Tæplega 500 fjölskyldur í Kópavogi fengu fjárhagsaðstoð 2. júlí 2010 11:21 25% fleiri fjölskyldur þurftu að fá fjárhagsaðstoð frá Kópavogsbæ.
Alls fengu 495 fjölskyldur í Kópavogi fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustu Kópavogs á árinu 2009 samanborið við 396 fjölskyldur árið á undan. Jafngildir það 25% aukningu. Þetta kemur fram í ársskýrslu Félagsþjónustu Kópavogs fyrir árið 2009. Þar segir að eftirspurn eftir félagslegri ráðgjöf og fjárhagsaðstoð hafi aukist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi í október 2008. Í ársskýrslunni er farið ítarlega yfir starf Félagsþjónustunnar á síðasta ári. Þar kemur meðal annars fram að tilkynningum til barnaverndar hafi fjölgað um 19% miðað við árið á undan. Þær voru alls 762 á árinu 2009 samanborið við 641 árið á undan. Langflestar tilkynningarnar bárust frá lögreglu. Helstu ástæður tilkynninga voru áhættuhegðun barns, svo sem afbrot, vímuefnaneysla eða erfiðleikar í skóla. Aðrar helstu ástæður voru ofbeldi eða vanræksla. Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri Kópavogs, segir í ávarpi í ársskýrslunni að erfitt sé að segja til um það hvers vegna barnaverndartilkynningum hafi fjölgað. Skýringuna megi þó líklega einna helst rekja til atvinnuleysis og fjárhagslegra erfiðleika. „Starfsmenn eru sammála um að þyngd mála hafi aukist, ekki síst í unglingamálum, en vímuefnaneysla og kynferðislegt ofbeldi er, fremur í dag en áður, fylgifiskur alvarlegra vandamála hjá unglingum," segir hann enn fremur í skýrslunni. Hann segir áhyggjuefni hve fá og vanmáttug úrræði fyrir þessa einstaklinga séu í boði hjá ríkinu. Hann kallar því eftir fleiri og sérhæfðari úrræðum og segir enn fremur að skoða þurfi möguleika á breyttu skipulagi barnaverndarmála og meiri samvinnu milli sveitarfélaga. Í lok ávarpsins segir hann að Félagsþjónustan hafi þurft, eins og aðrar stofnanir bæjarins, að leita allra leiða til að auka ekki kostnað í því árferði sem nú er. Það hafi hins vegar reynst nánast útilokað. Eðli félagsþjónustu sé að svara þörfum bæjarbúa, ekki síst á erfiðum tímum. „Hagræðing innan stofnunarinnar hefur því verið fólgin í aukinni ráðdeild og að tryggja að nýting fjármagns sé með besta móti." Lögfræðingur hafi verið ráðinn á síðasta ári í hálft stöðugildi til að mæta auknum fjölda mála og jafnframt hafi verið ráðinn aðstoðarmaður í átaksverkefni í samstarfi við Vinnumálastofnun til að auka skilvirkni fjárhagsaðstoðar og minnka biðlista.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Fleiri fréttir Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Sjá meira