Innlent

Forstjóri skammar atvinnurekendur fyrir gagnrýnisleysi

Hermann 
Guðmundsson
Hermann Guðmundsson

Hagsmunasamtök atvinnurekenda ættu að gagnrýna atvinnulífið sjálft þegar svo ber undir, til dæmis þegar fyrirtæki verða uppvís að því að fara ekki að lögum.

Stjórnvöld hafa í nógu að snúast og atvinnurekendur ættu að leika lykilhlutverk í endurreisn atvinnulífsins.

Samfélagsleg sjónarmið eiga að hafa meira vægi nú en áður í rekstri fyrirtækja og það er „ekki heill hljómur“ í því þegar samtök atvinnurekenda gagnrýna stjórnvöld en þegja um það sem miður fer í eigin röðum.

Þetta segir forstjóri N1, Hermann Guðmundsson, í pistli á Pressunni.is í gær. Hann spyr:

„Hvernig má það til dæmis vera að engar stofnanir atvinnurekenda risu upp eftir að Hæstaréttardómur var fallinn um olíusamráðsmálið og fordæmdu slík vinnubrögð?“

Hermann spyr einnig um skort á gagnrýni á ofurlaunagreiðslur, og hví það sé látið viðgangast að „þúsundir fyrirtækja“ skili ekki ársreikningum. Slík hegðun ætti að þýða að yfirvöld leystu fyrirtækin upp.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist eiga bágt með að svara fyrir gagnrýnisleysi í olíusamráðsmálinu, enda hafi hann ekki starfað hjá SA á þeim tíma.

„En í grundvallaratriðum er SA samtök fyrirtækja sem hafa það hlutverk að vinna fyrir hagsmuni fyrirtækjanna og tryggja að leikreglur atvinnulífsins séu til þess fallnar að auka samkeppnishæfni þess sem mest,“ segir Vilhjálmur.

Spurður hvort það flokkist ekki undir hagsmuni fyrirtækja að farið sé að lögum, segir Vilhjálmur:

„Við vinnum mjög ötullega í því þessa dagana, til dæmis við að koma í veg fyrir að hér þrífist neðanjarðarstarfsemi. Auðvitað verða allir að fara að sömu leikreglum, það er undirstöðuatriði heilbrigðs atvinnulífs. Og það á við um samkeppnislöggjöfina eins og öll önnur lög,“ segir Vilhjálmur. Hins vegar sé það ekki hlutverk SA að skamma félaga sína.

„Þeir verða að vera ábyrgir fyrir sínum gerðum, hvort sem það eru launasamningar við stjórnendur eða að fara eftir lögum og reglum,“ segir hann.

Um skil á ársreikningum tekur Vilhjálmur undir með Hermanni að þeim eigi að skila á réttum tíma: „Ég reikna með að í langflestum tilfellum þar sem það er ekki gert séu fyrirtækin ekki virk. En fyrirtæki í fullum rekstri eiga að skila reikningum, það liggur algjörlega fyrir.“

Spurður hvort hann telji að harðar eigi að taka á slíkum vanskilum segist Vilhjálmur hafa staðið í þeirri meiningu að hart væri gengið eftir því nú þegar. Hann bendir á að „ársreikningaskrá hangir hjá Ríkisskattstjóra og það eru því hæg heimatökin að bæta eftirlitið ef þess þarf“.

klemens@frettabladid.is

Vilhjálmur Egilsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×