Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskur maður ofsækir Eivöru Söngkonan Eivör Pálsdóttir hefur óskað eftir nálgunarbanni vegna íslensks manns sem hefur elt hana á röndum í þrjú ár. Svo ágengur hefur maðurinn verið að hann hefur búið í tjaldi í garðinum hjá henni í Færeyjum í um ár. 1.6.2010 18:40
Síbrotamaður sló mann í höfuðið með skiptilykli Karlmaður sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm fyrir helgi verður gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti stendur í máli hans til 24. júní. Maðurinn hefur nær samfelldan brotaferil frá árinu 2005 og því taldi Héraðsdómur Reykjavíkur að hann myndi halda áfram afbrotum yrði hann látinn laus meðan á áfrýjunarfresti stæði yfir. Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð í dag. 1.6.2010 16:49
Gagnrýndi mætingu þingmanna á nefndarfundi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi mætingu þingmanna á nefndarfundi í umræðum á Alþingi í dag. Vegna slæmrar mætingar er minnihlutinn stundum með meirihluta í nefndum, að sögn Sigríðar. Hún vill að hægt verði að fylgjast með því opinberlega hverjir mæti á nefndarfundi og hverjir ekki. 1.6.2010 16:15
Vilhjálmur kveður borgarstjórn Borgarstjórn Reykjavíkur kom saman til fundar klukkan tvö í dag en þetta er síðasti fundur fráfarandi borgarstjórnar. Sex borgarfulltrúar voru ýmist ekki meðal frambjóðenda í kosningunum á laugardaginn eða náðu ekki kjöri. Þar á meðal er Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri. Hann sóttist ekki eftir endurkjöri en hann hefur átt sæti í borgarstjórn síðastliðinn 28 ár. 1.6.2010 15:23
Vilja beita viðskiptaþvingunum eða slíta stjórnmálasambandi við Ísrael Meirihluti utanríkismálanefndar segir að slit á stjórnmálasambandi við Ísrael komi alvarlega til álita vegna árásar Ísraela á skipalest með hjálpargögn á leið til Gaza í gær. Utanríkisráðherra er falið að meta í samráði við aðrar þjóðar hvaða aðgerðum verði beitt. Þetta er niðurstaða fulltrúa allra flokka í utanríkismálanefnd fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn. Þetta kom fram í í máli Ögmundar Jónssonar, þingmanns VG, í utandagskrárumræðu um málið á Alþing í dag. 1.6.2010 14:10
Eyjafjallajökull: Vatnsgufa í tveggja kílómetra hæð Í tilkynningu frá veðurstofu og jarðvísindastofnun segir að hvít vatnsgufa steig frá eldstöðinni í morgun upp í tveggja kílómetra hæð. Ský og mistur hafa hulið topp fjallsins að mestu í gær og í dag. Þá var mikið öskufjúk á svæðinu í gær, eins og Vísir greindi frá. 1.6.2010 18:14
Þjóðarátakið „Þjóðin býður heim“ Á fimmtudaginn á milli klukkan 13 og 14 er fólk hvatt til að senda glænýtt og skemmtilegt myndaband af síðunni www.inspiredbyiceland.is til fjölskyldu, vina, kunningja og viðskiptafélaga erlendis. Þeir sem ekki hafa tök á því á þeim tíma geta sent myndbandið á öðrum tímum dagsins eða hvenær sem er næstu vikurnar, segir í fréttatilkynningu frá Iðnaðarráðuneytinu. 1.6.2010 15:23
Foreldraverðlaun afhent Vinafjölskyldum Vesturbæjarskóla Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 15. sinn í dag, 1. júní, við athöfn í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti verðlaunin. 1.6.2010 20:25
Margir í Landsbankanum með hærri laun en forsætisráðherra Í nýju árshlutauppgjöri Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins kemur fram að launagreiðslur, fríðindi og lífeyrisgreiðslur til æðstu stjórnenda bankans nemi 57 milljónum króna á þessu tímabili. 1.6.2010 18:32
Lundey NS með síld til Vopnafjarðar Vinnsla á síld hófst síðdegis í gær hjá fiskiðjuveri HB Granda á Vopnafirði eftir að Lundey NS kom þangað með um 300 tonna síldarafla. 1.6.2010 17:07
Fidelity með 6% í Össuri Breski fjárfestingasjóðurinn Fidelity hefur aukið hlut sinn í Össuri í 6%, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Markaðsvirði hlutarins sem tilkynnt var um í dag er um 1,2 milljarðar króna. 1.6.2010 16:55
Skuldabréfavísitala stendur í stað eftir talsverðar hækkanir Eftir töluvert miklar hækkanir síðastliðna þrjá daga stóð Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI í stað í dag í þó nokkrum viðskiptum eða 18,3 milljörðum króna. Hún er 189 stig samkvæmt upplýsingum frá GAM Management. 1.6.2010 16:13
Gosefni geta haft áhrif á klak þorsks Gosefni í hlaupvatni geta við ákveðnar aðstæður haft neikvæð áhrif á klak þorskhrogna og vöxt þorskungviðis, samkvæmt rannsókn Hafrannsóknarstofnunnar. 1.6.2010 15:13
Oddvitar Samfylkingarinnar og VG fengu margar útstrikanir Gísli Marteinn Baldursson, Dagur B. Eggertsson, Sóley Tómasdóttir og Einar Örn Benediktsson fengu flestar útstrikanir hjá kjósendum sinna flokka í kosningunum á laugardaginn, samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn í Reykjavík. 1.6.2010 14:58
Borgarbóksafnið í málverkaleit Artótek í Borgarbókasafni auglýsir um þessar mundir eftir myndlistarmönnum til að sýna verk sín næsta vetur. Umsóknarfrestur rennur út 7. júní. 1.6.2010 14:57
Ungliðahreyfingar stjórnarflokkanna vilja slíta stjórnmálasambandinu Ungliðahreyfingar ríkisstjórnarflokkanna hvetja ríkisstjórnina til þess að taka af skarið og slíta stjórnmálasamstarfi við Ísrael tafarlaust vegna árásar Ísraela á skipalest með hjálpargögn á leið til Gaza. Stjórn Ung vinstri grænna samþykkti ályktun þess efnis í gær og þá sendu Ungir jafnarmenn frá sér ályktun um málið í dag. 1.6.2010 14:39
Mörður tekur sæti á Alþingi Mörður Árnason tók í dag sæti á Alþingi í stað Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur sem sagði formlega af sér þingmennsku í gær. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, bauð Mörð velkominn til starfa við upphaf þingfundar. 1.6.2010 13:37
„Framsóknarmenn eru hreint ekki óvinsælir í borginni“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að framsóknarmenn séu hreint ekki óvinsælir í Reykjavík. Niðurstaðan í kosningunum sé vissulega vonbrigði en um leið séu mikil tækifæri til uppbyggingar. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Sigmundur sendi flokksmönnum í hádeginu. 1.6.2010 13:07
Fylgst með áhrifum ösku á heilsu fólks Margir á höfuðborgarsvæðinu komu að bílum sínum öskugráum í morgun eftir að ösku frá Eyjafjallajökli sem nú berst með vindum hafði rignt niður. Ástandið er mun verra nær eldstöðvunum en sóttavarnarlæknir fylgist með áhrifum ösku á heilsu fólks. Hann telur öskuna helst valda fólki sálrænum kvölum um þessar mundir. 1.6.2010 12:31
Þýsku orrustuþoturnar koma í dag Sex orrustuþotur þýska flughersins lenda á Keflavíkurflugvelli nú laust fyrir klukkan eitt. Flugsveitin sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi til 25. júní. 1.6.2010 12:16
Meirihlutaviðræður langt komnar í Kópavogi Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Vinstri grænna, lista Kópavogsbúa og Næsta besta flokksins í Kópavogi eru langt á veg komnar. Fulltrúar flokkanna funduðu í gær og búist er við áframhaldandi fundarhöldum í dag. 1.6.2010 12:03
Fjarðabyggð: Hreinskrifa málefnasamninginn á eftir Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í Fjarðabyggð sömdu í gærkvöldi í öllum megindráttum um nýjan meirihluta. Þetta þýðir að Sjálfstæðisflokkur kemst í fyrsta sinn til valda í þessu stærsta sveitarfélagi Austurlands og Fjarðalistinn, sem frá upphafi hefur leitt stjórn sveitarfélagsins, fer nú í minnihluta. 1.6.2010 12:00
Almenningur fær að taka þátt í leynifundum Næstu daga munu borgarfulltrúar og félagar Besta flokksins og Samfylkingarinnar hittast á röð leynifunda og ræða um myndun nýs meirihluta í Reykjavík. Almenningi gefst kostur á að koma sínum sjónarmiðum að í gegnum netið. 1.6.2010 11:35
Útilokar ekki stjórnmálaslit „Við íhugum það mjög rækilega en hröpum ekki að neinum slíkum ákvörðunum. Við gerum það að vandlega yfirförnu máli vegna þess að við viljum tala til Ísraela á eins áhrifaríkan hátt og við mögulega getum,“ segir Ögmundur Jónsson, þingmaður VG, aðspurður hvort hann vilji að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael. Hann segir að stjórnmálaslit séu ekki takmark heldur tæki til að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri. 1.6.2010 11:18
Skattalagabrotum að hluta vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá að hluta ákæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggvi Jónssyni vegna meintra skattalagabrota þar sem dómurinn taldi þær brjóta gegn Mannréttindasáttmála Evrópu. Frávísunin verður kærð til Hæstaréttar. 1.6.2010 11:14
Jóhanna á leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sækir leiðtogafund Eystrasaltsráðsins sem haldinn er í Vilníus í Litháen, 1.-2. júní. Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlöndin fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland, auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu. 1.6.2010 10:23
Mótmæltu fyrir utan Stjórnarráðið Nokkur fjöldi fólks tók sér stöðu fyrir framan Stjórnarráðið í morgun áður en ríkisstjórnarfundur hófst. Mótmælin voru skipulögð af Heimavarnarliðinu og stóð til að afhenda ríkisstjórninni áskorun bréflega og þess jafnframt óskað að hún verði lesin upp á ríkisstjórnarfundinum, að því er fram kemur í tilkynningu. Tilgangur aðgerðanna er að mótmæla „máttlausum aðgerðum stjórnvalda við að leysa bráðavanda íslenskra heimila," eins og það er orðað. 1.6.2010 09:53
Hjónavígslum fækkar Talsvert færri gengu í hjónaband hér á landi í fyrra en nokkur undanfarin ár. Kirkjulegum hjónavígslum fækkar en borgaralegar hjónavígslur standa í stað. Skilnaðartíðni hefur lítið breyst hér á landi undanfarinn aldarfjórðung en 36% hjónabanda enda með skilnaði. 1.6.2010 09:40
Fimm bíla árekstur á Miklubraut Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut við Skaftahlíð á níunda tímanum í morgun. Bílarnir óku í vesturátt. Ekki lítur út fyrir að slys hafi orðið á fólki. Búast má við einhverjum töfum vegna þessa. 1.6.2010 09:18
Lágur þrýstingur á heita vatninu í Kópavogi Vegna bilunar í dreifikerfi er lágur þrýstingur á heitu vatni í neðri byggðum Kópavogs. Unnið hefur verið að viðgerð í nótt og vonast er til að henni ljúki um hádegisbil í dag. 1.6.2010 08:07
Kona slapp ómeidd úr bílveltu Betur fór en á horfði þegar kona missti stjórn á bíl sínum á Biskupstungnabraut við Kerið í Grímsnesi í gærkvöldi. Hún var með tvo ketti í bílnum og leit í augnablik af veginum til þess að sinna þeim í búri sínu. 1.6.2010 06:53
Fóru létt með tólf tíma ferð „Þetta var virkilega gaman en þetta tók líka á. Við vorum sex klukkutíma hvora leið,“ segir Magnús Pálsson, nemandi í 7. bekk Landakotsskóla, sem leiddi fjórtán bekkjarfélaga sína í hjólaferð upp í Bláfjöll í liðinni viku. 1.6.2010 06:45
Starfa á Haíti út júnímánuð Tveir íslenskir hjúkrunarfræðingar, þær Elín Jakobína Oddsdóttir og Oddfríður Ragnheiður Þórisdóttir, halda í dag til starfa fyrir Rauða krossinn á Haítí. Þær verða báðar við störf á sjúkrahúsi finnska og þýska Rauða krossins í Port-au-Prince út júnímánuð. 1.6.2010 06:00
Lítil fjölgun kvenna í sveitarstjórnum 192 konur voru kjörnar í sveitarstjórnir um helgina en 320 karlar. Hlutur kvenna er því 37,5 prósent og eykst um 1,5 prósentustig á milli kosninga, var 36 prósent fyrir fjórum árum. 1.6.2010 06:00
Sinnir fiskveiðieftirliti og dregur kafbáta „Á stuttum tíma munum við fara um borð í tug skipa sem stunda karfaveiðar á Reykjaneshrygg. Fiskveiðieftirlit er eitt meginverkefni þessa skips, þótt það sé hluti af franska sjóhernum,“ segir Philippe Guéna, skipherra franska dráttarbátsins Malabar sem kom til hafnar í Reykjavík í liðinni viku. 1.6.2010 06:00
Allir félagsmenn móti kröfurnar Allir félagsmenn VR fá tækifæri til að koma að kröfugerðinni fyrir kjaraviðræðurnar sem í hönd fara. Efna á til opins vettvangs með þjóðfundarfyrirkomulagi. 1.6.2010 06:00
Kjörstjórn bjó til óþarfa skekkju Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir óskiljanlegt hve talning kjörseðla gekk hægt í Reykjavík á kosninganótt og gagnrýnir að útstrikuð atkvæði hafi ekki verið talin með öðrum í fyrstu tölum. Hann kallar eftir samræmdum vinnubrögðum kjörstjórna í landinu. 1.6.2010 05:00
Orgelráðgjafi Hörpu fannst látinn Heimsfrægur organisti, sem vann sem ráðgjafi við uppsetningu orgels í tónlistarhúsið Hörpu, fannst látinn á laugardag. Organistinn, David Sanger, hafði fyrr í vikunni mætt fyrir rétt, sakaður um að hafa misnotað gróflega unga drengi árin 1978 til 1982. 1.6.2010 04:30
Viðræður hefjast í dag um áherslurnar Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík hittust í gær og komu sér saman um röð leynifunda, sem auglýstir verða sérstaklega. Þar verði málefni væntanlegs meirihluta rædd, en lítið sem ekkert hefur verið tæpt á þeim. 1.6.2010 04:00
Margmenni á fjölskyldudegi Vildaráskrifendur Stöðvar 2 og fjölskyldur þeirra gerðu sér glaðan dag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á laugardaginn. Áætlað er að um tuttugu þúsund manns hafi verið í garðinum þegar mest var, í blíðskaparveðri. Boðið var upp á dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Íþróttaálfurinn og Solla stirða mættu úr Latabæ og léku listir sínar, Sveppi og Villi stigu á stokk, Ingó og Veðurguðirnir léku fyrir dansi og Skoppa og Skrítla kættu yngstu gestina. Ókeypis var í öll tæki og boðið var upp á pylsur og drykki með. - sh 1.6.2010 04:00
Nýr formaður hjá SAMFOK Guðrún Valdimarsdóttir hagfræðingur var kosin nýr formaður SAMFOK á aðalfundi félagsins á fimmtudag en Hildur B. Hafstein gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. 1.6.2010 03:30
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent