Innlent

Verkfræðingur stofnar stjórnmálaflokk

Breki Logason skrifar
Friðrik Hansen Guðmundsson
Friðrik Hansen Guðmundsson MYND/TEITUR

Verkfræðingurinn Friðrik Hansen Guðmundsson hefur ásamt öðrum stofnað Norræna Íhaldsflokkinn. Hann segist horfa til borgaraflokkanna í Skandinavíu og vill að Ísland gangi í Evrópusambandið. Honum hefur fundist íslenskt samfélag hafa færst of mikið í átt til Bandaríkjanna og hér ríki of mikill Tatcherismi. Flokkurinn fer rólega af stað en Friðrik útilokar ekki framboð í næstu kosningum.

„Það er ágætur hópur fólks sem er að vinna að þessu. Við erum ekkert að fara af stað með neinum lúðrablæstri og söng og ætlum okkur ekkert að gera það. Við höfum verið að nota netheima til að kynna þetta og viljum sjá hvernig þetta þróast," segir Friðrik sem hefur í nokkuð langan tíma velt fyrir sér hugmyndum sem þessum.

Hann segir að Norræni Íhaldsflokkurinn horfi til borgaraflokka í Skandinavíu en hann hefur fyrir löngu heillast af hugmyndafræði þeirra.

„Við viljum benda fólki á hvað megi betur fara í þessu samfélagi sem hefur færst of mikið í átt til Bandaríkjanna og Tatcherisminn hefur ráðið hér ríkjum. Við viljum horfa til annarra gilda en að skattleggja sjúklingana okkar og selja barnaskólana. Við viljum því benda á aðrar leiðir á hægri vængnum," segir Friðrik en flokkur hans staðsetur sig hægra megin og hefur Friðrik meðal annars verið virkur í starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í gegnum tíðina.

Friðrik er samt á því að umræða um inngöngu Íslands í evrópusambandið eigi ekki að vera flokkspólitísk, flokkar eigi ekki að taka afstöðu með eða á móti. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur hingað til hafnað því en við vonum að þar verði breyting á. Í dag er enginn hægri flokkur sem býður okkur hægri mönnum upp á að sitja til borðs með evrópuþjóðum," segir Friðrik en stofnun flokksins er liður í að breyta því.

Með stofnun flokksins vonar Friðrik að þær hugmyndir sem hann stendur fyrir komist í umræðuna hér á landi og hann útilokar ekki framboð í næstu kosningum.

„Ef hér fyllist allt af fólki í flokknum mun það taka ákvörðun um það. Þangað til er þetta bara áhugafólk sem vill benda á þessi atriði."

Hægt er að kynna sér Norræna Íhaldsflokkinn hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×