Innlent

Orkan lækkar eldsneytisverð

Bensínorkan lækkaði verð á bensíni og dísilolíu síðdegis í gær. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu og hækkandi gengis krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar, en olíuviðskipti fara fram í dollurum. Bensínlítrinn hjá Orkunni kostar nú rúmar 188 krónur og dísillítrinn rúmlega 181 krónu. Atlantsolía fylgdi í kjölfarið og lækkaði bensínverð um tvær krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×