Framlenging útboðs vegna símaþjónustu ógilt 1. september 2009 04:30 Landspítalinn í Fossvogi. Vodafone bauðst til að annast símaþjónustu fyrir Landspítalann í þrjú ár fyrir 185 milljónir króna en Síminn bauð þjónustuna fyrir 227 milljónir.Fréttablaðið/Stefán „
Það eru gleðifréttir fyrir okkur að þetta ferli sé að virka,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um ógildingu kærunefndar útboðsmála á framlengingu útboðs Ríkiskaupa á fjarskiptaþjónustu fyrir Landspítalann. Í Fréttablaðinu í júní sagðist Sævar Freyr telja að Ríkiskaup væru að sveigja útboðsreglur í því skyni að geta samið við Vodafone, fyrirtæki sem komið væri í ríkiseigu, um símaþjónustu við Landspítalann til þriggja ára. Vodafone hafði boðið 42 milljónum krónum lægra en Síminn í útboði en uppfyllti ekki skilmála um eiginfjárstöðu áður en útboðið rann út 25. maí. Teymi, móðurfélag Vodafone, stefndi á þeim tíma hins vegar í hendur Landsbankans, Straums og Íslandsbanka með nauðasamningum. Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, taldi ljóst að þá stefndi í að Vodafone myndi fljótlega uppfylla skilyrði um eigið fé og ákvað að beita undanþágureglu til að fresta því að ganga frá samningum þannig að Vodafone næði að koma stöðu sinni í rétt horf áður. Þetta kærði Síminn. Kærunefnd útboðsmála bendir á að ekki hafi allir þátttakendur í Landspítalaútboðinu samþykkt að framlengja útboðið. Hún felldi úr gildi ákvörðun Ríkiskaupa um framlenginguna og úrskurðaði að stofnunin ætti að greiða Símanum 400 þúsund krónur í málskostnað. Sævar kveðst telja að úrskurðurinn feli í sér að semja eigi við Símann um þjónustuna við Landspítalann. Ganga hafi átt til samninga miðað við stöðuna eins og hún var þegar tilboðsfresturinn rann út og að á þeim tíma hafi Teymi ekki uppfyllt skilyrðin. „ Við erum þess fullviss að endanleg kjör sem Landspítalinn fær verða betri en stóð til boða hjá samkeppnisaðila okkar,“ segir forstjóri Símans. „Þessi úrskurður er endanlegur, en hins vegar er ekki ljóst hvað hann þýðir. Tilboð okkar var 40 milljónum krónum lægra en Símans og það tilboð stendur enn að okkar hálfu. Boltinn er núna hjá Ríkiskaupum, sem væntanlega þarf að túlka niðurstöðu kærunefndarinnar og ákveða næstu skref,“ segir Hrannar Pétursson forstöðumaður almannastengsla Vodafone. -gar
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Sjá meira