Innlent

Skattalagabrotum að hluta vísað frá dómi

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Héraðsdómur hefur vísað frá að hluta ákærum vegna meintra skattalagabrota þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar.
Héraðsdómur hefur vísað frá að hluta ákærum vegna meintra skattalagabrota þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar. Mynd/Arnþór Birkisson

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá að hluta ákæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggvi Jónssyni vegna meintra skattalagabrota þar sem dómurinn taldi þær brjóta gegn Mannréttindasáttmála Evrópu. Frávísunin verður kærð til Hæstaréttar.

Upprunaleg ákæra var gefin út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur og Tryggva Jónssyni vegna meintra skattalagabrota í rekstri Fjárfestingarfélagsins Gaums og Baugs Group, en þeim er gefið að sökum að bera ábyrgð á því að félögin vantöldu skatta upp á um 300 milljónir króna.

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá þeim hluta ákærunnar er snýr að persónulegum skattskilum Jóns Ásgeirs og Tryggva. Að sögn Helga Magnúsar Gunnarssonar, saksóknara efnahagsbrota, verður þessi úrskurður kærður til Hæstaréttar. Refsiábyrgð Gaums vegna eins ákæruliðar var einnig vísað frá en ákærum er varða meinta refsiábyrgð þremenninganna vegna fyrirsvars þeirra fyrir Baug Group og Fjárfestingarfélagið Gaum, var ekki vísað frá og standa óbreyttar.

Skattyfirvöld höfðu ákveðið álag á þá Tryggva og Jón Ásgeir. Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) fjallaði um það í nýlegum dómi hvort að beiting álags á skattstofna vegna skattalagabrota girti fyrir að gefnar væru út ákærur vegna þessara sömu brota og var það niðurstaðan að það bryti gegn Mannréttindasáttmálanum um bann við því að menn yrðu sóttar til saka oftar en einu sinni fyrir sömu brot. Frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur var því í samræmi við dóm Mannréttindadómstóls Evrópu. Var það því niðurstaðan að vísa ákærum frá að því marki sem Jón Ásgeir og Tryggvi hefðu áður hlotið álag á skattstofna sína. 

Frávísun hluta ákæruliða frá því í morgun hefur ekki áhrif á önnur mál sem rekin eru gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, en nýlega kyrrsettu skattyfirvöld eignir hans vegna mála sem eru til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra. Ekki náðist í Gest Jónsson, lögmann Jóns Ásgeirs í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×