Innlent

Búast má við jarðskjálftahrinu áfram í dag

Mynd af vef Veðurstofu Íslands.
Mynd af vef Veðurstofu Íslands.
Jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við að jarðskjálftahrinan sem gekk yfir vestur af Reykjanesi í nótt haldi áfram í dag. Ekki er þó neinn gosóróa að sjá á jarðskjálftamælum.

Mikil jarðskjálftahrina gekk yfir vestur af Reykjanesi í nótt. Flestir jarðskjálftanna urðu við Geirfugladrang og Eldeyjarboða vestur af Reykjanesi.

Stærstu skjálftarnir voru um 4 stig á Richter. Skjálftahrinan hófst á áttunda tímanum í gærkvöldi en snörpustu skjálftarnir urðu laust eftir miðnættið í nótt og mældist sá stærsti 4,1 stig á Richter. Alls mældust 18 skjálftar 3 stig eða meira á Richter á svæðinu í nótt og morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×