Fleiri fréttir

Ragna fundar með kollegum í Finnlandi

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra sat í dag árlegan fund með norrænum ráðherrum útlendingamála í Borgå í Finnlandi.

Dómsmáli vegna Urriðafossvirkjunar vísað frá

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómsmáli sem Flóahreppur höfðaði gegn Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, fyrir að neita að staðfesta aðalskipulag hreppsins sem gerði ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Dómari vísaði málinu frá á þeirri forsendu að skipulagsferlið væri hafið að nýju og því ekki lögvarðir hagsmunir af úrlausn máls fyrir dómi. Flóahreppur hefur þegar ákveðið að bera frávísunina undir Hæstarétt, að sögn Margrétar Sigurðardóttur sveitarstjóra. Umhverfisráðherra neitaði að staðfesta aðalskipulagið þar sem Landsvirkjun hafði greitt fyrir skipulagsvinnu. Flóahreppur telur það hins vegar hafa verulega almenna þýðingu að fá úr því skorið hvort lagatúlkun ráðherrans standist.

Rannsókn á banaslysi: Beðið eftir að ofninn kólni

Rannsókn á því hvað olli banaslysinu í járnblendiverksmiðjunni í Grundartanga fyrr í vikunni er enn ólokið. Sprenging var í einum ofna verksmiðjunnar en ekki er hægt að hefja rannsókn fyrr en ofninn kólnar.

Aftur fundað um Icesave

Samninganefnd íslenskra stjórnvalda hefur í gær og í dag fundað með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda í Reykjavík um Icesave málið.

Gengistrygging: Prófmál þingfest í héraði

Prófmál um uppgjör gengistryggðra lánasamninga var þingfest fyrir héraðsdómi í gær. Rati málið fyrir hæstarétt mun dómur réttarins að öllum líkindum eyða óvissu um hvort samningsvextir lánanna standi eða ekki.

Veittust að veitingamanni og hótuðu honum lífláti

Davíð Steingrímsson veitingamaður sem áður var kenndur við Vegas á Laugavegi lenti í því í morgun að tveir menn veittust að honum og hótuðu honum lífláti. Vegas hefur nú verið lokað í kjölfar banns við nektarsýningum og er Davíð nú í óðaönn við að standsetja nýjan stað í sama húsnæði sem á að heita"Ob-La-Di, Ob-La-Da" en á staðnum verður bítlatónlist í fyrirrúmi.

Tæplega 500 fjölskyldur í Kópavogi fengu fjárhagsaðstoð

Alls fengu 495 fjölskyldur í Kópavogi fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustu Kópavogs á árinu 2009 samanborið við 396 fjölskyldur árið á undan. Jafngildir það 25% aukningu. Þetta kemur fram í ársskýrslu Félagsþjónustu Kópavogs fyrir árið 2009. Þar segir að eftirspurn eftir félagslegri ráðgjöf og fjárhagsaðstoð hafi aukist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi í október 2008.

Hitamet slegið í Hólminum

Aldrei hefur meðalhiti í júnímánuði verið jafn mikill Í Stykkishólmi frá upphafi athugana 1845. Meðalhitinn þar var 10,8°C. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á heimasíðu sinni.

Þingnefndir funda um ólöglegu lánin

Sameiginlegur fundur viðskiptanefndar Alþingis og efnahags- og skattanefndar hefur verið boðaður á mánudaginn kemur, 5. júní. Aðalumræðuefnið eru tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vegna lánasamninga sem innihalda gengisviðmið gagnvart erlendri mynt. Á heimasíðu Alþingis er þess getið að gestir hafi verið boðaðir á fundinn en þess ekki getið hverja er um að ræða.

Amfetamínsmygl: Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald

Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir konunum tveim sem voru handteknar 17. júní síðastliðinn, en gæsluvarðhald rennur út í dag. Í bíl sem þær komu í með Norrænu voru 20 lítrar af amfetamín-basa faldir í bensíntanki bifreiðarinnar. Hægt er að framleiða 264 kíló af amfetamíni úr vökvanum, en þetta er stærsti amfetamínfundur á Íslandi til þessa.

Aurskriða féll í Búlandsdal -vatnslaust á Djúpavogi

Aurskriða féll í nótt á vatnsveitumannvirki í Búlandsdal þannig að nú er vatnslaust á Djúpavogi. Starfsmenn hreppsins eru á vettvangi og vinna að lagfæringum. Búist er við að það taki allan daginn, en nú er verið að tengja leilðslu framhjá miðlunarmannvirkjunum þannig að vatn fer að berast til bæjarins, en þó aðeins til brýnustu nauðsynja.

42 prósent styðja ríkisstjórnina

Stuðningur almennings við ríkisstjórnina mældist 42 prósent í könnun, sem Miðlun gerði í nýliðnum mánuði fyrir Morgunblaðið. Þetta er hlutfall meðal þeirra sem tóku afstöðu.

Nágrannar sætti sig við tvöföldun á húsi

Kæru eigenda fjögurra húsa í Mávanesi vegna byggingar tæplega 800 fermetra einbýlishúss við götuna hefur verið vísað frá úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

Bótasjóði breskra togarasjómanna lokað

Breska ríkisstjórnin hefur lokið bótagreiðslum til breskra togarasjómanna sem misstu atvinnuna í kjölfar þorskastríðanna við Íslendinga á áttunda áratugnum. Heildargreiðslur til hundraða sjómanna frá Aberdeen, Grimsby og Hull nema um 60 milljónum punda, eða rúmlega ellefu milljörðum króna.

Intersport segir starfsfólk sitt svindla

Forsvarsmenn Intersports telja starfsfólk á afgreiðslukössum verslunarinnar misnota aðstöðu sína til að selja skyldmennum sínum vörur með afslætti. Þetta kemur fram í svari fyrirtækisins til Persónuverndar.

Gott svigrúm til samkeppni

Iceland Express ætlar að hefja flug til Orlando í Flórída í október. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir leiðina vera mjög vinsæla meðal Íslendinga og gott svigrúm sé fyrir samkeppni á markaðnum.

Sælgætisverksmiðjunni fargað

Botn virðist fenginn í mál brjóstsykurs­verksmiðjunnar sem hvarf í Hafnarfirði í fyrrasumar. Einungis tveimur dögum eftir að sælgætis­gerðarmaðurinn Jóhannes G. Bjarnason sagði frá hvarfi verksmiðju sinnar í Fréttablaðinu fyrir tæpum þremur vikum hafði ungur maður samband við hann og gat varpað nokkru ljósi á atburðarásina.

Tekjur ríkisins voru 40 milljörðum yfir áætlun

Heildartekjur ríkissjóðs árið 2009 eru mun hærri en búist var við í áætlunum. Gert var ráð fyrir um 398 milljörðum í tekjur, en endanleg niðurstaða er tæpir 440 milljarðar króna. Þetta kemur fram í ríkisreikningi sem lagður verður fram á næstu vikum.

Rataði aftur í hús skáldsins

Munnharpa Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi rataði heim í Davíðshús á Akureyri í vikunni, eftir að hafa verið löngu talin glötuð.

Létu rigninguna ekki trufla sig

Talið er að hátt í tíu þúsund manns hafi fylgst með tónleikunum Iceland Inspires þegar best lét í Hljómskálagarðinum í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Rigning setti strik í reikninginn fyrsta klukkutímann og voru margir tónleikagesta undir það búnir. Þegar líða tók á kvöldið stytti upp og bættist þá í hóp tónleikagesta.

Sinnir sárustu neyð í sumarlokuninni

Mæðrastyrksnefnd mun hjálpa skjólstæðingum sem eru í sárustu neyð, þótt hefðbundin sumarlokun standi nú yfir hjá nefndinni, svo fremi sem það er mögulegt. Þetta segir Ragnhildur Guðmundsdóttir formaður hennar.

Fréttaskýring: Almenningur orðið fyrir búsifjum

Til að fá marktækan samanburð á verði milli landa er nauðsynlegt að hafa í huga kaupmátt íbúa þeirra landa sem verið er að bera saman. Í flestum ríkja þriðja heimsins eru matvæli þannig ódýrari en þekkist á Vesturlöndum. Það þýðir hins vegar ekki að íbúar þriðja heims ríkja séu betur settir því sem hlutfall af launum þeirra eru matvæli dýrari en Vesturlandabúar eiga að venjast.

Engin ákvörðun tekin enn

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin í borgarráði varðandi lækkun fasteignamats. Fundað verði um málið í næstu viku.

Nýtt fangelsi boðið út í haust

Bygging nýs gæsluvarðhalds- og skammtímavistunarfangelsis verður boðin út fyrir lok september næstkomandi. Þá hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra skipað nefnd sem ætlað er að gera tillögur að langtímaáætlun á sviði fullnustumála, að því er fram kemur í frétt frá dómsmálaráðuneyti.

Segir öskufokið það versta síðan í gosinu

Mikill öskubylur var undir Eyjafjöllum í gær. Ekkert hafði rignt um daginn og fóru vindhviður yfir 40 metra á sekúndu. Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, segir ekki hafa verið mögulegt að vera utandyra þegar hviðurnar voru sem mestar og fokið hafi verið það mikið að skyggni hafi farið undir 300 metra, en vind hafi lægt undir kvöld.

Yfir 40 látnir í hryðjuverkaárás í Pakistan

Talið er að 41 hafi látið og yfir hundrað manns séu særðir eftir þrjár sjálfsmorðssprengjuárásir í Pakistan í dag. Árásirnar áttu sér stað í borginni Lahore í Pakistan og er þetta í annað skiptið sem hryðjuverkaárásir hafa verið gerðar í borginni á skömmum tíma.

Evrópukönnun: Vantar mikilvæga spurningu

Sextíu prósent þjóðarinnar eru andvíg aðild að Evrópusambandinu samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur, segir þetta í samræmi við þá þróun sem átt hefur séð stað síðan Icesave málið kom upp, hins vegar vanti í könnunina þá mikilvægu spurningu hve margir séu hlyntir aðildarviðræðunum sjálfum.

Forstjóri Lýsingar kannast ekki við bílastuld

"Ég veit ekki um neitt sem hefur verið stolið frá okkur," segir Halldór Jörgensson forstjóri Lýsingar. Stöð 2 fjallaði í kvöld um mál manns sem hélt því fram að hann hefði stolið bíl af plani Lýsingar sem tryggingu fyrir peningum sem hann teldi sig eiga inni hjá fyrirtækinu.

Nektardansarar komnir í bikiní

Eigandi nektarstaðarins Goldfinger þurfti að biðja dansarana sína um að fara í bikiní á miðnætti í gær, en þá tók bann við nektardansi á skemmtistöðum gildi. Hann segist líta til biblíusagna, þar sem Adam huldi nekt sína með einu laufblaði.

Skattahækkanir á almenning

Grískur almenningur finnur nú í vaxandi mæli fyrir kreppunni þar í landi en í dag tóku gildi skattahækkanir á matvæli og þjónustu.

Þorsteinn Pálsson: Ólga meðal flokksmanna

Óánægðir sjálfstæðismenn hafa ekki stofnað nýjan flokk eins og rætt var um eftir landsfund. Fyrrverandi formaður segir niðurstöðu landsfundar slæma og að hún þrengi möguleika Sjálfstæðisflokksins til stjórnarsamstarfs á miðju stjórnmálanna. Þá segir hann að töluverð ólga sé í Sjálfstæðisflokknum vegna niðurstöðunnar, en hann er þó ekki á leið úr flokknum. Framkvæmdastjóri flokksins segir fáa hafa sagt sig úr flokknum frá landsfundi.

Íslandsbanki skilar hagnaði

Íslandsbanki, sem er nánast að fullu í eigu erlendra kröfuhafa Glitnis, heldur áfram að skila hagnaði, en bankinn hagnaðist um 3,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Bankastjórinn segir bankann vel í stakk búinn að takast á við óvissu vegna dóma Hæstaréttar í bílalánsmálunum sökum sterkrar eiginfjárstöðu.

Pókerræningjar í þriggja ára fangelsi

Mennirnir fjórir sem rændu vinningspotti á pókermóti í Þýskalandi fyrr á þessu ári voru í dag dæmdir í rúmlega þriggja ára fangelsi fyrir verknaðinn. Ránsféð hefur enn ekki komið í leitirnar.

Gengislánaskuldari stal bíl af Lýsingu

Gengislánaskuldari kveðst hafa farið inn á geymslusvæði Lýsingar í nótt og dregið þaðan bíl - til tryggingar endurgreiðslu frá Lýsingu. Hann gefur Glitni 7 daga frest til að veita sér tryggingu fyrir endurgreiðslu og segist ekki ætla að láta það líðast að níðst verði á verkalýðnum til að bjarga fjármálageiranum úr kreppunni.

Festist í gröfu sem valt út í á

Grafa valt út í Sandá í Þistilfirði í dag og festist stjórnandi hennar í henni. Björgunarsveitir voru kallaðar út frá Þórshöfn, Vopnafirði og Húsavík og þá var óskað eftir aðstoð kafara.

Efast um lögmæti starfandi stjórnarformanns OR

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum hafa óskað eftir því að borgarlögmaður leggi faglegt mat á lögmæti ákvörðunar um að skipa Harald Flosa Tryggvason sem starfandi stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur.

Ásdís Rán í Playboy: Tugir eintaka seld í forsölu

Búið er að selja á milli 50 og 60 búlgörsk Playboy-tímarit í forsölu hjá Eymundsson en ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir mun prýða forsíðu þess. Áhuginn virðist ætla að verða gríðarlegur samkvæmt upplýsingum frá Eymundsson sem selur tímaritin á vefsíðu sinni, eymundsson.is.

Kattafár á Kársnesi: Ófrísk kona bitin og klóruð

„Ég er orðinn frekar ráðalaus, ég er búinn að prófa allt,“ segir Ari Steinarsson íbúi á Kársnesi í Kópavogi. Hann segir farir sínar ekki sléttar af kattaumgangi í íbúð sinni en hann býr á jarðhæð. Undanfarnar þrjár vikur hefur Ari, ásamt ófrískri konu sinni, vaknað að minnsta kosti fjórum sinnum við umgang í köttum í íbúð sinni.

Góð stemning þrátt fyrir rigningu

Milli fimm og sex þúsund manns eru nú í Hljómskálagarðinum á tónleikunum Inspired by Iceland. Tónleikagestir láta rigningu og rok ekki á sig fá. „Það er stemning í bæ," segir Hannes Óli Ágústsson, einn tónleikagesta, sem beið spenntur eftir að sveitin Seabear stigi á stokk.

Meirihluti almennings segir íslensk lög óskiljanleg

Meirihluti lögmanna telur að íslensk lög séu skiljanleg almenningi en aðeins fjórðungur almennings telur aftur á móti að lögin séu skiljanleg. Þetta er meðal þess sem kemur fram í mastersritgerð Söru Bjarkar Hauksdóttur um skiljanleika laga.

Strætó og fólksbifreið lentu í árekstri

Strætó og fólksbifreið lentu í árekstri í Lindarhverfinu um klukkan þrjú í dag. Lögregla og slökkvilið var kölluð á vettvang samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins.

Sjá næstu 50 fréttir