Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Öldungaráð skorar á ráðherra að endurskoða mál St. Jósefs Stjórn Öldungaráðs Hafnarfjarðar skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða afstöðu sína og hætta við fyrirhugaða lokun Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði. 16.1.2009 07:22
Eldsneyti hækkar um fjórar til sex krónur Skeljungur hefur hækkað bensínlítrann um fjórar krónur en verð á dísilolíu er óbreytt. N1 hefur hækkað bensínlítrann um sex krónur og dísillítrann um fjórar krónur. 16.1.2009 07:20
Íbúð fylltist af reyk eftir eldamennsku Slökkvilið var kallað að fjölbýlishúsi í Árbæjarhverfi í gærkvöldi þar sem íbúð hafði fyllst af reyk. Húsráðandi var fluttur á slysadeild vegna reykeitrunar en er á góðum batavegi. 16.1.2009 07:18
Tíu umferðaróhöpp á Akureyri Tíu umferðaróhöpp urðu á Akureyri frá hádegi og fram að kvöldmat í gær, sem öll eru rakin til flughálku á öllum götum bæjarins. Enginn meiddist alvarlega en þrír leituðu aðhlynningar á sjúkrahúsinu. 16.1.2009 07:17
Brotist inn í veitingastað á Hvolsvelli Brotist var inn í veitingastað og sjoppu á Hvolsvelli undir miðnætti og komust þjófarnir undan á bíl. Þrátt fyrir eftirgrennslan lögreglunnar á Hvolsvelli og Selfossi er bíllinn ófundinn. Ekki er ljóst hversu miklu þeir stálu en lögregla og rekstraraðili eru að kanna það. 16.1.2009 07:15
Handteknir eftir innbrot í gáma og bíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá menn í nótt vegna innbrota og þjófnaða. Fyrst voru tveir handteknir í Hafnarfirði þar sem þeir voru að brjótast inn í gáma og bíla. 16.1.2009 07:12
Kraftaverk að allir íbúar sluppu þegar hús brann við Klapparstíg Níu manns sluppu naumlega og ósárir út úr brennandi íbúðarhúsi að Klapparstíg 17 í Reykjavík í nótt. Þrjár stúlkur voru fluttar á slysadeild vegna gruns um reikeitrun, en þær hafa náð sér. 16.1.2009 07:06
Seðlabankinn skýri misvísandi ummæli Mat tveggja seðlabankastjóra á stöðu bankakerfisins á síðasta ári stangast á. Annar sagði engar líkur á að bankarnir kæmust af. Hinn sagði að haldið hafi verið í vonina. Davíð þarf að skýra málin, segir varaformaður Samfylkingarinnar. 16.1.2009 06:30
Gefa út meðferðarleiðbeiningar vegna piparúða Eitrunarmiðstöð Landspítalns hefur birt meðferðarleiðbeiningar fyrir piparúða og táragas. ,,Nokkuð hefur verið um að leitað hafi verið til eitrunarmiðstöðvarinnar á slysa- og bráðasviði LSH vegna vandamála sem tengjast þessum efnum," segir á vef spítalans. Leiðbeiningarnar eru notaðar á slysa- og bráðasviði af starfsmönnum fyrir sjúklinga sem koma til meðferðar vegna efnanna. 15.1.2009 21:47
Rúmlega 5000 sæti seld - íbúar á Fróni enn í ferðahug Alls seldust tæplega 5000 sæti, til fjögurra áfangastaða, fyrstu fimm klukkustundirnar á sérstökum tilboðum Iceland Express í dag. Eða um 1 þúsund sæti á klukkustund. Síðdegis var komið til móts við óánægju þeirra sem lentu í erfiðleikum með bókanir, með því að bæta 1000 tilboðsmiðum við þá 5000 sem upphaflega stóðu til boða. 15.1.2009 20:52
Fengu lyklana af einbýlishúsi starfslokabæjarstjórans Bæjaryfirvöld í Grindavík fengu í morgun afhenta lykla að dýrasta einbýlishúsi bæjarins. Bærinn keypti húsið á 50 milljónir í vikunni en seljandinn er fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, sem hagnaðist um 10 milljónir við söluna. 15.1.2009 20:00
Gísli Marteinn bað um leyfi í dag Á fundi borgarráðs í dag var lagt fram bréf Gísla Marteins Baldurssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann óskaði eftir leyfi frá störfum sem borgarfulltrúi frá 12. janúar til 1. júní. Leyfið ætlar Gísli að nýta til að ljúka námi en síðastliðið haust fór hann ásamt fjölskyldu sinni út til náms við Edinborgarháskóla. 15.1.2009 19:50
Víða hálka og hálkublettir Hálka og hálkublettir eru um land allt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir á Sandskeiði og frá Hveragerði að Selfossi. Snjóþekja er á milli Selfoss og Hvolsvallar. Hálka er víða í uppsveitum. Á Austurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Ófært og óveður er á Vatnskarð eystra. 15.1.2009 20:26
Fulltrúi innistæðueigenda í Belgíu færði ráðherra súkkulaði Fulltrúi fimmtíuþúsund innistæðueigenda í Kaupþingi í Belgíu sem fundaði með fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra og skilanefnd Kaupþings í dag segist hafa fengið loforð en engin skýr svör. Hann kom færandi hendi með belgískt súkkulaði og vottaði íslensku þjóðinni samúð sína. 15.1.2009 20:00
,,Við eigum ekki pening" Ferðum varðskipa Landhelgisgæslunnar verður fækkað og verulega dregið úr annarri starfssemi til að mæta vaxandi kostnaði. Stofnunin boðar hópuuppsagnir um næstu mánaðarmót. 15.1.2009 19:20
Ríkisstjórnin verður að forða fyrirtækjum frá gjaldþroti Framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna segir að stjórnvöld verði að grípa strax til aðgerða til forða fyrirtækjum í landinu frá gjaldþroti. Hann segir ástandið vera skelfilegt. 15.1.2009 18:57
Tap lífeyrissjóða meira en áður hefur verið greint frá Tap lífeyrissjóða landsins verður tug milljörðum króna meira en áður hefur verið greint frá. Eignir lífeyrissjóða í skuldabréfum fyrirtækja, sem sum hver eru í greiðslustöðvun, hafa ekki verið afskrifaðar. 15.1.2009 18:43
Tveir piltar úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í dag tvo pilta í viku gæsluvarðhald í tengslum við viðamikla aðgerð lögreglunnar á Selfossi í gær þegar framkvæmd var húsleit á sex stöðum á Selfossi, í Hveragerði og í Grímsnesi. Piltarnir eru 17 og 19 ára gamlir 15.1.2009 18:10
Landhelgisgæslan dregur úr starfsemi - á þriðja tug sagt upp Í ljósi erfiðs rekstrarumhverfis er einsýnt að draga þarf úr allri starfsemi Landhelgisgæslu Íslands. Dregið verður úr útgerð varðskipa, flugi, sjómælingum sem og annarri starfsemi. Fyrirhugað er að segja upp á bilinu 20 til 30 manns. Uppsagnir starfsmanna og aðrar breytingar í starfsmannahaldi munu snerta allar deildir Landhelgisgæslunnar. 15.1.2009 17:42
Vilja upplýsingar um arðsemi orkusölusamnings vegna álvers Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænna segja nauðsynlegt áður en orkusölusamningur Orkuveitu Reykjavíkur og Norðuráls vegna álvers í Helguvík verður lagður fram í borgarráði og afgreiddur í borgarstjórn að borgarfulltrúar fái góða yfirferð yfir arðsemi verkefnisins. 15.1.2009 17:41
Ljósmæður mótmæla breytingum í heilbrigðiskerfinu Ljósmæðrafélag Íslands mótmælir fyrirhuguðum breytingum í heilbrigðiskerfinu sem snúa að þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra í barneignarferli. Ljóst er að enn fleiri konur en áður munu þurfa að fæða börn fjarri heimili sínu og að breytingarnar munu hafa veruleg áhrif á þá samfélagsgerð sem íslenskar fjölskyldur hafa búið við. 15.1.2009 16:51
Brennuvargur í gæsluvarðhald Karlmaður sem handtekinn var í gær grunaður um að hafa kveikt í húsi við Tryggvagötu hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. janúar. Lögregla er enn að taka skýrslur af vitnum en játning mannsins liggur fyrir að mestu leyti. Ung kona var í húsinu þegar eldurinn kviknaði en komst út ómeidd. Húsið er töluvert skemmt. 15.1.2009 16:14
Verkfræðingur stofnar stjórnmálaflokk Verkfræðingurinn Friðrik Hansen Guðmundsson hefur ásamt öðrum stofnað Norræna Íhaldsflokkinn. Hann segist horfa til borgaraflokkanna í Skandinavíu og vill að Ísland gangi í Evrópusambandið. Honum hefur fundist íslenskt samfélag hafa færst of mikið í átt til Bandaríkjanna og hér ríki of mikill Tatcherismi. Flokkurinn fer rólega af stað en Friðrik útilokar ekki framboð í næstu kosningum. 15.1.2009 15:47
Framsóknarmenn vilja sérstakan unglingadómstól Framsóknarflokkurinn vill að komið verði á fót sérstökum ungmennadómstól sem hafi heimild til að dæma ungmenni til meðferðarvistunar í stað hefðbundinnar fangelsisvistunar. Slíkt úrræði miði að því að byggja upp einstaklinginn og aðstoða hann á ný út í lífið. 15.1.2009 14:37
Lögregla stöðvar enn eina kannabisræktunina Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Jafnframt var lagt hald á búnað sem tengdist starfseminni sem og fjármuni sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. 15.1.2009 14:33
Ungt framsóknarfólk fremur gjörning Flokksþing Framsóknarflokksins verður sett í fyrramálið klukkan 10:00 í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Mikil spenna er fyrir fundinum en þar verður nýr formaður meðal annars kosinn. Drög að öllum ályktunum flokksþingsins hafa nú verið sett fram á vef félagsins. 15.1.2009 13:58
Enn tveir í haldi á Selfossi Enn eru tveir í haldi lögreglunnar af þeim sextán manns sem voru handteknir í viðamikilli aðgerð lögreglunnar á Selfossi i gær. Í aðgerðinni voru gerðar húsleitir á sex stöðum á Selfossi, í Hveragerði og í Grímsnesi í gær. 15.1.2009 13:55
Skólamáltíðir ódýrastar í Reykjanesbæ Verð á skólamáltíðum grunnskóla er lægst í Reykjanesbæ, eða um 190 krónur, ef miðað er við mánaðar- eða annaráskrift. Ef miðað er við yngstu bekki grunnskóla er verðið lægst í Skagafirði, eða 177 krónur. Þetta kemur fram í frétt á vef Neytendasamtakanna. 15.1.2009 13:34
Vantar 250 undirskriftir til að boða til nýrra álverskosninga Ekki náðist tilskilinn fjöldi undirskrifta til að hægt verði að boða til nýrra kosninga um stækkun álversins í Straumsvík. Bæjarráð Hafnarfjarðar fjallaði um málið í morgun. 15.1.2009 13:33
Innbrotsþjófur hljóp í flasið á húsráðanda Sjö innbrot í bíla voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en tölvum var stolið úr þremur þeirra. Tölvu var sömuleiðis stolið úr verslun í Kópavogi og í miðborginni gekk innbrotsþjófur í flasið á húsráðanda. Þjófurinn lagði á flótta en var handtekinn skömmu síðar. 15.1.2009 12:53
Vefþjónar Iceland Express hrundu vegna álags Iceland Express boðaði til rýmingarsölu á flugsætum í morgun sem stendur frá klukkan 12 á hádegi til miðnættis. Í kjölfar þess hrundu allir vefþjónar fyrirtækisins vegna álags en unnið er að viðgerð. 15.1.2009 12:21
Tjáir sig ekki um öryggismál ráðherra Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir að embættið vilji engar upplýsingar gefa um öryggismál ráðherra þjóðarinnar. 15.1.2009 12:10
Klámkóngur ákærður fyrir fjárdrátt Sigurður Valdimar Steinþórsson, sem þekktastur er fyrir að reka vefsíðuna klam.is, hefur verið ákærður fyrir að hafa á árinu 2005 dregið sér fjármuni í starfi við móttöku drykkjarumbúða á endurvinnslustöðvum Sorpu við Jafnasel og Sævarhöfða í Reykjavík og við Dalveg í Kópavogi. 15.1.2009 11:31
Ingibjörg lengur í meðferð en ráð var fyrir gert Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, verður lengur undir læknishendi í Svíþjóð en ráð var fyrir gert vegna þess höfuðmeins sem hún kenndi sér fyrst í september. 15.1.2009 11:27
Meintur brennuvargur bíður enn yfirheyrslu Maðurinn sem var handtekinn í gær í tengslum við bruna á Tryggvagötu hefur enn ekki verið yfirheyrður. Maðurinn var handtekinn fljótlega eftir að það kviknaði í húsinu en grunur leikur á að kveikt hafi verið í. Töluvert tjón varð á húsinu en engan sakaði. 15.1.2009 11:05
5000 flugsæti á rýmingarsölu Iceland Express Í ljósi núverandi efnahagsástands hefur Iceland Express ákveðið að efna til rýmingarsölu á 5000 flugsætum í janúar og febrúar. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að útsalan standi yfir í 12 klukkustundir, frá kl. 12 á hádegi til miðnættis. 15.1.2009 10:40
Íþróttamannvirkin vinsæl í Reykjanesbæ Fjöldi iðkenda í íþróttamannvirkjum Reykjanesbæjar árið 2008 var um 523 þúsund og hafði þeim fjölgað um tæp 20 þúsund frá árinu 2007. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Um 5 prósent fjölgun varð á sundgestum í Sundmiðstöðina/Vatnaveröld á milli ára en hana heimsóttu rúmlega 132 þúsund manns. 15.1.2009 09:42
Missti stjórn á bíl við Kúagerði Enginn slasaðist þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Reykjanesbraut við Kúagerði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði utan vegar og skemmdist talsvert. Talið er að krapi á veginum hafi valdið því að svona fór. 15.1.2009 07:13
Brotist inn í vinnuskúr og verslun Brotist var inn í vinnuskúr á Álftanesi og tölvuverslun í Kópavogi í nótt. Ekki er vitað hverju var stolið úr skúrnum en að minnsta kosti einnar fartölvu er saknað úr búðinni. Þjófarnir eru ófundnir og eru málin í rannsókn. 15.1.2009 07:10
Sextán handteknir í umfangsmikilli aðgerð Selfosslögreglu Sextán manns voru handteknir og húsleitir gerðar á sex stöðum á Selfossi, í Hveragerði og í Grímsnesi, í viðamikilli aðgerð lögreglunnar á Selfossi í gær. 15.1.2009 07:06
78 ár á milli elsta og yngsta þingfulltrúa Flokksþing framsóknarmanna verður haldið um næstu helgi í Valsheimilinu að Hlíðarenda við Öskjuhlíð í Reykjavík. Þar verður tekist á stefnu flokksins í Evrópumálum og ný forysta kjörin. 78 ár eru á milli elsta þingfulltrúans og þess yngsta sem verður 17 ára í mars næstkomandi. Elsti þingfulltrúinn er Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi ráðherra, frá Mjóafirði sem verður 95 ára í september. 14.1.2009 22:09
Umferðarslys á Reykjanesbraut Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning rétt fyrir hálf átta í kvöld um umferðaróhapp á Reykjanesbrautinni í Kúagerði. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni sökum krapa á Reykjanesbraut með þeim afleiðinum að hún hafnaði utan vegar á milli akreinanna. Engin slys á fólki en bifreiðin skemmdist talsvert og var flutt af vettvangi með kranabifreið. 14.1.2009 21:53
Geir biður ekki um aukna vernd Forsætisráðherra ætlar ekki að óska eftir aukinni vernd eftir að mótmælendur veittust að honum í gær. 14.1.2009 19:45
Forræði yfir auðlindum - aðildarviðræður við ESB Lagt er til að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu í ályktunardrögum sem verða lögð fyrir flokksþing Framsóknarflokksins sem hefst á föstudaginn. Einnig eru sett fram markmið í aðildarviðræðum í drögunum og eru fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum. 14.1.2009 19:39
Notkun nauðgunarlyfja algengri en tölur sýna Notkun deyfandi lyfja og svonefndra nauðgunarlyfja er talin mun algengari en tölur sýna. Margir sleppa með skrekkinn áður en til ofbeldis kemur. 14.1.2009 19:31