Samfylkingin ber við trúnaði og neitar að gefa upp helstu styrktaraðila 8. apríl 2009 12:02 Forysta Samfylkingarinnar. Mynd/Daníel Rúnarsson
Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar neitar að gefa upp hverjir voru helstu styrktaraðilar flokksins á árinu 2006. Sýna þurfi styrkjendum trúnað. Framlag FL Group til Sjálfstæðisflokksins undir lok þess árs, nam ríflega helmingi af samanlögðum framlögum lögaðila til flokksins árið eftir. „Ég mun ekki gefa upp framlög frá einstökum lögaðilum eða einstaklingum fyrir árið 2006," sagði Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar í samtali við Fréttastofu í morgun. Hún vísar til þess að þá hafi önnur lög gilt um fjármál stjórnmálaflokkanna og Samfylkingunni beri ekki lagaskylda til að upplýsa um þetta. Samfylkingin sýni þeim sem styrkja flokkinn trúnað í þessum efnum. Hún segir þó, sem áður hefur komið fram, að framlög einstaklinga og lögaðila hafi numið fjörutíu og fimm milljónum króna þetta ár. Kosið var til Alþingis vorið 2007. Það ár námu framlög lögaðila til Samfylkingarinnar tuttugu og þremur og hálfri milljón króna. Sama ár fengu framsóknarmenn tuttugu og átta og hálfa milljón króna í styrki frá lögaðilum. Fyrsta janúar árið 2007 tóku gildi lög um fjármál stjórnmálaflokkanna, þar sem kveðið er á um hámarksstyrki frá einstökum aðilum og að flokkunum beri að birta bókhald sitt. Sjálfstæðisflokkurinn fékk það ár 56 milljónir króna í styrki frá lögaðilum. Skömmu fyrir áramótin tók flokkurinn við þrjátíu milljónum króna frá FL Group. Framlagið frá FL undir lok ársins nemur því ríflega helmingi allra styrkja frá lögaðilum sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk á kosningaári. Sjálfstæðisflokkurinn var einn flokka með jákvæða eiginfjárstöðu í árslok 2007; hátt í fjögur hundruð milljónir króna. Eigið fé Samfylkingarinnar var neikvætt um 27 milljónir; annað eins hjá Vinstri Grænum og Frjálslynda flokknum. Eigið fé Framsóknarflokksins var neikvætt um fjórar milljónir.
Kosningar 2009 Tengdar fréttir Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar „Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006. 7. apríl 2009 21:49 Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög „Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 21:38 Árni M: Ég hafði enga hugmynd „Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka. 7. apríl 2009 22:10 VG með allt uppi á borði Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna. 8. apríl 2009 12:09 Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu „Ég vissi þetta ekki og hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu hefði ég haft pata af henni og séð þetta rétt," segir Björn Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurður út í þrjátíu milljón króna fjárstyrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn veitti styrknum viðtöku þann 29. desember árið 2006, aðeins tveimur dögum áður en lög um hámarkstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 23:23 FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn árið 2007. Fram kom í fréttum okkar í gærkvöld að félagið lagði þrjátíu milljónir inn á reikning flokksins í lok árs 2006. Frjálsyndi flokkurinn fékk heldur ekki styrk frá FL Group árið 2007. 8. apríl 2009 09:34 FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar. 7. apríl 2009 18:34 Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að styrk FL Group Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að því sjálfur að biðja um 30 milljóna króna fjárstyrk frá FL Group. Nokkrir forystumenn flokksins segjast ekki hafa haft hugmynd um umræddan styrk. 8. apríl 2009 12:00 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira
Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar „Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006. 7. apríl 2009 21:49
Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög „Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 21:38
Árni M: Ég hafði enga hugmynd „Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka. 7. apríl 2009 22:10
VG með allt uppi á borði Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna. 8. apríl 2009 12:09
Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu „Ég vissi þetta ekki og hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu hefði ég haft pata af henni og séð þetta rétt," segir Björn Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurður út í þrjátíu milljón króna fjárstyrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn veitti styrknum viðtöku þann 29. desember árið 2006, aðeins tveimur dögum áður en lög um hámarkstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 23:23
FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn árið 2007. Fram kom í fréttum okkar í gærkvöld að félagið lagði þrjátíu milljónir inn á reikning flokksins í lok árs 2006. Frjálsyndi flokkurinn fékk heldur ekki styrk frá FL Group árið 2007. 8. apríl 2009 09:34
FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar. 7. apríl 2009 18:34
Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að styrk FL Group Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að því sjálfur að biðja um 30 milljóna króna fjárstyrk frá FL Group. Nokkrir forystumenn flokksins segjast ekki hafa haft hugmynd um umræddan styrk. 8. apríl 2009 12:00