Fleiri fréttir

Lán til Orkuveitunnar frosin

Evrópskir bankar neita að afgreiða lán til Orkuveitu Reykjavíkur fyrr en ástandið lagast á Íslandi. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir að besti möguleikinn í spilunum til að höggva á hnútinn sé að koma álversframvæmdum í gang í Helguvík.

Galopin kröfuganga á gamlársdag

Enn bætist í mótmælaflóruna. Galopna kröfugangan verður farin á gamlársdag, í þetta sinn undir nafninu Ógöngur 2008.

Steingrímur vill fund í utanríkismálanefnd strax

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, hefur óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd svo fljótt sem því verður við komið vegna ástandsins á Gasa og til að fara yfir stöðu mála í deilunni vegna Icesave-reikninganna og hvar málarekstur gegn Bretum er á vegi staddur.

Tveimur í viðbót sagt upp hjá Kaupþingi

Líkt og fram kom í fréttum í gærkvöldi sagði Kaupþing upp þremur yfirmönnum bankans í gær. Tveir í viðbót hafa nú bæst í þann hóp en það eru Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi og Jónas Sigurgeirsson forstöðumaður samskiptasviðs bankans. Jónas segist skilja sáttur við bankann eftir níu ára starf.

UVG vilja alþjóðlegt viðskiptabann á Ísrael

„Ung vinstri græn fordæma grimmdarverk Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni og taka undir kröfu félagsins Íslands-Palestínu um að öllum stjórnmálasamskiptum Íslands við Ísraelsríkis verði hætt þar til það lætur af grimmdarverkum sínum,“ segir í ályktun Ungra vinstri grænna þar sem framferði Ísraelsmanna á Gaza er fordæmt.

Slysabætur og sjúkradagpeningar hækka

Bætur slysatrygginga almannatrygginga og sjúkradagpeningar hækka um áramótin samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, gaf reglugerðina út í dag og hækka fjárhæðir slysatryggingabóta almannatrygginga um 9,6% frá 1. janúar 2009.

Framferði Ísraelsmanna mótmælt á Lækjartorgi

Boðað hefur verið til útifundar til að mótmæla blóðsúthellingunum á Gaza á Lækjartorgi í dag, þriðjudaginn 30. desember klukkan fjögur. Fundurinn krefst þess að fjöldamorð Ísraelshers á Gaza verði stöðvuð og að Íslendingar slíti stjórnmálasambandi við Ísrael.

Innbrot og brunar á höfuðborgarsvæðinu

Töluverður erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Tilkynnt var um þrjú innbrot. Brotist var inn í Golfskálann í Garðabæ og í tvær flugeldasölur, aðra á Suðurlandsbraut og hina í Skeifunni.

Vestmannaeyjahöfn full af síld

Mjög mikið af síld er nú inni á höfninni í Vestmannaeyjum. Menn á vegum Hafrannsóknarstofnunar hafa verið á staðnum og tekið sýni úr síldinni til að kanna meðal annars hvort hún er sýkt eða ekki.

Nauðgaði fósturdótturinni tvisvar til þrisvar í viku í þrjú ár

Líkt og Vísir greindi frá í gærkvöldi var karlmaður um fertugt dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í gær fyrir að misnota fósturdóttur sína. Í dómnum kemur m.a fram að maðurinn hafði samræði við stúlkuna tvisvar til þrisvar sinnum í viku frá því hún var ellefu ára þar til hún var fjórtán ára gömul. Maðurinn neitaði sök allan tímann. Lögmaður mannsins býst fastlega við að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar.

Átta ára fangelsi fyrir að misnota fósturdóttur sína

Karlmaður um fertugt var í dag dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að misnota fósturdóttur sína á þriggja ára tímabili. Manninum var einnig gert að greiða stúlkunni 3 milljónir í skaðabætur.

Silja og Ragnar Ingi íþróttamenn Hafnarfjarðar

Mikið fjölmenni var á íþróttahátíð Hafnarfjarðar í íþróttahúsinu við Strandgötu í dag þar sem Silja Úlfarsdóttir frjálsíþróttakona úr FH og Ragnar Ingi Sigurðsson skylmingamaður úr FH voru krýnd Íþróttamenn Hafnarfjarðar. Þetta er í fyrsta skiptið sem "Íþróttakona og Íþróttakarl Hafnarfjarðar" eru valinn, en síðustu tuttugu og fimm árinn hefur verið valinn "Íþróttamaður Hafnarfjarða".

Sprengja sex til sjö hundruð tonn af flugeldum

Bardagatertur, skotkökur og risatertur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna meðal almennings og því er líklegt að víða standi tómir tertukassar á nýársdagsmorgni. Mælst er til þess að kaupendur flugelda fari sjálfir með umbúðir og aðrar skotleifar í endurvinnslustöðvar Sorpu.

Stöðvið fjöldamorðin á Gazaströnd

Félagið Ísland Palestína hefur boðað til útifundar vegna fjöldamorðanna á Gazaströnd á Lækjartorgi klukkan 16:00. Ögmundur Jónasson alþingismaður mun meðal annars halda ræðu á fundinum.

Skattalækkun fyrir meirihluta launþega

Mikil hækkun persónuafsláttar, upp í rúmlega 42 þúsund krónur á mánuði, þýðir skattalækkun fyrir meginþorra launþega nú um áramótin, og það umtalsverða fyrir þá tekjulægstu.

Helguvík skrefi nær

Álver í Helguvík er að komast á beinu brautina á ný með endurnýjuðum samningum Norðuráls við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja í dag og fjárfestingarsamningi við stjórnvöld.

Íslenskir iðnaðarmenn á unglingataxta í Danmörku

Íslenskum iðnaðarmönnum býðst nú að starfa erlendis á kjörum sem teljast undirboð og eru sambærileg þeim sem pólskum og portúgölskum starfsmönnum bauðst hérlendis. Formaður Samiðnar hvetur engan til að freista gæfunnar utan landsteinanna án þess að vera með tryggt atvinnutilboð í vasanum.

Nýi Glitnir lánar húsnæði til Nýsköpunar

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýi Glitnir undirrituðu í dag samning um rekstur nýs viðskiptaseturs í húsnæði Nýja Glitnis í Lækjargötu. Nýi Glitnir leggur til tvær hæðir í húsnæði bankans í Lækjargötu 12 en rekstur setursins verður í höndum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Leiguverð fer lækkandi

Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað frá því í apríl ef marka má nýja könnun sem Neytendasamtökin hafa birt á heimasíðu sinni. Í fyrsta tölublaði ársins 2008 frá því í apríl var leigumarkaðurinn kannaður og þótti mönnum þar á bæ tilvalið að endurtaka leikinn í árslok. Þar kom í ljós að allar tegundir íbúða hafa lækkað, fimm herbergja sýnu mest, eða um 18,5 prósent ef miðað er við meðalverð.

Tvær flugeldasýningar í kvöld

Höfuðborgarbúum er boðið upp á tvær stórar flugeldasýningar í kvöld. Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu verða með sýningu við Perluna klukkan 19:00 og Björgunarsveit Hafnarfjarðar verður við Hafnarfjarðarhöfn með sýningu í tilefni af 100 ára afmælis Hafnarfjarðarbæjar á árinu.

Konur algengara slúðurefni en karlar

Konur eru umfjöllunarefni í 22,5% frétta sem birtast á fréttavefjunum mbl.is og visir.is en karlar í 77,5%. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar Kristínar Ásu Einarsdóttur, sem skrifaði BA ritgerð í félagsfræði um kynjahlutfall og birtingarmyndir kynjanna í vefmiðlum.

Vill afnema leynd á orkuverði til Norðuráls

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur afgreiddi í dag samning á orkusölu til Norðuráls vegna álvers í Helguvík. Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi VG, í stjórninni vill að verðið á orkunni verði gert opinbert, en tillage þess efnis var felld á stjórnafundinum í morgun. Svandís yfirgaf þá fundinn eftir að hafa lagt fram bókun um málið.

Erlendum ferðamönnum fjölgaði um jólin

Tuttugu prósent fleiri erlendir ferðamenn voru hér á landi um jólin nú en í fyrra samkvæmt tölum Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin reikna þó með að heldur færri ferðamenn verði á landinu yfir áramótin en voru í fyrra. Um 3300 manns eiga bókaða gistingu á hótelum og gistiheimilum í Reykjavík um áramótin. Í fyrra dvöldu 3600 ferðamenn á gististöðum yfir áramótin, en það var metár hvað varðar fjölda ferðamanna.

Auðveldara að flokka sorpið í framtíðinni

Grenndargámakerfi SORPU hefur verið breytt á þann veg að flokkun sorps hefur verið gerð auðveldari. Frá áramótum verður blái gámurinn nýttur undir pappír og pappírsumbúðir og sá græni undir plastumbúðir.

Skip frá Samskipum í vandræðum í Rotterdam

Hvassafell, leiguskip Samskipa, lenti í erfiðleikum í höfninni í Rotterdam í Hollandi í gær þegar verið var að afferma skipið. Kom í ljós að talsverður sjór hafði komist í eina lest skipsins þar sem meðal annars voru gámar sem innihalda efnið „Aluminium Dross", sem við snertingu við vatn hvarfast og veldur þá hita og jafnvel íkveikju.

Gott flugeldaveður um mestallt land

„Það viðrar vel til sprenginga. Og þá sérstaklega á útrásarvíkingum,“ segir Sigurður „Stormur“ Ragnarson veðurfræðingur. Hann býst við fyrirtaks flugeldaveðri á gamlárskvöld, hæglætisveðri og léttskýjuðu með hita í kringum frostmark.

Halldór Ásgrímsson á gjörgæsludeild

Halldóri Ásgrímssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Þar hefur hann verið í tæpa viku. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis er Halldór á batavegi en hann veiktist af lungnabólgu fyrr í mánuðinum.

Persónuafsláttur hækkar verulega

Persónuafsláttur hækkar nú um áramótin um rúmlega átta þúsund krónur á mánuði og fer í liðlega 42 þúsund krónur.

Stika tugi kílómetra gönguleiða í Mosfellsbæ

Tæpir sjötíu kílómetrar gönguleiða verða á næstu misserum stikaðir í nágrenni Mosfellsbæjar, auk þess sem upplýsingaskilti og nestisskýli verða sett upp. Mosfellsbær og skátafélagið Mosverjar hafa undirritað samning um að hinir síðarnefndu annist stikunina og skipulagningu.

Lögreglan haldlagði metmagn af fíkniefnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haldlagt mun meira magn af fíkniefnum á götunni þetta ár heldur en áður, að sögn Karls Steinars Valssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns. Hann segir ástæðuna vera þá að í byrjun ársins hafi lögreglan sett upp lista með um 150 mönnum sem lögreglan taldi vera virkustu sölumenn landsins.

Tindastóll opinn í dag

Þrátt fyrir umhleypingar á Suðurlandinu er nægur snjór fyrir norðan og verður skíðasvæðið í Tindastóli opið til klukkan fjögur í dag. Tæplega þriggja gráðu hiti er í fjallinu, suðvestanátt og vindhraði um fimm metrar á sekúndu.

Gefa 27 þúsund hlífðargleraugu

Blindrafélagið og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hafa sent öllum 10-15 ára börnum, liðlega 27 þúsund talsins, gjafabréf fyrir flugeldagleraugu. Þessum gjafabréfum má framvísa á öllum flugeldasölustöðum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til að fá gleraugun afhent.

Vill slíta samskiptum við Ísrael

Félagið Ísland-Palestína segir íslensk yfirvöld eiga að slíta samskiptum við Ísraelsríki verði það ekki við kröfum um að hætta tafarlausts árásum á Gaza.

Lögregluaðgerð á Réttarholtsvegi

Lögreglan lokaði fyrir skömmu brúnni yfir Miklubraut við Réttarholtsveg en hún hefur verið opnuð að nýju. Ökumaður bifreiðar sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva og upphófst eltingaleikur sem endaði með því að lögregla króaði bílinn af á brúnni. Ökumaðurinn mun hafa verið ölvaður eða undir áhrifum fíkniefna.

Vöktu hálft Garðahverfið með skoteldum

Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt var talsvert magn af skoteldum tekið af unglingum, sem vakið höfðu upp hálft Garðahverfið í Reykjanesbæ. Unglingarnir voru vopnaðir öflugri teygjubyssu, sem þeir notuðu til að skjóta skoteldunum með.

Strandaði þegar sjálfstýring bilaði

Lítill plastbátur, Hlöddi VE-98, sigldi upp í fjöru og strandaði um sexleytið í morgun þegar sjálfstýring hans bilaði. Bátur Björgunarfélags Vestmannaeyja var ræstur út og dró hann bátinn á flot og til hafnar. Ekki kom leki að honum en dytta þarf að skemmdum. Tveggja manna áhöfn sakaði ekki.

Kveikt í mörgum ruslagámum í nótt

Töluverður erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og nótt og þurfti liðið að sinna alls átta útköllum þar sem kveikt hafði verið í ruslagámum.

Sjá næstu 50 fréttir