánuði dróst saman um ríflega 10 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Samdrátturinn er sá mesti milli janúarmánaða frá því að samanburður var hafinn. Friðleifur Ingi Brynjarsson, verkefnisstjóri hjá Vegagerðinni, segir samdráttinn svo mikinn að hann skýrist ekki af veðurfari einu saman. „Ekki má gleyma að þessi samdráttur kemur í kjölfarið á samdrætti í fyrra, sem þá var með því mesta sem við höfðum séð,“ segir hann og bendir á að þrátt fyrir ófærð hafi akstur ekki dregist saman milli janúarmánaða á höfuðborgarsvæðinu. Langmestur samdráttur umferðar er á Suðurlandi eða rúmur fimmtungur. Þar á eftir kemur Vesturland með 13 prósenta samdrátt. Bæði svæðin eru stór atvinnusvæði þar sem fólk hefur ekið langar vegalengdir til vinnu. Friðleifur Ingi segir hins vegar ómögulegt að geta sér til um hvaða þættir vegi þyngst í metsamdrætti milli ára núna. „Auðvitað hefur veðrið einhver áhrif, en væntanlega koma þarna líka til áhrif af háu eldsneytisverði og efnahagsástandi í landinu,“ segir hann og gerir sér vonir um að geta áætlað betur þátt veðursins þegar búið er að rýna í gögn Veðurstofunnar. - óká
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira