Innlent

Barnaverndarmálum fjölgar um fimmtung

Tilkynningum til Barnaverndar Reykjavíkur fjölgaði um 25 prósent fyrstu sex mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Fjölda barna sem var tilkynnt um fjölgaði um sautján prósent.

Barnavernd Reykjavíkur bárust 2.262 tilkynningar á fyrstu sex mánuðum ársins, en á sama tíma í fyrra höfðu 1.805 tilkynningar borist. Fjöldi barna sem tilkynnt var um var 1.301, en var 1.114 í fyrra.

„Það má leiða líkur að því að þetta tengist því efnahagshruni sem varð hér," segir Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Hún segir þó að einnig hafi orðið vitundarvakning í barnaverndarmálum og það sé líklega hluti af skýringunni. Frá árinu 2000 hafi verið stöðug fjölgun tilkynninga.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, tekur í sama streng. „Annars vegar hafa aðstæður og kjör barna versnað og það kemur fram í þessum fjölda. Það má líka vel vera að þetta endur­spegli aukna samfélagslega vitund meðal almennings og fagfólks. Svo getur verið að báðar skýringarnar eigi við," segir Bragi.

Að sögn Braga er aukningin langmest í Reykjavík, en þó er aukningin talsverð víðast hvar. Hann segir eðlilegt að fjölgunin komi fyrst fram í höfuðborginni, félagsleg samsetning borgarinnar sé slík.

„Tilkynningum frá skólum fjölgaði á fyrstu mánuðum ársins og það bendir til þess að það sé ákveðin vanlíðan merkjanleg hjá krökkunum," segir Halldóra. Verulega dró úr tilkynningum til Barnaverndar eftir að skólastarfi lauk í vor. „Það er meira félagslegt taumhald þegar skólarnir starfa," segir Bragi. Hann segist telja líklegt að tilkynningum fjölgi aftur þegar skólarnir fari á fullt.

„Þessi þróun er bæði neikvæð, því hún getur falið í sér að það séu fleiri börn í vanda, en hún er líka jákvæð því þetta gefur vísbendingu um styrk samfélagsins. Að íslenskt samfélag sé meðvitað um þarfir barna og það að þau eru núna í mjög viðkvæmri stöðu, og menn láta sig varða um það. Það er ánægjulegt og jákvætt."

thorunn@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×