Innlent

Eignir sökudólganna upp í skuldir á undan eignum almennings

Ólafur Ísleifsson.
Ólafur Ísleifsson.

Hagfræðingarnir Gunnar Tómasson og Ólafur Ísleifsson mættu í Bítið í morgun og ræddu Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og stöðu ríkisins og heimilanna. Þeir félagar eru báðir fyrrverandi starfsmenn AGS og voru þeir nokkuð sammála um það að þeir, Michael Hudson og John Perkins, sem verið hafa hér á landi undanfarna daga og gagnrýnt AGS harðlega, hafi tekið of djúpt í árinni. Ólafur sagðist alls ekki getað tekið undir þær fullyrðingar að AGS væri að vinna gegn hagsmunum Íslendinga.

Gunnar tók svipaðan pól í hæðina og tók hann dæmi af málefnum Indónesíu sem Perkins hefur tekið sem dæmi um slæm vinnubrögð og merki um að AGS gangi erinda auðhringa. „Á tuttugu og fimm ára starfsferli hjá sjóðnum vissi ég aldrei af slíku," sagði Gunnar. „Ég var sjálfur aðili að samningum AGS og Indónesíu um efnahagsáætlanir af því tagi sem þeir hafa núna hér á Íslandi," sagði Gunnar. „Það er ekki til stafur af því sem hann sagði sem má heimfæra upp á Indónesíu, ekki stafur."

Aðspurðir um framtíð Íslands og þá sérstaklega komandi mánuði sagði Ólafur framtíðina bjarta en öllu máli skipti hvernig haldið verði á málunum. Ólafur sagði að það þurfi að ganga fram af fullri hörku til að hljóta réttláta og sanngjarna málsmeðferð í samningum um skuldir ríksins og eðlilegt sé að þeir aðilar sem bera ábyrgð á þeim skuldir verði látnir borga. Ganga eigi fast eftir því að eignir þeirra verði sóttar og þær notaðar til að mæta þessum kröfum áður en gengið sé á almenning.

Að mati Gunnars eru Íslendingar ekki komnir nema hálfa leið niður í vandann. Hann sagðist ekki hafa séð neinar raunhæfar aðgerðir af hendi ríkisstjórnar til að bæta eða vernda stöðu heimilanna og kallaði þær hálfkák. Hann sagði sárt til þess að hugsa að hér hafi stjórnvöld ekki náð heildarsýn á hver vandinn er eða hvernig eigi að taka á honum. Skynsamlegast hefði verið að bíða með kosningar fram á haustið og nota tímann til að móta raunhæfa stefnu og bendir til dæmis á þá fásinnu að ekki hafi verið hreyft við verðtryggingunni.

Hér má nálgast spjall þeirra félaga frá því í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×