Ungliðahreyfingar stjórnarflokkanna vilja slíta stjórnmálasambandinu 1. júní 2010 14:39 Dagný Ósk Aradóttir Pind er formaður Ungra jafnaðarmanna.
Ungliðahreyfingar ríkisstjórnarflokkanna hvetja ríkisstjórnina til þess að taka af skarið og slíta stjórnmálasamstarfi við Ísrael tafarlaust vegna árásar Ísraela á skipalest með hjálpargögn á leið til Gaza. Stjórn Ung vinstri grænna samþykkti ályktun þess efnis í gær og þá sendu Ungir jafnarmenn frá sér ályktun um málið í dag.Ályktun UVG „Stjórn Ungra vinstri grænna fordæmir árás Ísraelshers á skipalest hjálparsamtaka á leið með matvörur og nauðsynjar til Palestínu í nótt. Í ljósi linnulausra mannréttindabrota og kúgunar Ísraela gagnvart palestínsku þjóðinni skorar stjórn Ungra vinstri grænna á ríkisstjórn Íslands að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, tafarlaust."Ályktun UJ „Ungir jafnaðarmenn harma þá atburði sem áttu sér stað í dag á Miðjarðarhafinu þar sem ísraelski sjóherinn réðst á alþjóðlega skipalest sem var á leið til Gaza með mat, hjálpargögn og önnur nauðsyn fyrir íbúa Gazasvæðisins. Meirihluti íbúa þessa hernumda svæðis reiða sig á aðstoð alþjóðlegra hjálparsamtaka til þess að halda lífi. Um borð í skipinu, sem sigldi á alþjóðlegu hafsvæði, voru meðal annars sjálfboðaliðar, evrópskir þingmenn, Nóbelsverðlaunahafi og fleiri einstaklingar frá hinum ýmsu Evrópulöndum. Talið er að 9 manns hafi látist í það minnsta og tugir særst. Framferði Ísraela hefur víða verið fordæmt og mótmælt í dag og hafa sendiherrar Ísraels víða um heim þurft að svara fyrir árásina. Ísraelar hafa hins vegar tekið slíkum fordæmingum og mótmælum af léttúð hingað til og ólíklegt þykir að það muni breytast. Ungir jafnaðarmenn hvetja ríkisstjórn Íslands til þess að taka af skarið og slíta stjórnmálasamstarfi við Ísrael tafarlaust. Nógu lengi hafa Ísraelar komist upp með brot á alþjóðalögum og mannréttindabrotum meðan stjórnvöld heimsins horfa aðgerðarlaus á. Nú er kominn tími til að stoppa það!"
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira