Fleiri fréttir

Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn

Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn.

Dæmdur fyrir vörslu á mjög grófu barnaklámi

Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í 12 mánaða fangelsi en þar af eru 9 mánuðir skilorðsbundnir, fyrir vörslu barnakláms og dreifingu þess. Um var að ræða rúmlega tíu þúsund ljósmyndir og 86 hreyfimyndir sem samtals eru 31 klukkutími að lengd. Maðurinn sankaði efninu að sér á netinu og vistaði í tölvubúnaði sínum.

Hnífakastmaðurinn dæmdur í 18 mánaða fangelsi

Hnífakastmaðurinn svokallaði var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu að því er fram kemur á dv.is. Maðurinn var ákærður fyrir að beita börnin sín þrjú ofbeldi neitaði staðfastlega sök allan tímann. Hann var meðal annars ákærður fyrir hafa kastað hnífum að elsta barni sínu.

Þyrla kölluð út eftir að neyðarblys sást á lofti

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á ellefta tímanum í gærkvöldi tilkynning í gegn um Neyðarlínuna um að neyðarblys hefði sést á lofti norður frá Eiðistorgi. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ var við næturæfingar við Straumsvík með björgunarskipinu Einari Sigurjónssyni og fór samstundis til leitar. Flaug þyrlan norður frá Eiðistorgi, að Akranesi og tilbaka.

VG með allt uppi á borði

Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna.

Samfylkingin ber við trúnaði og neitar að gefa upp helstu styrktaraðila

Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar neitar að gefa upp hverjir voru helstu styrktaraðilar flokksins á árinu 2006. Sýna þurfi styrkjendum trúnað. Framlag FL Group til Sjálfstæðisflokksins undir lok þess árs, nam ríflega helmingi af samanlögðum framlögum lögaðila til flokksins árið eftir.

Jóhanna skipar starfshóp um siðareglur ráðherra

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 17. mars skipað starfshóp sem ætlað er að semja drög að siðareglum fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, er formaður starfshópsins.

Vélsleðaslys aukast umfram vélsleðaeign

Nokkur aukning hefur átt sér stað á vélsleðaeign landsmanna síðustu 6 árin eða um 35%. Aukning tjóna á sama tíma er 53%. Þó hefur fjöldi slasaðra staðið í stað eða um 37 manns á ári. Alls hafa 183 slasast á vélsleðum þessi 6 ár í 443 tjónum. Það sem af er þessu ári hafa 9 slasast eða látast í 50 tjónum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forvarnarhúsinu.

Kjör neytenda myndu stórbatna við aðild Íslands að ESB

Talsmaður neytenda telur réttindi neytenda lítið breytast þó að aukaaðild Íslands að ESB yrði að fullri aðild. Öðru máli gegni hins vegar um kjör neytenda sem myndu stórbatna við aðild sem og möguleikar íslenskra aðila til þess að bæta stöðu neytenda hérlendis.

Sjálfstæðismenn gagnrýndu forseta Alþingis

Sjálfstæðismenn gagnrýndu fundarstjórn Guðbjarts Hannessonar, forseta Alþingis, í upphafi þingfundar í dag. Þingmennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Möller og Pétur Blöndal sögðust öll hafa viljað leggja óundirbúnar fyrirspurnir fyrir ráðherra en sá liður var ekki á dagskrá né sérstök umræða um störf þingsins. Arnbjörg sagði forseta umturna öllum venjum í þinginu með því að hafa hvorugan liðin á dagskrá.

Síbrotamaður sem ók á hurðir í gæsluvarðhaldi

Þrítugur karlmaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær vegna auðgunarbrota, meðal annars eftir að hafa ekið stolnum bíl á dyr verslana, var í dag úrskurðaður í þriggja vikna síbrotagæslu.

Þakkaði forsetanum fyrir pólska lánið

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, þakkaði Lech Kaczynski, forseta Póllands, á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins um síðustu helgi fyrir drenglyndi Pólverja þegar bankahrunið brast á í haust.

FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk

FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn árið 2007. Fram kom í fréttum okkar í gærkvöld að félagið lagði þrjátíu milljónir inn á reikning flokksins í lok árs 2006. Frjálsyndi flokkurinn fékk heldur ekki styrk frá FL Group árið 2007.

Skora á stjórnvöld að tryggja sumarannir

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, taka undir þá kröfu stúdenta að háskólar landsins opni dyr sínar til að mæta atvinnuleysi námsmanna í sumar. Framhaldsskólar þurfa sömuleiðis að koma til móts við nemendur sína nú meðan tímabundið atvinnuleysi er mest. Ungir jafnaðarmenn segja að hið opinbera tapar miklum peningum á að bregðast ekki við með þessum hætti. Þá mótmæla Ungir jafnaðarmenn misrétti milli nemenda einkarekinna og opinberra háskóla.

Við höfum reynsluna

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði Sjálfstæðisflokkinn bera mikla ábyrgð með innleiðingu frjálshyggju sem þróast hafi í taumlausa græðgisvæðingu og gróðadýrkun, ofurlaun, bruðl og siðleysi.

Fundu kannabis í bíl á Blönduósi

Um klukkan tíu í gærkvöldi var bifreið á norðurleið stöðvuð af lögreglunni á Blönduósi er hún var á leið í gegnum bæinn. Ástæða stöðvunarinnar var reglubundið „tékk" eins og segir í tilkynningu. Í bílnum fannst hinsvegar töluvert magn af fíkniefnum og sennilega um einn stærsta fíkniefnafund bæjarins að ræða hingað til.

Þingið þarf að afsala sér valdi tímabundið

Þar sem Alþingi hefur gert margar árangurslitlar tilraunir til að breyta stjórnarskránni á síðustu 40-50 árum er nauðsynlegt að taka stjórnarskrárgjafarvaldið tímabundið úr höndum þingsins og færa til þjóðarinnar.

Skuldir sliga heimilin

„Það er grafalvarleg staðreynd að 50 til 100 hafa að jafnaði misst atvinnu á hverjum einasta degi síðustu vikur og mánuði,“ sagði Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sem sagði atvinnuleysi átján þúsund manns óviðunandi og kröfur um róttækar aðgerðir stjórnvalda því eðlilegar. Stuðla yrði að mannfrekum framkvæmdum og huga að fjölbreyttum atvinnutækifærum.

Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar

„Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006.

Ökufantur: „Ég treysti bara ekki lögreglunni"

„Ég var á þunglyndislyfjum en ég má aka hvaða bifreið sem er á þeim," segir tuttugu og fimm ára gamall maður sem var handtekinn í gær eftir mikla eftirför lögreglu sem spannaði allt frá Bústaðavegi langt inn í Grafavog. Maðurinn var handtekinn í kjölfarið og hefur nú verið kærður fyrir margvísisleg umferðalagabrot auk þess að stofna almenningi í hættu. Sjálfur segist hann hafa ekið á brott eftir að lögreglan skipaði honum að fara yfir í lögreglubifreið, án þess að tiltaka hvers vegna.

Þurfum aukna tekjuöflun og aðhald í ríkisrekstri

Steingrímur Sigfússon fjármálaráðherra sagði að starfsöm og samhent ríkisstjórn sem tók við 1. febrúar hefði komið miklu í verk eftir að nýfrjálshyggja Sjálfstæðisflokksins hafði beðið skipbrot eftir átján ár.

Lögreglan lýsir eftir sextán ára pilti

Pilturinn strauk frá heimili sínu síðastliðinn sunnudag og hefur ekki sést síðan. Í tilkynningu frá lögreglu segir að pilturinn sé 16 ára gamall, 190sm á hæð, grannvaxinn og ljósskolhærður.

Dópsali handtekinn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í fjölbýlishúsi í Hlíðunum í Reykjavík eftir hádegi í dag. Um var að ræða um 50 gr. af marijúana en talið er að það hafi verið ætlað til sölu. Húsráðandi, piltur um tvítugt, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Hefur áhyggjur af stöðu námsmanna

Birkir J. Jónsson segir það grafalvarlegt mál að 50 – 100 manns hafi misst vinnuna á hverjum degi undanfarna mánuði og að 18 þúsund manns séu

Olía gæti fundist undir Íslandi

Olíu gæti verið að finna undir norðausturhluta Íslands, að mati jarðfræðings hjá Olíustofnun Noregs. Hann segir að bora verði djúpt undir þykk hraunlög til að finna það áhugaverðasta.

Sýknaður í Hæstarétti: „Réttlætið sigraði að lokum“

Anton Kristinn Þórarinsson var í dag sýknaður í Hæstarétti af fíkniefnainnflutningi en hann hafði áður verið sakfelldur ásamt Jóni Halldóri Arnarssyni fyrir innflutning á samtals 701,54 grömmum af kókaíni í Héraðsdómi. Efnin voru flutt í tvennu lagi til Íslands frá Hollandi um Danmörku, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Jón Halldór játaði aðild sína að innflutningnum með þeim athugasemdum að hann hefði ekki lagt á ráðin um innflutninginn með Antoni.

Sjálfstæðismenn leggja til sáttaleið

„Sterk krafa er um það í samfélaginu að þingmenn snúi bökum saman og móti lausnir og úrræði fyrir heimili og fyrirtæki í vanda. Okkar mat er að þetta verkefni sé það mikilvægasta sem liggi fyrir þinginu um þessar mundir,“ segir í opnu bréfi til Guðbjarts Hannessonar sem allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins skrifa undir.

Starfshópur um aukinn hlut kvenna í sveitarstjórnum fundaði

Starfshópur sem samgönguráðherra skipaði nýverið sem leggja á fram tillögur um aðgerðir stjórnvalda til að jafna betur stöðu kynjanna í sveitarstjórnum kom næstu sveitarstjórnarkosningar kom saman til fyrsta fundar í dag.

Þingmenn allra flokka einhuga um skýrslu bresku þingnefndarinnar

Kristrún Heimisdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sagði að skýrsla fjármálanefndar breska þingsins væri lýsing á beinni árás bresku ríkisstjórnarinnar á grunnstoðir íslensks samfélags. „Þetta er móralskur sigur,“ sagði varaþingmaðurinn.

Umræður um stjórnarskrá skammt á veg komnar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra sakaði sjálfstæðismenn um málþóf á vikulegum blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu fyrr í dag. Sagði hún að umræða um stjórnskipunarlög hafa tekið 34 klukkustundur og sjálfstæðismenn hefðu talað í 75% af þeim tíma. Sagði hún ræður sjálfstæðismanna einnkennast af endurtekningum og greinilegt væri að þeir beittu málþófi.

Niðurskurði á framlögum til mannaflsfrekra framkvæmda mótmælt

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að það hafi vakið athygli að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, hafi varið 265 milljón króna niðurskurð á framlögum til mannaflsfrekra viðhaldsframkvæmda. Rætt var um atvinnumál og stöðu þeirra í Reykjavík á fundi borgarstjórnar í dag.

Heilbrigðisstofnunin í Eyjum segir upp starfsfólki

Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum fékk afhent uppsagnarbréf í síðustu viku en uppsögnin er liður í niðurskurði sem stofnunin glímir við um þessar mundir. Öllum var boðinn nýr samningur með 5% skertu starfshlutfalli. Þetta kemur fram í frétt Eyjafrétta.

Nýir skrifstofustjórar í samgönguráðuneytinu

Kristján Möller, samgönguráðherra, hefur skipað tvo nýja skrifstofustjóra í samgönguráðuneytinu til næstu fimm ára. Karl Alvarsson, lögfræðingur, verður skrifstofustjóri samgönguskrifstofu og Sigurbergur Björnsson, verkfræðingur, verður skrifstofustjóri samskiptaskrifstofu.

Endurtekningar sjálfstæðismanna - frumvarpið rætt í 34 klukkustundir

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að umræða um frumvarp forystumanna allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins til stjórnskipunarlaga hafa tekið 44 klukkustundir. Þar af hafi sjálfstæðismenn talað í 75% af þeim tíma. Þetta kom fram í máli Jóhönnu á fundi með blaðamönnum í dag.

Helga bendir á ólíka sýn Tryggva Þórs

Helga Vala Helgadóttir, laganemi og Samfylkingarkona, gerir yfirlýsingar Tryggva Þórs Herbertssonar, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi efnahagsráðagjafa forsætisráðherra, að umfjöllunarefni á bloggsíðu sinni í dag.

Brown fær bréf frá ríkisstjórninni

Ríkisstjórn Íslands sendi Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands bréf í morgun í tengslum við niðurstöðu fjármálanefndarinnar á breska þinginu. Nefndin koms meðal annars að þeirri niðurstöðu að beiting hryðjuverkalaganna gegn Íslendingum á sínum tíma hafi verið mjög gagnrýniverð aðgerð.

Eignir sökudólganna upp í skuldir á undan eignum almennings

Hagfræðingarnir Gunnar Tómasson og Ólafur Ísleifsson mættu í Bítið í morgun og ræddu Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og stöðu ríkisins og heimilanna. Þeir félagar eru báðir fyrrverandi starfsmenn AGS og voru þeir nokkuð sammála um það að þeir, Michael Hudson og John Perkins, sem verið hafa hér á landi undanfarna daga og gagnrýnt AGS harðlega, hafi tekið of djúpt í árinni. Ólafur sagðist alls ekki getað tekið undir þær fullyrðingar að AGS væri að vinna gegn hagsmunum Íslendinga.

Þingmaður vill fresta kosningunum

Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, vill fresta þingkosningunum sem fram fara 25. apríl um mánuð. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. Hann sagði sérkennilegt ástand í þinginu og benti á að þingmenn hafi ekki haft tækifæri til að fara út í kjördæmin og kynna sig.

Fagfélagið gefur Krabbameinsfélaginu milljón

Í gær afhenti Fagfélagið Ragnheiði Alfreðsdóttur, forstöðumanni Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, eina milljón króna til styrktar átakinu Karlmenn og krabbamein. Fagfélagið er stéttarfélag sem varð til í desember þegar Trésmiðafélag Reykjavíkur og Félag byggingamanna Eyjafirði runnu saman.

Sjá næstu 50 fréttir