Um 1.100 uppvís að því að svíkja út bætur 31. október 2009 07:30 Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra kallar eftir samhæfðum aðgerðum gegn atvinnuleysi. Hann sagði á ársfundi Vinnumálastofnunar í gær að ráðuneyti hans myndi á næstu vikum og mánuðum kynna hugmyndir sem miði að því að virkja atvinnulaust ungt fólk til þátttöku í samfélaginu. Fréttablaðið/GVA
Um ellefu hundruð manns hafa orðið uppvísir að því að svíkja út atvinnuleysisbætur síðustu tvo mánuði. Vinnumálastofnun hóf nýverið sérstakt eftirlit með slíkum svikum. Þetta kom fram í máli Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar, á ársfundi stofnunarinnar í gær. „Nú nýverið var sett á laggirnar sérstök eftirlitseining sem fer með úrvinnslu mála vegna svika á atvinnuleysisbótum, vinnustaðaeftirlit, móttöku og úrvinnslu nafnlausra ábendinga, rafrænar samkeyrslur við ýmsar opinberar skrár og fleira,“ sagði Gissur og bætti við að eftirlitsdeildin ætti jafnframt gott samstarf við Ríkisskattstjóra og fleiri opinberar stofnanir. „Í eftirlitsdeildinni eru nú fjórir starfsmenn og starf þeirra er þegar farið að skila miklum árangri. Það hefur til dæmis þegar leitt til þess að um ellefu hundruð einstaklingar hafa verið teknir af skrá eða settir á 40 daga bið undanfarna tvo mánuði.“ +Ávallt sækir einhver hluti til Vinnumálastofnunar á fölskum forsendum, að sögn Gissurar. Sumir uppfylli ekki skilyrði laga, leyni eða gefi rangar upplýsingar. „Það er svikið fé og mikils virði að ná til þessa fólks til að skapa trúverðugleika og samstöðu þeirra sem undir þessu framfærslu- og tryggingakerfi standa, sem er fólkið í landinu.“ Í máli Gissurar kom fram að holskefla atvinnuleysis sem dundi yfir á árinu 2008, úr um einu prósenti fyrstu fimm mánuði ársins í 4,8 prósent í árslok, hafi kallað á töluvert aukið umfang starfsemi Vinnumálastofnunar, en starfsmönnum var fjölgað um 40 prósent á árinu. Starfsmenn hafi unnið sannkallað þrekvirki, en þeim var fjölgað úr 96 í 134. Þá var stofnuð sérstök skrifstofa í Borgartúni í Reykjavík til að þjónusta erlenda ríkisborgara. „Þar er nú til húsa EURES [innsk. evrópsk vinnumiðlun] skrifstofa okkar, en starfsemi hennar á árinu markaðist mjög af ástandinu í efnahagslífi þjóðarinnar. Í opnunarávarpi Árna Páls Árnasonar, ráðherra félags- og tryggingamála, kom fram að nú þyrfti að breyta baráttunni við bráðavanda stóraukins atvinnuleysis í uppbyggingar- og sóknarstarf. „Látum ekki hundruð eða þúsundir ungs fólks alast upp sem bótaþega. Það væru ömurlegar afleiðingar þessarar kreppu,“ sagði hann og kvað ráðuneytið á næstu vikum og mánuðum kynna hugmyndir til úrbóta. Þar á meðal væri að breyta bótagreiðslum í tímabundna náms- og virknistyrki. „Við ætlum einnig að auka þá kosti sem ungu fólki býðst til náms, sjálfboðastarfa og margra annarra verkefna.“ - óká
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira