Fleiri fréttir

Smyglskúta enn ófundin

Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjórans reyna enn að hafa uppi á skútunni sem smyglaði yfir hundrað kílóum af fíkniefnum til landsins.

Skútunnar enn leitað - tugir kílóa haldlögð

Lögreglan leitar enn að skútunni samkvæmt fréttatilkynningu sem lögreglan sendi frá sér vegna fíkniefnamálsins. Lögreglan hefur lagt hald á tugi kílóa af fíkniefnum en þeir vilja ekki gefa upp hvaða tegund um er að ræða en þær eru fleiri en ein.

Nokkrir handteknir og þyrlur lentar

Þyrlur Landhelgisgæslunnar er lentar á Höfn í Hornafirði og Fokker vél gæslunnar var að taka á loft. Ekki þykir ljóst hvað er um að vera en samkvæmt heimildum Vísis þá veitti gæslan smyglskútu eftirför.

Smyglskúta á flótta

Lögreglan auk Landhelgisgæslunnar er að reyna að stöðva smyglskútu sem er á siglingu frá landinu samkvæmt heimildum Vísis.Skútan mun hafa komið til landsins í gærkvöldi og þá stoppað við Djúpavog. Hún er nú á siglingu á sunnanverðum Austfjörðum, nálægt Höfn í Hornafirði. Mikill viðbúnaður virðist vera í kringum Höfn í Hornafirði.

Samfylkingarkona notuð í auglýsingu Framsóknar

„Þetta er virðingaleysi og skeytingaleysi og í raun vandræðalegt klúður," segir Marsibil Sæmundsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar en ef glöggir menn skoða nýjustu kosningaauglýsingar Framsóknarflokksins, þá má sjá hana glaðbeitta undir slagorðinu: „Frumkvæði fyrir okkur öll."

Risaveggur fauk á bíla

Fjórir bílar lentu undir risavegg sem huldi vinnusvæðið þar sem stóri bruninn átti sér stað á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Það var rok sem felldi vegginn en að minnsta kosti fjórir bílar urðu undir veggnum þegar hann hrundi.

Björgunarsveitir kallaðar út vegna óveðurs

Björgunarsveitin Landsbjörg auk lögreglunnar fara nú um höfuðborgarsvæðinu og aðstoða þá sem hafa lent í vandræðum vegna mikils roks. Verstu hviðurnar eru að fara upp í 28 metra á sekúndu en samkvæmt varðstjóra lögreglunnar þá hafa mörg útköll verið upp í Salahverfinu í Kópavogi.

Handtekinn fyrir gripdeild

Ungur karlmaður var handtekinn í Breiðholti í um klukkan níu í gærkvöldi vegna gripdeildar. Maðurinn fór bakdyrameginn inn í söluturn og hrifsaði peninga sem þar lágu. Starfsfólk náði að hlaupa manninn uppi og handsama hann. Maðurinn var í annarlegu ástandi að sögn lögreglu en hann fékk að gista fangageymslur í nótt og verður yfirheyrður í dag.

Sextán ára á rúntinum

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ungan ökumann á Suðurnesjum í nótt. Þegar betur var að gáð kom í ljós að hann reyndist sextán ára gamall og því ekki með tilhlýðileg ökurréttindi.

Dyraverðir barðir á balli

Dyraverðir voru slegnir á balli sem var haldið eftir söngkeppni Framhaldsskólanna sem fram fór á Akureyri. Að öðru leytinu til fór helgin furðu vel fram að mati varðstjóra lögreglunnar á Akureyri.

Aukin fátækt á Íslandi

Þrefalt fleiri hafa leitað til Hjálparstarfs kirkjunnar eftir aðstoð á þessu ári miðað við sama tíma í fyrra. Ungu fólki fjölgar mest og eru dæmi um að fólk sé of fáttækt til að geta greitt fyrir læknisþjónustu og lyf.

Ekki hlutverk AGS að sækja um styrki fyrir fullvalda ríki

Hugmyndir sjálfstæðismanna að taka upp evru í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eru óraunhæfar að mati sérfræðings í Evrópumálum. Hann segir ólíklegt að hægt verði að taka upp evru án beinnar aðildar að sambandinu.

Ástþór fór heim til lögreglustjórans

Frambjóðandi Lýðræðishreyfingarinnar, Ástþór Magnússon, fór að heimili Stefáns Eiríkssonar í dag og hvatti hann til þess að bregðast við kærum sem hann hefur lagt fram gegn RÚV undanfarið. Áður fór Ástþór upp í höfuðstöðvar Ríkissjónvarpsins og kallaði lögreglu á vettvang. Hann var þá vopnaður gjallahorni og gekk hringinn í kringum húsið með sírenuhljóð á.

300 kannabisplöntur í heimahúsi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í einbýlishúsi í Breiðholti síðdegis á fimmtudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 300 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar.

Grafan er gjörónýt

Hjólaskóflan sem kviknaði í við Sléttuveg um tvöleytið er gjörónýt.

Blaðakona og fegurðardrottning dæmd fyrir njósnir

Íransk-bandaríska fréttakonan Roxana Saberi hefur verið dæmd í átta ára fangelsi í Íran. Roxana hefur verið búsett í Íran í sex ár og starfaði meðal annars sem blaðakona fyrir BBC, Fox News og fleiri fréttastöðvar. Hún var upprunalega handtekinn í janúar á þessu ári en réttarhöldin yfir henni hafa verið lokuð.

Ísland þriðja heims land í tannlækningum

„Við stefnum í það að verða þriðja heims land í tannlækningum," segir formaður tannlæknafélags Íslands, Ingibjörg S. Benediktsdóttir, en félagið hefur boðið upp á ókeypis tannlækningar fyrir börn í Læknasetrinu við Vatnsmýrarveg, nálægt BSÍ.

Fíkniefnaakstur víðsvegar um landið

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvo ökumenn fólksbifreiða sem voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá fyrri er grunaður um akstur undir áhrifum kannabisefna en farþegi í þeirri bifreið losaði sig við hvítt efni, ætlað amfetamín, á gólf bifreiðarinnar þegar hann varð var við lögreglu.

Tóbaksþjófs leitað

Brotist var inn í verslunina Fosshól í Ljósavatnsskarði nærri Húsavík í nótt. Innbrotsþjófur braut rúðu á dyr búðarinnar og fór þannig inn.

CCP gætu þurft að flytja úr landi

Tölvufyrirtækið CCP gæti þurft að flytja höfuðstöðvar fyrirtækisins úr landi. Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP, segir að fyrirtækið geti ekki búið við gjaldeyrishöft lengur en í um það bil tvö ár til viðbótar.

Líkja eftir sprengjuhótun

Viðbrögð við sprengjuhótun og nauðlendingu verða æfð á Keflavíkurflugvelli í dag. Keflavíkurflugvöllur ohf. og lögreglustjórinn á Suðurnesjum efna til æfingarinnar í samvinnu við almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Líkt verður eftir sprengjuhótun um borð í flugvél sem endar síðan með slysi eftir lendingu.

Meirihluti vill afturkalla kvóta

62,5 prósent segjast vilja afturköllun núgildandi aflaheimilda, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 37,5 prósent eru því mótfallin.

Vilja sameina þjóðir Evrópu með lestarsmíð

Nemar við málmdeild Borgarholtsskóla eru nú í óða önn að ljúka við gerð líkans af lestarteinum sem hefur tekið tvö ár að smíða. Þeir fylgja sérstöku lestarlíkani sem er samvinnuverkefni 24 evrópskra skóla og verður frumsýnt í húsakynnum Evrópusambandsins í Brussel í næstu viku.

Vopnaðar þotur æfðu aðflug

Danskar F16 orrustuþotur sem staddar voru hér á landi við loftrýmisgæslu æfðu aðflug að Akureyrarflugvelli 21. og 22. mars síðastliðinn. Þær voru vopnaðar vélbyssum og léttum flugskeytum.

Árni Þór og Alexandra úr keppni í Idol

Árni Þór og Alexandra duttu úr keppni í Idol stjörnuleit en sjö keppendur kepptu í Smáralindinni í kvöld. Þema kvöldsins voru lög frá árunum 1970 til 1980. Dómarar kvöldsins voru nokkuð sáttir með frammistöðu keppenda og mikil stemmning var salnum. Það eru því fimm keppendur eftir í Idol stjörnuleit en næsti þáttur fer fram í Smáralindinni að viku liðinni.

Pólverji tekinn með kíló af amfetamíni

Pólskur karlmaður var tekinn af tollvörðum í Leifsstöð í gær með um eitt kíló af amfetamíni, sem falið var í þykkbotna skóm. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald.

Lundinn kominn til Grímseyjar - myndir

Lundinn er kominn til Grímseyjar en hann lét sjá sig í gærkvöldi við mikla hrifningu íbúa. Nokkuð mikið er af Lundanum nú í ár ef marka má meðfylgjandi myndir sem hún Anna María sendi okkur.

Listar Ástþórs í lagi

Landskjörstjórn úrskurðaði í dag að listar Lýðræðishreyfingar Ástþórs Magnússonar í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður séu gildir.

Vilja taka upp evru í samstarfi við AGS

Sjálfstæðisflokkurinn vill að leitað verði eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um upptöku evru hér á landi. Þingmaður flokksins segir viðbúið að skoðanir sambandsins á einhliða upptöku Evru hafi breyst í kjölfar efnhagskreppunnar.

Síbrotamaður í gæsluvarðhald

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni sem grunaður er um fjölda þjófnaðarbrota. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til 11.maí næst komandi. Maðurinn kærði þann úrskurð til Hæstaréttar sem staðfesti fyrri úrskurð héraðsdóms í dag.

Sumarnám við Háskólann á Akureyri

Til að koma til móts við óskir nemenda um sumarnám er Háskólinn á Akureyri reiðubúinn að bjóða upp á sumarnámskeið í viðskiptafræði, raunvísindum, félagsvísindum og kennaranámi. Áætlun um sumarnám var kynnt fyrir háskólaráði í dag og lýsti ráðið yfir sérstakri ánægju með hana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri.

Segir næstu ríkisstjórn eiga að sækja um ESB-aðild

Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í dag að sjaldan hefði slíkt ávarp verið haldið á meiri óvissutímum og rakti þær hugmyndir sem hún taldi skipta mestu til að eyða þeirri óvissu. Hún ítrekaði vilja sinn til að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu og sagðist þess fullviss að það yrði gæfuspor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Ósáttur við dóminn í Pirate Bay málinu

„Ég er ekki ánægður með þennan dóm verð ég að segja. Að þriðji aðilinn fái slíka útreið í dómsstólum," segir Svavar Lúthersson um dóm héraðsdómstóls í Stokkhólmi sem dæmdi fjóra aðstandendur skráarskiptavefjarins Pirate Bay í ársfangelsi og til að greiða 450 milljónir í skaðabætur.

Þingmaður orðaður við formannsframboð í HSÍ

Gunnar Svavarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er orðaður við formannsframboð í Handknattleikssambandi Íslands en ársþing sambandsins fer fram á miðvikudaginn í næstu viku. Gunnar á síður von á því að taka að sér trúnaðarstörf í íþróttahreyfingunni.

Sænska leiðin til umræðu á Alþingi

Þingfundir standa enn yfir á Alþingi. Nú rétt fyrir klukkan fjögur var tekið á dagskrá frumvarp um breytingar á almennum hegningarlögum sem gerir ráð fyrir að kaup á vændi verði gerð refsiverð.

Úthlutaði 25 milljónum til atvinnumála kvenna

Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fengu úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir úthlutaði 25 milljónum til atvinnumála kvenna við athöfn í Iðnó í dag.

Bjóða aftur upp á ókeypis tannlækningar

Tannlæknafélag Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands munu á morgun laugardag bjóða barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á ókeypis tannlæknaþjónustu. Það var einnig gert fyrir hálfum mánuði og þá komu yfir 30 börn og unglingar í skoðun.

Sjá næstu 50 fréttir