Innlent

Gefa 27 þúsund hlífðargleraugu

Blindrafélagið og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hafa sent öllum 10-15 ára börnum, liðlega 27 þúsund talsins, gjafabréf fyrir flugeldagleraugu. Þessum gjafabréfum má framvísa á öllum flugeldasölustöðum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til að fá gleraugun afhent.

Í fréttatilkynningu vegna gjafarinnar segir að því miður sýni reynslan að um hver áramót verði slys í tengslum við flugeldavörur. Algengast sé að einstaklingar slasist á höndum, andliti og augum og megi rekja flest þessara slysa til þess að hvorki sé farið eftir grundvallarreglum um notkun flugelda né leiðbeiningum um meðferð þeirra.

Augnslysum um áramót hafi fækkað mikið undanfarin ár sem megi meðal annars þakka aukinni notkun flugeldaglerauga. Þó séu alltaf einhverjir sem þurfi að leita læknis vegna augnslysa og samkvæmt upplýsingum frá slysa- og bráðadeild Landspítala í Fossvogi hafi þeir verið 14 talsins síðustu áramót. Gleraugun geti komið í veg fyrir augnslys og ættu allir að bera þau sama hvort viðkomandi sé að skjóta upp eða eingöngu að horfa á.

Gleraugun eru gefin með stuðningi frá Prentsmiðjunni Odda og Póstinum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×