Innlent

Aftur fundað um Icesave

Samninganefnd íslenskra stjórnvalda hefur í gær og í dag fundað með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda í Reykjavík um Icesave málið.

Fram kemur í tilkynningu sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér í dag að fundirnir séu fyrst og fremst til að skiptast á upplýsingum og undirbúa frekari viðræður síðar á þessu ári. Þetta fyrsti fundur samninganefndar Íslands með bretum og hollendingum frá því þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram í byrjun mars.

„Fyrir samninganefndinni fer bandaríski lögfræðingurinn Lee Buchheit. Auk hans skipa nefndina Guðmundur Árnason og Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjórar fjármálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis, ásamt Jóhannesi Karli Sveinssyni lögmanni og Lárusi Blöndal lögmanni, sem tilnefndur er af stjórnarandstöðuflokkunum sameiginlega. Þeim til ráðgjafar eru sérfræðingar ráðgjafarfyrirtækisins Hawkpoint og lögfræðistofunnar Ashurst," segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×