Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Unglingar stálu frá einhverfum öryrkja Sex ungir menn hafa verið ákærðir fyrir margvísleg brot, ýmist saman eða hver í sínu lagi. Meðal annars notfærði einn þeirra sér andlegan misþroska einstakling, sem er einhverfur og 75 prósent öryrki, með því að nota debetkort og pin-númer hans og taka út fjörutíu þúsund krónur. Peningunum deildi hann með sumum félaga sinna. 2.10.2009 05:15
Með hangikjöt innan klæða Maður á fimmtugsaldri var handtekinn með hangikjötslæri innan klæða um miðjan dag í fyrradag. Lærinu hafði hann stolið úr matvöruverslun í Reykjavík. Hann hafði stungið því inn á sig og gekk síðan út úr versluninni án þess að greiða fyrir það. Þá var för hans stöðvuð. 2.10.2009 05:00
Fóstureyðingum fjölgar Samtals voru framkvæmdar 955 fóstureyðingar hjá konum með lögheimili á Íslandi á síðasta ári. Eru þær nokkru fleiri heldur en undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýjum Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis. 2.10.2009 05:00
Bætur til foreldra skertar 29,6 milljarðar verða greiddir frá ríkinu til Atvinnuleysistryggingasjóðs á næsta ári, samkvæmt áætlun fjárlagafrumvarpsins. Það er aukning um 12 milljarða frá þessu ári eða 67,6 prósent. Framlögin miðast við 10,6 prósenta atvinnuleysi á næsta ári, sem þýðir að 17.400 manns verði að jafnaði án atvinnu. Framlög til Vinnumálastofnunar verða einnig aukin um 24,9 prósent, úr um 230 í um 285 milljónir. 2.10.2009 05:00
Upp um tvo milljarða Ríkissjóður mun auka útgjöld til landbúnaðar- og sjávarútvegsmála um 7 prósent á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í gær. Greiðslur samkvæmt samningum við bændur og samtök þeirra og til ýmissa sjóða og verkefna sem ríkið styrkir í landbúnaði hækka úr 11,7 milljörðum í ár í 13,7 milljarða á næsta ári. 2.10.2009 05:00
Hanna tískufatnað, leikföng og duftker Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði í gær alls tíu milljónum króna til átta íslenskra hönnuða sem meðal annars hönnuðu ilmvatn, föt og barnaleikföng. 2.10.2009 04:45
Niðurgreiðslu dýrari lyfja hætt Lyfjanotkun sjúklinga sem þjást af of háum blóðþrýstingi verður beint í ódýrari lyf, samkvæmt breytingu heilbrigðisráðuneytis á reglugerð sem tekur gildi nú um mánaðamótin. 2.10.2009 04:30
Framlög til vegamála verða skorin niður um 40 prósent Framlög til vegamála verða skorin niður um 13 milljarða eða 40,1 prósent samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Til þeirra á að verja 19,3 milljörðum króna á næsta ári í stað 32,3 milljarða í ár. 2.10.2009 04:30
Vill fagfólk í utanþingsstjórn Borgarahreyfingin leggur til að mynduð verði utanþingsstjórn skipuð valinkunnu fagfólki og fræðimönnum. Í tilkynningunni frá hreyfingunni segir að slík stjórn gæti orðið sameiningartákn sem þjóðin þurfi á að halda. Enn fremur segir í tilkynningunni að ekki verði unað við það að AGS segi kjörnum fulltrúum fyrir verkum og setji hagsmuni Hollendinga og Breta í fyrirrúm. Borgarahreyfingin styður þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar að segja af sér ráðherraembætti og „taka ekki þátt í ríkisstjórn blekkinga og þvingana“. - bs 2.10.2009 04:30
Telja úrskurðinn ólögmætan „Menn geta farið að verða atvinnulausir í boði umhverfisráðherra,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA). Hann segir allar tafir á stóriðjuframkvæmdum lengja og dýpka kreppuna. 2.10.2009 04:30
Býður langlokur fyrir ógreidd fasteignagjöld Eigandi skyndibitastaðarins Super Sub segir gatnagerð hafa skaðað reksturinn og bauð Kópavogsbæ matarmiða upp í skuld vegna fasteignagjalda. Bæjarráð telur að ekki myndi sjá fyrir endann á slíkum vöruskiptum og hafnaði tilboðinu. 2.10.2009 04:30
Fjárlagafrumvarpið ógnar stöðugleikasáttmálanum Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, óttast að fjárlagafrumvarpið ógni stöðugleikasáttmála stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Frumvarpsið sé til þess fallið að fæla fjárfesta frá því að festa fé sitt hér á landi. 1.10.2009 22:21
Fjórir ákærðir fyrir fólskulega líkamsárás á Hverfisgötu Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru gegn fjórum Lettum fyrir fólskulega líkamsárás í fyrrahaust. Mennirnir ruddust grímuklæddir inn í íbúðarhús við Hverfisgötu að kvöldi laugardags 25. október og réðust þar á fjóra samlanda sína. Það gerðu þeir til til að jafna eldri væringar. Tveir þeirra sem ráðist var á voru fluttir á slysadeild með áverka. 1.10.2009 21:09
Brýnt að þjónusta við börn skerðist ekki Barnaheill beina því til ríkisstjórnarinnar og sveitarfélaga að þau standi vörð um réttindi barna og skerði alls ekki þjónustu við þau og fjölskyldur þeirra á sviði menntamála, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu. 1.10.2009 21:46
Anna Pála á þing Anna Pála Sverrisdóttir tók sæti í fyrsta sinn á Alþingi í dag en hún kemur inn á þing sem varamaður fyrir Skúla Helgason, þingmann Samfylkingarinnar, sem fer í barneignarfrí. Anna Pála er meistaranemi í lögfræði og fráfarandi formaður Ungra jafnaðarmanna, Hún skipaði 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu kosningum. 1.10.2009 20:27
Fullyrðir að bankarnir takmarki úttektir vegna greiðsluverkfallsins „Við höfum fengið staðfestingu á því að þegar sé farið að takamarka úttektir af innistæðureikningum sem viðbrögð við greiðsluverkfallinu að hálfu bankana," segir Friðrik Friðriksson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna. 1.10.2009 19:59
Þrír á slysadeild eftir umferðarslys við Smáralind Umferðaróhapp varð við á gatnamótum Dalvegs og Fífuhvammsvegar við verslunarmiðstöðina Smáralind á áttunda tímanum í kvöld. Tveir sjúkrabílar fóru á vettvang ásamt tækjabíl. Ekki fengust nánari upplýsingar um málið hjá lögreglu og slökkviliði að svo stöddu. 1.10.2009 19:47
Grunur beinist ekki að starfsmönnum KPMG og Price Waterhouse Coopers Sérstakur saksóknari gerði í dag húsleit hjá endurskoðunarfyrirtækjunum KPMG og Price Waterhouse Coopers og lögðu hald á gögn sem tengjast starfsemi og reikningsskilum Kaupþings, Glitnis og Landsbankans. Enn sem komið er beinist ekki grunur að starfsmönnum endurskoðunarfyrirtækjanna. 1.10.2009 19:45
Boðaðar skattahækkanir ganga ekki upp Skattahækkanir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu ganga ekki upp að mati þingmanns stjórnarandstöðunnar. 1.10.2009 19:03
Barðstrendingar að springa Íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum eru að springa af reiði eftir að framlög til vegabóta voru þurrkuð út og ferjusiglingar Baldurs yfir Breiðafjörð skornar niður. Ráðamenn þar spyrja hversvegna lífeyrissjóðir eigi bara að lána í vegagerð á suðvesturhorninu. 1.10.2009 18:55
Sigurður og Hreiðar kunna að þurfa að greiða skaðabætur úr eigin vasa Almennir lántakendur hjá Kaupþingi ætla að stefna Sigurði Einarssyni og Hreiðari Má Sigurðarsyni, fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, fyrir dóm til þess að fá viðurkennda persónulega skaðabótaskyldu þeirra. Áfrýjunarnefnd neytendamála úrskurðaði í dag að skilmálar myntkörfulána Kaupþings væru ólöglegir. 1.10.2009 18:51
Kreppan dýpkar umtalsvert frestist Helguvík Sérfræðingar fjármálaráðuneytis telja að ef Helguvíkurframkvæmdir frestast verði samdráttur í efnahagslífinu þrjú prósent á næsta ári en ekki 1,9 prósent. Samtök atvinnulífsins hóta því að leita til dómstóla afturkalli umhverfisráðherra ekki úrskurð sinn um Suðvesturlínu, sem þau telja ólögmætan og setja stöðugleikasáttmálann í uppnám. 1.10.2009 18:36
Niðurskurður og skattahækkanir einkunnarorð ársins 2010 Hærri skattar á einstaklinga eiga að skila ríkissjóði tæpum 37 milljörðum króna á næsta ári. Áfengis- og bensingjöld verða hækkuð en framlög til vegaframkvæmda verða lækkuð um tæpa 9 milljarða. Gert er ráð fyrir því að kaupmáttur launa dragist saman um rúmlega 11% á næsta ári. 1.10.2009 18:30
Handteknir með heimatilbúnar sprengjur Lögregla handtók tvo karlmenn síðdegis á Austurvelli þegar Alþingi var sett. Mennirnir voru með flugelda og það sem lögregla telur vera heimatilbúnar sprengjur. Mönnunum, sem eru fæddir 1974 og 1985, hefur verið sleppt. 1.10.2009 17:57
Skipan þriggja saksóknara frestað vegna uppnáms í ríkisstjórn Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, hefur frestað því um nokkra daga að skipa þrjá nýja saksóknara til að rannsaka bankahrunið. Til stóð að þeir yrðu skipaðir eigi síðar en í dag. 1.10.2009 17:30
Gæsluvarðhald framlengt vegna amfetamínsmygls Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 28. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. 1.10.2009 16:54
Í fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fatlaðri konu Hæstiréttur staðfesti í dag 15 mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni sem ákærður var fyrir nauðgun með því að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við stúlku gegn vilja hennar. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í 15 mánaða fangelsi en hann var einnig dæmdur til að greiða fórnarlambinu 600.000 krónur auk vaxta. 1.10.2009 16:43
Krafan um aukið lýðræði er hávær og réttmæt Jóhanna Sigurðardóttir sagði á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í dag að hún hefði farið yfir sjónarmið sambandsins varðandi frumvarp til laga um persónukjör. Hún sagði margar af ábendingum sambandsins eiga rétt á sér og þær muni ríkisstjórnin skoða. Hún sagði kröfu almennings um aukið lýðræði og meiri áhrif kjósenda vera háværa og réttmæta. 1.10.2009 15:59
Fyrsti dómur vegna bankahrunsins fellur á miðvikudaginn Fyrsti dómur í málum gegn bönkunum eftir bankahrunið mun falla í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. október næstkomandi. Um er að ræða mál gegn gamla Landsbankanum og Landsvaka, sem var vörsluaðili peningamarkassjóða Landsbankans. 1.10.2009 15:55
Vill fund með forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar vegna Icesave Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur óskað eftir fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni vegna Icesave-málsins. Þar vill Bjarni fá kynningu á því hver áform ríkisstjórnarinnar eru varðandi lyktir Icesave-deilunnar gagnvart stjórnvöldum í Bretlandi og Hollandi. 1.10.2009 15:21
Lögreglan handtók ölvaðan mann Karlmaður var handtekinn á Háaleitisbraut rétt fyrir hádegið í dag. Hann er grunaður um að hafa ekið stolinni bifreið ölvaður og ekið yfir gangstétt með þeim afleiðingum að dekk á bifreiðinni sprakk. Að sögn lögreglunnar gistir maðurinn fangageymslur lögreglunnar. Hann er í annarlegu ástandi og þvi ekki hægt að yfirheyra hann að svo komnu máli. 1.10.2009 15:16
Yfirlæknirinn í Fjarðabyggð ekki ákærður - forstjóri HSA undrandi Mál Hannesar Sigmarssonar yfirlæknis við Heilsugæslu Fjarðabyggðar hefur verið látið niður falla. Hannesi var vikið frá störfum tímabundið þann 12. febrúar og í gang fór rannsókn á vinnulagi Hannesar og meintum fjárdrætti. Það var Ríkisendurskoðun sem rak málið en Hannes fékk bréf þess efnis í morgun að málið hefði verið látið niður falla. Hannes segist þakklátur fyrir þann stuðning sem hann hefur fengið og býst við að snúa aftur til starfa sem fyrst. Niðurstaðan kemur forstjóra HSA á óvart. 1.10.2009 14:59
Góð skilyrði fyrir sókn Íslendinga Góð skilyrði eru til þess að næsta haust verði sóknarskeiðið Íslendinga út úr kreppu hafið, sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands við þingsetningu í dag. „Slíkt sóknarskeið síðari hluti næsta hausts er raunhæfur möguleiki,“ sagði Ólafur. Hann benti á að það væri verkefni Alþingis og þjóðarinnar allrar að gera þennan möguleika að veruleika. 1.10.2009 14:34
Búið að girða Alþingishúsið af með reipi Tæplega hundrað mótmælendur eru nú staddir á Austurvelli en Alþingi verður sett eftir skamma stund. Þingmenn eru nú við messu í Dómkirkjunni að þingmönnum Hreyfingarinnar undanskildum. Búið er að girða þinghúsið og Dómkirkjuna af með tvöföldu reipi og gulum borða, svo nær ómögulegt er fyrir mótmælendur að komast að þingmönnum. 1.10.2009 13:35
Þingmenn Hreyfingarinnar skrifuðu Jóhönnu og Steingrími bréf Þingmenn Hreyfingarinnar, sem áður voru þingmenn Borgarahreyfingarinnar, hafa ritað forystumönnum ríkisstjórnarinnar bréf þar sem farið er fram á að ekki verði skrifað undir nokkra samninga né skjöl tengd Icesave-deilunni fyrir Íslands hönd fyrr en málið hafi hlotið þinglega meðferð og viðkomandi samningar kynntir fyrir þeim þingnefndum sem um málið hafa fjallað. 1.10.2009 13:25
Rannsóknin snýr að viðskiptavinum KPMG Vegna húsleitar embættis Sérstaks saksóknara hjá KPMG í dag, vill félagið koma því á framfæri að rannsóknin snúi að ákveðnum viðskiptavinum fyrirtækisins en ekki félaginu sjálfu. 1.10.2009 13:22
Húsleitir hjá PWC og KPMG Starfsmenn frá Embætti sérstaks saksóknara fóru inn í húsakynni PricewaterhouseCoopers hf í Skógarhlíð 12, klukkan tíu í morgun til að leggja 1.10.2009 12:55
Þrettán ára nemandi réðst á smíðakennara Þrettán ára nemandi í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi réðst á smíða-og stuðningskennara sinn sem er á sextugsaldri í fyrradag. Kennarinn leitaði til læknis vegna brjóst-og kviðverkja eftir árásina. 1.10.2009 12:45
Álfheiður tekur við á ríkisráðsfundi Ríkissráð var kallað til fundar að Bessastöðum nú fyrir hádegið. Ögmundur Jónasson fráfarandi heilbrigðisráðherra sat fyrri fund dagsins en síðan vék hann sæti fyrir Álfheiði Ingadóttur. Þá hófst annar fundur þar sem Álfheiður tók formlega sæti í ríkisstjórninni. 1.10.2009 12:00
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds í smyglmáli Lögreglan hefur krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fjórum karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa staðið að innfluttningi á rúmlega fjórum kílóum af amfetamíni. Karl Steinar Valsson yfirmaður fíkniefnadeildar segir að úrskurðar dómara sé að vænta síðar í dag. Fimmti maðurinn hefur þegar verið úrskurðaður í áframhaldandi gæslu til 28. október. 1.10.2009 11:54
Bílar stórskemmdir í Sólheimum Að minnsta kosti tíu bílar voru rispaðir á bílaplani við Sólheima aðfaranótt gærdagsins. Þýski hakakrossinn og nafn Hitlers voru grafin í lakk bílanna. 1.10.2009 11:27
Álfheiður: Það fer enginn í fötin hans Ögmundar „Þetta eru ekki auðveldar aðstæður að taka við ráðuneyti sem þessu. Bæði vegna efnahagsástandsins og niðurskurðarins sem er geigvænlegur, en svo líka vegna þess að Ögmundur er að láta af embætti með þessum hætti, skyndilega og það fer auðvitað enginn í fötin hans Ögmundar. Það vita allir sem til þekkja," segir Álfheiður Ingadóttir, sem verður skipuð heilbrigðisráðherra í dag. Hún segir verkefnið erfitt en það verði að sinna því eins og öðru. 1.10.2009 10:33
Guðfríður Lilja sagði nei takk Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG hafnaði boði Steingríms J. Sigfússonar um að taka við ráðherraembætti af Ögmundi Jónassyni sem sagði af sér í gær. Álfheiður Ingadóttir mun taka við embættinu. Eftir þingflokksfund VG sem stóð fram á nótt sagði Steingrímur J. Sigfússon að margir fleiri hafi komið til greina ekki síst Guðfríður Lilja, hefði hún viljað taka embættið að sér. 1.10.2009 10:15
Fyrirvarar á stuðningi við Steingrím Atli Gíslason, þingmaður VG, segir að þrátt fyrir að Steingrímur J. Sigfússon hafi fengið fullt umboð þingflokksins til þess að halda samningaviðræðum varðandi Icesave áfram, setji hann og fleiri þingmenn flokksins áfram fyrirvara við málið. Atli segir að afstaða sín og nokkurra annarra þingmanna VG ráðist að endingu eftir því hver niðurstaða málsins verði. Þetta kom fram í þættinum Bylgjan í bítið í morgun. 1.10.2009 09:46
Um 5 starfsdagar á skólaári grunnskólanna Vinnudagar kennara án barna, svokallaðir starfsdagar, voru að meðaltali 12,9 á síðastliðnu skólaári, samkvæmt tölum frá Hagstofunni. 1.10.2009 09:28