Innlent

Skilanefndarmenn með 1.650.000 á mánuði

Skilanefndarmenn þurfa að reikna sér tvöfalt hærri laun en þeir sérfræðingar sem hæst laun hafa í sjálfstæðum rekstri á öðrum sviðum.
Skilanefndarmenn þurfa að reikna sér tvöfalt hærri laun en þeir sérfræðingar sem hæst laun hafa í sjálfstæðum rekstri á öðrum sviðum.
Skilanefndarmenn þurfa að reikna sér tvöfalt hærri laun en þeir sérfræðingar sem hæst laun hafa í sjálfstæðum rekstri á öðrum sviðum. Gert er ráð fyrir að þeir hafi að minnsta kosti 1650 þúsund krónur á mánuði eftir hækkun á reiknuðu endurgjaldi.

Margt fólk er í sjálfstæðum atvinnurekstri, og er þannig starfsfólk í einkahlutafélögum sem það á sjálft. Til að koma í veg fyrir að sjálfstæðir atvinnurekendur greiði sér engin laun af tekjum fyrirtækisins og sleppi þannig við hefðbundinn tekjuskatt eru þeir skyldaðir til að reikna sér endurgjald eins og það er kallað.

Ríkisskattstjóri gefur árlega út lágmarksviðmið um þau laun sem starfsmenn í eigin hlutafélögum þurfa að greiða sér, en þau eru mishá eftir flokkum og hækkuðu öll um 10 prósent um áramótin.

Bóndi í sauðfjárrækt þarf til dæmis að greiða sér 112 þúsund krónur á mánuði eftir hækkunina, iðnaðarmaður sem starfar einn 304 þúsund krónur og skipstjóri 455 þúsund krónur. Sérfræðingur eins og lögfræðingur eða endurskoðandi sem stýrir tíu manna fyrirtæki þarf svo að greiða sér tæpar 800 þúsund krónur á mánuði, sem var hæsta reiknaða endurgjald í nokkurri stétt- þar til á síðasta ári.

Þá var nefnilega búinn til sérstakur flokkur fyrir sérfræðinga innan skilanefnda og slitastjórna, sem þurfa að lágmarki að greiða sér 1,6 milljónir á mánuði - en allar tekjur umfram það geta þeir greitt sér út sem arð.

Þær upplýsingar fengust hjá ríkisskattstjóra að flokkurinn hafi verið búinn til þar sem upplýsingar úr framtölum fyrirtækja skilanefndar- og slitastjórnarmanna bentu til að þeir skæru sig úr frá öðrum sérfræðingum með sambærilega menntun hvað varðar laun, en lágmarksupphæðin tekur mið af framtölum þeirra.

Það var kannski ekki úr vegi, því líkt og fréttastofa hefur fjallað um hafa lögmannsstofur skila- og slitastjórnarmanna skilað tugmilljóna hagnaði á síðustu árum. Lögmannsstofa Lárentsínuas Kristjánssonar í Landsbankanum hagnaðist t.d. um 40 milljónir króna 2009, stofa Steinars Þórs Guðgeirssonar í Kaupþingi hagnaðist um meira en 50 milljónir 2010 og stofa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×