Fleiri fréttir Förgun á mjólkurkúm minni en á síðasta ári Fyrstu 11 mánuði nýliðins árs var förgun á mjólkurkúm um 6% minni en árið á undan, skv. skýrsluhaldsgögnum Bændasamtaka Íslands og greint er frá á vef Landssambands kúabænda. 9.1.2012 15:25 Hætta á vopnuðum átökum fer vaxandi Afbrotamenn ganga í auknum mæli vopnaðir um götur á Íslandi og telst hætta á vopnuðum átökum fara vaxandi. Þetta kemur fram í áhættumati Ríkislögreglustjóra fyrir þetta ár, sem lögreglan birti opinberlega í dag. 9.1.2012 15:23 Spilvír þyrlu Landhelgisgæslunnar slitnaði Við æfingu TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar og varðskipsins Ægis um helgina slitnaði spilvír þyrlunnar rétt áður en hífa átti mann úr sjó. 9.1.2012 15:18 Síminn varla stoppað Þrjátíu og sex konur hafa ráðið sér lögmann og hyggjast fara í skaðabótamál við Jens Kjartansson lýtalækni vegna gallaðra sílíkonpúða. Púðar frá PIP voru teknir af bandaríkjamarkaði fyrir ellefu árum. 9.1.2012 18:36 Hefur þú séð ljósgráan jeppa sem stolið var um helgina? Lögreglan lýsir eftir ljósgráum Mitsubishi ASX jepplingi með skráningarnúmerið YEA-87 en honum var stolið frá Heklu á Laugavegi í Reykjavík um helgina. 9.1.2012 18:07 Fimm milljónir í umhverfisstyrki Landsbankinn veitti í dag 5 milljónir króna í umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði bankans en að þessu sinni voru veittir 17 styrkir. Ríflega 130 umsóknir bárust. 9.1.2012 17:48 Sigmundur Davíð tekur þátt í að skipuleggja miðbæ Selfoss Sigmundur Davíð Gunlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, verður á meðal fundarmanna á opnum fundi á vegum Sveitarfélagsins Árborgar á Hótel Selfossi á fimmtudagskvöld. Þar mun hann, ásamt Páli Bjarnasyni arkitekt, kynna hugmyndir sínar að nýju skipulagi miðbæjar Selfoss. 9.1.2012 17:34 Varað við hvassviðri í kvöld Útlit er fyrir snjókomu eða éljagang um mest allt land í kvöld en þó rigningu með suðausturströndinni. 9.1.2012 16:29 Aukin "atvinnumennska“ einkennir framleiðslu fíkniefna hér á landi Vísbendingar um umfang fíkniefnaframleiðslu hér á landi hafa orðið til þess að vekja grunsemdir um að hluti framleiðslunnar kunni að vera fluttur úr landi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í hættumati greiningadeildar ríkislögreglustjóra og var birt í dag. 9.1.2012 15:39 Saltað í Kópavogi og Hafnarfirði Á laugardaginn var hafin vinna við að salta götur sem og að salta og sanda stíga en mikil hálka var í Hafnarfirði. Einnig var borinn sandur í þær brekkur sem voru illfærar svo og einstaka götur. 9.1.2012 14:54 Ferðaþjónustuaðili kærður fyrir akstur utan vega Á fimmtudag í síðustu viku var ferðaþjónustuaðili á mikið breyttri hópbifreið með 5 erlenda ferðamenn staðinn að utanvegaakstri í og við Skógaá samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. 9.1.2012 14:34 Loðnuveiði fer vel af stað Loðnuveiðin fór vel af stað á nýju ári og kom Lundey NS með fyrsta afla ársins, alls rúmlega 900 tonn, til Vopnafjarðar sl. fimmtudag samkvæmt fréttavef HB Granda. 9.1.2012 14:01 Herjólfur siglir á milli Eyja og Þorlákshafnar dag Brottför Herjólfs í dag hefur verið staðfest. Farið verður frá Eyjum í dag kl 15:30 og frá Þorlákshöfn 19:15. 9.1.2012 13:30 Áformum um sumarlokun í Neskaupstað harðlega mótmælt Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hafnar algerlega þeim áformum að loka sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað í átta vikur á komandi sumri í sparnaðarskyni. Í yfirlýsingu frá bæjarstjórninni segir að það séu sjálfsögð og almenn mannréttindi að íbúar Austurlands njóti sjúkrahúsþjónustu í sínum fjórðungi allt árið um kring en sé ekki gert að sækja hana um langar leiðir í aðra landsfjórðunga enda geti líf legið við. 9.1.2012 13:29 Varað við hvassri suðvestan átt um vestanvert landið Um vestanvert landið má áfram reikna með hvassri SV-átt í dag með dimmum éljum samkvæmt ábendingu frá veðurstofu Íslands. Hiti verður um eða rétt undir frostmarki og vegir geta því orðið sérlega hálir við þessar aðstæður. Lægir talsvert og dregur úr éljum síðdegis. 9.1.2012 13:11 Borgarstjóri biður fólk um að fara varlega Jón Gnarr borgarstjóri biður fólk um að fara varlega og hætta sér ekki út á hálar götur nema vel búið. Hann biður líka bílaeigendur um að hliðra til fyrir snjóruðningstækjum og sýna tillitssemi í umferðinni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá borgarstjóra, en borgin hefur verið gagnrýnd nokkuð í dag og um helgina fyrir að salta ekki eða sanda götur fyrir vegfarendur. 9.1.2012 12:26 Um 30 konur vilja fara í mál vegna PIP-brjósta Fjöldi þeirra kvenna sem ætla í mál við lýtalækninn Jens Kjartansson vegna sílíkonpúða fer ört vaxandi. Um þrjátíu konur hafa sett sig í samband við lögmann vegna þessa. 9.1.2012 12:03 Níu mánaða barn setti þvottaefni í munninn Níu mánaða gamalt barn var flutt til aðhlynningar á sjúkrahús um helgina eftir að hafa innbyrt uppþvottaefni. Þvottaefnið hafði ekki allt skolast úr þvottaefnishólfi uppþvottavélarinnar eftir að vélin hafði lokið þvottinum. Barnið komst í efnið þar sem vélin stóð opin og það setti smávegis af efninu upp í sig. Lögreglan á Selfossi segir að barnið muni ekki hafa hlotið alvarlega skaða af. 9.1.2012 11:33 Brotist inn í sundlaug og hesthús Brotist var inn í sundlaug í Mosfellsbæ og hesthús í Hafnarfirði í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Peningum var stolið úr afgreiðslu sundlaugarinnar. 9.1.2012 11:02 Fréttaskýring: Ekki dæmt um skaðabætur Hverjar eru mögulegar niðurstöður EFTA-dómstólsins í máli gegn Íslendingum vegna Icesave? 9.1.2012 11:00 Fastagestir í Strætó greiða meira Verð á tímabilskortum og afsláttarfarmiðum í Strætó mun hækka um 10% að jafnaði 1. febrúar næstkomandi. Stök fargjöld haldast hins vegar óbreytt og munu kosta 350 krónur. Hækkunin er liður í stefnu stjórnar þess efnis að auka hlut fargjaldatekna í rekstrarkostnaði Strætó og að gjaldskrá haldi í við þróun almenns verðlags. 9.1.2012 10:49 Fyrsta opinbera framboðið til forseta Jón Lárusson lögreglumaður ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Jón lýsti þessu yfir í viðtali á Útvarpi Sögu í morgun. Jón er fyrsti einstaklingurinn sem tilkynnir um framboð sitt formlega vegna forsetakosninga í vor. Jón er fæddur árið 1965 og starfar sem lögreglumaður. Jón hefur einnig látið til sín taka í ýmis konar samfélagsmálum og er meðal annars talsmaður Umbótahreyfingarinnar. 9.1.2012 10:11 Búið að bjarga kjúklingunum - eru á leið í sláturhús Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur í alla nótt sinnt óvenjulegu útkalli á Holtavörðuheiði. 9.1.2012 09:56 Telur samræmda sjúkraskrá nauðsynlega Velferðarráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað við að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. 9.1.2012 09:30 Gæsagengin mæla göturnar Ætla má að langvarandi snjóþekja reki gæsir frá grasblettum og á flakk um götur miðborgar Reykjavíkur segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur. Stórir gæsahópar hafa mælt göturnar í miðborginni undanfarið. 9.1.2012 09:00 Veðurstofan spáir stormi í kvöld Veðurstofan spáir stormi víða um land í kvöld. Fyrst á að lægja um tíma síðdegis með slyddu eða snjókomu vestan til og rigningu suðaustanlands. Síðan bætir í vindinn og verður hann 15 til 23 metrar á sekúndu í kvöld. 9.1.2012 07:50 Tveir mannlausir bílar í árekstri Lögreglu var tilkynnt um árekstur tveggja mannlausra bíla á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Annar bílanna reyndist hafa runnið á stað á svellbunka í vindhviðu og hafnað á hinum. 9.1.2012 07:03 Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag Fyrri ferð Herjólfs til Þorlákshafnar fellur niður vegna óveðurs. Ölduhæð er nú sjö til tíu metrar á leiðinni og vindur er 16 til 20 metrar á sekúndu. 9.1.2012 07:01 Sluppu lítt meidd úr bílveltu Þrjár manneskjur sluppu lítið meiddar þegar jeppi valt út af Suðurlandsvegi austan við Þjórsá í gærkvöldi. 9.1.2012 06:59 Þúsundir kjúklinga í lífshættu á Holtavörðuheiði Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur í nótt sinnt óvenjulegu útkalli á Holtavörðuheiði. 9.1.2012 06:51 Bæjarráð furðar sig á þögn stjórnsýslunnar 9.1.2012 06:00 Gengu blysför í kringum Grænavatn Talsverður fjöldi fólks mætti til blysfarar í kringum Grænavatn í Krýsuvík í gær. Blysförin var farin í tilefni þess að hundrað ár voru í gær liðin frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings. 9.1.2012 04:00 Segir engan með réttu ráði lána til Vaðlaheiðarganga 9.1.2012 03:00 Aukning um þúsundir bílferða við LSH Umferð á eftir að aukast um 4.000 bílferðir á sólahring við Landspítalann við Hringbraut þegar fyrsti áfangi nýja spítalans verður tekinn í notkun árið 2017. Þrátt fyrir það er ekki talið nauðsynlegt að gera víðtækar ráðstafanir í gatnakerfi borgarinnar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar sem kynnt var byggingarnefnd nýs Landspítala í vikunni. Við það að taka fyrsta áfanga spítalans í notkun, sem stefnan er að gera árið 2017, mun umferð um svæðið aukast verulega 8.1.2012 19:11 Segir falsanir í skýrslu um Vaðlaheiðargöng Jón Þorvaldur Heiðarsson, fræðimaður við Háskóla Akureyrar, sakar Pálma Kristinsson um falsanir í skýrslu sinni um Vaðlaheiðargöng. Pálmi tekur upp texta Jóns í skýrsluna en breytir orðalaginu í tilvitnuninni á fleiri en einum stað. Alkunna er að slíkt er bannað í vísindasamfélaginu að sögn Jóns. 8.1.2012 17:35 Mannlaus bíll olli tjóni í hálkunni Lögregla hefur í dag haft í nógu að snúast vegna hálkunnar. Mikið hefur verið tilkynnt um slæmar bifeiðastöður í miðbæ Reykjavíkur. Það er að mestu vegna slæmrar færðar að ökumenn neyðast til að leggja bifreiðum á óheppilegum stöðum. Þá hefur og lögregla þurft að aðstoða ökumenn sem hafa komið sér í sjálfheldu og komist hvorki afturábak né áfram vegna hálku og bifreiða sem voru kyrrstæðar og mannlausar. 8.1.2012 17:03 Salurinn á Nasa of illa farinn til að standa Eigandi Nasa segir salinn í húsinu mjög illa farinn. Hann telur nauðsynlegt að rífa hann sem fyrst, hvort sem hann verður þá endurbyggður í sömu mynd eða ekki. "Það er kannski ekki beinlínis að hruni komið, enda væri þá hætta fólgin í því. En það sér það hver sem gengur Vallarstrætið að þetta er bara hrófatildur," segir Pétur Þór Sigurðsson eigandi Nasa. Þar vísar hann til salarins eða aftari hluta Nasa. 8.1.2012 16:47 Verulegt tjón við fiskeldisstöðina Klukkan 13:21 kom upp eldur í útihúsi við fiskeldisstöð í Ólafsfirði. Slökkvilið, lögregla og björgunaraðilar eru að störfum á vettvangi og er ljóst að tjón er verulegt. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu en lögreglan vinnur að rannsókn málsins. 8.1.2012 15:38 Eldsvoði á Ólafsfirði Eldur kom upp í húsnæði í Ólafsfirði um klukkan hálf tvö í dag. Fréttir hafa borist af því að fiskeldisstöðin í Hlíð standi þar í ljósum logum. Það hefur ekki fengist staðfest. Lögreglan á Akureyri getur ekki gefið upplýsingar um málið að svo stöddu. 8.1.2012 14:32 Samræmd sjúkraskrá nauðsynleg Velferðaráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað til að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. Síðastliðið haust var kynnt skýrsla sem velferðaráðherra lét vinna um skipulag heilbrigðiskerfisins hér á landi. Það var Boston Consulting Group sem vann skýrsluna. Ein af niðurstöðum skýrslunnar er að verulega skorti á rafræn skráningarkerfi hér á landi og nákvæmar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt sé að tekin verði í notkun samræmd rafræn sjúkraskrá fyrir allt landi. Slíkt er ekki til staðar hér á landi eins og staðan er núna. 8.1.2012 13:30 Óvissa um ferðir Herjólfs Vegna slæmrar ölduspár fyrir mánudag og þriðjudag er hugsanlegt að fella þurfi niður einhverjar eða allar ferðir Herjólfs til Þorlákshafnar þessa daga, en spáð er vel yfir tíu metra ölduhæð næstu daga. Í tilkynningu frá Eimskipum eru farþegar beðnir um að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á Facebook eða síðu 415 í Textavarpi. 8.1.2012 12:58 Gætum verið rík eins og Norðmenn Guðmundur Steingrímsson telur um helming þingmanna reiðubúinn að afhenda auðlindir þjóðarinnar á kostnaðarverði í þágu staðbundinnar atvinnuuppbyggingar eða markmiða. Svo er hinn helmingurinn sem vill reyna að fá hámarksarð fyrir þær. "Og um þetta er mikið deilt á þingi," segir Guðmundur. "Fólk verður að fara að upplifa þetta debat." Í þessu samhengi telur hann slæmt að fólk sjái engan mun á stjórnmálaflokkum. Guðmundur Steingrímsson og Lilja Mósesdóttir voru gestir Sigurjóns M Egilssonar í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þau nýstofnuð stjórnmálaöfl sín. 8.1.2012 12:44 Slæmt ferðaveður Vegagerðin vekur athygli á því að mjög varasamt getur verið að vera á ferðinni þegar saman fer hvass vindur og svell á vegum. Fólki í ferðahug er bent á að hringja í upplýsingasíma Vegagerðarinnar til að afla upplýsinga um færð á leiðinni. Færðin getur breyst hratt í þessum aðstæðum. Vegagerðin hefur helst áhyggjur af Hellisheiðinni, en þar er flughálka og óveður. Auk þess er hálka eða flughálka á flestum vegum um allt land og í rauninni lítið ferðaveður eins og stendur. Vegfarendur eru beðnir um að fylgjast vel með breytingum á færð á heimasíðu vegagerðarinnar vegagerdin.is eða í síma 1777. Loks er minnt á að víða er ekki mokstur eða þjónusta á vegum á kvöldin og nóttunni, og jafnvel einhverjir vegir sem eru aðeins í þjónustu fáa daga í viku. 8.1.2012 10:19 Eldur í blaðagámi tvær nætur í röð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út undir morgun til að slökkva í blaðagámi við sundlaug Vesturbæjar. Þetta er önnur nóttin í röð sem kveikt er í honum. Vakt maður slökkviliðsins telur þessa brennugleði tengda flugeldum og áramótum. Slökkviliðið sendi dælubíl á vettvang sem slökkti eldinn án vandkvæða. 8.1.2012 10:02 Róleg nótt hjá lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti fremur rólega vakt í nótt samkvæmt varðstjóra. Ein líkamsárás var skráð í kjölfar fertugsafmælis þar sem ölvun fór úr böndunum en engin meiðsl urðu á fólki. Þá var önnur minniháttar íkamsárás tilkynnt hjá lögreglunni í vesturbæ en engar nánari upplýsingar fengust um hana. Tveir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn grunaður um fíkniefnaakstur auk þess að vera réttindalaus. Þá gistu fjórir fangageymslu lögreglu. Tveir fengu gistingu þar sem þeir voru ofurölvi og húsnæðislausir, einn vegna þess að hann neitaði að greiða reikning á veitingastaðnum Asía í miðborginni og einn gistir fangageymslu vegna heimilsofbeldis. Þá komu upp tvö minniháttar fíkniefnamál. 8.1.2012 09:59 Sjá næstu 50 fréttir
Förgun á mjólkurkúm minni en á síðasta ári Fyrstu 11 mánuði nýliðins árs var förgun á mjólkurkúm um 6% minni en árið á undan, skv. skýrsluhaldsgögnum Bændasamtaka Íslands og greint er frá á vef Landssambands kúabænda. 9.1.2012 15:25
Hætta á vopnuðum átökum fer vaxandi Afbrotamenn ganga í auknum mæli vopnaðir um götur á Íslandi og telst hætta á vopnuðum átökum fara vaxandi. Þetta kemur fram í áhættumati Ríkislögreglustjóra fyrir þetta ár, sem lögreglan birti opinberlega í dag. 9.1.2012 15:23
Spilvír þyrlu Landhelgisgæslunnar slitnaði Við æfingu TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar og varðskipsins Ægis um helgina slitnaði spilvír þyrlunnar rétt áður en hífa átti mann úr sjó. 9.1.2012 15:18
Síminn varla stoppað Þrjátíu og sex konur hafa ráðið sér lögmann og hyggjast fara í skaðabótamál við Jens Kjartansson lýtalækni vegna gallaðra sílíkonpúða. Púðar frá PIP voru teknir af bandaríkjamarkaði fyrir ellefu árum. 9.1.2012 18:36
Hefur þú séð ljósgráan jeppa sem stolið var um helgina? Lögreglan lýsir eftir ljósgráum Mitsubishi ASX jepplingi með skráningarnúmerið YEA-87 en honum var stolið frá Heklu á Laugavegi í Reykjavík um helgina. 9.1.2012 18:07
Fimm milljónir í umhverfisstyrki Landsbankinn veitti í dag 5 milljónir króna í umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði bankans en að þessu sinni voru veittir 17 styrkir. Ríflega 130 umsóknir bárust. 9.1.2012 17:48
Sigmundur Davíð tekur þátt í að skipuleggja miðbæ Selfoss Sigmundur Davíð Gunlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, verður á meðal fundarmanna á opnum fundi á vegum Sveitarfélagsins Árborgar á Hótel Selfossi á fimmtudagskvöld. Þar mun hann, ásamt Páli Bjarnasyni arkitekt, kynna hugmyndir sínar að nýju skipulagi miðbæjar Selfoss. 9.1.2012 17:34
Varað við hvassviðri í kvöld Útlit er fyrir snjókomu eða éljagang um mest allt land í kvöld en þó rigningu með suðausturströndinni. 9.1.2012 16:29
Aukin "atvinnumennska“ einkennir framleiðslu fíkniefna hér á landi Vísbendingar um umfang fíkniefnaframleiðslu hér á landi hafa orðið til þess að vekja grunsemdir um að hluti framleiðslunnar kunni að vera fluttur úr landi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í hættumati greiningadeildar ríkislögreglustjóra og var birt í dag. 9.1.2012 15:39
Saltað í Kópavogi og Hafnarfirði Á laugardaginn var hafin vinna við að salta götur sem og að salta og sanda stíga en mikil hálka var í Hafnarfirði. Einnig var borinn sandur í þær brekkur sem voru illfærar svo og einstaka götur. 9.1.2012 14:54
Ferðaþjónustuaðili kærður fyrir akstur utan vega Á fimmtudag í síðustu viku var ferðaþjónustuaðili á mikið breyttri hópbifreið með 5 erlenda ferðamenn staðinn að utanvegaakstri í og við Skógaá samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. 9.1.2012 14:34
Loðnuveiði fer vel af stað Loðnuveiðin fór vel af stað á nýju ári og kom Lundey NS með fyrsta afla ársins, alls rúmlega 900 tonn, til Vopnafjarðar sl. fimmtudag samkvæmt fréttavef HB Granda. 9.1.2012 14:01
Herjólfur siglir á milli Eyja og Þorlákshafnar dag Brottför Herjólfs í dag hefur verið staðfest. Farið verður frá Eyjum í dag kl 15:30 og frá Þorlákshöfn 19:15. 9.1.2012 13:30
Áformum um sumarlokun í Neskaupstað harðlega mótmælt Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hafnar algerlega þeim áformum að loka sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað í átta vikur á komandi sumri í sparnaðarskyni. Í yfirlýsingu frá bæjarstjórninni segir að það séu sjálfsögð og almenn mannréttindi að íbúar Austurlands njóti sjúkrahúsþjónustu í sínum fjórðungi allt árið um kring en sé ekki gert að sækja hana um langar leiðir í aðra landsfjórðunga enda geti líf legið við. 9.1.2012 13:29
Varað við hvassri suðvestan átt um vestanvert landið Um vestanvert landið má áfram reikna með hvassri SV-átt í dag með dimmum éljum samkvæmt ábendingu frá veðurstofu Íslands. Hiti verður um eða rétt undir frostmarki og vegir geta því orðið sérlega hálir við þessar aðstæður. Lægir talsvert og dregur úr éljum síðdegis. 9.1.2012 13:11
Borgarstjóri biður fólk um að fara varlega Jón Gnarr borgarstjóri biður fólk um að fara varlega og hætta sér ekki út á hálar götur nema vel búið. Hann biður líka bílaeigendur um að hliðra til fyrir snjóruðningstækjum og sýna tillitssemi í umferðinni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá borgarstjóra, en borgin hefur verið gagnrýnd nokkuð í dag og um helgina fyrir að salta ekki eða sanda götur fyrir vegfarendur. 9.1.2012 12:26
Um 30 konur vilja fara í mál vegna PIP-brjósta Fjöldi þeirra kvenna sem ætla í mál við lýtalækninn Jens Kjartansson vegna sílíkonpúða fer ört vaxandi. Um þrjátíu konur hafa sett sig í samband við lögmann vegna þessa. 9.1.2012 12:03
Níu mánaða barn setti þvottaefni í munninn Níu mánaða gamalt barn var flutt til aðhlynningar á sjúkrahús um helgina eftir að hafa innbyrt uppþvottaefni. Þvottaefnið hafði ekki allt skolast úr þvottaefnishólfi uppþvottavélarinnar eftir að vélin hafði lokið þvottinum. Barnið komst í efnið þar sem vélin stóð opin og það setti smávegis af efninu upp í sig. Lögreglan á Selfossi segir að barnið muni ekki hafa hlotið alvarlega skaða af. 9.1.2012 11:33
Brotist inn í sundlaug og hesthús Brotist var inn í sundlaug í Mosfellsbæ og hesthús í Hafnarfirði í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Peningum var stolið úr afgreiðslu sundlaugarinnar. 9.1.2012 11:02
Fréttaskýring: Ekki dæmt um skaðabætur Hverjar eru mögulegar niðurstöður EFTA-dómstólsins í máli gegn Íslendingum vegna Icesave? 9.1.2012 11:00
Fastagestir í Strætó greiða meira Verð á tímabilskortum og afsláttarfarmiðum í Strætó mun hækka um 10% að jafnaði 1. febrúar næstkomandi. Stök fargjöld haldast hins vegar óbreytt og munu kosta 350 krónur. Hækkunin er liður í stefnu stjórnar þess efnis að auka hlut fargjaldatekna í rekstrarkostnaði Strætó og að gjaldskrá haldi í við þróun almenns verðlags. 9.1.2012 10:49
Fyrsta opinbera framboðið til forseta Jón Lárusson lögreglumaður ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Jón lýsti þessu yfir í viðtali á Útvarpi Sögu í morgun. Jón er fyrsti einstaklingurinn sem tilkynnir um framboð sitt formlega vegna forsetakosninga í vor. Jón er fæddur árið 1965 og starfar sem lögreglumaður. Jón hefur einnig látið til sín taka í ýmis konar samfélagsmálum og er meðal annars talsmaður Umbótahreyfingarinnar. 9.1.2012 10:11
Búið að bjarga kjúklingunum - eru á leið í sláturhús Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur í alla nótt sinnt óvenjulegu útkalli á Holtavörðuheiði. 9.1.2012 09:56
Telur samræmda sjúkraskrá nauðsynlega Velferðarráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað við að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. 9.1.2012 09:30
Gæsagengin mæla göturnar Ætla má að langvarandi snjóþekja reki gæsir frá grasblettum og á flakk um götur miðborgar Reykjavíkur segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur. Stórir gæsahópar hafa mælt göturnar í miðborginni undanfarið. 9.1.2012 09:00
Veðurstofan spáir stormi í kvöld Veðurstofan spáir stormi víða um land í kvöld. Fyrst á að lægja um tíma síðdegis með slyddu eða snjókomu vestan til og rigningu suðaustanlands. Síðan bætir í vindinn og verður hann 15 til 23 metrar á sekúndu í kvöld. 9.1.2012 07:50
Tveir mannlausir bílar í árekstri Lögreglu var tilkynnt um árekstur tveggja mannlausra bíla á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Annar bílanna reyndist hafa runnið á stað á svellbunka í vindhviðu og hafnað á hinum. 9.1.2012 07:03
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag Fyrri ferð Herjólfs til Þorlákshafnar fellur niður vegna óveðurs. Ölduhæð er nú sjö til tíu metrar á leiðinni og vindur er 16 til 20 metrar á sekúndu. 9.1.2012 07:01
Sluppu lítt meidd úr bílveltu Þrjár manneskjur sluppu lítið meiddar þegar jeppi valt út af Suðurlandsvegi austan við Þjórsá í gærkvöldi. 9.1.2012 06:59
Þúsundir kjúklinga í lífshættu á Holtavörðuheiði Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur í nótt sinnt óvenjulegu útkalli á Holtavörðuheiði. 9.1.2012 06:51
Gengu blysför í kringum Grænavatn Talsverður fjöldi fólks mætti til blysfarar í kringum Grænavatn í Krýsuvík í gær. Blysförin var farin í tilefni þess að hundrað ár voru í gær liðin frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings. 9.1.2012 04:00
Aukning um þúsundir bílferða við LSH Umferð á eftir að aukast um 4.000 bílferðir á sólahring við Landspítalann við Hringbraut þegar fyrsti áfangi nýja spítalans verður tekinn í notkun árið 2017. Þrátt fyrir það er ekki talið nauðsynlegt að gera víðtækar ráðstafanir í gatnakerfi borgarinnar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar sem kynnt var byggingarnefnd nýs Landspítala í vikunni. Við það að taka fyrsta áfanga spítalans í notkun, sem stefnan er að gera árið 2017, mun umferð um svæðið aukast verulega 8.1.2012 19:11
Segir falsanir í skýrslu um Vaðlaheiðargöng Jón Þorvaldur Heiðarsson, fræðimaður við Háskóla Akureyrar, sakar Pálma Kristinsson um falsanir í skýrslu sinni um Vaðlaheiðargöng. Pálmi tekur upp texta Jóns í skýrsluna en breytir orðalaginu í tilvitnuninni á fleiri en einum stað. Alkunna er að slíkt er bannað í vísindasamfélaginu að sögn Jóns. 8.1.2012 17:35
Mannlaus bíll olli tjóni í hálkunni Lögregla hefur í dag haft í nógu að snúast vegna hálkunnar. Mikið hefur verið tilkynnt um slæmar bifeiðastöður í miðbæ Reykjavíkur. Það er að mestu vegna slæmrar færðar að ökumenn neyðast til að leggja bifreiðum á óheppilegum stöðum. Þá hefur og lögregla þurft að aðstoða ökumenn sem hafa komið sér í sjálfheldu og komist hvorki afturábak né áfram vegna hálku og bifreiða sem voru kyrrstæðar og mannlausar. 8.1.2012 17:03
Salurinn á Nasa of illa farinn til að standa Eigandi Nasa segir salinn í húsinu mjög illa farinn. Hann telur nauðsynlegt að rífa hann sem fyrst, hvort sem hann verður þá endurbyggður í sömu mynd eða ekki. "Það er kannski ekki beinlínis að hruni komið, enda væri þá hætta fólgin í því. En það sér það hver sem gengur Vallarstrætið að þetta er bara hrófatildur," segir Pétur Þór Sigurðsson eigandi Nasa. Þar vísar hann til salarins eða aftari hluta Nasa. 8.1.2012 16:47
Verulegt tjón við fiskeldisstöðina Klukkan 13:21 kom upp eldur í útihúsi við fiskeldisstöð í Ólafsfirði. Slökkvilið, lögregla og björgunaraðilar eru að störfum á vettvangi og er ljóst að tjón er verulegt. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu en lögreglan vinnur að rannsókn málsins. 8.1.2012 15:38
Eldsvoði á Ólafsfirði Eldur kom upp í húsnæði í Ólafsfirði um klukkan hálf tvö í dag. Fréttir hafa borist af því að fiskeldisstöðin í Hlíð standi þar í ljósum logum. Það hefur ekki fengist staðfest. Lögreglan á Akureyri getur ekki gefið upplýsingar um málið að svo stöddu. 8.1.2012 14:32
Samræmd sjúkraskrá nauðsynleg Velferðaráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað til að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. Síðastliðið haust var kynnt skýrsla sem velferðaráðherra lét vinna um skipulag heilbrigðiskerfisins hér á landi. Það var Boston Consulting Group sem vann skýrsluna. Ein af niðurstöðum skýrslunnar er að verulega skorti á rafræn skráningarkerfi hér á landi og nákvæmar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt sé að tekin verði í notkun samræmd rafræn sjúkraskrá fyrir allt landi. Slíkt er ekki til staðar hér á landi eins og staðan er núna. 8.1.2012 13:30
Óvissa um ferðir Herjólfs Vegna slæmrar ölduspár fyrir mánudag og þriðjudag er hugsanlegt að fella þurfi niður einhverjar eða allar ferðir Herjólfs til Þorlákshafnar þessa daga, en spáð er vel yfir tíu metra ölduhæð næstu daga. Í tilkynningu frá Eimskipum eru farþegar beðnir um að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á Facebook eða síðu 415 í Textavarpi. 8.1.2012 12:58
Gætum verið rík eins og Norðmenn Guðmundur Steingrímsson telur um helming þingmanna reiðubúinn að afhenda auðlindir þjóðarinnar á kostnaðarverði í þágu staðbundinnar atvinnuuppbyggingar eða markmiða. Svo er hinn helmingurinn sem vill reyna að fá hámarksarð fyrir þær. "Og um þetta er mikið deilt á þingi," segir Guðmundur. "Fólk verður að fara að upplifa þetta debat." Í þessu samhengi telur hann slæmt að fólk sjái engan mun á stjórnmálaflokkum. Guðmundur Steingrímsson og Lilja Mósesdóttir voru gestir Sigurjóns M Egilssonar í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þau nýstofnuð stjórnmálaöfl sín. 8.1.2012 12:44
Slæmt ferðaveður Vegagerðin vekur athygli á því að mjög varasamt getur verið að vera á ferðinni þegar saman fer hvass vindur og svell á vegum. Fólki í ferðahug er bent á að hringja í upplýsingasíma Vegagerðarinnar til að afla upplýsinga um færð á leiðinni. Færðin getur breyst hratt í þessum aðstæðum. Vegagerðin hefur helst áhyggjur af Hellisheiðinni, en þar er flughálka og óveður. Auk þess er hálka eða flughálka á flestum vegum um allt land og í rauninni lítið ferðaveður eins og stendur. Vegfarendur eru beðnir um að fylgjast vel með breytingum á færð á heimasíðu vegagerðarinnar vegagerdin.is eða í síma 1777. Loks er minnt á að víða er ekki mokstur eða þjónusta á vegum á kvöldin og nóttunni, og jafnvel einhverjir vegir sem eru aðeins í þjónustu fáa daga í viku. 8.1.2012 10:19
Eldur í blaðagámi tvær nætur í röð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út undir morgun til að slökkva í blaðagámi við sundlaug Vesturbæjar. Þetta er önnur nóttin í röð sem kveikt er í honum. Vakt maður slökkviliðsins telur þessa brennugleði tengda flugeldum og áramótum. Slökkviliðið sendi dælubíl á vettvang sem slökkti eldinn án vandkvæða. 8.1.2012 10:02
Róleg nótt hjá lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti fremur rólega vakt í nótt samkvæmt varðstjóra. Ein líkamsárás var skráð í kjölfar fertugsafmælis þar sem ölvun fór úr böndunum en engin meiðsl urðu á fólki. Þá var önnur minniháttar íkamsárás tilkynnt hjá lögreglunni í vesturbæ en engar nánari upplýsingar fengust um hana. Tveir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn grunaður um fíkniefnaakstur auk þess að vera réttindalaus. Þá gistu fjórir fangageymslu lögreglu. Tveir fengu gistingu þar sem þeir voru ofurölvi og húsnæðislausir, einn vegna þess að hann neitaði að greiða reikning á veitingastaðnum Asía í miðborginni og einn gistir fangageymslu vegna heimilsofbeldis. Þá komu upp tvö minniháttar fíkniefnamál. 8.1.2012 09:59