Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samfylkingin skuldar okkur ekki neitt Árni Johnsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði á opnum fundi í Suðurkjördæmi í gær að Samfylkingin skuldaði Stöð 2 hundrað milljónir króna fyrir sjónvarpsauglýsingar. Þetta sagði Árni á um sjötíu manna fundi og Róbert Marshall sem á sæti á lista Samfylkingarinar gerir að umtalsefni á heimasíðu sinni. Ari Edwald forstjóri 365 sem meðal annars rekur Stöð 2 segir þetta ekki rétt, þarna sé um hrein og klár ósannindi að ræða. 21.4.2009 10:13
Smyglskútumenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald á Egilsstöðum Þremenningarnir sem handteknir voru um borð í skútunni Sirtaki um 65 sjómílum fyrir utan Færeyjar í fyrrakvöld eru nú á leið í Héraðsdóm Austurlands á Egilsstöðum. Þeir komu til hafnar á Eskifirði í morgun en voru í kjölfarið fluttir til Egilsstaða. Þar hafa þeir verið í yfirheyrslum og verða síðan færðir fyrir dómara sem tekur ákvörðun um gæsluvarðhald. Samkvæmt upplýsingum frá Héraðsdómi Austurlands er von á mönnunum upp úr klukkan 10:00. 21.4.2009 09:48
Yfir 5000 króna verðmunur á dekkjaskiptingu Tæplega 5600 króna verðmunur getur verið á þjónustu hjólbarðaverkstæða við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á dekkjum. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 28 þjónustuaðilum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri föstudaginn 17. apríl. 21.4.2009 09:46
Jafna kynjahlutföll í lífeyrissjóðunum Samtök atvinnulífsins skipa í 24 sæti stjórnarmanna í 9 lífeyrissjóðum. Samtökin hafa markað sér þá stefnu að auka fjölbreytni stjórnarmanna og rétta hlut kynjanna innan stjórnanna. Konur skipa nú tæpan helming eða 46% af þeim sætum sem fulltrúa samtakanna skipa í lífeyrissjóðunum. Þetta kemur meðal annars fram í ársskýrslu samtakanna sem kemur út á aðalfundi þeirra á morgun. 21.4.2009 09:40
Úttekt norskra sérfræðinga um háskólasjúkrahús kynnt Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala, hefur boðað til kynningarfundar í hádeginu í dag um úttekt norskra ráðgjafar- og hönnunarfyrirtækja á fyrirliggjandi áformum um nýtt háskólasjúkrahús. 21.4.2009 09:21
Engin verkefni á könnu ríkisstjórnarinnar Ríkisstjórnarfundur er iðulega haldinn á þriðjudagsmorgnum í Stjórnarráði Íslands. Hinsvegar er enginn fundur á dagskrá í dag. Skýringin sem gefin er fyrir því er að ekkert liggi fyrir fundinum og ráðherrar ríkisstjórnarinnar séu hvort eð er flestir á fullu í kosningabaráttu. 21.4.2009 09:15
Tillaga um innri endurskoðun borgarinnar Borgarfulltrúar Vinstri grænna og Ólafur F. Magnússon munu í dag á borgarstjórnarfundi leggja fram sameiginlega tillögu sem felur innri endurskoðun borgarinnar að yfirfara og birta upplýsingar um fjárstyrki vegna þátttöku þeirra borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa, sem kjörnir voru í sveitarstjórnar-kosningunum 2006 og sem þess óska, í prófkjörum og forvölum. 21.4.2009 08:15
Sirtaki komin til hafnar á Eskifirði Smyglskútan Sirtaki lagðist að bryggju í Eskifirði rétt eftir klukkan átta í morgun. Þó nokkur viðbúnaður lögreglu er við höfnina og hefur henni verið lokað. Að sögn Sigurðar Ingólfssonar fréttaritara er varðskipið Týr lagst að bryggjunni og er skútan bundin við stjórnborða skipsins. 21.4.2009 08:12
Sendiherra ESB réðst dólgslega að Sjálfstæðisflokknum Björn Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að Percy Westerlund, sendiherra Evrópusambandsins, hafi ráðist „dólgslega á Sjálfstæðisflokkinn“ í fréttum Stöðvar 2 í gær. Hann skrifaði á heimasíðu sína í gærkvöldi um viðtalið við sendiherrann þar sem hann var inntur álits á hugmyndum sjálfstæðismanna um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn aðstoði við að taka upp evru á Íslandi. 21.4.2009 07:49
Von á Sirtaki til hafnar innan tíðar Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr komi að höfn í Eskifirði með meinta fíkniefnasmyglara úr smyglskútunni Sirtaki klukkan átta nú í morgunsárið. Stýrimenn og hásetar af varðskipinu sigla skútunni og varðskipið fylgir eftir, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. 21.4.2009 07:23
Smyglskútan væntanleg klukkan átta í fyrramálið Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr komi að höfn í Eskifirði með meinta fíkniefnasmyglara úr smyglskútunni klukkan átta í fyrramálið. Stýrimenn og hásetar af varðskipinu sigla skútunni og varðskipið fylgir eftir, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Umm fimmleytið í dag var Týr um 45 sjómílur suður af Hvalbak og voru þá áttatíu sjómílur eftir til Eskifjarðar en einhverjar tafir hafa orðið vegna veðurs. 20.4.2009 22:58
Erlendir fjölmiðlar fá ekki viðtöl fram að kosningum Forsætisráðherra mun ekki veita erlendum fjölmiðlum viðtöl fyrr en eftir kosningar. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að bæði fréttamenn frá Al 20.4.2009 20:52
Mótmæla skattahækkunum á Facebook Rösklega fjögur þúsund manns hafa mótmælt mögulegum skattahækkunum á Facebook samskiptavefnum með því að skrá nafn sitt í hóp undir yfirskriftinni „Ég mótmæli skattahækkunum". 20.4.2009 23:47
Saving Iceland styður skyrslettuaðgerðir Saving Iceland styður þær aðgerðir sem fóru fram í dag þegar að skyri var slett inn á kosningaskrifstofur hjá Sjálfstæðisflokknum, Samfylkingu og Vinstri grænum, en segjast ekki bera ábyrgð á þeim. 20.4.2009 19:56
Aðildarviðræður fyrsta mál á dagskrá hjá Samfylkingunni Aðildarviðræður við Evrópusambandið er fyrsta mál á dagskrá og brýnasta verkefnið framundan. Þetta sagði Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, í kosningaumræðum Stöðvar 2 nú í kvöld. Árni Páll sagði að Samfylkingin myndi leggja höfuðáherslu á Evrópusambandsaðild í stjórnarmyndunarviðræðum að loknum kosningum. Þá sagði Árni Páll að það stæði ekki til að afsala sér yfirráðum yfir auðlindinni. 20.4.2009 19:40
Næsta olíuleit út af Norðurlandi Næsta olíuleitarsvæði Íslendinga á eftir Drekasvæðinu verður skammt undan Norðurlandi, út af Eyjafirði og Skjálfanda, samkvæmt áformum Orkustofnunar. 20.4.2009 19:09
Höfuðpaurarnir áður verið ákærðir fyrir stórfellt smygl Tveir menn sem sýknaðir voru í stóru kókaínmáli árið 2007 eru taldir vera höfuðpaurarnir í smygli á 109 kílóum af fíkniefnum. Þeir voru sýknaðir í málinu og stendur annar þeirra í skaðabótamáli við íslenska ríkið þar sem hann krefst fimmtán milljóna í bætur fyrir að hafa setið í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. 20.4.2009 18:43
Tæplega helmingur vill Guðlaug Þór af lista Rösklega 49% vilja að Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður víki af lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst gerði. 20.4.2009 18:19
Atlantsolía styrkti Samfylkinguna um tvær milljónir Atlantsolia styrkti Samfylkinguna um tvær milljónir árið 2006. Styrkir komu til flokksins í tvennu lagi. Þetta staðfestir framkvæmdarstjóri fyrirtæksins. 20.4.2009 18:07
Alls 35 námskeið í boði hjá HÍ í sumar Háskóli Íslands mun bjóða upp á 35 námskeið á sumarönn og gera nemendum kleift að þreyta hartnær 100 próf í haust ásamt því að bjóða þeim aðstöðu til sjálfsnáms og verkefnavinnu. 20.4.2009 18:01
Skútumálið - fréttaskýring Alls hafa sex einstaklingar verið handteknir í umfangsmesta og stærsta fíkniefnsmygli Íslandssögunnar. Lögreglan er þegar búinn að leggja hald á 109 kíló af hvítu dufti, amfetamíni eða Kókaíni, maríjúna, hassi og svo MDMA eða E-töflur eins og efnið er iðullega nefnt. 20.4.2009 17:53
Telur að stjórnmálamenn eigi ekki að koma að stýrivaxtaákvörðunum „Mér líst ekkert á þessa hugmynd. Þessi hugmynd gengur þvert á þá hugmyndafræði sem menn hafa lært um peningamálastjórn í gegnum tíðina að vextir eiga að byggja á miklum rannsóknum," segir Tryggvi Þór Herbertsson um þá hugmynd að stjórnmálamenn blandi sér í ákvarðanir um stýrivexti Seðlabankans. 20.4.2009 17:51
Púlsinn tekinn á Evrópumálum að loknum kvöldfréttum Fréttastofan mun taka púlsinn á stefnu stjórnmálaflokkanna í Evrópumálum og krefja þá um rök þeirra fyrir þeirra stefnu í ítarlegu spjalli Heimis Más Péturssonar og Sólveigar Bergmann við frambjóðendur allra flokka strax að loknum kvöldfréttum á Stöð 2. 20.4.2009 17:44
Mátti ekki kalla Agnesi „gagghænu“ Ástþór Magnússon talsmaður lýðræðishreyfingarinnar segist ekki hafa mátt kalla Agnesi Bragadóttur blaðamann Morgunblaðsins „gagghænu“ í aðsendri grein sem birtist í blaðinu á morgun. Ritstjóri Morgunblaðsins bað hann um að taka orðið út sem hann féllst á. Þetta kom fram í viðtali sem Ástþór var í mbl.is hjá þeim Agnesi og Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur. Agnes sagði Ástþór vera dóna. 20.4.2009 16:28
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Suðurkjördæmi Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests stuðnings í Suðurkjördæmi þrátt fyrir að tapa miklu fylgi miðað við þingkosningarnar 2007. Samfylkingin kemur rétt á eftir Sjálfstæðisflokknum og munar hálfu prósentustigi á stuðningi almennings við flokkanna. Þetta kemur fram í nýrri könnun Capacent-Gallup fyrir Ríkisútvarpið. 20.4.2009 16:06
Konurnar komnar niður af Öræfajökli Meðlimir Björgunarfélags Hornafjarðar eru komnir niður af Öræfajökli þar sem þeir sóttu þrjár konur sem voru í vandræðum þar. Konurnar, höfðu gengið frá Jökulheimum yfir Vatnajökul, óskuðu eftir aðstoð ofan við Tjaldskarð á jöklinum 20.4.2009 16:00
Skyri slett á fleiri kosningaskrifstofur Fjórir grímuklæddir piltar slettu skyri með grænni málningu á kosningaskrifstofur Framsóknarflokksins í Kópavogi og Sjálfstæðisflokksins í Ármúla í dag. 20.4.2009 15:27
Gekk í skrokk á sambýliskonu og kýldi löggu Þrjátíu og fimm ára gamall erlendur karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í í tólf mánaða fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás á fyrrum sambýliskonu sína, umferðarlagabrot og fyrir að hafa kýlt lögregluþjón. Maðurinn reyndi einnig að skalla annan lögregluþjón þegar hann var fluttur í fangageymslur lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Af þessum tólf mánuðum eru níu skilorðsbundnir. Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. 20.4.2009 15:11
Nýjar og ógeðfelldar aðferðir í kosningabaráttunni „Þetta er allavega ný aðferð í kosningabaráttunni hér á landi. Ég man eftir allnokkrum kosningabaráttum en ég man ekki eftir að því að auglýsingar séu birtar með þessum hætti. Þetta er nýtt og afar ógeðfellt," segir Sigrún Jónsdóttir framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar. 20.4.2009 14:36
Smyglskútan leigð frá Belgíu - Myndir Smyglskútan sem þrír menn voru handteknir á í gærkvöldi heitir Sirtaki og er fjörtíu fet að lengd. Skráður eigandi skútunnar er fyrirtækið Channel sailing sem leigir skútur frá Belgíu. Skútan er leigð út samkvæmt heimasíðu fyrirtæksins. 20.4.2009 14:34
Kynna framboð sumarnámskeiða við HÍ Ákvörðun um fjölda og framkvæmd sumarnámskeiða við Háskóla Íslands verður kynnt síðar í dag. Hagsmunafélög stúdenta kröfðust að boði yrði upp á sumarannir svo nemar í fullu námi og á námslánum gætu iðkað nám sitt í stað þess að fara út á dauflegan atvinnumarkaðinn. 20.4.2009 13:59
Ræða bókhald frambjóðenda Forsætisnefnd borgarstjórnar mun á allra næstu dögum ræða tillögu Ólafs F. Magnússonar sem felur í sér að frambjóðendur í prófkjörum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar opni bókhald sitt, að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar forseta borgarstjórnar. Hann segir að nefndin komi hugsanlega næst saman á föstudaginn. 20.4.2009 13:38
Ritstjóri ákærður fyrir áfengislagabrot Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur höfðað mál á hendur Sigurjóni M. Egilssyni fyrrum ritstjóra Mannlífs vegna birtingar áfengisauglýsinga í blaðinu. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 20.4.2009 12:42
Davíð vildi knésetja Styrmi Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, vildi að Landsbankinn knésetti Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, þegar Viðeyjarstjórnin var í fjörbrotum. Þetta fullyrðir Sverrir Hermannsson, þáverandi bankastjóri Landbankans. 20.4.2009 12:00
VG stærsti stjórnmálaflokkur landsins Vinstri hreyfingin - grænt framboð mælist með mest fylgi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Háskólans á Bifröst.Samkvæmt niðurstöðum könnunar Háskólans á Bifröst á fylgi flokkanna, sem birtar voru í morgun, mælist Vinstri hreyfingin grænt framboð með rúmlega 31% fylgi - hjá þeim sem afstöðu tóku. 20.4.2009 11:57
Slettu skyri á kosningaskrifstofu Fjórir grímuklæddir piltar réðust inn á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði á tólfta tímanum í dag og slettu mjólkurafurðum yfir auglýsingaefni og húsbúnað. 20.4.2009 11:28
Fagna nýjum lögum sem banna vændiskaup Jafnréttisstofa fagnar því að Alþingi hafi samþykkt frumvarp um breytingar á hegningarlögum, sem gerir kaup á vændi refsiverð. Í tilkynningu segir að Jafnréttisstofa telji að um mikilvægt skref í jafnréttismálum sé að ræða, sem vinni gegn kynbundnu ofbeldi og mansali. 20.4.2009 10:53
109 kíló af fíkniefnum komu með skútunni Á blaðamannafundi sem haldinn var á lögreglustöðinni á Hverfisgötu fyrir stundu í tengslum við fíkniefnafund á Austurlandi í gærdag kom fram að lögreglan hafi upprætt um 109 kíló af fíkniefnum. Um var að ræða hass, maríjúana, amfetamín og einnig nokkur þúsund e-töflur. Sex hafa verið handteknir vegna málsins. Þar af voru þrír um borð í skútu sem sigldi með efnin hingað til lands, en þeir eru á leið til landsins. Þar voru tveir íslendingar og einn hollendingur. Einn mannanna er á þrítugsaldri og hinir tveir á fimmtugsaldri. 20.4.2009 10:33
Andrés nýr formaður almannatengla Andrés Jónsson, stofnandi Góðra samskipta, var kjörinn formaður Almannatengslafélags Íslands á aðalfundi félagsins á föstudaginn. Hjördís Árnadóttir fyrrverandi íþróttafréttamaður og núverandi upplýsingafulltrúi Actavis var kjörin varaformaður. 20.4.2009 10:17
Björgunarsveit sækir konur á Öræfajökli Meðlimir Björgunarfélags Hornafjarðar eru nú á leið á Öræfajökul að sækja þrjár konur sem eru í vandræðum þar. Konurnar, sem hafa gengið frá Jökulheimum yfir Vatnajökul, eru nú staddar ofan við Tjaldskarð á Öræfajökli, að fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 20.4.2009 09:40
Tveir Íslendingar og einn Hollendingur um borð í skútunni Heimildir fréttastofu herma að tveir þeirra sem teknir voru um borð í skútunni í gærkvöldi sem talið er að hafi smyglað rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum til landsins, séu Íslendingar. Þriðji maðurinn sem var um borð í skútunni mun vera Hollendingur. 20.4.2009 08:52
Segir ESB aðild ekki nást án samþykkis Sjálfstæðisflokksins „Þeir, sem standa að söfnun undirskrifta undir kjörorðinu sammala.is, átta sig á því, að markmið þeirra um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) næst ekki, nema þeim takist að vinna málstað sínum fylgis innan Sjálfstæðisflokksins.“ 20.4.2009 08:48
Skora á Útlendingastofnun að endurskoða stefnu Ung vinstri græn skora á Útlendingastofnun að endurskoða stefnu sína í málefnum flóttamanna og hælisleitenda, sem þau segja að hingað til virðist einungis hafa falist í því að vísa flóttamönnum úr landi. 20.4.2009 08:26
TÝR á leið til hafnar með mennina Mennirnir þrír sem taknir voru um borð í skútunni sem notuð var í stærsta fíkniefnasmygli sögunnar í gær eru enn um borð í varðskipinu TÝ. Friðrik Smári Björgvinsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að skipið fari hægt yfir þar sem skútan er með í togi. Hann segir óljóst hvenær von sé á skipinu til hafnar en sennilega verði það ekki fyrr en seint í kvöld. 20.4.2009 08:20
500 lampar, 32 ræktanir og 813 plöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á um 500 gróðurhúsalampa það sem af er árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en lamparnir hafa fundist þegar kannabisræktanir hafa verið stöðvaðar. 20.4.2009 06:39