Fleiri fréttir

Yfir 20 árekstrar á höfuðborgarsvæðinu

Yfir 20 árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Í þremur árekstranna kvörtuðu ökumenn undan smávægilegum meiðslum, samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is Sex bifreiðanna voru fluttar af vettvangi með kranabíl þar sem þær voru óökuhæfar eftir óhöppin.

Bein útsending frá Degi rauða nefsins

Bein útsending frá landsöfnun fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) milli klukkan 19.30 og miðnættis. Slagorð útsendingarinnar er "Skemmtun sem skiptir máli“ og markmiðið er að safna heimsforeldrum, mánaðarlegum styrktaraðilum UNICEF. Að vanda mun fjöldi valinkunnra skemmtikrafta leggja söfnuninni lið með einum eða öðrum hætti.

Þingmennirnir stigu dansinn

Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi stigu villtan dans í útsendingu á Stöð 2 undir slagorðinu „Skemmtun sem skiptir máli" og er haldin til söfnunar fyrir Unicef. Það var mál manna að dansinn væri vel samhæfður og þingmenninnirnir hafi unnið vel saman þótt þeir hafi karpað töluvert á þinginu undanfarið. Þeir þingmenn sem tóku þátt voru Sigmundur Ernir Rúnarsson og Ólína Þorvarðardóttir frá Samfylkingunni, Þuríður Backman úr VG, Höskuldur Þórhallsson úr Framsóknarflokknum, Margrét Tryggvadóttir úr Hreyfingunni og Pétur Blöndal úr Sjálfstæðisflokknum.

Á slysadeild eftir árekstur

Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Háaleitisbraut nú undir kvöld. Hann mun ekki hafa verið alvarlega slasaður. Þetta var fimmta umferðaróhappið sem hafði orðið á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Þá hafa tvö hálkuslys orðið.

Pressan hótar málsókn

Vefpressan ehf, sem meðal annars á og rekur Pressuna, ætlar að fela lögmönnum að höfða mál á hendur einstaklingum sem hafa staðið fyrir herferð undanfarna daga í því skyni að fá fyrirtæki sem auglýsa á miðlum Vefpressunnar til að hætta birtingu auglýsinga sinna þar.

Gefandi reynsla að vinna með íslenskum ljósmyndurum

„Þetta er örugglega ekki síðasta verkefnið sem ég vinn með íslenskum ljósmyndurum,“ segir Celina Lunsford ljósmyndafræðingur. Celina var myndritstjóri ljósmyndabókarinnar Ný náttúra sem kom út hjá forlaginu Crymogeu í haust. „Þetta hefur verið afar gefandi reynsla og komið mér í samband við marga íslenska ljósmyndara.“

Hálkan varhugaverð

Tveir fótgangandi vegfarendur hafa slasast í höfuðborginni í dag eftir að hafa runnið á hálku. Þá hafa fimm umferðaróhöpp orðið og má í einhverjum tilfellum rekja þau til hálku. Nú þegar frost hefur verið í marga daga og snjór yfir klakanum er vert að hvetja fólk til þess að hafa varan á hvort sem ferðast er innanborgar eða utan borgarmarkanna.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins og fengi um 50% fylgi ef gengið yrði til kosninga í dag, samkvæmt könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Frá síðustu Alþingiskosningum hafa aldrei færri tekið afstöðu til þess hvaða lista þeir myndu kjósa.

Dómari gagnrýnir ákæruvaldið harðlega í Baugsmálinu

Óeðlilegur og óafsakanlegur dráttur sem varð á málsmeðferð í skattahluta Baugsmálsins hafði áhrif á þann dóm sem féll í dag yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur og Tryggva Jónssyni. Málið má rekja allt aftur til ársins 2002, eða níu ár aftur í tímann. Ríkissjóður þarf að greiða helminginn af málsvarnarlaunum verjenda hinna dæmdu.

Amnesty International: Bréf til bjargar

Ár hvert stendur Amnesty International fyrir bréfamaraþoni á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember. Í tilkynningu frá samtökunum er minnt á að við eigum öll öflugt vopn í baráttunni fyrir mannréttindum, nafnið okkar. „Því getum við beitt til að hafa jákvæð áhrif á líf þeirra sem brotið er á,“ segir einnig.

Leigubílstjórinn fundinn

Leigubílstjórinn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í tengslum við nauðgunarmál er varðar Egil Gillz Einarsson og unnustu, er kominn í leitirnar. Lögreglan þakkar veitta aðstoð.

Lögreglan leitar að Sigurði Brynjari

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sigurði Brynjari Jenssyni. Sigurður Brynjar, sem er fæddur árið 1996, er búsettur í Grindavík en hefur dvalið að undanförnu á Háholti í Skagafirði.

Vinna að aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi

Drög að aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum er nú til kynningar innan borgarinnar. Verið er að gefa starfsfólki tækifæri til að koma með ábendingar og tillögur að úrbótum til að fyrirbyggja ofbeldi.

Friðrik Þór heiðraður í Eistlandi

Leikstjórinn Friðrik Þór Fiðriksson tók við verðlaunum fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar í lok nóvember á fimmtándu Tallin Black Night Film Festival. Það var menntamálaráðherra Eistlands sem afhenti honum verðlaunin.

Einn ölvaður af 770

Einn ökumaður af 770, sem voru stöðvaðir af lögreglunni víðsvegar höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag, reyndist ölvaður. Sérstakt umferðareftirlit stendur nú yfir hjá lögreglunni.

Óvænt heimsókn á lögreglustöð: Klipptu handjárn af stúlku

"Maður hefur svo sem heyrt brandarann áður,“ segir varðstjóri lögreglunnar á Vestfjörðum, en þeir fengu óvænt og sérkennilega heimsókn seint í gærkvöldi þegar par gekk þar inn. Í ljós kom að stúlkan var handjárnuð og þau höfðu týnt lyklunum.

Ögmundur Jónasson: Stendur við hvert einasta orð um Vítisengla

"Ég stend við hvert einasta orð sem ég hef sagt og er tilbúinn að svara fyrir þau, hvar sem er og hvenær sem er,“ segir Ögmundur Jónasson en Hells Angels hafa stefnt Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, ríkislögreglustjóra og íslenska ríkinu fyrir meiðyrði.

Blaðberi rann 100 metra niður brekku

"Ég veit um mýmörg dæmi þar sem blaðberar detta vegna hálku þar sem er illa mokað eða slæmt aðgengi að húsum. Fólk hefur beinbrotnað, dottið á andlitið og brotið tennur,“ segir Felix Gunnar Sigurðsson hjá hverfastjórnun og stýringu hjá Póstdreifingu. Felix fær tilkynningu um slys á blaðberum um fimm til tíu sinnum á vetri.

Vítisenglar ósáttir við ummæli Ögmundar og leita til dómstóla

Vélhjólasamtökin Vítisenglar hafa stefnt Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra fyrir meiðyrði. Á vefmiðlinum Smugunni er greint frá því að ráðherranum hafi verið afhent stefnan í gær. Forseti samtakanna, Einar „Boom“ Marteinsson hafði áður lýst því yfir í DV að hann hyggðist stefna Ögmundi en ástæðan mun vera sú að ráðherrann hafi ítrekað á opinberum vettvangi kallað Vítisengla glæpasamtök.

Tannhvíttunarfræðingur sýnir tannlæknum tennurnar

"Þetta er búið að hafa skaðleg áhrif á reksturinn,“ segir tannhvíttunarfræðingurinn Rúna Óladóttir, en Tannlæknafélag Íslands sendi frá sér yfirlýsingu þar sem starfsemin var harðlega gagnrýnd.

Engin smálúða

Skipverjarnir á Kleifabergi ÓF 2 kræktu í sannkallaða risalúðu í gær. Ferlíkið er 258 sentimetrar að lengd og halda menn að þar fari ein af stærstu lúðum sem veiðst hafa við landið síðustu ár. "Til samanburðar má geta þess að lúðan sem þjóðverji nokkur veiddi á stöng fyrir vestan í fyrra og mun vera stærsta lúða í heimi sem veiðst hefur á stöng var 248 cm," segir Trausti Gylfason háseti á Kleifaberginu en hann giskar á að lúðan sem veiddist í gær sé allt að 250 kg. Eins og sjá má á myndunum er enda ekki um neitt síli að ræða.

Flugvallarmenn vilja tré burt úr Öskjuhlíð

„Það er einkennilegt að borgin ákveði að stráfella þarna fjölda trjáa út af flugvelli sem hvort sem er á að fara," segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem er andvígur því að orðið verði við ósk flugmálayfirvalda um grisjun trjáa í Öskjuhlíð vegna umferðar um Reykjavíkurflugvöll.

Mikið fannfergi í Grindavík

Vetrarríki er nú í Grindavík eftir mikið fannfergi þar í fyrrinótt. Starfsmenn bæjarins unnu hörðum höndum í allan gærdag við aða ryðja helstu umferaðræðar um bæinn og í nótt fór frostið í Grindavík niður í 13 gráður.

Óveður á flestum miðum, togarar liggja í vari

Óveður er á flestum miðum við landið og eru sára fá skip á sjó. Þó nokkur loðnuskip hafa leitað inn til Ísafjarðar og nokkrir togarar liggja í vari undir Grænuhlíð við Ísafjarðardjúp. Ekki er vitað til að neitt óhapp hafi hent skipin. Óvenju lítil sjósókn hefur verið að undanförnu vegna þráláts óveðurs á miðunum.

Um 64% vilja að Jón hætti

Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vilja að Jón Bjarnason láti af embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Alls segjast 35,7 prósent þeirra sem afstöðu taka vilja að Jón sitji áfram sem ráðherra. Um 64,3 prósent vilja að hann hætti.

Fjárfestar koma ekki af sjálfu sér

Allar þjóðir heimsins keppast við að laða til sín erlendar fjárfestingar og er mikil samkeppni þar á milli. Síðustu árin hefur slíkt valdið deilum hér á landi og oft hefur verið erfitt að negla niður hver stefna stjórnvalda er í málaflokknum. Carlos Bronzatto er framkvæmdastjóri World Association of Investment Promotion Agencies (WAIPA), sem útleggja mætti sem alþjóðasamtök fjárfestingarstofa. Hann segir áreiðanleika í regluverki lykilinn að því að laða fjárfesta að.

Tónlistarnám í anda Bjarkar

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að boðið verði upp á tónvísindasmiðjur í anda Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu í öllum grunnskólum borgarinnar í vetur. Um samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Bjarkar Guðmundsdóttur er að ræða. Ber það nafnið Biophilia í skólum og nær til 5.-7. bekkjar. Markmið þessa verkefnis er að samþætta á nýstárlegan hátt tónlist, vísindi, tölvutækni, móðurmál og jafnvel fleiri námsgreinar.- shá

Borgarstjóri opnaði jólamarkað

Jón Gnarr borgarstjóri opnaði nýjan jólamarkað á Ingólfstorgi í gærdag. Markaðurinn verður opinn á torginu til jóla, en hann er hluti af átaki borgarinnar sem nefnist Jólaborgin Reykjavík.

Von um markvissari lausn á ADHD

Erfðabreytileiki í boðleiðum í heila virðist tengjast athyglisbresti og ofvirkni (ADHD), að því er fram kemur í nýrri rannsókn vísindamanna á Barnaháskólasjúkrahúsinu í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Uppgötvunin gefur von um að hægt verði að þróa markvissari meðferð við sjúkdómnum.

Hæsta jólatréð á Reyðarfirði

Ljós voru tendruð á hæsta jólatré landsins þessi jólin á miðvikudag. Tréð er rúmlega 13 metra hátt sitkagreni úr Hallormsstaðarskógi sem stendur uppreist við álver Fjarðaáls á Reyðarfirði.

Landslið grínista kemur fram á degi rauða nefsins í kvöld

Það verður sannkölluð veisla á Stöð 2 á degi rauða nefsins í kvöld. Frá klukkan 19.30 til miðnættis verður sýnt beint frá skemmtun sem haldin er vegna söfnunarátaks UNICEF á Íslandi handa bágstöddum börnum í um heim allan. Sannkallað landslið íslenskra grínista kemur saman og skemmtir þjóðinni með óborganlegu gríni og hvetur hana um leið til að gerast heimsforeldrar.

Stórkostlegt að hafa svona góð áhrif á nemendur

Kynjafræði er kennd sem valfag við fjóra framhaldsskóla á landinu. Frumkvöðull á sviði kynjafræðikennslu í framhaldsskólum segir að auka þurfi framboðið. Dæmi eru um að biðlistar séu á námskeiðin.

Barnsmóðir Gísla dæmd til að greiða 35 milljónir

Anna Margrét Kristinsdóttir, barnsmóðir Gísla Þórs Reynissonar heitins athafnamanns, hefur verið dæmd til að greiða dánarbúi hans 35 milljónir króna. Dánarbú Gísla krafði Önnu Margréti um peninginn vegna láns sem talið var að Gísli hefði veitt henni árið 2007 vegna kaupa á sumarbústað og vegna greiðslu Önnu af láni hjá Landsbanka. Í málinu lágu ekki fyrir skriflegir lánasamningar. Gísli og Anna Margrét áttu tvö börn saman en voru ekki í skráðri sambúð.

Lúpínan hörfar fyrir öðrum gróðri

Lúpínan virðist hörfa fyrir íslenskum gróðri með tímanum samkvæmt nýlegri úttekt landfræðings. Lúpínubreiður á afmörkuðu svæði í Heiðmörk hafa hörfað um meira en helming á nokkrum áratugum.

Jarðir að komast í eigu útlendinga

Jarðir á Íslandi eru með óbeinum hætti að komast i eigu erlendra kröfuhafa vegna afleiðinga af bankahruninnu. Sumar þeirra eru þegar komnar í eigu bankanna eftir að auðugt fólk keypti þær í góðærinu með lánum en gat ekki staðið skil á greiðslum af þeim. Bankarnir eiga nú mikið af þessum jörðum, en bankarnir sjálfir eru svo aftur í eigu erlendra kröfuhafa.

Sælulíf á sólarströnd í Santos

Á meðan stelpurnar okkar standa í ströngu á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik sem fram fer í Brasilíu gengur lífið sinn vanagang á ströndinni í Santos þar sem Ísland leikur í riðlakeppninni. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari brá sér á ströndina.

Ritstjóri Pressunnar biðst afsökunar

Vísi hefur borist yfirlýsing frá Steingrími Sævarri Ólafssyni, ritstjóra Pressunnar, vegna fréttar sem birtist á vef Pressunnar í gær. Yfirlýsingin er svohljóðandi.

Skipulagsstofnun sökuð um aðför að Vestfjörðum

"Bæjarstjórn Vesturbyggðar mótmælir harðlega aðförinni að samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum með umsögn Skipulagsstofnunar um vegagerð á Vestfjarðavegi 60 frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði." Svo segir í ályktun sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarstjórnar á Patreksfirði í gærkvöldi í tilefni af áliti Skipulagsstofnunar fyrr í vikunni þess efnis að áformaðar endurbætur á 24 kílómetra kafla valdi óbætanlegum skaða.

Sjá næstu 50 fréttir